Innlent

Loksins opið í Bláfjöllum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skíðaáhugafólk getur skellt sér í Bláfjöll í dag.
Skíðaáhugafólk getur skellt sér í Bláfjöll í dag. Vísir/Vilhelm
Brekkurnar í Bláfjöllum verða opnar í dag frá klukkan 14 til 21. Ekki hefur verið opið í brekkunum sökum veðurs í viku eða frá því síðasta þriðjudag.

„Loksins er komið frost og farið að snjóa,“ segir á Facebook-síðu Skíðasvæðanna Bláfjalla og Skálafells en í augnablikinu mun varla hreyfa vind og vera fimm gráðu frost í Bláfjöllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×