Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tíu þúsund dómínó-kubbar féllu Það er ekki á hverjum degi sem þúsundir dómínó kubbar falla en á safni einu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum á dögunum horfðu fjöldi gesta á tíu þúsund kubba falla á hliðina. Það voru bræðurnir Steve og Mike Perrucci sem eyddu yfir 15 klukkutímum í að raða kubbunum samviskulega upp. Þeir eru kallaði Dómínó-bræðurnir enda hafa þeir sérhæft sig í kubbunum síðustu ár. Í myndskeiðinu hér að ofan er hægt að sjá kubbana tíu þúsund hrynja. Ansi mögnuð sjón! 9.11.2011 13:55
María segir siðareglurnar vera þöggunartæki fyrir Davíð Þór María Lilja Þrastardóttir, sem skrifaði umdeildan pistil um Davíð Þór Jónsson á vefinn Innihald.is, er hætt að skrifa á vefinn. Ritstjórn Innihalds tók í morgun út hinn umdeilda pistil hennar og bað hlutaðeigandi, bæði Davíð og Maríu Lilju, afsökunar á birtingu hans. Ástæðan er sú að siðanefnd vefsíðunnar komst að því að með pistlinum hafi María Lilja brotið siðareglur. 9.11.2011 13:48
Segir dreifbýlisbyggðir látnar blæða vegna Álftaness Ríkisstjórnin er sökuð um að láta þau sveitarfélög í dreifbýlinu sem verst standa ein um að axla byrðar af fjárhagshruni Álftaness með því að taka af þeim 300 milljóna króna framlag og færa til Álftaness. 9.11.2011 13:14
Framsóknarflokkurinn fordæmir skrif Eiríks Bergmanns Þingflokkur Framsóknarflokksins fordæmir umfjöllun Eiríks Bergmanns Einarssonar um Framsóknarflokkinn sem birt var í Fréttatímanum um síðustu helgi. Í yfirlýsingu sem Framsóknarflokkurinn hefur sent frá sér segir að umfjöllunin sé villandi og meiðandi. Eiríkur fjalli þar um ýmsar þjóðernisöfgahreyfingar og blandi Framsóknaflokknum í þá umræðu með afar undarlegum hætti. 9.11.2011 13:09
Heavy D látinn Bandaríska rappstjarnan Heavy D lést í gær, 44 ára að aldri. Hann hné niður fyrir utan heimili sitt í Los Angeles og lést á spítala skömmu síðar. 9.11.2011 13:00
Gat ekki klæðst en vann samt úti Kona í Västerås í Svíþjóð, sem sagðist hvorki geta matast sjálf né klætt sig, fékk á sex ára tímabili greiddar fimm milljónir sænskra króna, jafngildi tæpra 90 milljóna íslenskra króna, í umönnunarbætur. Á þessu sama tímabili starfaði konan sem gengilbeina á veitingastað. 9.11.2011 12:45
Geta ekki hrellt fyrverandi eiginkonur í verslunum Danska stjórnin ætlar með nýju lagafrumvarpi að tryggja að erfiðara verði fyrir menn að hrella fyrrverandi eiginkonur sínar. 9.11.2011 12:30
Segist ekki hafa séð neitt um hagnað ríkissjóðs af jarðakaupum Nubos Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kvaðst á Alþingi í gær ekki hafa séð neitt sem gæfi til kynna að ríkissjóður myndi hagnast á kaupum Kínverjans Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Skýrsla Arion banka, um gríðarlega jákvæð áhrif fjárfestinga hans á efnahagslífið, var engu að síður send honum persónulega í síðasta mánuði, en einnig ráðuneytinu og birt opinberlega. 9.11.2011 12:00
Skálholt skyndifriðað Skálholtsskóli, Skálholtskirkja og nánasta umhverfi hefur verið skyndifriðað. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi Húsafriðunarnefndar í gær. Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður nefndarinnar segir að þetta þýði að hætta verði öllum framkvæmdum við Þorláksbúð. Innan tveggja vikna þarf svo að taka endanlega ákvörðun um hvort svæðið verði friðað. 9.11.2011 11:58
Ábyrgðarlaust að afneita fölskum minningum Reynir Harðarson sálfræðingur ræddi falskar minningar í þættinum Í bítið í morgun. Fyrirbærið hefur verið mikið rætt síðustu daga í kjölfar yfirlýsingar frá fjölskyldu Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur sem sakað hefur föður sinn Ólaf Skúlason biskup um kynferðisbrot gegn sér. Fjölskyldan heldur því fram að Guðrún Ebba fari með rangt mál og þeim möguleika hefur verið velt upp að um falskar minningar sé að ræða. 9.11.2011 11:26
Eiríkur Guðnason borinn til grafar Eiríkur Guðnason, fyrrverandi seðlabankastjóri, verður borinn til grafar frá Hallgrímskirkju í dag. Hann lést á hjartadeild Landspítalans þann 31. október 2011. Eiríkur starfaði í 40 ár við Seðlabankann, var aðalhagfræðingur, aðstoðarbankastjóri og bankastjóri. Hann var bankastjóri þegar mest gekk á í efnahagslífi Íslendinga á árinu 2008. 9.11.2011 11:17
Ríkt fólk endurnýjar lúxusbílaflota landsins „Þeir sem eiga peninga eru að kaupa bíla,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi. 9.11.2011 11:00
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda í Reykjanesbæ rétt fyrir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum varð slysið með þeim hætti að karlmaður var að ganga yfir gangbraut, á móts við Íslandsbanka efst á Hafnargötunni, þegar ekið var á hann. Maðurinn var flutt á slysadeild en hann er ekki alvarlega slasaður, samkvæmt varðstjóra hjá lögreglu. 9.11.2011 10:21
Davíð Þór beðinn afsökunar Siðanefnd vefsíðunnar Innihald.is hefur komist að þeirri niðurstöðu að María Lilja Þrastardóttir hafi gerst brotleg við siðareglur vefsins þegar hún skrifaði opið bréf til Davíðs Þórs Jónssonar sem birtist á vefnum. Bréfið hefur nú verið tekið úr birtingu. 9.11.2011 10:18
Forsetinn heimsækir Ísafjörð Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Samtök iðnaðarins munu heimsækja Menntaskólann á Ísafirði og fyrirtæki í bæjarfélaginu á morgun. 9.11.2011 10:03
Bjarni Ben hjá Audda Blö: Við erum ekki ósátt "Já, við höfum alltaf verið ágætir vinir,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um tengsl sín og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa sem tilkynnti um formannsframboð sitt í síðustu viku. 9.11.2011 09:21
Herðir eftirlit með hlerunum Ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, vill herða eftirlit með símhlerunum lögreglunnar. Hún hefur skrifað dómstólaráði bréf þess efnis að embætti hennar verði send afrit af dómsúrskurðum vegna símhlerana og sambærilegra úrræða jafnóðum og þeir eru kveðnir upp, hvort sem fallist er á kröfu lögreglu eða ekki. Þetta er liður í að endurskipuleggja og herða eftirlit embættis ríkissaksóknara með símhlerunum. 9.11.2011 09:00
Björgunarbát tók út af íslenskum togara Gúmmíbjörgunarbát tók út af íslenskum togara þegar alda reið yfir skipið út af Vestfjörðum í gær. 9.11.2011 08:08
Golfkúlnahríð ógnar fjölskyldu í Kópavogi "Maðurinn minn og nágranni voru úti á lóð í sumar og máttu þakka fyrir að þeir fengu ekki í sig golfkúlu sem hvein við hliðina á þeim áður en hún small í húsinu,“ segir Jóna Bryndís Gísladóttir, íbúi við Örvasali í Kópavogi. 9.11.2011 08:00
Rússar í vandræðum með geimfar á leið til Mars Rússar eru komnir í vandræði með geimfar sem Þeir skutu á loft í gærkvöldi og ætlað er að sækja jarðvegssýni á tunglið Phobos sem er á braut um Mars. 9.11.2011 07:55
Björgunarskipið Jón Oddgeir er óskemmt Björgunarskipið Jón Oddgeir, sem slitnaði frá bryggju í fárviðri í Njarðvíkurhöfn í gærmorgun og rak upp í grýtta fjöru, virðist ekkert haf skemmst. 9.11.2011 07:53
News of the World njósnaði um Vilhjálm Bretaprins Mappa með sönnunargögnum úr njósnamálinu sem rekið er gegn útgefendum slúðurblaðsins News of the World sýna að Vilhjálmur Bretaprins var meðal þeirra einstaklinga sem blaðið njósnaði um. 9.11.2011 07:44
Ný eyja að koma upp úr hafinu við Kanaríeyjar Ný eyja er að koma upp úr hafinu undan ströndum Kanaríeyja. Neðanjarðareldgos hefur staðið yfir síðan í vor suður af eyjunni El Hierro og strókar úr gosinu ná nú upp undir yfirborð sjávarins. 9.11.2011 07:41
Reyndu að brjótast inn í hótel Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt um tvo menn sem væru að reyna að brjóta upp bakdyr á hóteli við Laugaveg um klukkan fjögur í nótt. 9.11.2011 07:36
Enn er beðið eftir nýrri þjóðstjórn í Grikklandi Ekki tókst að mynda fyrirhugaða þjóðstjórn í Grikklandi í gærdag eins og stefnt var að. Grískir embættismenn segja að stjórnin verði tilkynnt í dag. 9.11.2011 07:28
Vankaður ökumaður í töluverðum vandræðum Liðlega tvítugur karlmaður, sem var einn á ferð í bíl sínum um tvö leitið í nótt, vankaðist svo alvarlega af höfuðhöggi, þegar bíll hans hafnaði úti í skurði austur í Flóa, að hann gat ekki gefið lögreglunni á Selfossi neina haldgóða lýsingu á staðsetningu. 9.11.2011 07:26
Litríkur pólitískur ferill Berlusconi kominn á endastöð Pólitískur ferill Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu er kominn á endastöð en hann hefur verið í litríkari hópi ítalskra stjórnmálamanna á síðustu tveimur áratugum. 9.11.2011 07:23
Brennuvargar ollu milljóna tjóni í Eyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum leiltar nú brennuvarga, sem ollu milljóna tjóni með því að kveikja í síldarnót, sem stóð á athafnasvæði netaverkstæðisins Ísnets, en viðlíka nót kostar 50 til 60 milljónir króna. 9.11.2011 07:19
Neytendur fengu bætur greiddar út í gær Hátt í hundrað einstaklingar sem lögðu fram kæru vegna samráðs olíufélaganna á sínum tíma fengu bætur sínar greiddar í gær. 9.11.2011 07:00
Byggðarökin fyrir göngum nægja ekki - fréttaskýring Hvaða þættir skipta máli við forgangsröðun í samgönguframkvæmdum? Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á þriðjudag, þar sem rætt var um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng, spannst nokkur umræða um rök fyrir samgönguframkvæmdum. Einn nefndarmanna, Róbert Marshall, spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra, sem þar sat fyrir svörum, hvort ráðherra horfði á málið eingöngu frá fjárhagslegu sjónarmiði, eða hvort hann horfði á það með heildstæðari hætti. Átti hann þá við byggðarök og samfélagsáhrif. 9.11.2011 07:00
Framsókn ósátt við reikninga AFA JCDecaux Ísland, sem á og rekur flest strætóskýli borgarinnar, hefur höfðað mál á hendur Framsóknarflokknum vegna birtingarkostnaðar á auglýsingum flokksins fyrir þingkosningarnar 2009. 9.11.2011 06:00
Nýsköpunarfyrirtæki fengu 440 milljónir Alls 53 lögaðilar fengu samtals 440,9 milljónir króna endurgreiddar frá ríkinu vegna rannsóknar- og þróunarstarfs á árinu 2010. 9.11.2011 05:45
Lítil samskipti milli ráðuneyta Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir gríðarlega þykka veggi milli ráðuneyta hér á landi. Það valdi oft upplýsingaskorti og geti verið til vansa. 9.11.2011 05:00
Segja 2010-börn fá inni næsta ár Reykjavíkurborg stefnir að því að öll börn fædd á árinu 2010 komist inn á leikskóla á árinu 2012 og er þannig leitast við að efna fyrirheit um að öll börn fái leikskólapláss árið sem þau verða tveggja ára. Nokkur styr hefur staðið um leikskólamálin í borginni þar sem gagnrýnt hefur verið að börn úr 2010-árgangi hafi ekki verið tekin inn nú í vetur þrátt fyrir að laus rými séu í mörgum skólum. 9.11.2011 05:00
Ferðir hnúfubaka afar líkar á milli ára Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á árstíðabundinni útbreiðslu og fari skíðishvala við Ísland hafa þegar varpað ljósi á ýmislegt sem tengist viðveru og fartíma hvala við landið. Rannsóknirnar hafa til dæmis gefið fyrstu vísbendingar um aðsetur hrefnu að vetrarlagi. 9.11.2011 04:30
Sögð setja byrðar á bágstödd sveitarfélög Sú ákvörðun að úthluta 300 milljónum af 700 milljóna aukaframlagi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Álftaness var gagnrýnd harðlega á Alþingi í gær. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að með þessu væri verið að setja byrðar á þau sveitarfélög sem bágast stæðu. 9.11.2011 04:30
Allt óvíst um Grímsstaði Ekki liggur ljóst fyrir hvenær kínverska fjárfestinum Huang Nubo verður svarað varðandi áform hans um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að vanda yrði til úrskurðarins. 9.11.2011 03:00
Þúsundir hafa fallið í Sýrlandi Átökin í Sýrlandi síðustu átta mánuði hafa kostað að minnsta kosti 3.500 manns lífið, samkvæmt nýjum tölum frá mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. 9.11.2011 01:30
Ósátt við afskipti ríkisvalds Sveitarstjórnarfólk í Danmörku frábýður sér ofríki þjóðþingsins í Kristjánsborg. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Jótlandspósturinn fjallar um. 9.11.2011 00:45
Á erfitt verk fyrir höndum Lúkas Papademos verður að öllum líkindum forsætisráðherra nýju bráðabirgðastjórnarinnar í Grikklandi, sem næstu vikurnar þarf að koma í framkvæmd óvinsælum aðhaldsaðgerðum í tengslum við björgunarpakka ESB. Skipun stjórnarinnar er hins vegar ekki lokið, þar sem erfiðlega hefur gengið að manna ráðherrastöðurnar. Papademos er fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Evrópusambandsins og var áður seðlabankastjóri Grikklands. 9.11.2011 00:00
Brennimerktu á sér rassana - allt tiltækt slökkvilið kallað á svæðið Þrír piltar um tvítugt frá ástralska bænum Toowoomba, fóru líklega á eitt heimskulegasta fyllerí síðustu helgar, þegar þeir enduðu á því að brennimerkja rassinn á sér með heitum járnteini. 8.11.2011 21:00
Sálfræðingur Guðrúnar Ebbu borinn þungum sökum Með staðhæfingum um falskar minningar Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur er verið að bera sálfræðing hennar þungum sökum. Þetta segir formaður Sálfræðingafélags Íslands. 8.11.2011 19:15
Cain mun ekki hætta við framboð Forsetaframbjóðandinn Herman Cain segist ekki ætla að hætta við framboð sitt eftir að nokkrar konur stigu fram og lýstu óviðeigandi hegðun hans. 8.11.2011 22:32
Berlusconi mun hverfa úr embætti Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, hefur tilkynnt að hann ætli að segja af sér um leið og efnahagsumbætur verða samþykktar á þinginu. 8.11.2011 21:53
Fjarlægðu loftvarnarsprengju úr endaþarmi Króatíski fréttamiðillinn Slobodna Dalmacija greindi frá því í dag að læknar hefðu þurft að fjarlæga loftvarnarsprengikúlú úr endaþarmi fimmtugs karlsmans í Zagreb. Talið er að sprengjan hafi setið föst eftir að maðurinn kom henni fyrir í endaþarmi sínum. 8.11.2011 21:30