Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fíkniefnahvolpar í hæsta gæðaflokki „Þessi tilraun heppnaðist framar öllum vonum. Ég er búinn að þjálfa þrjá hvolpanna og er að byrja með þann fjórða. Þessir hvolpar standast hæstu gæðakröfur.“ 16.7.2011 08:00
Vitni að hnífstungumáli yfirheyrð Karlmaður um fertugt, sem veitti öðrum manni lífshættulega áverka á hálsi með hníf á vínveitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg í fyrrinótt, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júlí næstkomandi að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 16.7.2011 07:30
Fólk sniðgangi lambakjöt Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, mótmælir harðlega nýrri viðmiðunarverðskrá Landssambands sauðfjárbænda, en í henni er gert ráð fyrir 25 prósenta hækkun á verði til bænda. Gylfi segir þetta algjörlega úr takti við aðrar hækkanir í samfélaginu og hvetur landsmenn til að mótmæla með því að hætta að kaupa lambakjöt. 16.7.2011 07:00
Umferð hleypt yfir brúna í dag „Þetta er bráðabirgðabrú en hún tekur samt alla þungaflutninga sem almennt eru leyfðir hér,“ segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri um nýju brúna yfir Múlakvísl.Brúin sjálf var tilbúin í gær og vatni hleypt undir hana, en þó var eftir nokkur vinna við vegspotta austanmegin við hana. 16.7.2011 06:30
Stefna á opnun á næsta ári Áætlað er að nýtt hótel við Keflavíkurflugvöll verði tekið í notkun á fyrri hluta næsta árs. Hjalti Sigurðsson, hótelstjóri Hótel Smára, sem ráðgert er að komi að rekstri hótelsins, staðfesti þetta við Fréttablaðið í gær. 16.7.2011 06:00
Svörtu sauðirnir ætla að verða dýrkeyptir „Þeir ætla að verða okkur bændum dýrkeyptir, þessir örfáu svörtu sauðir, sem vel væri hægt að taka á við núverandi aðstæður ef menn hefðu bara bein í nefinu til að gera það.“ 16.7.2011 05:00
Eins og góð þjóðhátíð "Mótið gengur afskaplega vel fyrir sig. Veðrið er frábært og fólk er til fyrirmyndar,“ segir Jón Berg Torfason, mótsstjóri Símamótsins sem fram fer í Kópavogi um helgina. 16.7.2011 03:00
Skuldaþref á Bandaríkjaþingi „Ef þeir sýna mér alvöru áætlun, þá er ég tilbúinn,“ segir Barack Obama Bandaríkjaforseti sem hvetur þing landsins til að ná samkomulagi um hækkun skuldaþaks Bandaríkjanna og niðurskurð útgjalda. 16.7.2011 00:15
Nýjustu umbrot beina sjónum að stærstu hraungosunum Eldstöðvarnar sem sýnt hafa merki um eldvirkni að undanförnu tengjast mestu hraunflæðigosum Íslandssögunnar, Skaftáreldum og Eldgjárgosinu, og raunar einnig Veiðivatnagosinu, mesta hraunflóði sem þekkt er í jarðsögu Íslands. Slíkir atburðir eru taldir gerast í svokölluðum landrekshrinum. 15.7.2011 20:00
Segir bændur skjóta hátt yfir markið með hækkunum Bændur vilja sjá fjórðungshækkun á verði sauðfjár-afurða til framleiðenda. Formaður Neytendasamtakanna óttast að slíkt gæti hrundið af stað hrinu verðhækkana. 15.7.2011 19:45
FÍA svara Samtökum ferðaþjónustunnar fullum hálsi Svo virðist sem viðræður á milli flugmanna og Icelandair steyti helst á sumarstarfsmönnum flugfélagsins sem er sagt upp í sumarlok og svo endurráðnir sumarið eftir. 15.7.2011 18:22
Lambakjöt búið að hækka um 25 prósent Landssamtök sauðfjárbænda hafa hækkað verðskrá sína um 25 prósent frá síðasta ári. Formaður samtakanna fullyrðir þó að ekki sé sjálfgefið að hækkunin hafi áhrif á íslenska neytendur, og bendir á að verðskráin sé ekki bindandi. 15.7.2011 17:43
60 metrar í land Smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl hefur gengið vel undanfarna daga og er nú reiknað með að unnt verði að opna brúna fyrir umferð á morgun eða á sunnudaginn. Nú á brúin einungis eftir um 60 metra í land. 15.7.2011 16:25
Opinber afsökunarbeiðni Rupert Murdoch Fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur gefið út opinbera afsökunarbeiðni þar sem hann biðst velvirðingar á því hvernig vikuritið News of the World bar sig að við fréttaskrif, en Murdoch tók þá ákvörðun fyrir stuttu að leggja útgáfu blaðsins niður. Vikublaðið breska kom út í síðasta skipti mánudaginn 11. júlí, eftir að hafa verið starfandi í 168 ár frá stofnun þess árið 1843. 15.7.2011 16:00
Ástand mannsins óbreytt - enn sofandi í öndunarvél Maðurinn sem ráðist var á með hnífi á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg um miðnætti liggur enn á gjörgæslu. Ástand hans er óbreytt, hann er án meðvitundar og í öndunarvél. 15.7.2011 15:40
Kannabis í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjár kannabisræktanir í Hafnarfirði í gær. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við aðgerðirnar en einn þeirra var jafnframt eftirlýstur fyrir aðrar sakir. Lagt var hald á nokkuð af kannabisplöntum og græðlingum. 15.7.2011 15:38
„Menn trúa ekki að flugmönnum sé alvara“ Samtök ferðaþjónustunnar segjast treysta því að samið verði í tíma svo ferðaþjónustufyrirtækin þurfi ekki á nýjan leik að taka á móti afpöntunum vegna truflana á flugi. 15.7.2011 15:27
Sáttafundi slitið - annar fundur ekki verið boðaður Sáttafundi flugmanna og Icelandair var slitið nú laust fyrir klukkan þrjú eftir að ekki náðist niðurstaða á milli manna. Fundurinn hófst klukkan ellefu í morgun en samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara hefur annar fundur ekki verið boðaður. 15.7.2011 15:21
Í gæsluvarðhaldi til 29. júlí Karlmaðurinn, sem veitti öðrum karlmanni lífshættulega áverka á hálsi, með hnífi, á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg um miðnætti, var úrskurðaður í tveggja vikna langt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann verður því í varðhaldi til 29. júlí næstkomandi. 15.7.2011 15:03
Þveröfug þróun í skráningu sumarbúða Kreppan virðist hafa haft þveröfug áhrif á skráningafjölda í kristilegar sumarbúðir KFUM og KFUK annars vegar og trúarlega hlutlausu sumarbúðirnar Ævintýraland á Kleppjárnsreykjum hins vegar. 15.7.2011 14:50
Þenkjandi róttæklingar boða til skólahalds Róttæki sumarháskólinn er nýr og nokkuð óvenjulegur skóli sem tekur tímabundið til starfa í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut í næsta mánuði. Óhætt er að segja að skólinn beri nafn með rentu þar sem barátta fyrir efnahagslegu réttlæti, femínisma, lýðræði og réttindum minnihlutahópa er á stefnuskránni. 15.7.2011 14:04
Brúin gæti opnað á morgun Reiknað er með að hleypa umferð um brúna yfir Múlakvísl á morgun eða á sunnudaginn en brúarsmíðin hefur gengið betur en reiknað var með í upphafi. 15.7.2011 13:36
Segir þingmenn missa þvag út af Byr-málinu Björn Valur Gíslason þingmaður og varaformaður fjárlaganefndar segir að söluverðið á Byr til Íslandsbanka verða upplýst þegar salan hefur endanlega gengið í gegn. 15.7.2011 13:06
Leitar að bíl sem týndist á hálendinu Sjómaðurinn, knattspyrnumaðurinn og prentarinn Einar Hjörleifsson leitar nú að bíl móður sinnar, sem týndist á hálendinu fyrir tæpum þremur vikum síðan. 15.7.2011 13:03
Æfa fyrir heimsleika í CrossFit Áhugi Íslendinga á CrossFit hefur aukist mikið síðastliðið ár og eru Íslendingar á meðal fremstu þjóðum í þessari íþrótt í heiminum. Íslenska liðið frá Crossfit Sport sigraði Evrópukeppnina sem fram fór helgina 3.-5. júní í Bolton á Englandi. 15.7.2011 12:53
Þúsundir á flótta undan eldgosi Tugþúsundir manna eru á flótta undan eldgosi sem hófst í gærkvöldi á eynni Sulawesi í Indónesíu. Gosið kom ekki á óvart þar sem miklar jarðhræringar hafa verið á þessum slóðum undanfarna daga. Búið var að skilgreina 3,5 kílómetra hættusvæði umhverfis eldfjallið Lokon. 15.7.2011 12:21
Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir 25% hækkun Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segist taka fregnum af áætlaðri 25% hækkun á verðskrá Landssamtaka sauðfjárbænda afar þunglega. Þetta sé hið undarlegasta mál sem segi til um hverskonar kerfi er í íslenskum landbúnaði. 15.7.2011 12:20
Yfirvinnubannið ótímabundið Flugmenn hjá Icelandair hafa boðað ótímabundið yfirvinnubann frá klukkan 14 á þriðjudaginn kemur, hafi ekki samist fyrir þann tíma. Þegar flugmenn undirrituðu samning við Icelandair nýverið, frestuðu þeir yfirvinnubanninu fram yfir atkvæðagreiðslu um samninginn, sem líkt og kunnugt er var óvænt felldur. 15.7.2011 12:16
Árás á Monte Carlo: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds Lögreglan krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir karlmanni, sem sem veitti öðrum karlmanni lífshættulega áverka á hálsi, með hnífi, á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg um miðnætti. 15.7.2011 12:05
Varðstjórinn fór ekki offari í starfi - sýknaður í héraðsdómi Lögregluvarðstjóri á Selfossi var í dag sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands að hafa gerst brotlegur í starfi með því að hafa farið offari í framkvæmd lögreglustarfs og ekki gætt lögmætra aðferða sem stjórnandi lögregluaðgerðar. 15.7.2011 11:59
Bin-Laden vildi gera afmælisárás Þegar Osama bin-Laden var ráðinn af dögum átti hann í viðræðum við aðgerðastjóra sinn um enn eina árás á Bandaríkin. Árásina átti að gera hinn 11. september næstkomandi á tíu ára afmæli árásanna á New York. 15.7.2011 11:10
Hlé á ferjuflutningum Hlé verður gert á ferjuflutningum yfir Múlakvísl á milli klukkan fimm og átta eða níu í kvöld þar sem er verið að veita Múlakvísl undir brúna. 15.7.2011 10:51
Yfirvinnubann flugmanna hefst á ný eftir helgi Yfirvinnubann flugmanna hjá Icelandair tekur gildi að nýju á þriðjudag klukkan tvö eftir hádegi hafi ekki tekist samningar við Icelandair. Samningamenn flugmanna Icelandair og samningamenn félagsins komu saman til sáttafundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan tíu, eftir að fundi þeirra lauk í gærkvöldi án árangurs. 15.7.2011 10:49
Kjaraviðræðum bænda frestað til 10. ágúst Starfsgreinasambandið og Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að fresta frekari kjaraviðræðum til 10.ágúst þar sem að ekki tókst að koma öllum málum á hreint varðandi frekari viðræður. 15.7.2011 10:38
Keyrði á Shell-skálann á Eskifirði Ung stúlka missti stjórn á bíl sínum fyrir utan Shell-skálann á Eskifirði um sexleytið í gær og fór ekki betur en svo að bíllinn klessti á húsið. Einar Björnsson, eigandi rekstursins, segir tjónið töluvert þar sem bæði sé um að ræða skemmdir á vörum og húsinu sjálfu. 15.7.2011 10:35
Morðtilraunin náðist á myndband "Þetta eru leiðindaatvik sem geta komið upp hvar sem er og það væri betra ef þau væru færri," segir Margeir Margeirsson, eigandi Monte Carlo og Mónakó á Laugavegi í Reykjavík. 15.7.2011 10:26
Íslendingar sækja enn til Norðurlanda Samkvæmt mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands fluttust 530 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta á 2. ársfjórðungi þessa árs. 360 þeirra voru einstaklingar með íslenskt ríkisfang en 180 voru erlendir ríkisborgarar. Af þeim 980 Íslendingum sem fluttu af landi brott fóru 680 til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar. 15.7.2011 09:47
Sakar löggu um að ljúga upp á sig kynferðisbroti Fyrrverandi lögreglumaður hefur kært lögreglufulltrúa á Suðurnesjum fyrir rangar sakargiftir í kynferðisbrotamáli. Maðurinn var sýknaður héraðsdómi. Greint er frá þessu í Fréttatímanum í dag. 15.7.2011 09:46
Murdoch forstjóri hrökklast úr starfi Rebekha Brooks forstjóri fjölmiðlaveldis Ruberts Murdoch í Bretlandi hefur sagt af sér. Hún er fyrrverandi ritstjóri News of The World, blaðsins sem fyrst varð uppvíst að því að hlera síma þúsunda þekktra Breta, þar á meðal konungsfjölskyldunnar. 15.7.2011 09:28
Sandsílastofninn enn í lægð Sandsílastofninn er enn í lægð samkvæmt niðurstöðum úr leiðangri Hafrannsóknarstofnunnar. Farið var um Breiðafjörð, Faxaflóa, Vestmannaeyjar og að Vík. Þetta er sjötta árið sem farið er í slíkan leiðangur, en markmiðið er m.a. að meta breytingar í stofnstærð og afla upplýsinga um styrk árganga sandsíla. 15.7.2011 08:56
Sprengja sprakk í Malmö Sprengja sprakk við myndbandaleigu í Malmö í Svíþjóð í nótt. Engin meiðsl urðu á fólki en talsverðar skemmdir urðu á nálægum húsum. Fyrir ofan myndbandaleiguna eru íbúðir og var íbúum þar verulega brugðið. Þeir urðu ekki varir við grunnsamlegar mannaferðir áður en sprengjan sprakk enda flestir í fasta svefni á þessum tíma. Sprengjunni var komið fyrir við inngang myndbandaleigunnar. 15.7.2011 08:31
Naser Khader fór í leynilega ferð til Sýrlands Naser Khader, leiðtogi Nýja bandalagsins í Danmörku, fór í fimm daga leynilega ferð til Sýrlands í vikunni og ræddi við heimamenn um ástandið í landinu. Hvork dönsk né sýrlensk stjórnvöld vissu af ferðum hans. Khader fæddist í Sýrlandi en flutti 11 ára gamall til Danmerkur. Hann hefur verið áberandi í dönskum stjórnmálum undanfarin ár. 15.7.2011 08:20
Eva Joly mælist með 7-9% fylgi Eva Joly, forsetaefni Græningja í Frakklandi og fyrrverandi ráðgjafi sérstaks saksóknara hér á landi, mælist með 7-9% stuðning í skoðanakönnunum, en fyrri umferð forsetakosninganna fer fram 22. apríl á næsta ári. Í seinni umferð kosninganna verður kosið á milli þeirra tveggja frambjóðenda sem hljóta flest atkvæði í fyrri umferðinni. 15.7.2011 07:57
Kveikti í einni stærstu stafkirkju Noregs 17 ára norskur unglingsdrengur hefur viðurkennt að hafa borið eld að einni stærstu timburkirkju Noregs fyrr á þessu ári, en hún brann til grunna. Kirkjan var byggð fyrir rúmum 250 árum og stóð í bænum Porsgrunn suðvestur af höfuðborginni Osló 15.7.2011 07:55
Vélhjólamaður alvarlega slasaður Vélhjólamaður slasaðist alvarlega þegar hann féll á hjóli sínu á Nýbýlavegi í Kópavogi um tvöleytið í nótt og kastaðist á vegrið. Hann var meðvitunarlaus þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang og var hann fluttur á slysadeild Landspítalans. Honum er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. Tildrög slyssins eru ókunn og viðrast ekki vera vitni að slysinu. 15.7.2011 07:53