Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hillary hættir á næsta ári Hillary Clinton hyggst láta af störfum sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna á næsta ári óháð því hvort Barack Obama verður endurkjörinn forseti. Hún segist vera orðin þreytt á stanslausum ferðalögum sem fylgi starfinu og hún vilji þess í stað eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og vinum. 15.7.2011 06:54
Milljónir í svar við fyrirspurn - Fréttaskýring Sífellt færist í aukana að alþingismenn sendi skriflegar fyrirspurnir til ráðuneyta. Um leið og þetta er mikilvægt lýðræðislegt aðhaldstæki er ljóst að kostnaður ráðuneytanna við að svara fyrirspurnum getur verið umtalsverður. Kostnaður þriggja ráðuneyta við svar ákveðinnar fyrirspurnar nam samtals 700 til 900 þúsund krónum. 15.7.2011 06:45
Sex efnilegir hvolpar undan Ellu og Nelson "Í kjölfar kreppunnar varð það að samkomulagi milli lögreglu og tollgæslu að prófa að rækta eigin fíkniefnahunda,“ segir Haukur Örn Sigurjónsson rannsóknarlögreglumaður á Suðurnesjum. 15.7.2011 06:30
Tæp milljón hjá þremur ráðuneytum Fréttablaðið leitaði fanga hjá öllum ráðuneytum til að fá dæmi um þann kostnað sem einstök fyrirspurn getur haft í för með sér og þá vinnu sem liggur að baki svarinu. Fyrir valinu varð fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, sem sendi öllum ráðuneytum eftirfarandi fyrirspurn: 15.7.2011 06:00
Fundu sjaldgæfa snæhlébarða Sjaldgæfir snæhlébarðar hafa fundist í fjöllum í norðausturhluta Afganistans. Hlébarðarnir eru við góða heilsu að sögn náttúruverndarsinna sem hafa rannsakað málið. 15.7.2011 06:00
Allir bændur með bústofn verða starfsleyfisskyldir Sauðfjárbændur, hrossabændur, og þeir sem stunda þjónustu með dýr, svo sem tamningamenn, verða starfsleyfisskyldir, verði frumvarp til laga um dýravelferð samþykkt í núverandi mynd. Þetta er til samræmis við reglugerðir sem gilda um aðra búfjáreigendur. 15.7.2011 06:00
Fimm sinnum sektað fyrir sóðaskap í ár Öll afgreiðsla vegna brota er varða sóðaskap yrði mun hraðari og skilvirkari ef Íslendingar færu að dæmi Svía en þar getur nú lögreglan sektað menn á staðnum séu þeir staðnir að sóðaskap. 15.7.2011 06:00
Múlakvíslabrúin nánast tilbúin Framkvæmdir Vegagerðarinnar við Múlakvísl ganga vel að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra en brúin er að mestu tilbúin. Þó verður það ekki fyrr en á sunnudag eða mánudag sem hægt verður að aka yfir hana. Það er tveimur dögum fyrr en bjartsýnustu menn leyfðu sér að vona, segir vegamálastjórinn. 15.7.2011 05:45
Kollvarpar þekkingu fólks á hvölum Dr. Paul Manger er 45 ára gamall ástralskur vísindamaður sem hefur helgað líf sitt rannsóknum á þróun heila í lífverum. Hann er prófessor við heilbrigðisvísindadeild Háskólans í Witwatersrand í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og hefur rannsakað heila fjölmargra dýrategunda. 15.7.2011 05:30
Bannað að gefa svín sem gjöf Frumvarp til laga um dýravelferð kveður á um að óheimilt sé að selja eða afhenda dýr þegar tilefni er til að ætla að móttakandi hafi ekki getu eða vilja til að annast dýrið á þann hátt sem samræmist ákvæðum frumvarpsins. 15.7.2011 05:30
Skemmtistaðir opnir lengur Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að leyfa skemmtistöðum að hafa lengri opnunartíma um verslunarmannahelgina. 15.7.2011 05:00
Auka þarf fræðslu um hættu Sérakreinar fyrir hópferðabíla á Miklubraut koma ekki vel út þegar slysatíðni er skoðuð. Slysum hefur fjölgað eftir að þessar akreinar voru teknar í notkun en þó hafa hópferðabílar ekki verið orsakavaldar. Þetta kemur fram í skýrslu sem verkfræðistofan Mannvit vann fyrir Vegagerðina. 15.7.2011 05:00
Kirkjan vill ábendingar Nefnd vegna kynferðisbrota innan kirkjunnar býður öllum sem vilja koma athugasemdum, tillögum eða erindum á framfæri að hafa samband við sig. 15.7.2011 04:30
Einkaneysla hefur aukist undanfarið EfnahagsmálMyndarlegur vöxtur virðist hafa orðið á einkaneyslu á öðrum ársfjórðungi ársins. Greining Íslandsbanka telur að vöxturinn hafi ekki verið jafn hraður frá því fyrir hrun. 15.7.2011 04:00
ESA áminnir Ísland vegna umferðarmála Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur sent íslenskum og norskum stjórnvöldum rökstutt álit en löndin hafa ekki innleitt evrópska umferðaröryggisstaðla. Stjórnvöldum er gefinn tveggja mánaða frestur til úrbóta. 15.7.2011 03:00
Rafmagnsólar hunda bannaðar Frumvarp til laga um dýravelferð kveður á um að rafmagnsólar til þjálfunar á hundum verði bannaðar. Einnig að einungis fagaðilar megi nota geldingatangir og tjakka til notkunar við burðarhjálp hjá stórgripum, svo dæmi séu nefnd. Ákvæðið er til komið vegna vandamála sem hefur orðið vart við vegna sölu á útbúnaði sem óheimilt er að nota á dýr. 15.7.2011 03:00
Um 2.600 brot umferðinni Nær 500 brot, þar sem menn voru við akstur sviptir ökuréttindum, voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Þá voru 300 mál færð til bókar þar sem á ferðinni voru ökumenn er aldrei höfðu öðlast ökuréttindi. 15.7.2011 02:45
Suður-Súdan er komið í hópinn Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York samþykkti í gær inngöngu Suður-Súdans í samtökin. Suður-Súdan er þar með formlega orðið 193. ríki Sameinuðu þjóðanna. 15.7.2011 02:00
Fulltrúi Íslands gekk af fundi „Við óttuðumst að atkvæðagreiðsla yrði til þess að kljúfa Alþjóðahvalveiðiráðið í herðar niður,“ segir Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu. 15.7.2011 02:00
Saga samkynhneigðra kennd Bandaríkin, APJerry Brown, ríkisstjóri í Kaliforníu, undirritaði í gær ný lög, sem gera skólum í landinu skylt að kenna sögu samkynhneigðra. 15.7.2011 00:30
Deilur harðna um skuldaþak Aukin harka hefur færst í deilur bandarískra þingmanna um skuldaþak bandaríska ríkisins. Fokreiðir þingmenn hafa gagnrýnt bæði hver annan og Barack Obama Bandaríkjaforseta. 15.7.2011 00:00
Flugmenn settust á sáttafund Samningafundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair hófst hjá Ríkissáttasemjara um klukkan tvö í dag. Þetta er fyrsti fundur í deilunni eftir að samningur sem þessir aðilar gerðu á dögunum var felldur í atkvæðagreiðslu fyrr í vikunni. 14.7.2011 14:42
Tjón ferðaþjónustuaðila getur numið hundruðum milljóna Áætla má að heildarútgjöld þeirra ferðamanna sem ferðast um Hornafjörð hefðu orðið um það bil einn milljarður ef ekki hefði komið til rof hringvegarins við Múlakvísl. Þetta kemur fram í samantekt Þorvarðar Árnasonar, forstöðumanns Háskólaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, á útreikningum setursins. 14.7.2011 14:33
Nýja brúin opnuð fyrir miðja næstu viku Reynt verður að opna bráðabirgðabrúna yfir Múlakvísl fyrir miðja næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Brúarvinnuflokkar og aðrir starfsmenn Vegagerðarinnar vinna dag og nótt við að koma brúnni upp og tengja Hringveginn við hana. Stefnt er að því að bílar og fólk verði flutt yfir brúna þangað til. 14.7.2011 14:26
Dópaður maður stal bíl af sveitabæ Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á Selfossi í morgun en hann hafði stolið bifreið á sveitabæ í Biskupstungum nokkru áður og valdið tjóni á bílnum. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og var vistaður í fangageymslu, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. Hann verður svo yfirheyrður síðar í dag þegar víman er runnin af honum. 14.7.2011 13:18
Dómurinn stendur Kristján Kristjánsson, útgefandi bókarinnar um Sögu Akraness, hefur haft samband við Fréttatímann með athugasemdir vegna beinskeytts bókardóms Páls Baldvins Baldvinssonar um bókina í síðasta tölublaði Fréttatímans. Greint var frá því í morgun að bæjarstjóri Akranesbæjar hefði falið lögmanni bæjarfélagsins að meta hvort ritdómur Páls Baldvins um ritið varði við lög. 14.7.2011 13:11
Fannst látinn í lendingarbúnaði flugvélar Lík 23 ára gamals kúbversks manns fannst í rými lendingarbúnaðar í flugvél sem flaug frá Havana til Madrídar í gær. Verið er að rannsaka dánarorsök mannsins en yfirvöld á Spáni gátu samkvæmt fréttavef the Washington Post engar frekari upplýsingar gefið um málið. 14.7.2011 13:10
21 árekstur við sauðfé frá mánaðamótum Ekið var á lamb á Suðureyrarvegi í gær og tvö á Súgandafjarðarvegi í fyrradag og drápust þau öll. Frá mánaðamótum hefur lögreglan á Vestfjörðum fegnið 21 tilkynningu um slík slys, en sauðfé hefur víðasthvar óhindraðan aðgang að þjóðvegunum fyrir vestan. 14.7.2011 12:43
Páll Baldvin tjáir sig ekki Páll Baldvin Baldvinsson, bókmenntagagnrýnandi, vildi ekki tjá sig um þá ákvörðun bæjarstjóra Akranesbæjar að fela lögmanni bæjarfélagins að ritdómur Páls um fyrst bindi Sögu Akraness varði við lög. Ritdómurinn birtist í síðasta tölublaði Fréttatímans. 14.7.2011 12:07
Eldgos gæti hafa brotist upp við Hamarinn Líkur eru taldar á að lítið eldgos hafi orsakað hlaupið undan vestanverðum Vatnajökli í gær, að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings. Tveir nýir sigkatlar, sem ekki var vitað um áður, komu í ljós í flugi almannavarna yfir svæðið í gærkvöldi. 14.7.2011 12:05
Stærsta vandamál í dýravernd á Íslandi óleyst Nefnd um dýravelferð skilaði af sér tillögum sínum að frumvarpi til nýrra laga um málaflokkinn síðastliðinn mánudag, þann 11. júlí. Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur segir að þó svo orðalag laganna auki greinilega vernd dýra, hafi hann orðið fyrir vonbrigðum með drögin en hann óttast að lögin muni ekki leysa stærsta vandamálið í dýravernd á Íslandi, verði tillagan samþykkt í óbreyttri mynd. 14.7.2011 11:46
Brúarsmíði gengur vel - "Þetta er ekkert mál“ "Þetta gengur bara mjög vel,“ segir Sveinn Þórðarson, brúarsmiður hjá Vegagerðinni, en hann vinur nú ásamt tuttugu og þremur öðrum að smíða bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl. 14.7.2011 11:21
Akranes íhugar málssókn gegn Fréttatímanum Bæjarstjóri Akranesbæjar hefur falið lögmanni bæjarfélagsins að meta hvort ritdómur Fréttatímans um ritið Sögu Akraness varði við lög. "Þeir sem gefa út og skrifa ritdóma og ætlast til þess að hlustað er á þá verða auðvitað að skilja að þeir geta haft hrikalegar afleiðingar með ábyrgðarlausu tali. Að þjófkenna menn og segja að þeir séu að ásetningi að falsa sögu er býsna alvarlegar ásakanir," segir Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri Akranesbæjar, í samtali við Vísi. 14.7.2011 10:52
Óhöppum Strætó fækkar um 44% Óhöppum Strætó í umferðinni fækkaði um 44% á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Síðasta ár var þó metár hvað öryggi í akstri Strætó varðar. Alls voru 49 óhöpp skráð á fyrstu sex mánuðum ársins, en 88 í fyrra. 14.7.2011 10:30
Vannærð börn í Sómalíu Alþjóða Rauði krossinn segir að hvergi í heiminum sé vannæring barna jafn mikil og í Sómalíu, en þar hefur ástandið hríðversnað á undanförnum vikum. Fjöldi barna sem þjást af alvarlegri vannæringu hefur tvöfaldast síðan í mars í sumum hlutum Sómalíu. 14.7.2011 10:27
Gefur lítið fyrir skýringar Kristjáns „Mér finnst hann gera þetta á afar veikum forsendum,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þá ákvörðun Kristjáns Möller, formanns iðnaðarnefndar Alþingis, að verða ekki við ósk þriggja þingmanna um að nefndin komi saman til að ræða um málefni Drekasvæðisins. 14.7.2011 09:56
Karlmaður á sextugsaldri enn þungt haldinn eftir bifhjólaslys Karlmaður á sextugsaldri sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af bifhjóli sínu þann 12. júlí síðastliðinn, liggur enn svæfður í öndunarvél. Ástand hans er óbreytt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. 14.7.2011 09:35
Hraðamyndavélum komið fyrir í umferðargöngum Hraðamyndavélar verða teknar í notkun í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum á morgun. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Um árabil hafa hraðamyndavélar verið í Hvalfjarðargöngum. 14.7.2011 09:04
Svikahrappur kynntist fórnarlambi í árekstri Karlmaður á sextugsaldri, sem sætt hefur rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er grunaður um að hafa haft yfir hundrað milljónir af fólki með svikum og prettum. Fórnarlömbunum kynntist hann með ýmsum hætti. Til dæmis kynntust einn brotaþolinn og svindlarinn þegar bílar þeirra rákust saman. 14.7.2011 08:45
Mannfall í minningarathöfn um forsetabróður Fjórir eru látnir eftir að sprengja sprakk í mosku í Kandahar í Afganistan þar sem fram fór minningarathöfn um Ahmed Wali Karzai, hálfbróðir Hamids Karzai forseta Afganistans. Ekki liggur fyrir hvort um sjálfsmorðssprengjuáras hafi verið að ræða. Hálfbróðirinn var skotinn til bana á heimili sínu fyrr í vikunni. Fjölmenni var við minningarathöfnina en sprengjan sprakk í lok hennar. Ekki kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins um árásina hvort forsetinn hafi viðstaddur athöfnina. 14.7.2011 08:34
Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu í nótt eftir skjálfta þar upp á 2,6 síðdegis í gær. Þó var aðeins órói í Goðabungu, í austanverðum Mýrdalsjökli, en hann er ekki talinn vísbending um neinar frekari hræringar. 14.7.2011 08:29
William og Isabella vinsælust í Danmörku Nöfn tengd konungsfjölskyldunni eru vinsælustu nöfnin í Danmörku. Á síðasta ári var William vinsælasta nafngift nýfæddra sveinbarna en Isabella hjá meybörnum. Þetta kemur fram í nýjum gögnum sem danska hagstofan hefur birt og fjallað er um á vef Berlingske Tidende. 14.7.2011 08:25
Lokuðu yfir milljón vefsíðum Kínversk stjórnvöld lokuðu 1,3 milljón vefsíðum á síðasta ári. Aðgerðirnar tengjast að þeirra sögn ekki takmörkunum á málfrelsi í landinu. 14.7.2011 08:21
Fótboltabullur slógust í miðborg Stokkhólms Nokkrir eru sárir eftir að tveimur hópum fótboltabullna laust saman í miðborg Stokkhólms í gær. Um var að ræða þröngan hóp stuðningsmanna grannaliðina AIK og Hammarby sem eldað hafa grátt silfur saman um árabil og ítrekað komist í kast við lögin. Í átökunum í gær tókust hátt í 60 bullur harkalega á og þurfti lögregla að skakka leikinn. Barefli og litlir hnífar fundust á nokkrum ofbeldismannanna en enginn særðist alvarlega í átökunum. 14.7.2011 08:18
Eltihrellir Halle Berry settur í bann Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry hefur fengið nálgunarbann á karlmann sem virðist hafa þróað með sér sérstakt dálæti á leikkonunni. Á undanförnum dögum hefur hann ítrekað mætt fyrir utan heimili hennar í Hollywood, bankað á dyrnar og farið inn í garð þrátt fyrir öryggisgæslu. Maðurinn sem 27 ára var í framhaldinu handtekinn og færður í fangaklefa. 14.7.2011 08:17