Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Upprættu kannabisræktun í bílskúr Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti kannabisræktun í bílskúr við íbúðarhús í Grafarholti í gærkvöldi. 18.7.2011 07:39
Mikill meirihluti Norðmanna andvígur ESB aðild Ný skoðanakönnun í Noregi sýnir að tæplega 64% Norðmanna eru andvígir því að landið gangi í Evrópusambandið. Rúm 26% eru hinsvegar fylgjandi aðild. 18.7.2011 07:37
Bifhjólamaður mældur á 237 km hraða Bifhjólamaður var mældur á 237 kílþómetra hraða á Garðsvegi á Suðurnesjum um klukkan hálf níu og hvarf hann lögreglumönnum sjónum á auga bragði. 18.7.2011 07:27
Hiltabeltisstormur skellur á Bahamaeyjar Íbúar á Bahamaeyjum eru nú að undirbúa sig undir komu hitabeltisstormsins Bret en talið er að hann muni skella á eyjarnar í dag. 18.7.2011 07:20
Enginn fundur í deilu flugmanna Ríkissáttasemjari hefur ekki enn boðað til formlegs samningafundar með flugmönnum hjá Icelandair og félaginu, eftir að árangurslausum fundi var slitið á föstudag. 18.7.2011 07:17
Banna geislavirkt nautakjöt í Fukushima Japönsk stjórnvöld ætla sér að banna allan útflutning á nautakjöti frá Fukushima héraðinu. Ástæðan er sú að geislavirkni hefur mælst í kjötinu. 18.7.2011 07:16
Þyrla fann þrjá villta feðga á hálendinu Áhöfn þyrlu Landheglisgæslunnar fann þrjá villta feðga á hálendinu norðaustur af Laugarvatni um klukkan átta í gærkvöldi og flutti þá að bíl þeirra niðri á láglendi. 18.7.2011 07:14
Harðir bardagar í olíuborginni Brega Uppreisnarmenn í Líbýu segja að þeir hafi átti í hörðum bardögum við hersveitir Muammar Gaddafi í úthverfum olíuborgarinnar Brega um helgina. 18.7.2011 07:02
Hörð viðbrögð almennings Casey Anthony á sér fáa stuðningsmenn í Bandaríkjunum þótt hún hafi verið sýknuð af ákæru um að hafa myrt barn sitt. Hópur fólks var viðstaddur þegar hún gekk í gær frjáls manneskja út úr fangelsinu í Orlando í Flórída, þar sem hún hefur dvalist í nærri þrjú ár meðan mál hennar var til meðferðar hjá dómstólum. 18.7.2011 07:00
Lögreglustjóri Lundúna segir af sér Sir Paul Stephenson, lögreglustjóri Lundúnaborgar hefur sagt af sér vegna tengsla sinna við fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch. 18.7.2011 06:54
Snarpur jarðskjálfti í Mýrdalsjökli Snarpur jarðskjálfti, sem mældist 3,8 á Richter varð um tvöleytið í nótt með upptök um sjö kílómetra austnorðaustur af Goðabungu í Mýrdalsjökli. 18.7.2011 06:47
Þurrkar tefja uppskeru sunnanlands Miklir þurrkar víða í sveitum sunnanlands auk síðbúins vorhrets í lok maí valda því að uppskera garðyrkjubænda verður tíu dögum til tveimur vikum síðar í ár en undafarin ár. „Í fyrra byrjuðum við að selja kartöflur í annarri viku júlí en það verður ekki fyrr en um næstu mánaðamót sem við getum byrjað núna,“ segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi á Skarði í Þykkvabæ. 18.7.2011 06:45
Íslenskir prestar bjarga sóknum í Norður-Noregi Vegna prestaskorts líta Norðmenn nú til Íslands í leit sinni að þjónum kirkjunnar. Starfsmannastjóri Niðaróssbiskupsdæmis, Steinar Skomedal, kom til Íslands síðastliðið haust og kynnti um leið starfsaðstæður í Noregi fyrir íslenskum prestum og guðfræðingum. 18.7.2011 06:00
Gæti fengið tólf ára fangelsi Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, á að mæta fyrir rétti í dag. Hann hefur þó tilkynnt að hann komist ekki þar sem hann mun funda með Giorgio Napolitano, forseta landsins. Berlusconi sætir ákærum fyrir mútur og að hafa borgað 17 ára stúlku fyrir kynlíf. Réttarhöld hefjast í báðum þessum málum í dag. 18.7.2011 05:00
Íhuga að sekta sóða á staðnum Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra og nú staðgengill borgarstjóra, segir að sú hugmynd hafi verið rædd hjá borginni að sekta menn á staðnum fyrir slæma umgengni. Kostnaður við að hreinsa Reykjavíkurborg hleypur á hundruðum milljóna króna á ári. 18.7.2011 05:00
Drög að frumvarpi í vinnslu Vinnu við áfangaskjal stjórnlagaráðs er að mestu lokið og undirbúningur að drögum að frumvarpi til stjórnskipunarlaga er hafinn. Frumvarpsdrögin verða tekin fyrir á fundi stjórnlagaráðs í vikunni. Fundur ráðsins í síðustu viku var sá síðasti þar sem nefndir lögðu fram tillögur inn í áfangaskjalið. 18.7.2011 04:00
Brýn þörf fyrir fjárhagsaðstoð Tony Lake, yfirmaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir að ástandið á þurrkasvæðunum í Afríku muni versna á næstu mánuðum. Fólk hefur ekki mat og engin uppskera er væntanleg til að bæta úr matarskortinum. Hann segir að nú skipti öllu máli að útvega fjölskyldum aðstoð. 18.7.2011 03:30
Bretar herða reglur um heyrúllur Öryggisreglur er varða meðferð á heyrúllum verða hertar í Bretlandi. Frá þessu var greint á bændafréttavefnum Farmers Weekly í gær. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, segir einnig ástæðu til að huga að slíkum breytingum hér á landi. 18.7.2011 03:15
Björgunarsveitir leita feðga Hópur björgunarsveitamanna leitar nú að þremur rosknum feðgum við Klukkuskarð, norðan af Laugarvatni, sem skiluðu sér ekki heim í gærkvöld. Björgunarsveitamenn hafa þegar fundið bílinn þeirra og eru nú að ganga helstu gönguleiðir á svæðinu með hunda. Leitin hófst um fimmleytið í dag. 17.7.2011 19:23
Fengu engar upplýsingar þrátt fyrir tafir Farþegar Iceland Express fengu litlar sem engar upplýsingar meðan þeir biðu í einn og hálfan sólarhring eftir að flug þeirra frá París til Keflavíkur færi í loftið. Forstjóri fyrirtækisins ætlar að reyna bæta farþegum tjónið. 17.7.2011 19:09
Of mikil athygli á persónu biskups Athygli almennings hefur beinst of mikið að Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, eftir að rannsóknarskýrsla um kynferðisbrot innan kirkjunnar kom út. Þetta segir Guðbjörg Jóhannesdóttir, formaður Prestafélags Íslands. Prestafélag Íslands hélt prestafund í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í vikunni. Þar var rannsóknarskýrslan rædd í þaula, en til stendur að funda aftur með biskupi Íslands og Pétri Hafstein, forseta Kirkjuþings í haust. 17.7.2011 16:56
Hundruð manna að Gásum Hundruð manna eru samankomnir á Miðaldadögum sem fram fara á Gásum í Eyjafirði. Stemningin hefur verið góð enda veður prýðilegt Í dag hafa farið fram skylmingar, en í gær var rennisteinshreinsun og kolagröf. 17.7.2011 14:59
Segir gagnrýni á bændur ómaklega Talsmaður Sauðfjárbænda segir gagnrýni á bændur fyrir að hækka viðmiðunarverðskrá sína ósanngjarna. 17.7.2011 14:32
Afganar tóku við stjórn Hersveitir NATO létu stjórn Bamiyanhéraðsins í hendur afganskra öryggissveita í dag. Þessar breytingar eru hluti af áætlun sem Hamid Karzai, forseti Afganistan, kynnti í mars. Til stendur að Afganar taki við stjórn sex héraða til viðbótar á næstunni og að erlendar hersveitir verði búnar að yfirgefa Afganistan að fullu árið 2014. Öryggissveitir frá Nýja Sjálandi verða staddar í Bamiyanhéraðinu um skeið en þær verða undir stjórn Afgana. 17.7.2011 14:25
Nýja brúin boðin út í haust Vonast er til að hægt verði að bjóða út nýju brúna yfir Múlahvísl í haust en hún verður sterkbyggðari en sú sem hlaupið í ánni hreif með sér. Töluverð umferð hefur verið yfir bráðabirgðabrúna frá því umferð var hleypt á hana í gær. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir umferðina hafa gengið vel. 17.7.2011 13:31
Brooks handtekin vegna símhleranamálsins Rebekah Brooks, fyrrum stjórnandi hjá News International í Bretlandi, hefur verið handtekin í tengslum við símhleranamálin sem hafa skekið breskt samfélag að undanförnu. Brooks var handtekin eftir skýrslutökur á lögreglustöð í Lundúnum og er hún í gæsluvarðhaldi. Fram kemur á fréttavef BBC að þetta er tíunda handtakan í tengslum við ásakanir á hendur dagblaðinu News of the World um símhleranir. 17.7.2011 13:17
Ráðherra vill ekkert segja um mögulega endurupptöku Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill ekki svara því til hvort hann hyggist beita sér fyrir því að Guðmundar og Geirfinnsmálin verði rannsökuð að nýju. Einn sakborninganna, Sævar Cieselski, þurfti að þola harðræði og pyntingar þegar honum var haldið í einangrunarvist. Sævar lést í vikunni en hann barðist alla tíð fyrir réttlæti í málinu. 17.7.2011 12:21
Chavez kominn aftur til Kúbu Hugo Chavez, forseti Venesúela, er aftur kominn til Kúbu til að gangast undir frekari meðferð við krabbameini. Chavez ræðir opinbskátt um veikindi sín í fjölmiðlum og tók meðal annars lyfin sín í beinni útsendingu. 17.7.2011 12:16
Orkuveitan auglýsir Minjasafnið til sölu Orkuveitan hefur hafið söluferli á fasteignum sem í hennar eigu eru. Salan er liður í því að létta á skuldastöðu Orkuveitu Reykjavíkur. 17.7.2011 11:55
Tilkynna of feit börn til barnavernda Offita á meðal barna í Danmörku er orðið svo stórt vandamál að barnaverndanefndir í fjölmörgum sveitafélögum eru farnar að fá tilkynningar um vanrækslu barnanna frá heilbrigðisstarfsfólki, segir í danska blaðinu Politiken. 17.7.2011 10:40
Kærður fyrir að planka á lögreglubíl Lögreglan í Álasundi í Noregi fékk tilkynningu um það klukkan fjögur í nótt að norskum tíma að ungur karlmaður væri að planka á kyrrstæðum lögreglubíl í miðborginni. Norska blaðið Aftenposten útskýrir uppátækið að planka með þeim hætti að það sé ný tómstundaiðja hjá ungu fólki sem felur í sér að liggja flatur með andlitið niðri, oft á óhefðbundnum stöðum. Svo séu birtar myndir af því á samfélagssíðum. Uppátækið megi rekja til Ástralíu. 17.7.2011 09:57
Fimm handteknir eftir bílveltu í bílastæðahúsi Fimm manns voru handteknir um eittleytið í nótt eftir að fólksbíl var velt í bílastæðahúsi við Höfðatún í Reykjavík í nótt. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn á hvolfi þegar komið var að og er hann talinn ónýtur. Ekki liggur fyrir hvernig tókst að velta bílnum. 17.7.2011 08:57
Farþegar Iceland Express lentu fyrir klukkan tvö Farþegar sem áttu bókað flug með Iceland Express sem átti að koma frá Frakklandi um miðjan dag á föstudag lentu á Keflavíkurflugvelli um klukkan tuttugu mínútur í tvö í nótt. Það er um það bil einum og hálfum sólarhring en þeir áttu upphaflega að lenda. 17.7.2011 08:42
Árekstur á Höfða Árekstur varð á gatnamótum Bíldshöfða og Höfðabakka nú á sjötta tímanum í kvöld. Einn sjúkrabíll var sendur á staðinn en talið er að enginn hafi meiðst alvarlega. Dælubíll var jafnframt sendur á staðinn til að hreinsa upp olíu sem lak á götuna. 16.7.2011 17:35
Esther kom fram Esther Björg Ragnarsdóttir, sem lögreglan lýsti eftir í dag er komin fram heil á húfi. 16.7.2011 16:08
Hundurinn á Seyðisfirði fann fíkniefni Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði í gær. Í öðru málinu fundust 4,6 grömm af hassi en 1,1 í hinu. Bæði málin komu upp í tengslum við aukið eftirlit vegna skemmtana á LungA hátíðinni. Lögreglan naut aðstoðar sérhæfðs tollvarðar með fíkniefnaleitarhund frá Tollstjóranum sem staðsettur er á Seyðisfirði og fann hundurinn fíkiefnin. 16.7.2011 14:14
Myndir af sigkötlunum í Mýrdalsjökli Hópur manna, meðal annars á vegum Ferðaklúbbsins 4*4, Landsbjargar og fleiri vinna að gerð jöklakorta fyrir ferðamenn. Af því tilefni flugu þeir Hjörleifur Jóhannesson og Snævarr Guðmundsson yfir Mýrdalsjökul í morgun og tóku myndir af sigkötlunum í Kötluöskjunni sunnanverðri. 16.7.2011 14:10
Björgvin vill taka upp Guðmundar- og Geirfinnsmálin að nýju Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin upp að nýju. Eftir að Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu sporlaust um miðjan áttunda áratuginn voru fjögur ungmenni dæmd í fangelsi. Málsmeðferðinni var allan tímann verulega ábótavant og einn hinna dæmdu, Sævar Ciesielski, krafðist ítrekað endurupptöku málsins. Sævar lést í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn. 16.7.2011 13:42
Ögmundur ók yfir nýju brúna Búið er að hleypa umferð á nýju brúna yfir Múlakvísl. Það var gert laust eftir klukkan tólf. Brúin var vígð með þeim hætti að þeir vösku menn sem unnið hafa við brúargerðina gengu í gegnum borða en eftir það ók Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson, starfandi ferðamálaráðherra, yfir brúna fyrstir manna. 16.7.2011 12:25
Fagna opnun nýju brúarinnar Selflutningar, sem Vegagerðin og bílaleigur hafa staðið að í Múlakvísl, hafa að mestu gengið mjög vel alla vikuna og forðað stórtjóni í ferðaþjónustu. Þetta segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í tilkynningu sem hún sendi fjölmiðlum. 16.7.2011 11:47
Lögreglan lýsir eftir Esther Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Esther Björgu Ragnarsdóttur 15 ára. Ekki er vitað um klæðaburð hennar en hún er 168 sm, grannvaxin með axlarsítt dökkt krullað hár. Blá augu og með lokk í tungu og nafla. Síðast spurðist til hennar síðastliðið þriðjudagskvöld. 16.7.2011 11:31
Dalai Lama hittir forseta Bandaríkjanna í dag Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hittir í dag Dalai Lama andlegan leiðtoga Tíbeta. Hvíta húsið sendi út fréttatilkynningu um fundinn í gær, en Dalai Lama yfirgefur Bandaríkin í dag eftir 11 daga dvöl í Washington. Hvíta húsið segir að Fundur Obama og Dalai Lama sýni stuðning forsetans við málstað Tíbeta, en þeir berjast sem kunnugt er, fyrir sjálfstæði frá Kína. Dalai Lama hefur verið í útlegtð frá heimalandi sínu frá árinu 1959 vegna baráttu sinnar fyrir málstaðnum. 16.7.2011 10:55
Enginn sáttafundur boðaður í flugmannadeilu Samninganefnd atvinnuflugmanna hjá Icelandair og samningsaðilar fyrirtækisins hafa ekki verið boðaðir á annan sáttafund hjá ríkissáttasemjara eftir að upp úr slitnaði í viðræðunum á þriðja tímanum í gær. Flugmenn hafa ákveðið að fara í ótímabundið yfirvinnubann frá næsta þriðjudegi hafi ekki samist fyrir þann tíma. Deilurnar stranda fyrst og fremst á starfsöryggi flugmanna en búið er að semja um almennar launahækkanir í takt við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. 16.7.2011 10:01
Hugsanlega hægt að hleypa umferð á brúna á hádegi Vinna við bráðabirgðabrúna yfir Múlakvísl hefur gengið vel í morgun og er Vegagerðin bjartsýn á að hægt verði að hleypa umferð á brúna upp úr hádegi. Selflutningar yfir ána hófust klukkan sjö í morgun og munu standa áfram þar til að umferð verður hleypt á. Talið er að tjón ferðaþjónustunnar af lokun hringvegarins verði mun minna en óttast að því fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Í samtali við blaðið segir Erna Hauksdóttir formaður samtaka ferðaþjónustunnar að selflutningar yfir ána hafi bjargað stöðunni og skipulagðar hópferðir því lítið raskast. 16.7.2011 09:57
Herjólfi seinkar í dag Seinkun verður á áætlun Herjólfs í dag. Viðgerð sem hefur staðið yfir í nótt á stefnislokun Herjólfs er ekki lokið. Allar ferðir dagsins seinka því um tvær klukkustundir og er fyrsta ferð frá Vestmannaeykjum því klukkan hálf ellefu og frá Landeyjum klukkan tólf. Farþegar eru beðnir um að fylgjast áfram með tilkynningum um áætlun. 16.7.2011 09:54