Fleiri fréttir Herjólfur sigldi í nótt Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fór aukaferð í Landeyjahöfn klukkan hálf þrjú í nótt og er talið að nær allir, sem biðu þess að komast í land, hafi komist með skipinu, þar sem nokkur bílastæði voru laus á bílaþilfari. Tvær ferðir voru felldar niður í gærdag vegna mikillar ölduhæðar úti fyrir Landeyjahöfn og kvöldferð var frestað nokkuð af sömu ástæðu, en útlit er fyrir að skipið geti siglt samkvæmt áætlun í dag. 4.7.2011 07:04 Hestamaður slasaðist alvarlega á Ströndum Hestamaður slasaðist alvarlega þegar hestur hans hrasaði undan honum í Bjarnarfirði á Ströndum í gærkvöldi, og maðurinn varð undir honum. Samferðafólk hans hringdi þegar í neyðarlínuna. 4.7.2011 07:03 Heildarvirði bóluefnisins um 150 milljónir Um 130 þúsund skammtar af bóluefni gegn svínainflúensu renna út um næstu áramót. Heildarvirði bóluefnisins er um 150 milljónir króna. 300 þúsund skammtar af inflúensubóluefni voru keyptir árin 2009 og 2010 og nam kostnaðurinn um 350 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni. Þeir 130 þúsund skammtar sem eru eftir eru hugsaðir sem varasjóður. 4.7.2011 06:30 Fólksflótti mun valda skorti á vinnandi fólki „Íslendingar eru dáðir í Litháen,“ segir Ramunas Bogdanas sem var nánasti aðstoðarmaður Landsbergis, fyrsta forseta Litháens, eftir að lýst var yfir sjálfstæði þar í landi árið 1990. 4.7.2011 06:00 Takmarkanir á bótum ólögmætar Það ákvæði íslensks vinnuréttar sem kveður á um að farandlaunþegi þurfi að hafa verið í fullu starfi í að minnsta kosti einn mánuð áður en hann á rétt á atvinnuleysisbótum eru ólögmætar, samkvæmt áliti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA. Ákvæðið brýtur í bága við EES-samninginn. 4.7.2011 05:00 Vinnsla gengur vel á Vopnafirði Góður gangur hefur verið í vinnslu á síld og makríl í frystihúsi HB Granda á Vopnafirði í sumar. Búið er að taka á móti alls um 4.300 tonnum af síld og makríl og þar af er síldaraflinn tæplega 2.600 tonn. 4.7.2011 05:00 Fékk koss fyrir fríið en síðan uppsagnarbréf Haukur Holm, fyrrverandi fréttastjóri Útvarps Sögu, fékk uppsagnarbréf frá lögmanni útvarpsstöðvarinnar stuttu eftir að hann fór í sumarfrí. Hann hafði verið starfandi á stöðinni í ár. 4.7.2011 05:00 Ómur stóð uppi sem sigurvegari Glæsilegu Landsmóti hestamanna lauk á Vindheimamelum í Skagafirði í gær og var mál manna að hestakostur þar hafi verið einstaklega góður. 4.7.2011 04:30 Hafnfirðingar hafa ekki efni á að hjálpa „Hafnfirðingar eru með milljarðalán í vanskilum, eru að skera niður og hagræða á öllum sviðum og með mjög erfiða lausafjárstöðu. Mér finnst það algjörlega galið að leggja til að sveitarfélagið greiði reikninga fyrir aðra,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfjarðar. 4.7.2011 04:00 Réttur til að njóta náttúrunnar A-nefnd stjórnlagaráðs hefur lagt fram þrjár tillögur um náttúru Íslands og umhverfi til afgreiðslu í áfangaskjal ráðsins. Hnykkt hefur verið á rétti almennings til að njóta náttúrunnar. 4.7.2011 03:30 Legudagar sexfaldast hjá fólki með ADHD 4.7.2011 03:15
Sjá næstu 50 fréttir
Herjólfur sigldi í nótt Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fór aukaferð í Landeyjahöfn klukkan hálf þrjú í nótt og er talið að nær allir, sem biðu þess að komast í land, hafi komist með skipinu, þar sem nokkur bílastæði voru laus á bílaþilfari. Tvær ferðir voru felldar niður í gærdag vegna mikillar ölduhæðar úti fyrir Landeyjahöfn og kvöldferð var frestað nokkuð af sömu ástæðu, en útlit er fyrir að skipið geti siglt samkvæmt áætlun í dag. 4.7.2011 07:04
Hestamaður slasaðist alvarlega á Ströndum Hestamaður slasaðist alvarlega þegar hestur hans hrasaði undan honum í Bjarnarfirði á Ströndum í gærkvöldi, og maðurinn varð undir honum. Samferðafólk hans hringdi þegar í neyðarlínuna. 4.7.2011 07:03
Heildarvirði bóluefnisins um 150 milljónir Um 130 þúsund skammtar af bóluefni gegn svínainflúensu renna út um næstu áramót. Heildarvirði bóluefnisins er um 150 milljónir króna. 300 þúsund skammtar af inflúensubóluefni voru keyptir árin 2009 og 2010 og nam kostnaðurinn um 350 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni. Þeir 130 þúsund skammtar sem eru eftir eru hugsaðir sem varasjóður. 4.7.2011 06:30
Fólksflótti mun valda skorti á vinnandi fólki „Íslendingar eru dáðir í Litháen,“ segir Ramunas Bogdanas sem var nánasti aðstoðarmaður Landsbergis, fyrsta forseta Litháens, eftir að lýst var yfir sjálfstæði þar í landi árið 1990. 4.7.2011 06:00
Takmarkanir á bótum ólögmætar Það ákvæði íslensks vinnuréttar sem kveður á um að farandlaunþegi þurfi að hafa verið í fullu starfi í að minnsta kosti einn mánuð áður en hann á rétt á atvinnuleysisbótum eru ólögmætar, samkvæmt áliti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA. Ákvæðið brýtur í bága við EES-samninginn. 4.7.2011 05:00
Vinnsla gengur vel á Vopnafirði Góður gangur hefur verið í vinnslu á síld og makríl í frystihúsi HB Granda á Vopnafirði í sumar. Búið er að taka á móti alls um 4.300 tonnum af síld og makríl og þar af er síldaraflinn tæplega 2.600 tonn. 4.7.2011 05:00
Fékk koss fyrir fríið en síðan uppsagnarbréf Haukur Holm, fyrrverandi fréttastjóri Útvarps Sögu, fékk uppsagnarbréf frá lögmanni útvarpsstöðvarinnar stuttu eftir að hann fór í sumarfrí. Hann hafði verið starfandi á stöðinni í ár. 4.7.2011 05:00
Ómur stóð uppi sem sigurvegari Glæsilegu Landsmóti hestamanna lauk á Vindheimamelum í Skagafirði í gær og var mál manna að hestakostur þar hafi verið einstaklega góður. 4.7.2011 04:30
Hafnfirðingar hafa ekki efni á að hjálpa „Hafnfirðingar eru með milljarðalán í vanskilum, eru að skera niður og hagræða á öllum sviðum og með mjög erfiða lausafjárstöðu. Mér finnst það algjörlega galið að leggja til að sveitarfélagið greiði reikninga fyrir aðra,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfjarðar. 4.7.2011 04:00
Réttur til að njóta náttúrunnar A-nefnd stjórnlagaráðs hefur lagt fram þrjár tillögur um náttúru Íslands og umhverfi til afgreiðslu í áfangaskjal ráðsins. Hnykkt hefur verið á rétti almennings til að njóta náttúrunnar. 4.7.2011 03:30
Yfir 3,5 milljónir miða seldar Yfir 3,5 milljónir miða hafa nú verið seldar á Ólympíuleikana í London á næsta ári. Búið er að selja miðana í skömmtum og seldust rúmlega 750 þúsund miðar til um 150 þúsund manns í í síðasta skammtinum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 4.7.2011 02:45
Óska eftir fundi í iðnaðarnefnd „Það er klúður af hálfu stjórnarflokkanna að leggja ekki áherslu á að koma þessu máli í gegnum þingið,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem sæti á í iðnaðarnefnd Alþingis. 4.7.2011 02:30
Kona verður forsætisráðherra Taíland, ap Yingluck Shinawatra verður forsætisráðherra Taílands, fyrst kvenna, en flokkur hennar, Puea Thai, vann stórsigur í þingkosningunum í gær. 4.7.2011 02:15
Íbúarnir fluttir burt Áætlað er að um 160 þúsund lítrar af olíu hafi runnið út í Yellowstone-ána í Montana í Bandaríkjunum á laugardag. Lekinn varð er olíuleiðsla fyrirtækisins ExxonMobil rofnaði seint á föstudagskvöld. 4.7.2011 01:30
Köben á kafi Vatnsmikil flóð voru í Kaupmannahöfn í gærkvöld og í morgun. Mörgum götum var lokað og rafmagn fór af húsum þegar vatn flæddi inn í kjallara á svæðinu. 3.7.2011 20:45
Össur vitnaði í Tinu Turner á ríkjaráðstefnu ESB Utanríkisráðherra greip til heimspeki Tinu Turner þegar hann flutti mál Íslands á ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins á mánudag. Hann vonast til að hægt verði að setja aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir lok kjörtímabilsins. 3.7.2011 20:30
Gönguhópurinn fundinn Hópurinn sem leitað var að við Illakamb í Lónsöræfum er fundinn heill á húfi. Það voru félagar í Björgunarfélagi Hornafjarðar sem fundu hópinn rétt fyrir kl. 20 í kvöld. Hópurinn mun fylgja björgunarsveitamönnunum til Hafnar. Mikil þoka var á svæðinu og rigning. 3.7.2011 20:04
Þyrla sækir slasaðan hestamann Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið að sækja mann sem féll af hestbaki í Bjarnarfirði nyðri, milli Skjaldbjarnarvíkur og Drangavíkur. Maðurinn var þar í hópi ferðafólks og hafði fararstjóri hópsins samband við Neyðarlínuna um klukkan 19 í kvöld og óskaði eftir aðstoð þyrlunnar, talið er að maðurinn sé fótbrotinn. 3.7.2011 20:00
Minna af makríl vegna kuldans fyrir austan Mun minna er af makríl á miðunum austur af landinu samanborið við sama tíma í fyrra vegna kuldatíðarinnar fyrir austan. Útgerðarmenn á Austurlandi eru uggandi, en fiskurinn sem veiðist, er einnig smærri og verðminni. 3.7.2011 20:00
Sjö hestamenn teknir ölvaðir undir stýri Sjö ökumenn hafa verið teknir grunaðir um ölvunakstur á Vindheimamelum í dag. Varðstjóri hjá lögreglunni á Sauðárkróki segir að nóg hafi verið að gera í dag við að stjórna umferð en Hestamannamótinu lauk í dag. Mikil umferð er nú á leiðinni frá Vindheimamelum og beinir lögregla því til ökumanna að aka varlega og hafa öryggisbeltin spennt. 3.7.2011 19:41
Ný rannsókn sýnir marktæk áhrif farsímanotkunar á heila Í fyrsta sinn hefur verið sýnt fram á með nýrri vísindalegri rannsókn að farsímanotkun veldur marktækum og mælanlegum áhrifum á efnaskiptin í heilaberkinum. En í nokkur ár hafa verið vangaveltur um hættu á myndun æxlis í heila vegna farsímanotkunar. 3.7.2011 19:30
Björgunarsveitarmenn aðstoða gönguhóp í þoku Björgunarsveit frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg á Höfn er farin til aðstoðar gönguhóp á Lónsöræfum. Hópurinn telur 7 manns og var hann á leið af Illakambi áleiðis í Kollumúlaskála en villtist af leið í mikilli þokur. 3.7.2011 17:49
Herjólfur siglir ekki vegna veðurs - Um tvö þúsund manns strandaglópar "Við áætlum að hér séu um fimmtán hundruð til tvö þúsund manns sem bíða eftir að komast heim til sín,“ segir Kristín Jóhannsdóttir, menningar- og markaðfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, sem sér um Goslokahátíðina sem fór fram um helgina á eyjunni. 3.7.2011 17:47
Strengur fór í sundur á Austurlandi Bilun hefur komið upp í stofnneti Mílu á Austurlandi. Um er að ræða slit á streng milli Egilsstaða og Vopnafjarðar, nánar tiltekið um 24 kílómetra frá Vopnafirði og 55 kílómetra frá Egilsstöðum. 3.7.2011 17:15
Vill kalla saman þing til að klára frumvarp um Drekasvæðið "Það var bara klúður hjá ríkisstjórninni að setja þetta ekki á dagskrá áður en þingi lauk í sumar,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 3.7.2011 16:27
Tveggja vikna gæsluvarðhald og geðheilbrigði rannsakað Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári, sem er talin hafa fætt barn í gær sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón þar sem hún vann, var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag en henni var jafnframt gert að gangast undir rannsókn á geðheilbrigði. Kærasti konunnar er laus úr haldi lögreglu. 3.7.2011 15:38
Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni síðar í dag Að öllum líkindum verður farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í gærmorgun, síðar í dag. 3.7.2011 14:53
Ung kona lést á Hróarskeldu Ung kona lést þegar hún féll þrjátíu og einn metra úr einhverskonar turni á Hróaskelduhátíðinni í Danmörku sem nú stendur yfir. Haft er eftir sjónarvottum í dönskum fjölmiðlum að konan hafi látist samstundis við fallið en hún mun hafa verið í annarlegu ástandi. 3.7.2011 14:08
Íslenskt fyrirtæki og Wikileaks ætla í mál við Visa og Mastercard Datacell ehf. og Wikileaks ætla að höfða mál á hendur kortafyrirtækjunum Visa og Mastercard í Danmörku og á Íslandi vegna afskipta af greiðslum til Wikileaks. Þá ætla fyrirtækin að kvarta til Evrópusambandsins vegna meintrar misnotkunar stóru kortafyrirtækjanna á markaðsráðandi stöðu en þau eru með nær 100 prósent markaðarins í Evrópu. 3.7.2011 13:48
Himinlifandi að vera eini ráðherrann fyrir landsdómi Geir H. Haarde segist vera himinlifandi yfir því að aðrir ráðherrar hafi ekki einnig verið dregnir fyrir landsdóm. Þetta kemur fram í viðtali sem Geir veitti AFP fréttaveitunni. Hann kveðst jafnframt hafa komið í veg fyrir að ekki fór eins fyrir Íslandi og Grikklandi. 3.7.2011 13:00
Syngja kreppulög á Austurvelli Austurvallarkórinn ætlar að koma saman og syngja nokkur kreppulög á Austurvelli í Reykjavík klukkan tvö í dag. 3.7.2011 12:45
Herjólfur siglir ekki vegna veðurs Herjólfur sigldi ekki frá Vestmannaeyjum klukkan 11:30 í dag vegna veðurs og ferðin frá Landeyjahöfn klukkan 13 var líka felld niður. Í tilkynningu segir að miða í 13:00 ferðina gildi í ferðina klukkan 16:00 í dag. 3.7.2011 12:18
Líkfundur við Hótel Frón: Vissu ekki að konan væri ólétt Konan sem grunuð er um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við hótel í Reykjavík í gærmorgun er 22 ára gömul og er frá Litháen. Kærasti hennar er enn í haldi. 3.7.2011 11:55
Lék sér með byssu föður síns þegar skot hljóp af Sjö ára grænlensk stúlka gekkst undir stóra kviðarholsaðgerð á Landspítalanum í gærkvöldi eftir að hafa orðið fyrir voðaskoti í heimabæ sínum Tasiilaq á Grænlandi í gærdag. Óskað var eftir sjúkraflugi til Íslands síðdegis gær en þá var stúlkan talin vera í lífshættu. 3.7.2011 11:36
150 þúsund lítrar af olíu láku út í Yellowstone-fljótið Olíuleiðsla rifnaði í Montana í Bandaríkjunum í gær og rúmlega hundrað og fimmtíu þúsund lítrar af olíu láku út í Yellowstone fljótið. Olíuleiðslan var í eigu olíurisans ExxonMobil en talsmenn fyrirtækisins segja leiðslunni lekið í hálftíma áður en henni var lokað og svæðið afgirt. 3.7.2011 11:18
Fjörutíu ár frá dauða Jim Morrison Fjörtíu ár eru liðin í dag frá því að tónlistarmaðurinn og söngvari hljómsveitarinnar The Doors Jim Morrison fannst látinn í baðkari á heimili sínu í París. Hann var 27 ára gamall þegar hann lést. 3.7.2011 11:00
Hjónum rænt í Pakistan Svissneskum hjónum var rænt í borginni Balochistan í suðvestur Pakistan á föstudag, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. 3.7.2011 10:23
Mikil flóð í Kaupmannahöfn Mikil flóð eru í Kaupmannahöfn og voru margar götur í borginni ófærar í gærkvöldi og voru þær áfram lokaðar í morgun, að því er fram kemur á vef Berlingske Tidende. 3.7.2011 09:44
Tilkynnt um nauðgun á Hestamannamóti Lögregla rannsakar nú meinta nauðgun sem átti sér stað Hestmannamótinu á Vindheimamelum í Skagafirði í nótt. Tilkynnt var um verknaðinn til lögreglunnar á Sauðárkróki nú undir morgun. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra er málið í rannsókn lögreglu en þolandinn er kona um tvítugt. 3.7.2011 09:33
Tveir í haldi vegna líkamsárásar - spörkuðu í hausinn á fórnarlambinu Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akranesi vegna írskra daga sem þar fara fram um helgina. Mikill fjöldi var á Skaganum og þurfti oft að hafa afskipti af fólki með drykkjulæti. Tveir menn eru í haldi lögreglunnar vegna líkamsárásar í miðbænum í nótt. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var fluttur til skoðunar á spítala en ekki er vitað um líðan hans. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu spörkuðu mennirnir meðal annars í hausinn á manninum. 3.7.2011 09:08
Lík kornabarns finnst í ruslagámi í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú voveifilegt lát barns en lík þess fannst í ruslagámi við hótel í Reykjavík þar sem kona, sem talin er hafa fætt það, vinnur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 3.7.2011 00:23
Konunglegt brúðkaup í Mónakó Albert fursti af Mónakó gekk í dag að eiga Suður-Afrísku sunddrottninguna Charlene Wittstock. 2.7.2011 20:15
Merkir munir fundust á Snæfellsnesi Taflmenn frá síðmiðöldum, málmar, skart og gler er meðal þess sem fundist hefur í uppgreftri á fornri verstöð á Snæfellsnesi. 2.7.2011 18:56
Exeter-dómari upplýsti um stöðu sína en taldi önnur tengsl léttvægari Einar Ingimundarson, settur héraðsdómari í Exeter-málinu, vissi að samstarfsmaður hans hjá Íslenskum verðbréfum hefði verið vitni á rannsóknarstigi í málinu þegar hann tók að sér að dæma í því. Hann lét dómsformanninn, Arngrím Ísberg vita af stöðu sinni. 2.7.2011 18:30