Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útskrifuð af gjörgæslu Kona sem lá á gjörgæslu í nótt eftir umferðarslys á Gullinbrú um miðjan dag í gær er nú útskrifuð af deildinni. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni er ástand hennar stöðugt. 2.7.2011 13:40
Tekinn tvisvar sama daginn Lögreglan á Selfossi og Þyrludeild Landhelgisgæslunnar sinntu umferðareftirliti úr þyrlu í gærkvöldi. Farið var um Suður-, Vestur- og Norðurland og umferðinni fylgt eftir. 2.7.2011 13:21
Læknafélagið hefur ekki haft samband við Guðbjart Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, segir að ekkert erindi hafi borist frá Læknafélagi Íslands til velferðarráðuneytisins með ósk um fund frá því að hann fundaði síðast með formanni Læknafélagsins síðastliðið haust. 2.7.2011 13:15
Nafn konunnar sem lést Íslenska konan sem lést í umferðarslysi í borginni Basel í Sviss í gærmorgun hét Bergþóra Bachmann. Hún var 31 árs og barnslaus. 2.7.2011 12:20
Fólkið var komið í björgunarbát „Þetta fór allt saman mjög vel,“ segir Kristinn Ólafsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu sem tók þátt í að bjarga átta manns úr báti sem sigldi í strand við Lundey í Kollafirði nú rétt fyrir hádegi. 2.7.2011 12:11
Sigldi í strand við Lundey Bátur sigldi í strand við Lundey í Kollafirði nú fyrir stundu. Lögreglu- og björgunarsveitarmenn eru á leið á vettvang en ekki er vitað hversu margir eru um borð í bátnum. Nánari upplýsingar þegar þær berast. 2.7.2011 11:49
Forsetahjónin í konunglegu brúðkaupi Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú verða viðstödd brúðkaup Alberts II og Charlène Wittstock sem fram fer í Mónakó í dag. 2.7.2011 11:45
Náðust á öryggismyndavélar Tveir menn voru handteknir á miðnætti vegna gruns um að hafa brotist inn í raftækjaverslun í Síðumúla í Reykjavík í gærkvöldi. 2.7.2011 11:30
Íslensk kona lést í bílslysi í Sviss Íslensk kona um þrítugt lést í umferðarslysi í borginni Basel í Sviss gær. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu varð slysið í gærmorgun. Ekki er hægt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu. 2.7.2011 11:19
Með gras í bílnum og heima hjá sér Kannabis fannst í bíl hjá karlmanni á þrítugsaldri sem var stöðvaður fyrir of hraðan akstur á Vesturlandsvegi um klukkan tíu í gærkvöldi. Lögreglan gerði í kjölfarið húsleit heima hjá honum þar sem töluvert magn af fíkniefninu fannst en það var í söluumbúðum. Tveir einstaklingar voru handteknir heima hjá manninum sem játaði við yfirheyrslur að eiga efnin. 2.7.2011 10:52
Óbirtar teikningar Kjarvals Áður óbirtar teikningar eftir Jóhannes Kjarval listmálara fundust nýlega í Skotlandi. Það var Einar Falur Ingólfsson, blaðamaður og ljósmyndari á Morgunblaðinu sem fann teikningarnar fyrir tilviljun en hann var staddur á heimaslóðum Skotans R.N Stewarts í Skotlandi. 2.7.2011 10:45
Kveikti í sólpalli Slökkviðliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út þrisvar sinnum í nótt og í gærkvöld. Fyrst kom upp eldur í stóru vinnuvéladekki í Krísuvík sem mikinn reyk lagði frá um allt svæðið en greiðlega gekk að slökkva eldinn. 2.7.2011 09:46
Nóg að gera í Vestmannaeyjum í nótt Það var nóg að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt, en þar fór fram hin árlega goslokahátíð. Þrír gistu fangageymslu en einn þeirra var handtekinn á skemmtistað bæjarins þar sem hann hafði tekið upp hníf og ógnað fólki. 2.7.2011 09:42
Ætlar í stríð við Evrópu ef Nató hættir ekki árásum sínum Múammar Gaddafí, einræðisherra Líbíu, hét því að færa Evrópu stríð ef NATÓ hættir ekki árásum sínum í landinu. Gaddafi sagði þetta í útvarpsávarpi sem spilað var fyrir stuðningsmenn hans sem komu saman á græna torgi í miðborg Trípolí í gær í þúsundatali. 2.7.2011 09:38
Afar fátítt að gæsluvarðhalds sé krafist Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir það ekki nýtt af nálinni að meintir kynferðisbrotamenn séu ekki settir í gæsluvarðhald eftir að kæra hefur verið lögð fram. Fjöldann sé hægt að telja á fingrum annarrar handar af tugum eða hundruðum mála. 2.7.2011 09:30
Hundarnir drápu 29 lömb og sjö kindur Hundarnir tveir sem réðust á fé í beitarhólfi við Þórðarkot í Eyrarbakkahreppi 9. júní drápu alls 29 lömb og sjö kindur. Sumt af fénu var dautt þegar að var komið en öðru þurfti að sálga vegna bitsára. 2.7.2011 08:45
Tekist á um forræði kynferðisbrotamála Forstjóri Barnaverndarstofu vill láta færa rannsókn á alvarlegum brotum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gagnrýnir þessi orð harðlega og vill umboð til rannsókna í Vestmannaeyjum. Lögreglan á Selfossi sinnir rannsókn á kynferðisbrotamálum sem eiga sér stað í Vestmannaeyjum. Karlmaður á fimmtugsaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, var úrskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald fyrir viku síðan, grunaður um að hafa níðst kynferðislega á ungri stjúpdóttur sinni mánuðum saman árin 2009 og 2010. Maðurinn er einnig grunaður um að hafa misnotað tvær stúlkur til viðbótar. 2.7.2011 08:00
Flestir ofbeldismenn láta kröfurnar fyrnast Flestir dæmdir ofbeldismenn sem greiða eiga fórnarlömbum sínum bætur láta kröfurnar fyrnast án þess að greiða, segir Halldór Þormar Halldórsson, lögfræðingur hjá Sýslumanninum á Siglufirði. 2.7.2011 08:00
Fleiri mál í Eyjum Karlmaður á áttræðisaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, var sýknaður í Hæstarétti af ákæru um kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku í mars síðastliðnum. Rúmur mánuður leið frá því að stúlkan greindi lögreglu frá meintu broti þar til að hún var færð í Barnahús til skýrslutöku. 2.7.2011 07:45
Listakonan Sissú látin Sigþrúður Pálsdóttir myndlistarmaður, jafnan kölluð Sissú, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi á fimmtudag. 2.7.2011 07:00
Tilkynningum fækkar um 13% Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 13 prósent fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, borið saman við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Barnaverndarstofu. 2.7.2011 07:00
Uppsögn hjá OR ólögleg Félagsdómur dæmdi á mánudag uppsögn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á trúnaðarmanni ólögmæta. Uppsögn hans var liður í endurskipulagningu og hagræðingu í starfsemi OR. Voru verkefni hans að hluta til lögð niður en nokkur hluti færður til annarra sviða. 2.7.2011 07:00
Minna rusl í kreppu Starfsmenn í urðunarstöðinni í Álfsnesi merkja greinilega breyttar neysluvenjur Íslendinga eftir hrun. Samanlögð þyngd alls þess sorps sem barst stöðinni í fyrra var rúmum 70 þúsund tonnum minni en þyngd þess sorps sem komið var með árið 2008. 2.7.2011 07:00
Sólin lífgar upp á Ísafjörð Eftir kuldalegt og dauflegt sumar tók Ísafjörður stakkaskiptum í fyrradag en þá hlýnaði skyndilega og bærinn fylltist af fólki, segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. 2.7.2011 06:30
Ríkið sýknað af bótakröfu ÍAV Íslenska ríkið var í vikunni sýknað af kröfu Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) um skaðabætur upp á 480 milljónir króna vegna útboðs Héðinsfjarðarganga árið 2003. ÍAV átti lægsta tilboð í verkið, en áður en Vegagerðin tók afstöðu til tilboðanna var hætt við framkvæmdir. 2.7.2011 06:00
Kosið um nýju stjórnarskrána Marokkóbúar greiddu í gær atkvæði um nýja stjórnarskrá, sem konungur landsins segir svar við lýðræðiskröfum sem gert hafa vart við sig þar undanfarna mánuði eins og víðar í löndum Norður-Afríku. 2.7.2011 05:00
Stofnunum fækkað um 30 Stofnunum á vegum hins opinbera hefur fækkað um 15 prósent frá því í byrjun árs 2010 eða um alls 30. Þetta kemur fram í yfirliti forsætisráðherra um sameiningu stofnana og ráðuneyta sem lagt var fram í ríkisstjórn í gær. 2.7.2011 04:30
Innanríkisráðherra vill skýringar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur kallað eftir greinargerð um meðferð Ríkissaksóknaraembættisins og lögreglustjórans á Selfossi á málinu í Vestmannaeyjum. Innanríkisráðherra er gert samkvæmt lögum að hafa eftirlit með framkvæmd ákæruvalds og getur hann farið fram á að Ríkissaksóknari láti í té gögn og greinargerð um meðferð einstakra mála. 2.7.2011 04:00
Líf í miðbænum í sumar Húsin þrjú á mótum Austurstrætis og Lækjargötu sem endurgerð voru eftir eldsvoða í apríl 2007 voru formlega opnuð í gær. Þá var hluta Laugavegar lokað tímabundið fyrir bílaumferð í gær en Austurstræti og neðri hluti Laugavegar verða göngugötur á næstunni. 2.7.2011 04:00
Laus úr haldi en ákærur óbreyttar Dómari í New York ákvað í gær að Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fái að fara frjáls ferða sinna. Hann fær þó ekki að fara úr landi. 2.7.2011 03:45
Chavez með krabbamein Hugo Chavez, forseti Venesúela, greindi frá því í sjónvarpsávarpi í gær að hann hefði greinst með krabbamein. Sagði hann að læknar á Kúbu hefðu fjarlægt úr honum æxli. 2.7.2011 00:15
Borgin ábyrg fyrir drápstré Borgaryfirvöld í Óðinsvéum voru nýlega dæmd til að greiða skaðabætur vegna dauða manns sem lést árið 2005 eftir að tré fauk um koll og lenti á bíl sem hann ók. 1.7.2011 22:15
Hreyfing tengd Al Kaída ábyrg Fjölþjóðaherlið Atlantshafsbandalagsins í Afganistan sakar Haqqani-hópinn, herská samtök tengd Al Kaída-hreyfingunni, um að hafa staðið að baki sjálfsvígsárásinni á hótel í Kabúl á mánudagskvöld. 1.7.2011 20:41
400 manns hafa sent inn saursýni 400 manns hafa sent Heilsuvernd sýni til greiningar á ristilkrabbameini frá því að sala á greiningarprófi hófst fyrir þremur mánuðum. Nokkrir hafa greinst með meinið á læknanlegu stigi. 1.7.2011 20:09
Segir ljósmæður hafa setið eftir í launaþróun Sex mánaða framlenging á samningi ljósmæðra við Sjúkratryggingar Íslands tók gildi í dag. Stéttin hefur setið eftir í launaþróun, segir ljósmóðir. 1.7.2011 20:07
Hrósaði Íslendingum í hástert fyrir störf í Kabúl Í dag eru 150 þúsund hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins á átakasvæðum að sinna hinum ýmsu verkefnum. Varaframkvæmdastjóri bandalagsins hrósaði vinnu Íslendinga í Kabúl í Afganistan sérstaklega í fyrirlestri í Öskju í dag. 1.7.2011 19:30
Þjónusta við sjúklinga forgangur ekki laun lækna Byrjunarlaun sérfræðilækna á sumum deildum eru hálf milljón króna. Velferðarráðherra hyggst ekki blanda sér í kjarabaráttu lækna en segir að tekist hafi að verja velferðina með því að draga úr niðurskurði til heilbrigðisþjónustu. 1.7.2011 19:24
Segir stjórnvöld fela niðurskurð í heilbrigðismálum Formaður Læknafélagsins segir stjórnvöld reyna að fela raunverulegan niðurskurð í heilbrigðismálum. 1.7.2011 19:16
Halda ásökunum gagnvart Strauss-Kahn til streitu Lögmenn konunnar sem sakar Dominique Strauss-Kahn um gróft kynferðisofbeldi og tilraun til nauðgunar halda ásökunum hennar til streitu, en Strauss-Kahn var látinn laus úr stofufangelsi í dag og fékk sex milljón dollara tryggingu sína endurgreidda. 1.7.2011 18:50
Barnaníð í Eyjum: Maðurinn átti að sæta gæsluvarðhaldi Bæjarstjórinn í Vestmanneyjum gerir alvarlegar athugasemdir við að maður sem nauðgaði dóttur sinni og er grunaður um brot gegn fleiri börnum hafi ekki verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að málið kom upp. Hann segir sýslumanninn á Selfossi hafa verið gerðan að blóraböggli í málinu. Ekki megi vanmeta aðstæður og hlut kerfisins í málum sem þessum. Bæjarstjórinn gagnrýnir aðferðafræði stjórnsýslunar að flytja ákvörðunartökuna ætíð frá fólki í héraði. 1.7.2011 18:20
Vatnsberinn fannst á meðferðarheimili Þór Óliver Gunnlaugsson, hættulegur strokufangi, sem lýst var eftir fyrr í dag er fundinn. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu fannst Þór í Hlaðgerðarkoti sem er meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga. Hann verður fluttur í fangelsið á Skólavörðustíg og væntanlega í framhaldinu á Litla-Hraun. 1.7.2011 17:55
Vatnsberinn var á spítala þegar hann strauk Þór Óliver Gunnlaugsson, sem áður hét Þórhallur Ölver og oft er kallaður Vatnsberinn, og lýst er eftir á að baki langan sakaferil eða allt frá árinu 1979. Hann hefur setið í fangelsi frá 1999 fyrir að hafa myrt Agnar W. Agnarsson á heimili sínu við Leifsgötu í Reykjavík. 1.7.2011 17:23
Lögreglan lýsir eftir hættulegum strokufanga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir, Þór Óliver Gunnlaugssyni, (áður Þórhallur Ölver Gunnlaugsson). Þórhallur var á höfuðborgarsvæðinu þegar hann strauk að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var klæddur í bláar gallabuxur og var í bláum stuttermabol. Hann er talinn vera hættulegur og afplánar 16 ára fangelsi. 1.7.2011 17:00
Slysið á Gullinbrú: Einn á gjörgæslu Einn liggur á gjörgæslu eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Gullinbrú um miðjan dag í dag. Fjórir voru fluttir á slysadeild og er gert ráð fyrir að einn þeirra fari heim í kvöld en klippum þurfti að beita til að ná tveimur farþeganna út. 1.7.2011 16:53
Nýnasistar skreyta sig með íslenska fánanum Þýskir nýnasistar hafa tekið ástfóstri við fatnað frá framleiðandanum Thor Steinar. Athygli vekur að í nýjustu línunni prýðir íslenski fáninn nokkrar flíkurnar. Thor Steinar hefur verið umdeilt fyrirtæki allt frá stofnun þess árið 2002. Tveimur árum síðar var lagt bann við því að ganga í fatnaði merktum Thor Steinar víða í Þýskalandi vegna þess hversu vörumerkið líktist merkjum sem einkenndu stormsveitir Hitlers. Eftir það var skipt um vörumerki en nýnasistar halda tryggð sinni við fatnaðinn. Í dag er bannað að mæta í fatnaði Thor Steinar á leiki ýmissa þýskra knattspyrnuliða, svo sem Werder Bremen, Hertha Berlin og Borussia Dortmund. Eigendur fyrirtækisins neita því hinsvegar staðfastlega að tengjast nasisma eða þjóðernishyggju. Auk íslenska fánans hefur norski fáninn verið prentaður á fatnað Thor Steinar. Jens Stoltenbert, fyrrverandi forsætisráðherra Norðmanna, var kunngert um þetta árið 2006 og lýsti hann yfir miklum áhyggjum af því að norsk tákn væru misnotuð í þágu nasista. Norska ríkið höfðaði í framhaldinu mál gegn Thor Steiner og krafðist þess að hætt væri að nota norska fánann á fatnað fyrirtækisins. Norðmenn töpuðu málinu en forsvarsmenn Thor Steiner gáfu engu að síður út yfirlýsingu um að þeir myndu hætta að prenta fánann á fötin. Í staðinn virðast þeir hafa snúið sér að íslenska fánanum. 1.7.2011 16:04