Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nauðgunum fjölgar ekki þó Aflið sé til staðar Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi, hafa sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að samtökin hafi í áraraðir átt mjög gott samstarf við Akureyrarbæ, forsvarsmenn Bíladaga og þá sem hafa séð um skipulag liðinna Verslunarmannahelga. „Vilja Aflskonur vekja athygli á þessu, þar sem Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóhátíðarnefndar vill meina að með aðkomu Stígamóta á þjóðhátíð ýti undir vandamál tengt kynferðisofbeldi á svæðinu,“ segir í tilkynningunni, en Aflið eru einskonar systursamtök Stígamóta með aðsetur á Akureyri. Aflskonur hafa verið með gangandi vaktir auk þess að vera með meiri viðbúnað ef eitthvað kæmi upp á þessar stóru helgar. Þær segja að gest og gangandi hafi alltaf tekið því vel að Aflskonur séu á svæðinu, og að fólk hafi almennt viljað spjalla og fræðast um starf þeirra. „Ekki hægt að merkja að það sé neitt meira um nauðganir né árásir þrátt fyrir að Aflið hafi verið sýninlegt og auglýst,“ segja þær. 6.5.2011 13:32
Segja það klúður að kjarasamningar hafi ekki náðst fyrr Stjórn Félags atvinnurekenda telur að Samtök atvinnulífsins hafi klúðrað góðu tækifæri til að ná ásættanlegum kjarasamningi þann 15. apríl síðastliðinn samkvæmt yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér. 6.5.2011 13:27
Fleiri horfa á kýrnar sletta úr klaufunum en mæta á Hróarskeldu Sú hefð hefur skapast hjá samtökum lífrænna bænda í Danmörku að bjóða gestum í heimsókn þegar kúnum er hleypt út á vorin. Á pálmasunnudag, 17. apríl, voru 65 kúabú þar með opið hús og 110 þúsund manns alls fylgdust með því þegar kýrnar slettu úr klaufunum. Frá þessu er greint á vef Landssambands kúabænda. Gestum við þennan viðburð fjölgaði um 30 þúsund frá síðasta ári. Þetta því orðin stærri hátíð en tónlistarhátíðin á Hróarskeldu ef miðað er við gestafjölda, en þarna dreifast gestirnir vitanlega á 65 bú. 6.5.2011 13:13
Starfsfólk Rauða krossins í bráðahættu - Myndband Arnar Þór Marteinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir starfsfólk hjá Rauða Krossinum hafa verið í bráðahættu þegar hælisleitandinn Mehdi Kavyan Pour reyndi að kveikja í sér í morgun. 6.5.2011 12:23
Þór Saari: Óraunhæfir kjarasamningar Þingmaður Hreyfingarinnar segir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna nýrra kjarasamninga vera óraunhæfa og ríkið geti ekki staðið undir henni. Hann telur að launþegar muni fella samningana í atkvæðagreiðslu og sækja sér meiri launahækkanir. Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar gagnrýnir harðlega yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna nýrra kjarasamninga. Hann segir yfirlýsinguna óljósa og erfitt sé að sjá í hvernig eigi að ráðstafa 60 milljarða fjárfestingu sem lofað er sem og hvaðan peningarnir eigi að koma. "Ríkissjóður á ekki fyrir þessum útgjöldum og þeir munu þá koma eingöngu úr frekari skattahækkunum eða niðurskurði annars staðar. Þannig þetta hljómar eins og einhver þykjustu dúsa upp í aðila vinnumarkaðarins til að skrifa undir, en ég fæ ekki séð að ríkið muni bara geta staðið undir það sem það lofaði," segir hann. Þá segir Þór kjarasamningana byggja á verðbólguspám Seðlabankans og Alþýðusambandsins sem hafi aldrei staðist hingað til. "Ég er svolítið hræddur um að launafólk komi með skarðan hlut frá þessum samningum, þeir verði til málamynda til að skapa frið á vinnumarkaði sem að mun ekki halda," segir Þór. Hann segir launahækkanir í samningunum vera of lágar. Hann telur að samningarnir verði felldir í atkvæðagreiðslu. "Ég held að launafólk þurfi að snúa betur bökum saman og sækja sér ríflegri launahækkanir og vera öflugra í andstöðu sinni við þá aðför sem búið er að fara gegn almenningi hérna undanfarin þrjú ár. Samtök launafólks eiga að gæta hagsmuna þeirra og ég tel að þau hafi ekki staðið sig nægilega vel í þessum kjarasamningum og tel því að launafólk eigi að rísa upp og fella þessa samninga,“ segir Þór. 6.5.2011 12:04
Örvæntingin rak Mehdi til þess að hella yfir sig bensíni Það virðist hafa verið örvæntingin sem rak hinn 53 ára gamla Mehdi Kavyan Pour til þess að taka leigubíl upp í húsnæði Rauða krossins um tíu leytið í morgun. Hann var með tvo fulla brúsa af bensíni með sér. Leigubílstjórinn, sem fréttastofa ræddi við á vettvangi, hélt að bensíntankur bílsins væri farinn að leka. 6.5.2011 11:54
Skutlurnar standa fyrir hópakstri mótorhjólakvenna Mótorhjólaklúbburinn Skutlurnar stendur fyrir hópakstri kvenna í miðbæ Reykjavíkur í kvöld. Tilefnið er alþjóðlegur mótorhjóladagur kvenna sem haldinn er hátíðlegur í dag, fimmta árið í röð. Allar konur eru því „hvattar til að stíga á fáka sína og hjóla eins og enginn sé morgundagurinn,“ eins og segir á vefnum Mótorsport.is „Tilgangurinn með þessum degi er að vekja athygli á auknum fjölda kvenna sem hjólar sér til skemmtunar og að hjólasportið sé ekki eingöngu bundið við karlmenn. Til gamans má geta þess að mestu aukning í motocrossi á Íslandi var einmitt í hópi kvenna árið 2007 og 2008 þó svo að þar hafi aðeins dregið úr, að þá má rekja það frekar til efnahags en áhugaleysis. Nú má áætla að um fimmtungur keppenda í hverju motocrossmóti sé konur. Einnig hafa sprottið upp félög hér og þar á Íslandi sem eingöngu eru skipaðar konum og má þar nefna hópinn Skutlurnar,“ segir þar ennfremur. 6.5.2011 11:49
Bensín slettist á starfsfólk - réðust á manninn með slökkvitækjum Starfsfólk Rauða Krossins í Efstaleiti var í mikilli hættu þegar hælisleitandi frá Íran hótaði að kveikja í sér inni í húsinu á tíunda tímanum í morgun. 6.5.2011 10:51
Fundu dóp, vopn og þýfi í Köge Viðamikilli aðgerð dönsku lögreglunnar í bænum Köge á Sjálandi er lokið. Í aðgerðinni fannst töluvert af dópi, vopnum og þýfi og einn tvítugur karlmaður var handtekinn. 6.5.2011 10:43
Hælisleitandi sem ætlaði að kveikja í sér yfirbugaður Hælisleitandi hefur verið handtekinn en hann fór inni í hús Rauða krossins í Efstaleiti og hótaði að kveikja í sér. Maðurinn var með bensínbrúsa. 6.5.2011 09:57
Siglt frá Þorlákshöfn í dag Vegna veðurs og öldugangs í Landeyjahöfn verða allar ferðir Herjólfs í dag farnar til og frá Þorlákshöfn. 6.5.2011 09:40
Stjórnendur Hörpu leyfðu RÚV ekki að sýna beint Stjórnendur Hörpu veittu RÚV ekki heimild til að sýna beint frá fyrstu tónleikunum sem haldnir voru í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. "Þessi ákvörðun var mat stjórnenda Hörpu vegna þess að það voru of mörg mikilvæg atriði sem voru bara hreinlega ekki komin á hreint varðandi tækni og þá sérstaklega lýsingu til þess að hægt væri að taka sénsinn á að sjónvarpa þessu beint á fyrstu tónleikum sem áttu sér stað í húsinu," segir Anna Margrét Björnsson, kynningarfulltrúi Hörpu. "Það hefði verið hálfgerð tilraunastarfsemi af okkar hálfu,“ bætir hún við. 6.5.2011 08:57
Elvis ekki lengur í hópi vinsælla skírnarnafna vestan hafs Nafnið Elvis er fallið af listanum yfir þúsund vinsælustu skírnarnöfnin í Bandaríkjunum. Þetta hefur ekki gerst síðan árið 1954 6.5.2011 07:48
Samkynheigð pör í Brasilíu fá sömu réttindi og önnur hjón Hæstiréttur Brasilíu hefur úrskurðað að samkynhneigð pör í landinu skulu njóta sömu réttinda og önnur hjón. Úrskurður þessi var samþykktur samhljóma af öllum 10 dómurum réttarins. 6.5.2011 07:46
Danska lögreglan í viðamikilli aðgerð í bænum Köge Danska lögreglan stendur nú í viðamikilli aðgerð gegn glæpagengjum í bænum Köge á Sjálandi. Hátt í hundrað lögreglumenn taka þátt í aðgerðinni sem hófst fyrir tveimur tímum síðan. 6.5.2011 07:45
Þúsundir íbúa Memphis flýja vegna flóða Þúsundir af íbúum í miðborg Memphis í Tennessee í Bandaríkjunum hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna flóða í Mississippi fljótinu.Vatn úr fljótinu flæðir nú um götur borgarinnar. 6.5.2011 07:42
Dularfullur fornleifafundur á Grundarfirði Grundfriðingar velta nú fyrir sér dularfullum fornleifafundi þar í bæ í vikunni. Að sögn Skessuhorns komu verkamenn óvænt niður á vörubílshræ, þegar þeir voru að grafa fyrir vatnslögn við sundlaugina. 6.5.2011 07:39
Osama og al-Kaída undirbjuggu hryðjuverk í Bandaríkjunum Osama bin Laden, og aðrir forystumenn í al-Kaída samtökunum voru að undirbúa hryðjuverk í Bandaríkjunum. Skjöl sem sanna þetta voru gripin í árás sérsveitar á hýbýli Osama í Pakistan. 6.5.2011 07:28
Þrjú verkalýðsfélög eiga eftir að semja Samningaviðræðum verður fram haldið hjá Ríkissáttasemjara í dag því samningum er ekki lokið við þrjú verkalýðsfélög innan ASÍ. 6.5.2011 07:26
Nýr maður á topp lista FBI yfir eftirlýsta glæpamenn Hinn rúmlega áttræði James J. Bulger er nú efstur á lista Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, yfir eftirlýsta glæpamenn í heiminum.Osama bin Laden skipaði þann sess áður. 6.5.2011 07:23
Fyrsta ferð Herjólfs til Þorlákshafnar í dag Síðasta ferð Herjólfs til Landeyjahafnar í gærkvöldi var felld niður vegna vinds og ölduhæðar. 6.5.2011 07:21
Hreyfingin vill fella kjarasamningana Opinn fundur Hreyfingarinnar, sem haldinn var á Kornhlöðuloftinu í gærkvöldi, hvetur launþega til þess að láta ekki blekkjast af því auma tilboði, sem felst í ný gerðum kjarasamningum, eins og það er orðað í tilkynningu frá fundinum, og mælir með að samningurinn verði felldur. 6.5.2011 07:14
Mikið af samsæriskenningum um Osama bin Laden Samsæriskenningar um hvort Osama bin Laden sé í raun dauður eða enn á lífi fara nú sem eldur í sinu um fjölmiðla heimsins og netið. 6.5.2011 07:05
Stöðva 9 milljarða til íþrótta Með samþykkt borgarráðs á viðaukasamningi við Knattspyrnufélagið Fram hefur borgin nú samið um frestun á alls 9.390 milljóna virði af framkvæmdum sem hún hafði lofað að greiða fyrir fimm íþróttafélög. 6.5.2011 07:00
Kallaði sjálfstæðismenn "grátkonur“ Forseti Alþingis bað Mörð Árnason, þingmann Samfylkingarinnar, að gæta orða sinna í gær þegar hann kallaði þingmenn Sjálfstæðisflokksins grátkonur í umræðu um frumvarp til breytinga á lögum um landsdóm. 6.5.2011 06:00
Krókódíl lógað eftir árás á bíl Þriggja metra langur krókódíll olli miklum skemmdum á lögreglubíl í Flórídaríki um síðustu helgi. Lögregla var kölluð á vettvang eftir að krókódíllinn birtist á golfvelli við Gainesville. Á meðan lögregluþjónn beið í bíl sínum eftir aðstoð réðst dýrið á bílinn. Krókódílabani kom 6.5.2011 06:00
Karpað um hornklofa og sérfræðiþekkingu Kafli um mannréttindi verður fremstur í stjórnarskránni og í honum verður tekið fyrir möguleikann á herskyldu hér á landi, verði tillögur stjórnlagaráðs að veruleika. Fyrstu tillögurnar frá nefndum Stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni voru teknar til umræðu og afgreiðslu á 7. ráðsfundi í gær. 6.5.2011 05:00
Hafa ekkert greitt í 22 ár Eigendur flugskýla við Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri hafa ekki þurft að greiða gatnagerðargjöld síðan árið 1989. Samkvæmt samþykkt frá Borgarráði Reykjavíkur frá 1. ágúst það ár skulu eigendur hins vegar þess í stað greiða kostnað við lagfæringar eldri lagna og eftir atvikum lagningu nýrra holræsa og brunna. 6.5.2011 05:00
Vefur Alþingis er ekki bloggsíða Beiðni Björgólfs Thors Björgólfssonar athafnamanns um að fá að birta athugasemdir við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á vefsvæði þingsins hefur verið hafnað. „Heimasíða Alþingis er ekki bloggsíða heldur upplýsingasíða fyrir þjóðþingið," segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 6.5.2011 04:30
Gæti svipað til Central Park „Okkur finnst náttúruperlan Öskjuhlíð lítið kynnt þótt hún sé nálægt Nauthólsvík, frábærum gönguleiðum og stríðsminjum,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar. 6.5.2011 04:00
Olían á svipuðu róli og í mars Heimsmarkaðsverð á hráolíu féll, þegar mest var, um 8,2 prósent á bandarískum fjármálamörkuðum í gær í kjölfar gengisstyrkingar Bandaríkjadals. 6.5.2011 04:00
Samningar til þriggja ára háðir ýmsum fyrirvörum Aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu í gær kjarasamning til þriggja ára sem munu tryggja félagsmönnum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) almennar launahækkanir upp á 4,25 prósent um næstu mánaðamót og 3,5 og 3,25 prósenta hækkanir á næstu tveimur árum. Samningarnir eru þó háðir ýmsum fyrirvörum um þróun mála. 6.5.2011 03:45
Katrín ávarpaði orkumálaráðherra Um 40% af losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi kemur frá bílum og fiskiskipaflotanum en raforkuframleiðsla og húshitun er nánast án losunar. Þetta kom fram í máli Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra þegar hún flutti ræðu á fundi orkumálaráðherra Evrópusambands- og EES-ríkjanna. Fundurinn var haldinn dagana Búdapest 2. og 3. maí síðastliðna. 5.5.2011 22:13
Absinthe leyft í Frakklandi á ný Franskir vínunnendur geta nú glaðst því að drykkurinn görótti absinthe, eða malurtarbrennivín, hefur verið leyfður eftir að sölubann frá árinu 1915 var afnumið af franska þinginu. 5.5.2011 22:00
Jói Fel stöðvar sölu á kryddköku Jói Fel hefur ákveðið að stöðva sölu á og innkalla kryddkökur frá Jóa Fel þar sem heslihneta er ekki getið í innihaldslýsingu og líklegt er að varan innihaldi snefil af jarðhnetum. Ákvörðunin er tekin í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir heslihnetum, jarðhnetum og afurðum úr þeim. 5.5.2011 21:41
Lögreglumenn fengu fjölda furðulegra útkalla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk fjölda furðulegra útkalla í gær. Þetta byrjaði með því að á tíunda tímanum var tvisvar óskað eftir aðstoð með skömmu millibilli og málin virtust alvarleg. 5.5.2011 21:28
Bætur hækka í samræmi við kjarasamningana Stjórnvöld munu endurskoða bætur almannatrygginga með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninganna, þannig að lífeyrisþegar og atvinnulausir njóti hliðstæðra kjarabóta og um verður samið í kjarasamningunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninganna sem skrifað var undir í dag. 5.5.2011 21:03
Fréttaskýring: Sagan geymir 600 hvítabirni Eru tíðar komur hvítabjarna til landsins undanfarin þrjú ár að einhverju leyti sérstakar í sögulegu tilliti? 5.5.2011 21:00
Bíóferð fjölskyldunnar kostar um 7.000 krónur Bíóferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu, tvo fullorðna og tvö börn á aldrinum 9-12 ára, getur auðveldlega kostað nálægt sjö þúsund krónum. Þessa upphæð þarf fjölskyldan að greiða ef keypt er lítil kók og lítill poki af poppkorni handa hverjum og einum ásamt bíómiðum þegar engin tilboð eru. 5.5.2011 20:00
Áttatíu milljarða framkvæmdir fyrir norðan Fjárfestingar hins opinbera í orkuverkefnum á Norðurlandi gætu numið 70-80 milljörðum króna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands vegna kjarasamninga sem skrifað var undir í dag. 5.5.2011 19:41
Íslandsheimsóknir hvítabjarna hluti af eðlilegu lífsmunstri Ævar Petersen dýrafræðingur segir Ísland hluta af eðlilegu lífsmunstri hvítabjarna og telur það lögbrot að skjóta alla birni sem hingað koma. 5.5.2011 18:45
Launþegar fá 50 þúsund krónur um mánaðamótin Skrifað var undir kjarasamninga í húsnæði ríkissáttasemjara um sexleytið í kvöld. Samkvæmt kjarasamningunum munu starfsmenn sem voru í fullu starfi í mánuðunum mars-maí fá 50 þúsund eingreiðslu í júní næstkomandi. 5.5.2011 18:31
Minntist þeirra sem fórust Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, lagði blómsveig á Ground Zero, staðinn þar sem Tvíburaturnarnir stóðu. Minningarstund fór fram þar í dag vegna hryðjuverkaárásanna 11. september 2001. Obama sagði við það tækifæri að fall Osama Bin Ladens sýndi að Bandaríkjamenn myndu alltaf ná réttlæti fram gegn hryðjuverkamönnum. 5.5.2011 17:54
Kjarasamningar undirritaðir klukkan sex Stefnt er að undirritun nýs kjarasamnings hjá ríkissáttasemjara klukkan sex, samkvæmt upplýsingum frá Alþýðusambandi Íslands. Samningamenn hafa setið við fundarhöld í allan dag. 5.5.2011 17:23
Vöffludeigið komið í poka Elísabet Ólafsdóttir skrifstofustjóri hjá ríkissáttasemjara er búin að setja vöffludeigið inn í poka til þess að halda því fersku á meðan kjarasamningar eru lesnir yfir. Vonast er til að þeir verði undirritaðir í dag en ekki er búist við því að það gerist fyrir klukkan fimm. 5.5.2011 16:00
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent