Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Réttarhöld yfir Berlusconi: Fjölmiðlar sagðir valda tjóni Marokkóska stúlkan Karima El Mahroug segir að umfjöllun fjölmiðla hafi valdið sér miklu tjóni en heldur fast við fyrri yfirlýsingar sínar um að hafa aldrei sængað hjá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. 7.4.2011 09:00
Gæsluvarðhald framlengt yfir stórsmyglara Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem tekinn var með mikið magn af LSD og e-töflum á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði, var framlengt í Héraðsdómi Reykjaness í gær til 20. apríl. Maðurinn situr í einangrunarvist. 7.4.2011 08:30
Faðir og frændi neita báðir sök Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári sættu yfirheyrslum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag. Þeir neita báðir sök í málinu. 7.4.2011 08:00
Bensínþjófur enn á ferð á Akureyri Bensínþjófur var enn á ferð á Akureyri í nótt og líkt og þjófarnir í fyrrinótt, leitaði hann fanga í vélsleðum. 7.4.2011 07:58
Sáu fastan bíl í vefmyndavél Vegagerðarinnar Ökumaður fólksbíls hringdi í lögregluna á Akureyri í nótt og sagðist vera fastur í snjó á Öxnadalsheiði. 7.4.2011 07:55
Aðeins ein flugvél til afnota hjá Gæslunni Landhelgisgæslan hefur nú aðeins eina flugvél til afnota, sem stórskerðir möguleika á björgunarstörfum á hafi úti. 7.4.2011 07:52
Gaddafi sendi Obama sérkennilegt bréf Bandaríska stórblaðið New York Times hefur komist yfir sérkennilegt bréf sem Muammar Gaddafi leiðtogi Líbíu hefur sent til Barack Obama bandaríkjaforseta. 7.4.2011 07:50
Áhöfnin á Málmey óhress með að geta ekki kosið um Icesave Áhöfnin á frystitogaranum Málmey frá Sauðárkróki veltir því fyrir sér hvort þjóðaratkvæðagreiðslan um Iceve samninginn verði ekki ólögleg, þar sem ákveðnum hópi kjósenda sé gert ókleift að taka þátt í henni. 7.4.2011 07:49
Leita enn að 130 manns eftir að bát hvolfdi Leit sendur enn yfir að 130 Túnisbúum sem voru á bát á leið til Möltu þegar honum hvolfdi síðdegis í gærdag um 60 kílómetra frá strönd eyjunnar. 7.4.2011 07:45
Slá minjapeninga um konunglegt brúðkaup Konunglega kanadíska myntsláttan hefur ákveðið að gefa út sérstaka minjapeninga í tilefni af brúðkaupi þeirra Villiams prins og Kate Middleton í Bretlandi. 7.4.2011 07:41
Tveir karlmenn brutust inn og síðan út úr verslun Tveir karlmenn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt eru sekir um bæði innbrot og útbrot, auk þjófnaðar. 7.4.2011 07:38
Kínverjar ásaka þekktan listamann um fjármálaglæpi Kínverska lögreglan hefur hafið rannsókn á listamanninum Ai Weiwei vegna meintra fjármálaglæpa hans. 7.4.2011 07:37
Hafsbotnin færðist til um 24 metra í jarðskjálftanum í Japan Nýjar mælingar á vegum japönsku strandgæslunnar sýna að hafsbotninn hefur fluttst til um 24 metra skammt frá upptökum jarðskjálftans mikla fyrr í vetur. 7.4.2011 07:18
Umsagnir stöðva ekki sameiningarnar í bili Mikill meirihluti af umsögnum sem borgaryfirvöldum barst vegna fyrirhugaðra breytinga í skólakerfi Reykjavíkur er neikvæður gagnvart framkomnum hugmyndum. Umsagnirnar voru til umræðu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og var tillögu minnihlutans um að draga tillögurnar til baka vísað frá. 7.4.2011 07:00
Meirihlutinn hafnar Icesave Meirihluti landsmanna ætlar að hafna Icesave-samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 54,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku ætla að hafna lögunum en 45,2 prósent sögðust ætla að samþykkja þau. 7.4.2011 06:30
Barist var um byrgi Gbagbos Hörð átök voru í gær í Abidjan, stærstu borg Fílabeinsstrandarinnar, þar sem liðsmenn Alassane Ouattara, réttkjörins forseta, sóttu að Laurent Gbagbo, sem neitaði enn að láta af völdum. 7.4.2011 05:30
Mesta veltan í rúmlega þrjú ár Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók kipp í síðasta mánuði þegar 409 kaupsamningum var þinglýst. Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands er þetta mesti fjöldi í einum mánuði frá febrúar 2008. 7.4.2011 04:00
„Hér skulu blása ferskir vindar“ Fyrsti formlegi fundur stjórnlagaráðs fór fram að Ofanleiti 2 í Reykjavík í gær. Ómar Ragnarsson, aldursforseti ráðsins, stýrði fundinum. „Hér skulu blása ferskir vindar,“ sagði hann í ræðu sinni. „Við lítum á okkur sem hlekk í keðju kynslóðanna og framvindu sögunnar.“ 7.4.2011 00:00
Húkka sér bílfar á netinu Þótt enn megi sjá stöku ferðalang standa með útréttan þumal við þjóðveginn húkka flestir nútíma puttalingar bílfar á netinu. Á sama tíma sækjast ferðamenn á bílaleigubílum eftir farþegum með sér. 6.4.2011 22:30
Stuðningur við ríkisstjórnina hríðfellur Stuðningur við ríkisstjórnarflokkanna hríðfellur samkvæmt skoðanakönnun MMR og hefur tekið afar miklum breytingum frá kosningunum í apríl 2009. Líkt og fram kom fram fyrr í kvöld er Sjálfstæðisflokkurinn sá stjórnmálaflokkur sem nýtur nú langmest stuðnings. 6.4.2011 21:19
100 stór páskaegg gefins Í tilefni tíu ára afmælis Fréttablaðsins kynnir blaðið skemmtilegan afmælisleik til sögunnar. Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að svara einni laufléttri spurningu og skrá sig á slóðinni visir.is/frettabladid. 6.4.2011 21:00
Starf stjórnlaganefndar gekk furðu vel „Furðu vel verð ég að segja. Ég held að við höfum rennt alveg blint í sjóinn þegar að við hófum þetta starf og ekki gert okkur grein fyrir hvað beið okkar,“ segir Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, um vinnu og tillögur nefndarinnar sem lagðar voru fyrir stjórnlagaráð í dag á fyrsta formlega fundi ráðsins. Stjórnlagaráð hefur það verkefni að undirbúa frumvarp um breytingar á stjórnarskránni. Rætt var við Guðrúnu í Kastljósi í kvöld. 6.4.2011 20:53
Fer reglulega í útreiðatúra á kú Þegar foreldrar Reginu Meyer vildu ekki gefa henni hest fór hún ekki í fýlu eins og margir unglingar hefðu gert. Hún fór út í haga á bóndabænum þeirra í Þýskalandi og sótti kúna Lúnu. Það tók tvö ár fyrir þær að ná saman en núna söðlar Regína kúna reglulega og fer á henni í útreiðartúra. Lúna stekkur jafnvel yfir hindranir ef hún er í góðu skapi. Þetta hefur valdið nokkrum ruglingi í dýrheimum um hverskonar skepna Lúna er eiginlega. 6.4.2011 20:19
Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þúsund krónum 24 ára Íslendingur, Lárus Freyr Einarsson hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð sem hann framdi í smábæ skammt frá Horsens í Danmörku. Hann og samverkamaður hans, sem fékk 12 ára fangelsi, hafa áfrýjað dómnum. 6.4.2011 19:46
Pabbinn verði áfram í varðhaldi Lögreglan hyggst fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa misnotað átta ára gamlan son sinn. Mikil vinna bíður lögreglu sem ætlar að rannsaka mörg þúsundir ljósmyndir sem fundust í tölvu mannsins. 6.4.2011 18:48
Meirihlutinn vill fella Icesave Icesave samningarnir verða felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Tæplega fimmtíu og sjö prósent þjóðarinnar ætla að segja nei samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Algjör umsnúningur hefur orðið í afstöðu fólks til málsins á nokkrum vikum. 6.4.2011 18:30
Fá ekki ríkisborgararétt Hæstiréttur Frakklands hefur staðfest úrskurð um að börn sem fædd eru af erlendum staðgöngumæðrum fái ekki franskan ríkisborgararétt. Undirréttur hafði fellt dóm í máli tvíburasystra sem bandarísk staðgöngumóðir hafði fætt. Foreldrarnir voru franskir. Undirréttur neitaði að skrá systurnar í frönsku þjóðskrána en það er forsenda þess að þær fái ríkisborgararétt. Staðgöngumæðrun er bönnuð í Frakklandi, hvort sem er í góðgerðar eða ábataskyni. 6.4.2011 20:45
90% synjað um hæli Aðeins fimm hælisleitendur af 51 fengu hæli hér á landi í fyrra. Hælisleitandi sem beðið hefur í 15 mánuði eftir endanlegu svari segir að Ísland loki á fólk sem sé í vanda statt. 6.4.2011 20:01
Jóhanna og Dagur gefa flokksmönnum línuna „Hafni íslenska þjóðin samningnum mun það ekki verða til þess að deilan hverfi heldur eru allar líkur á því að deilan harðni og að framtíðarhagsmunum þjóðarinnar verði þar með stefnt í tvísýnu,“ segja Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, í tölvubréfi til flokksmanna. 6.4.2011 19:38
Kara fundin Kara Dröfn Ásgeirsdóttir sem lögregla lýsti eftir fyrr í dag er komin í leitirnar, en ekki var vitað um ferðir hennar síðustu þrjár vikurnar. 6.4.2011 19:12
Alþingi á ekki að gerast dómari í eigin sök Fyrsti formlegi fundur stjórnlagaráðs var haldinn í dag en ráðið hefur það verkefni að undirbúa frumvarp um breytingar á stjórnarskránni. Ómar Ragnarsson, aldursforseti ráðsins, setti fundinn en gert er ráð fyrir því að ráðið starfi í tvo til fjóra mánuði. 6.4.2011 18:57
Framsóknarflokkur og Samfylking með svipað fylgi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 40% fylgi ef gengið yrði til þingkosninga í dag, ef marka má skoðanakönnun MMR. Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi og mælist nú með 16%, Samfylkingin mælist með 17% fylgi, Vinstri græn með 12,8% og og Hreyfingin með 4,7%. 602 tóku þátt í könnunni en 64% þeirra tóku afstöðu. 6.4.2011 18:33
700 manns fylgdust fyrsta fundi stjórnlagaráðs Alls fyldust 700 manns með fyrsta fundi stjórnlagaráðs sem fór fram í dag. Allir fundir ráðsins verða sýndir í beinni útsetningu á netinu. 6.4.2011 18:09
Tafir í Grafarvogi vegna umferðarslyss Umferðarslys varð á við Hallsveg í Grafarvogi á sjötta tímanum í dag. Búast má við umferðartöfum í grennd við Gullinbrú, Strandveg og Hallsveg í einhvern tíma vegna þessa, að sögn lögreglu. Ekki fást frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 6.4.2011 17:59
Bubbi horfir fram á veginn „Að eiga fjölskyldu og vini er það eina sem skiptir máli í þessu lífi, það finnst mér,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og horfir fram á veginn en í byrjun vikunnar greindi hann frá því að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona hans, hefði nýverið fætt andvana barn. Þau komust að því þegar að þau fóru í 20 vikna sónar að barnið væri látið. 6.4.2011 17:48
Fyrir næstu kynslóðir Stjórnlagaráð var sett í dag en það var aldurforsetinn Ómar Ragnarsson sem setti fyrsta fund ráðsins. Stjórnlaganefnd afhenti fulltrúunum hugmyndir sínar um breytingar á stjórnarskránni en tillögurnar eru í tveimur bindum sem telja samtals 700 blaðsíður. Verkefni ráðsins er að fara yfir hugmyndirnar og koma með tillögu að endurbættri stjórnarskrá. Stjórnlaganefnd sem kjörin var af Alþingi 16. júní í fyrra og Guðrún Pétursdóttir veitti forystu hefur þar með lokið störfum. 6.4.2011 17:26
Skoðanakönnun um Icesave í kvöld Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur látið framkvæma skoðanakönnun þar sem almenningur er spurður út í afstöðu sína til Icesave en nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um málið sem Alþingi samþykkti en forseti synjaði undirskriftar. Könnunin var framkvæmd í gær og varpar hún ljósi á afstöðu almennings til þessa umdeilda máls. Greint verður frá niðurstöðunum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálfsjö. 6.4.2011 17:00
Bjarni Harðarson: Ég kann á Outlook Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi í landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu, sendi póst á alla fjölmiðla í dag sem ætlaður var samstarfsmanni í ráðuneytinu. Efni póstsins var ábendingar vegna fréttatilkynningar sem til stóð að birta á vef ráðuneytisins. Þetta er í annað sinn sem Bjarni sendir póst á fjölmiðla óafvitandi. Í fyrra skiptið var um að ræða póst um Valgerði Sverrisdóttur sem átti að fara á aðstoðarmann hans og síðan úr óþekktu netfangi á fjölmiðla. 6.4.2011 16:43
Töluvert magn af fölsuðum rakvélablöðum tekið Tollgæslan lagði hald á töluvert magn af fölsuðum Gillette Fusion Power rakvélablöðum á dögunum. Um var að ræða hraðsendingu frá Hong Kong. Þetta er í fyrsta skipti sem tollgæslan hér á landi leggur hald á fölsuð rakvélablöð, en talið er líklegt að rakvélablöðin hafi verið ætluð til sölu hér á landi. 6.4.2011 15:49
Varað við bílastæðavanda vegna körfuboltaleiks Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggja ólöglega mega búast við sektum. 6.4.2011 15:25
Allt að 75 prósenta verðmunur á umfelgun Nú nálgast vorið og þá fara ökumenn að huga að því að skipta yfir á sumardekkin. Þann 15. apríl eiga vetrardekkin að vera horfin undan bifreiðum landsmanna og af því tilefni hefur verðlagseftirlit ASÍ gert verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 36 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið. Könnunin var gerð á mánudaginn var og var þjónusta könnuð fyrir nokkrar tegundir fólksbíla og var allt að 75 prósenta verðmunur á milli verkstæða. 6.4.2011 15:11
Hænur lokaðar í búri alla ævi "Næstum öll egg sem eru framleidd eru á Íslandi koma undan hænum sem eru hafðar í búri alla ævi. Ég held að neytendur geri sér ekki grein fyrir hvernig er búið að dýrum hér á landi. Ég held að þeir haldi að ástandið sér betra en það er. Okkur langar til að vekja fólk til meðvitundar um ástandið og reyna að bæta það," segir Sif Traustadóttir, dýralæknir og félagi í nýjum samtökum um aukna velferð búfjár á Íslandi, Velbú. Unnið hefur verið að stofnun samtakanna síðustu mánuði og verður formlegur aðalfundur innan tíðar. 6.4.2011 15:10
Vélarvana bátur skammt frá Óðinsboða Björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd er nú á leiðinni að aðstoða vélarvana bát skammt frá Óðinsboða. Báturinn er 23. tonna stálbátur og er áætlað að Húnabjörg verði komin að honum um klukkan 15:30. Um töluvert langa siglingu er að ræða, um 50 sjómílur, og því reiknað með að bátarnir verði komnir aftur til Skagastrandar um og eftir miðnættið. Veður er þokkalegt á þessum slóðum. 6.4.2011 14:27
Játar að hafa myrt mömmu Leifs Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem grunaður er um að myrða mömmu hins íslenska Leifs Magnúsar Grétarssonar í bænum Mandal Noregi, hefur játað að bera ábyrgð á andláti hennar. Aftenposten segir að hann hafi játað við yfirheyrslur í morgun. Hann gengst hins vegar ekki við því að hafa framið morðið að yfirlögðu ráði. 6.4.2011 14:20
Danskar herþotur í loftvarnaskothríð yfir Líbíu Danskar F-16 herþotur sem taka þátt í aðgerðunum gegn hersveitum Gaddafís í Líbíu hafa nokkrum sinnum lent í skothríð frá loftvarnarbyssum stjórnarhermanna. Yfirmaður dönsku flughersveitarinnar sem staðsett er á Sikiley segir í samtali við Extrabladet að engin vél hafi enn orðið fyrir skoti. Hann segir að vélarnar fljúgi í svo mikilli hæð að litlar líkur séu á því að kúlur loftvarnabyssanna nái upp til þeirra. 6.4.2011 13:37