Fleiri
Hátt í 10 þúsund hafa greitt atkvæði 5.4.2011 18:42 Kjarasamningar gætu kostað ríkissjóð yfir 20 milljarða Forsætisráðherra segir kröfur aðila vinnumarkaðarins á stjórnvöld í tengslum við gerð kjarasamninga, kosta ríkissjóð um tuttugu milljarða króna. Ef stjórnvöld verði við þeim öllum gangi mun hægar að vinna á miklum halla á rekstri ríkissjóðs. 5.4.2011 18:37 Ekki samið til langs tíma falli Icesave Ólíklegt er að takist að ganga endanlega frá kjarasamningum fyrir helgi, jafnvel þótt stjórnvöld verði við öllum kröfum aðila vinnumarkaðarins. Samtök atvinnulífsins treysta sér ekki til að samþykkja kjarasamninga til þriggja ára, ef Icesave samningarnir verða felldir á laugardag, vegna þeirrar óvissu sem þá verði uppi í efnahagsmálum. 5.4.2011 18:30 Til höfuðs hálfvitum Hart var tekist á um sameiningaráform í skólakerfinu á borgarstjórnarfundi í dag. Þar sagði Jón Gnarr, borgarstjóri, að málflutning minnihlutans einkennast af skotgrafapólitík, lýðskrumi og að gagnrýnin væri ofbeldi líkust. 5.4.2011 18:11 Sjá næstu 50 fréttir
Pabbinn og frændinn yfirheyrðir í allan dag Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa beitt 7 ára dreng grófu kynferðislegu ofbeldi, verða yfirheyrðir í allan dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er búist við að yfirheyrslur standi fram á kvöld. Mennirnir sem um ræðir eru faðir drengsins og frændi hans. Tekin verður ákvörðun um það í fyrramálið hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum. Varðhaldið rennur út á morgun, en ekki í dag eins og greint var frá í Fréttablaðinu. Faðir drengsins á að bak langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið dóm fyrir árás á móður drengsins. Móðirin sagði í samtali við fréttastofu í gær að hún óttaðist mjög mennina tvo. Vegna þessa hefur hún flúið heimili sitt, ásamt drengnum, eiginmanni sínum og börnum þeirra. Meðal þess sem lögreglan rannsakar nú eru tölvugögn sem lagt var hald á við húsleit hjá mönnunum þann 31. mars, en grunur leikur á að mennirnir hafi myndað ofbeldið sem þeir beittu drenginn. 6.4.2011 11:26
Lögreglan minnir á bingóbann um páskana Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að, eru bannaðar á ákveðnum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem minnir á umrætt bann. Tekið skal fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á föstudaginn langa en slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15:00 umræddan dag. Miðvikud. 20. apríl - Opið til kl. 03:00 eða 05:30 skv. leyfi Fimmtud. 21. apríl Skírdagur - Opið til miðnættis Föstud. 22. apríl Föstudagurinn langi - Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30 Laugard. 23. apríl - Opið til kl. 03:00 Sunnud. 24. apríl Páskadagur - Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30 Mánud. 25. apríl Annar í páskum - Opið til kl. 01:00 6.4.2011 11:07
Japanskir sjómenn óttast um lifibrauð sitt Sjómenn í Fukushima, sem margir hverjir misstu bæði heimili sitt og fiskibáta, óttast nú að geislamengun í hafinu muni eyðileggja lifibrauð þeirra. "Jafnvel þótt stjórnin segi að fiskurinn sé öruggur, þá mun fólk ekki vilja kaupa fisk frá Fukushima,“ segir Ichiro Yamagata, sjómaður sem bjó í næsta nágrenni við kjarnorkuverið í Fukushima. "Sennilega getum við ekki veitt fisk næstu árin.“ 6.4.2011 11:00
Dæmd fyrir að kýla snyrtifræðing Rúmlega tvítug kona hefur verið dæmd í þriggja mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega 200 þúsunda króna í skaðabætur fyrir að kýla aðra konu í andlitið. Hin síðarnefnda hlaut glóðarauga og blóðnasir. 6.4.2011 10:15
Svíadrottning slasaðist á flótta undan ljósmyndara Sænska Aftonbladet hefur beðist afsökunar á aðgangshörku blaðamanns síns og ljósmyndara sem varð þess valdandi að Sylvía drottning datt og meiddist á hönd og fæti. 6.4.2011 10:08
Karlmenn yfir fimmtugu vanmetnir Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, verður að öllum líkindum kosinn í stjórn norska Verkamannaflokksins á landsfundi flokksins um helgina. Dagblaðið Aftenposten segir að kjör hans yrði mjög umdeilt. Mörgum finnst rangt að kjósa karlmann yfir fimmtugu frá höfuðborginni inn í ráðið. 6.4.2011 10:01
Hætt við fækkun öldrunarrýma á Barmahlíð Hætt hefur verið við fækkun öldrunarrýma á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð í Reykhólahreppi. Þetta er hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til eflingar atvinnu og byggðar á Vestfjörðum sem kynntur var í gær. Þá var haldinn ríkisstjórnarfundur á Ísafirði og samþykkt 16 verkefni sem snúa að eflingu fjórðungsins. Velferðarráðuneytið tilkynnti hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar í febrúar á þessu ári að heimilinu væri gert að fækka öldrunarrýmum úr 14 í 12 á árinu. Hreppsnefnd Reykhólahrepps sagði rekstrargrundvöll heimilisins þar með brostinn. Tvö rými á heimilinu samsvara 14,4 milljóna króna framlagi frá ríkinu, eða um 15% af heildarframlagi til heimilisins. Vegna þessa taldi hreppsnefndin að ekki væri lengur forsenda til að reka heimilið. Nú hefur ríkisstjórnin kallað þennan niðurskurð til baka og mun heimilið starfa áfram í óbreyttri mynd. 6.4.2011 10:00
Árás gerð á forsetahöll Fílabeinsstrandarinnar Frönsk stjórnvöld segja að liðsmenn Alassanes Qattara hafi í morgun gert árás á forsetahöllina á Fílabeinsströndinni þar sem Laurent Gbagbo þráast við að gefast upp. 6.4.2011 09:41
Raðmorðingi í New York-ríki Lík átta kvenna hafa nú fundist með stuttu millibili á strönd við New York. Lögreglan á svæðinu telur nú að um raðmorðingja sé að ræða. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. 6.4.2011 09:30
Stjórnlagaráð sett í dag - almenningur velkominn Stjórnlagaráð verður sett í dag klukkan tvö. Á setningunni fá fulltrúar í stjórnlagaráði afhenta skýrslu stjórnlaganefndar, sem Guðrún Pétursdóttir hefur stýrt, þar sem koma fram tillögur nefndarinnar um breytingar á stjórnarskránni. Stjórnlaganefnd sem kjörin var af Alþingi 16. júní í fyrra hefur þar með lokið störfum. Að setningu lokinni verður efni skýrslunnar kynnt fjölmiðlum. Setningin er opin almenningu á meðan húsrúm leyfir, en aðsetur stjórnlagaráðs eru í Ofanleiti 2 í Reykjavík. Í Stjórnlagaráði sitja 25 fulltrúar og er þeim ætlað að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar, undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu niðurstöður Þjóðfundar sem haldinn var í fyrra. 6.4.2011 08:45
Um 5% kjósenda eru með erlent lögheimili Kjósendur með lögheimili erlendis í kosningunum um Icesave á laugardaginn eru 11.608 eða 5,0% heildarinnar og hefur þeim fjölgað um 1.667 frá síðustu alþingiskosningum eða um 16,8%. 6.4.2011 07:56
Önnur skip fá ekki að sigla til Landeyjahafnar Ekkert virðist ætla að verða úr því að önnur farþegaskip eða farþegabátar en Herjólfur, fái að sigla á milli lands og Eyja, eins og bæjarstjóri Vestmannaeyja fór fram á við innanríkisráðherra fyrr í vikunni. 6.4.2011 07:54
Hið opinbera að lamast í Bandaríkjunum Ekkert gengur né rekur í samningum Barack Obama bandaríkjaforseta og leiðtoga á bandaríska þinginu um fjárlög landsins fram til september. 6.4.2011 07:52
Lögreglan gómaði bensínþjófa á Akureyri Lögreglumenn á eftirlitsferð um Akureyri í nótt, sáu til tveggja ungra manna og ætluðu að hafa tal af þeim. Þeir tóku hinsvegar til fótanna, en annar náðist, og auk þess tveir félagar þeirra í bíl þar skammt frá. 6.4.2011 07:50
Berlusconi sleppur við málaferli í Mílanó Meirihluti í neðri deild ítalska þingsins hefur samþykkt tillögu sem leiðir til þess að Silvio Berlusconi forsætisráðherra landsins sleppur við málaferli um kynferðisafbrot fyrir dómstóli í Mílanó. 6.4.2011 07:49
Hafna boði um skaðabætur vegna Fukushima kjarnorkuversins Bæjarfélagið Naime í Japan hefur hafnað skaðabótum sem Tepco, eigandi kjarnorkuversins í Fukushima hefur boðið þeim vegna lekans á geislavirkum efnum frá verinu. 6.4.2011 07:40
Verulega fjölgar á vanskilaskrá Einstaklingum á vanskilaskrá Creditinfo hefur fjölgað um 305 á mánuði að meðaltali síðatliðna sex mánuði, samkvæmt tölum félagsins. 6.4.2011 07:39
Vilja grafa Monu Lisu upp Ítalskir sérfræðingar undir forystu sagnfræðingsins Silvano Vinceti hafa tilkynnt að þeir hyggist grafa upp lík kaupmannsfrúarinnar Lisu Gherardiní sem talin er hafa verið fyrirmyndin að hinu þekkta verki Mona Lisa sem Leonardo da Vinci málaði á 16. öld. 6.4.2011 07:27
Aftöku frestað í annað sinn í Texas Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur frestað í annað sinn aftökunni á hinum 47 ára gamla Clive Foster í Texas. Hún átti að fara fram í nótt. 6.4.2011 07:20
Sat inni fyrir árás á móðurina og afann Karlmaður um fimmtugt sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa beitt son sinn á áttunda ári grófri kynferðislegri misnotkun, á að baki langan sakaferil og hefur meðal annars verið dæmdur fyrir ofbeldisbrot. Frændi föðurins sætir einnig gæsluvarðhaldi, grunaður um sömu brot. 6.4.2011 07:00
Tíu kynferðisbrotamál á borð kirkjunnar 2010 Fagráð um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar fékk tíu ný mál inn á borð til sín á síðasta ári. Tveimur hefur verið vikið úr starfi, en hvorugur starfaði sem prestur. Fagráðið lítur á öll tilvik sem alvarleg brot. Sum málanna áttu sér stað þegar þolendur voru börn að aldri og eru fyrnd að lögum. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu fagráðs þjóðkirkjunnar. 6.4.2011 07:00
Díoxín í ryki talið valda endurmengun Mengandi efni frá sorpbrennslunni Funa hafa safnast upp og sérfræðingar óttast endurmengun af völdum fjúkandi ryks. Díoxín er líklegt til að finnast í jarðvegi næstu áratugina. Rannsaka þarf jarðveginn og villt dýr af nákvæmni. 6.4.2011 06:30
Gbagbo hrökklast frá völdum Laurent Gbagbo hafði hreiðrað um sig í kjallarabyrgi ásamt fjölskyldu sinni í gær, umkringdur herliði andstæðinga sinna, en neitaði fram á síðustu stundu að semja um brotthvarf sitt frá völdum. Stjórnarherinn var hættur að berjast gegn liði uppreisnarmanna en leiðtogi þeirra lagði áherslu á að hann kæmist frá átökunum lifandi. 6.4.2011 06:00
Harma sölu sögulegra skákminja Skáksamband Íslands harmar að munir úr einvígi Bobby Fishers og Boris Spasskí árið 1972 hafi verið seldir úr landi. Sambandið vill skrá hvar aðrir munir úr einvíginu eru niðurkomnir og að þeim sé safnað á einn stað. 6.4.2011 05:00
Sérleyfi Herjólfs verði aflétt Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ritað innanríkisráðherra og siglingamálastjóra bréf þar sem hann óskar eftir því að sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði þegar aflétt og öðrum bátum og skipum með leyfi til farþegaflutninga heimilað að nýta Landeyjahöfn. 6.4.2011 04:15
Vilja kvóta til minnst 35 ára með rétti til að framlengja Samtök atvinnulífsins hafa kynnt ríkisstjórninni útspil sem þau kalla "tillögu til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi.“ "Tillagan felur í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið er verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkanna í þessum efnum,“ segir í yfirlýsingu frá SA. 6.4.2011 04:00
Fylgja ekki sáttmála SÞ Íslensk stjórnvöld standa ekki við fjölmörg atriði í samningi um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Í nýrri skuggaskýrslu Barnaheilla – Save the Children, Mannréttindaskrifstofu Íslands og UNICEF – Barnahjálpar SÞ á Íslandi, er farið yfir stöðu barna á Íslandi í samræmi við fjölmörg ákvæði Barnasáttmálans. 6.4.2011 04:00
Fimm milljarðar til Vestfjarða Á fundi sínum á Ísafirði í gær samþykkti ríkisstjórnin sextán verkefni sem eiga að efla byggð og atvinnusköpun í landshlutanum. Samtals á að leggja um 5,4 milljarða króna í þessi verkefni, en af þeirri fjárhæð eru 1,5 milljarðar nýtt fé. Í tilkynningu frá stjórninni hafa þessi verkefni verið undirbúin í samvinnu allra ráðuneyta og í samráði við heimamenn. 6.4.2011 03:45
Icesave 1. hluti: Svo einfalt í fyrstu Icesave, sem byrjaði sem saklaus leið Landsbankans til að fjármagna sig, snerist við hrunið upp í andhverfu sína og er eitt flóknasta og erfiðasta viðfangsefni sem þjóðin hefur tekist á við. 6.4.2011 07:00
Icesave 2. hluti: Eins og að deila við dómarann Að mótmæla viðbrögðum lánshæfismatsfyrirtækja við höfnun Icesave-samkomulags er eins og að deila við dómarann. 6.4.2011 07:00
Icesave 3. hluti: Gengið og heimtur þrotabús valda óvissu Meðal þess sem gæti ráðið úrslitum þegar gengið verður til atkvæða um Icesave-samninginn er mat kjósenda á því hversu mikill kostnaður fellur á ríkið. Nokkrir óvissuþættir flækja kostnaðarmatið. 6.4.2011 07:00
Icesave 4. hluti: Í höftum virðist áhættan lítil Kostnaður vegna Icesave getur aukist eða minnkað í samræmi við gengisþróun krónunnar. Yfirlýsingar Seðlabankans um hvernig staðið verður að losun gjaldeyrishafta draga þó úr líkum á að gengið hafi veruleg áhrif. Verði Icesave samþykkt er málið talið úr sögunni að mestu eftir tvö ár, en þá verða enn eftir önnur tvö ár í gjaldeyrishöftum. 6.4.2011 07:00
Icesave 5. hluti: Óvissa um minnihluta eigna þrotabúsins Mat á eignum þrotabús Landsbankans skiptir höfuðmáli þegar reynt er að meta hversu há upphæð gæti fallið á íslenska skattgreiðendur vegna Icesave. Í eignasafninu leynast hundruð milljarða í reiðufé, útlánum og í hlutabréfum í félögum á borð við verslunarkeðjuna Iceland Foods. 6.4.2011 07:00
Skipuleggja tónleika fyrir Ólaf Þórðarson Vinir og samstarfsmenn tónlistarmannsins Ólafs Þórðarsonar hafa ákveðið að standa fyrir tónleikum til styrktar Ólafi síðar í mánuðinum. Ólafur liggur meðvitundarlaus á Grensásdeild Landsspítalans eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum höfuðmeiðslum þegar sonur hans réðst á hann í nóvember. Árásin átti sér stað á heimili Ólafs. 5.4.2011 21:42
Uppreisnarmenn í Líbíu vilja selja fleirum olíu Uppreisnarmenn í Líbíu vilja selja olíu til fleiri ríkja en Katar. Ennfremur krefjast þeir að Sameinuðu þjóðirnar aflétti banni á útflutningi á olíu frá landinu svo hægt verði að fjármagna neyðarhjálp til íbúa sem búa á svæðum uppreisnarmanna. 5.4.2011 21:31
Fékk loksins trúlofunarhring eftir 65 ára hjónaband Bandaríkjamaðurinn Everett Potter á skammt eftir ólifað og hans hinsta ósk var að gefa eiginkonu sinni til 65 ára trúlofunarhring. Everett hafði nefnilega ekki efni á að kaupa einn slíkan á sínum tíma. 5.4.2011 20:32
Bæjarstjórinn í Eyjum: Erum vön að passa okkur á sjónum „Við erum að leita allra leiða til þess að byrja að nýta höfnina aftur. Nú er dýpið að verða nokkuð ásættanlegt en Herjólfur ristir hins vegar meira en æskilegt er," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, en rætt var við hann í Kastljósi í kvöld. 5.4.2011 20:09
Skora á Gaddafi að segja af sér Utanríkisráðherrar Norðurlandanna telja að Moammar Gaddaf sé ekki lengur lögmætan leiðtogi Líbíu og skora á hann að segja af sér þegar í stað. 5.4.2011 19:46
Ungmenni vistuð með fullorðnum föngum Íslensk ungmenni, sem brjóta af sér og þurfa að sæta fangelsisvist, eru ekki alltaf vistuð aðskilin frá fullorðnum föngum. 5.4.2011 19:30
Stöðug fjölgun á vanskilaskrá Einstaklingum fjölgar stöðugt á vanskilaskrá og fjöldi einstaklinga með mál í löginnheimtu er nú meiri en nokkru sinni fyrr eða 24.260 manns miðað við 1. apríl síðastliðinn. Fjölgað hefur um rúmlega 1800 í þessum hópi á síðustu 6 mánuðum eða að meðaltali um 305 á mánuði. 5.4.2011 18:49
Stríðinu á Fílabeinsströndinni virðist vera að ljúka Stríðinu á Fílabeinsströndinni virðist vera að ljúka eftir að Frakkar gerðu harðar loftárásir á hersveitir Laurents Gbagbos í gærkvöldi. 5.4.2011 18:46
Kjarasamningar gætu kostað ríkissjóð yfir 20 milljarða Forsætisráðherra segir kröfur aðila vinnumarkaðarins á stjórnvöld í tengslum við gerð kjarasamninga, kosta ríkissjóð um tuttugu milljarða króna. Ef stjórnvöld verði við þeim öllum gangi mun hægar að vinna á miklum halla á rekstri ríkissjóðs. 5.4.2011 18:37
Ekki samið til langs tíma falli Icesave Ólíklegt er að takist að ganga endanlega frá kjarasamningum fyrir helgi, jafnvel þótt stjórnvöld verði við öllum kröfum aðila vinnumarkaðarins. Samtök atvinnulífsins treysta sér ekki til að samþykkja kjarasamninga til þriggja ára, ef Icesave samningarnir verða felldir á laugardag, vegna þeirrar óvissu sem þá verði uppi í efnahagsmálum. 5.4.2011 18:30
Til höfuðs hálfvitum Hart var tekist á um sameiningaráform í skólakerfinu á borgarstjórnarfundi í dag. Þar sagði Jón Gnarr, borgarstjóri, að málflutning minnihlutans einkennast af skotgrafapólitík, lýðskrumi og að gagnrýnin væri ofbeldi líkust. 5.4.2011 18:11