Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samstaða um að koma Gaddafí frá „Það er engin framtíð lengur fyrir Líbíu með Gaddafí við stjórnvölinn,“ sagði William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, að lokinni alþjóðlegri ráðstefnu í Lundúnum um hernaðaraðgerðirnar í Líbíu. 30.3.2011 01:00
Lið Gbagbos á undanhaldi Uppreisnarmenn, sem berjast fyrir réttkjörinn forseta Fílabeinsstrandarinnar, hafa náð fleiri borgum á sitt vald í átökum, sem kostað hafa hundruð manna lífið. 30.3.2011 00:30
Leita enn gagna vegna Kaupþings í útlöndum Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, sérstakur saksóknari og Lúxemborgarlögregla leituðu í gær gagna á fimm stöðum í Lúxemborg. Tvær leitanna voru á vegum sérstaks saksóknara. Sjötíu tóku þátt í aðgerðunum sem halda áfram í dag. 30.3.2011 00:00
Gætu skýrt upphaf kristninnar Merkur handritafundur, sem gæti varpað nýju ljósi á sögu frumkristninnar, er nú deiluefni Ísraela og Jórdana. 30.3.2011 00:00
Íslendingar fari inn á undan Norðmönnum Íslendingar ættu að gerast aðilar að Evrópusambandinu á undan Norðmönnum, segir Carl B. Hamilton sem var í samninganefnd Svía þegar aðildarviðræður þeirra við ESB stóðu yfir. 29.3.2011 15:27
Obama ver ákvörðun sína um loftárásir á Líbíu Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, keppist nú við að verja þá ákvörðun sína að heimila hernaðaríhlutun Bandaríkjamanna í Líbíu en loftárásirnar eru fyrsta dæmið um slíkt í stjórnartíð forsetans. Obama sagði í ræðu í nótt að aðgerðirnar í Líbíu hefðu bjargað óteljandi mannslífum en bætti við að afskipti Bandaríkjamanna af málinu yrðu takmörkuð. Bandaríkjamenn hafa hingað til farið með stjórnina á aðgerðunum en þær verða hér eftir á hendi Atlantshafsbandalagsins. Hægt hefur á sókn uppreisnarmanna í vesturátt og virðist nú víglínan vera dregin fyrir utan bæinn Sirte, sem er fæðingarstaður Gaddafís. NATO hefur verið gagnrýnt fyrir túlkun sína á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem mælir fyrir um leyfi til að koma í veg fyrir mannfall á meðal óbreyttra borgara. Rússar vilja meina að með aðgerðum síðustu daga hafi NATO tekið sér stöðu með öðru liðinu í borgarastríði sem nú geisi í Líbíu og slíkt sé óheimilt samkvæmt ályktun ráðsins. Löndin sem hafa komið að aðgerðunum funda í London í dag um framtíð þeirra. Þar á meðal annars að ræða um tillögu frá Ítölum, sem gengur út á að bjóða Gaddafí að fara í útlegð. 29.3.2011 15:25
Ráðherra vill bæta réttarstöðu transfólks Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur að úrbótum um réttarstöðu transfólks (transgender) á Íslandi með hliðsjón af áliti umboðsmanns Alþingis og tillögu til þingsályktunar um málefni þeirra sem lögð var fram á síðasta þingi. Í máli því sem umboðsmaður Alþingis tók til umfjöllunar (mál nr. 4919/2007) varð niðurstaða hans í fyrsta lagi sú að vekja athygli stjórnvalda á nauðsyn þess að lagt verði mat á hvort setja þurfi skýrari og fyllri reglur um rétt einstaklinga sem haldnir eru kynskiptahneigð til að óska eftir breytingu á skráningu nafns og eftir atvikum kyns í Þjóðskrá og þá um skyldur stjórnvalda í því sambandi. Í öðru lagi taldi umboðsmaður tilefni til að vekja athygli á nauðsyn þess að meta hvort mæla skuli með skýrum hætti fyrir í lögum um þær reglur sem eiga að gilda um möguleika þess fólks sem um ræðir til að gangast undir leiðréttandi kynskiptiaðgerð. Í því fælist einnig að fjalla um málsmeðferð og skyldur stjórnvalda í því sambandi og þau réttaráhrif sem læknisfræðileg greining á kynskiptahneigð og kynskiptiaðgerðin kann að hafa í för með sér fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga. Lögð var fram tillaga til þingsályktunar um málið á Alþingi í fyrra sem ekki hlaut afgreiðslu en þar var ályktað að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til þess að gera tillögur að úrbótum á stöðu transfólks á Íslandi. Formaður nefndarinnar sem velferðarráðherra hefur skipað er Laufey Helga Guðmundsdóttir, velferðarráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn eru Skúli Guðmundsson, tilnefndur af innanríkisráðuneytinu, Óttar Guðmundsson, tilnefndur af landlæknisembættinu, Margrét Steinarsdóttir, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands, og Anna K. Kristjánsdóttir, tilnefnd af Trans Ísland. Nefndinni er falið að skila tillögum sínum til velferðarráðherra fyrir árslok 2011. 29.3.2011 14:43
Segir gagnaveituna vera hliðargrein Gagnaveitan er hliðargrein í starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og telst tæplega til kjarnastarsemi, sagði Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, á blaðamannafundi í dag. Hann segir að vinnsla raforku til að selja til stóriðju sé ekki kjarnastarfsemi. Bjarni sagði á fundinum að hann vildi færa Orkuveituna nær upprunanum þannig að hún myndi sinna veitustarfsemi. 29.3.2011 14:34
Menntamálaráðherra varar við sameiningarhugmyndum Menntamálaráðuneytið varar við hugmyndum Reykjavíkurborgar um samrekstur og sameiningu leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Þetta kemur fram í áliti sem ráðuneytið hefur skilað til borgarinnar. Þar segir að tillögurnar stangist ekki á við lög. Þær hins vegar feli í sér umfangsmiklar breytingar sem kunni að leiða til umróts í skólasamfélaginu, og að ef Reykjavíkurborg ákveðnur að hrinda þeim í framkvæmd þrátt fyrir varnarorð ráðuneytisins þurfi að hafa öryggi barna og vellíðan að leiðarljósi. 29.3.2011 14:10
Sjö menn á vegum sérstaks saksóknara aðstoðuðu við húsleit Tvær af þeim fimm húsleitum sem lögreglan í Lúxemborg réðst í fyrr í dag vegna rannsóknar á Kaupþingi voru gerðar að beiðni sérstaks saksóknara. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embættinu. Þrjár húsleitir voru svo gerðar á vegum efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar. 29.3.2011 14:04
Björgunarpakki Orkuveitunnar kynntur í dag Blaðamannafundur um björgunaraðgerðir til handa Orkuveitu Reykjavíkur verður haldinn síðar í dag. Nú stendur yfir stjórnarfundur hjá Orkuveitunni þar sem rekstur fyrirtækisins er til umræðu. Ljóst er að grípa verður til margvíslegra aðgerða til að bregðast við slæmri stöðu fyrirtækisins. Milljarða þarf til að bæta lánshæfismat fyrirtækisins. Stjórnarfundurinn er haldinn í framhaldi af fundi borgarráðs í morgun um Orkuveitunnar. 29.3.2011 13:20
Lögreglan leitar vitna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gangbraut í Rofabæ í Reykjavík, skammt frá frístundamiðstöðinni Árseli síðastliðið fimmtudagskvöld um klukkan hálfníu. Þar var ekið á gangandi vegfaranda en ökumaðurinn fór strax af vettvangi án þess að skeyta um hinn slasaða. Talið er að þarna hafi sennilega verið á ferðinni Ford F-150 pallbíll, líklega svart- eða dökklitaður. 29.3.2011 13:11
Fjórði hver hefur tekið út lífeyrissparnað Landsmenn hafa nýtt tímabundna heimild til að taka út séreignarsparnað til að taka 54,8 milljarða króna út úr lífeyriskerfinu, samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra. Alls hafa rúmlega 54 þúsund manns nýtt sér þetta úrræði, um fjórðungur fólks á aldrinum 18 til 67 ára. 29.3.2011 12:45
Segir útgerðarmenn halda atvinnulífinu í gíslingu Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir útgerðarmenn halda öllu atvinnulífi á Íslandi í gíslingu til að ná fram ásættanlegum samningum um kvótakerfið. 29.3.2011 12:16
Húsleitir í Lúxemborg - Ólafur á staðnum Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfestir í samtali við Vísi að embætti hans hafi gert húsleitir í Lúxemborg í morgun. 29.3.2011 12:15
Húsleitir í Lúxemborg vegna Kaupþingsmálsins Lögreglan í Lúxemborg gerði húsleitir í dag að beiðni Serious Fraud Office og sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á Kaupþingsmálinu. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Serious Fraud Office að húsleitirnar tengist rannsókn SFO og sérstaks saksóknara á hruni Kaupþings. 29.3.2011 11:53
Málari breyttist í bókhaldara "Úff, síminn hefur varla stoppað," segir Hannes Birgisson málari sem varð fertugur á dögunum. Vinir hans ákváðu að gera Hannesi grikk og settu auglýsingu í Fréttablaðið með mynd af Hannesi. Í auglýsingunni var hann sagður bókhaldari með margra ára reynslu af skattaframtölum. Því fylgdi sögunni að hvert skattaframtal kostaði aðeins 7500 krónur og að einstæðar mæður þyrftu ekkert að borga. 29.3.2011 11:26
Til í að sleppa dönsku gíslunum gegn því að fá að eiga dótturina Sjóræningjaforinginn sem hefur haldið danskri fjölskyldu í gíslingu í rúman mánuð í Sómalíu hefur boðist til að sleppa allri fjölskyldunni og falla frá fimm milljón dollara lausnargjaldskröfu sinni gegn því að hann fái að giftast stúlkunni í fjölskyldunni, sem er aðeins þrettán ára gömul.Blaðamaður Ekstra blaðsins í Danmörku fór á slóðir sjóræningjanna og hafði upp á foringja þeirra. Hann fékk ekki að hitta dönsku hjónin eða börn þeirra þrjú en hann fékk þessa óhugnanlegu kröfu upp úr foringjanum. 29.3.2011 10:50
Sögulegar sættir Jóhanns og dagskrárstjóra Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður hefur ákveðið að afnema bann sitt við flutningi tónlistar minnar á Bylgjunni og öðrum útvarpsstöðvum á vegum 365 miðla. Jóhann segir að bannið hafi tekið gildi 22. febrúar og leitt til málefnalegra viðræðna milli sín, Pálma Guðmundssonar, framkvæmdastjóra dagskrársvið 365 miðla, og Eiríks Tómassonar, framkvæmdastjóra STEFs. 29.3.2011 10:30
Kaupverð Landsvirkjunar notað til að bjarga OR Málefni Orkuveitu Reykjavíkur verða rædd á borgarráðsfundi sem hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan tíu í morgun. 29.3.2011 10:21
Patreksfirðingar sjósettu nýjan bát Nýr bátur var sjósettur á Patreksfirði á sunnudaginn. Báturinn heitir Fönix BA - 123 og er 15 brúttótonn. Skelin var keypt hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði en smíði hans var fullkláruð á Patreksfirði í vetur, samkvæmt upplýsingum frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. 29.3.2011 09:31
Kærir aflífun Chrystel til innanríkisráðuneytisins Eigandi Rottweiler-tíkarinnar Chrystel hefur kært þá ákvörðun sýslumannsins á Selfossi að aflífa skuli tíkina. Stjórnsýslukæran var lögð fram til innanríkisráðuneytisins í síðustu viku. Krefst eigandinn þess að ákvörðun sýslumannsins verði felld úr gildi. 29.3.2011 09:21
Íbúum fjölgaði lítillega í fyrra Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 318.452 manns á Íslandi, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Íbúum landsins hafði þá fjölgað um 0,3% frá sama tíma ári áður eða um 822 einstaklinga. Á árinu fæddust 4.907 börn en 2.017 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 2.890. Í fyrra fluttu 7.759 einstaklingar til útlanda en 5.625 fluttu til landsins. Brottfluttir umfram aðflutta voru því 2.134. 29.3.2011 09:08
Brotist inn á Bíldshöfða Brotist var inn í fyrirtæki við Bíldshöfða í Reykjavík í nótt, en ekki er vitað hverju, eða hvort einhverju var stolið þar. Þótt vart líði sú nótt að ekki sé brotist einhvernstaðar inn á höfuðborgarsvæðinu, gerast innbrot æ tíðari að degi til, og þá einkum í íbúðahverfum. 29.3.2011 08:05
Gríðarleg óvissa í Japan - plútóníum í jarðvegi Forsætisráðherra Japans Naoto Kan segir að ríkisstjórnin sé á hæsta viðbúnaðarstigi vegna ástandsins í Fukushima kjarnorkuverinu. Plútóníum hefur fundist í jarðvegi við verið og mjög geislavirkt vatn lekur einnig frá verinu. Yfirvöld segja að enn sé aðaláherslan lögð á að kæla kjarnakljúfa versins sem skemmdust í jarðskjálftanum á dögunum. Þá er ítrekað að þótt plútóníum, sem er lífshættulegt fólki í smáum skömmtum, hafi fundist í jarðvegi sé það í örlitlum mæli. 29.3.2011 08:03
Ætlaði að jafna um öryggisvörð en datt á hausinn Ölvaður karlmaður, sem ætlaði að berja öryggisvörð í 10-11 verslunininni við Engihjalla um klukkan tvö í nótt, hrasaði í miðri atlögunni og féll á andlitið svo það fór að fossblæða úr nefi hans. Kallað var á sjúkrabíl og hann fluttur á Slysadeild, þar sem blóðstreymið var stöðvað. 29.3.2011 08:01
Sérfræðilæknar neita að framlengja þjónustusamning Sjúklingar, sem þurfa að leita til sjálfstætt starfandi sérfræðilækna þurfa að greiða þeim fullt gjald frá og með næstu mánaðamótum, ef ekki semst við heilbrigðisyfirvöld fyrir þann tíma. 29.3.2011 07:42
Sundmaðurinn ekki alvarlega slasaður Karlmaður sem slasaðist í Lágafellslaug í Mosfellsbæ í gærkvöldi, gekkst undir ítarlega rannsókn á slysadeild Landsspítalans í gærkvöldi, en mun ekki hafa hlotið alvarlega áverka. 29.3.2011 07:04
Forstöðumaður kærður fyrir kynferðisbrot Forstöðumaður Ekron, samtaka sem annast meðal annars starfsþjálfum og endurhæfingu óvirkra vímuefnaneytenda og öryrkja, hefur verið kærður til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir kynferðisbrot. 29.3.2011 06:30
Almenn skynsemi besta vörnin á Fésbókinni Vírusvarnir mega sín lítils þegar notendur velja sjálfir að virkja forrit með því að smella á hlekki á netinu. Björn Davíðsson, þróunarstjóri hjá vefþjónustunni Snerpu á Ísafirð, segir "almenna skynsemi" seint verða ofmetna sem forvörn á internetinu. 29.3.2011 06:00
Aðkoma NATO er í samræmi við stefnu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að aðkoma Íslands að ákvörðun NATO um að taka við samræmingu aðgerða í Líbíu sé í fullu samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórnin hafi veitt formlegt samþykki á sínum tíma. 29.3.2011 06:00
HBT hætti við eftir mælingar Vetnisbúnaður sem draga átti úr eldsneytisnotkun bifreiða stendur ekki undir væntingum, að því er fram kemur í umfjöllun Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). 29.3.2011 05:30
Árangurslaust fjárnám algengara Alls hafa 363 fyrirtæki fengið tilboð frá viðskiptabanka sínum á grundvelli Beinu brautarinnar; samkomulagi stjórnvalda, atvinnulífsins og fjármálafyrirtækja um leiðir til úrvinnslu skuldamála smárra og meðalstórra fyrirtækja. Til meðferðar í bönkunum eru mál 949 fyrirtækja. 29.3.2011 05:00
Smyglaði ítrekað eiturlyfjum og sterum Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á þrítugsaldri hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot, auk fleiri brota. 29.3.2011 04:30
Plúton hefur fundist í jarðvegi utan ofna Ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima verður æ hættulegra. Í gær fundust í fyrsta sinn merki um plúton í jarðvegi utan kjarnaofnanna, sem bendir til þess að alvarleg bráðnun hafi orðið í kjarna eins eða fleiri þeirra. 29.3.2011 01:00
NATO segist aðeins vernda fólk „Markmið okkar er að vernda og aðstoða almenna borgara og byggðakjarna sem eiga árásir á hættu,“ sagði kanadíski herforinginn Charles Bouchard, sem þessa dagana er að taka við yfirstjórn hernaðaraðgerða NATO í Líbíu af Bandaríkjamönnum. 29.3.2011 00:30
Sextán danskir Vítisenglar fyrir dómi Sextán danskir meðlimir í vélhjólaklíkum, eða „rokkarar“ eins og þeir eru kallaðir, voru leiddir fyrir dóm í Glostrup á Sjálandi í gær, ákærðir fyrir sex tilraunir til manndráps, alvarlega líkamsárás með kylfum og fleiri glæpi. Þetta eru viðamestu réttarhöld af sinni tegund sem fram hafa farið í Danmörku. 29.3.2011 00:00
Hagfræðingur svarar syni í bók fyrir börn „Ég fann að mig langaði að prófa að skrifa bók fyrir börn en spurning sonar míns, sem ég gat ekki svarað, varð kveikjan að sögunni," segir Guðmundur Sverrir Þór, doktorsnemi í hagfræði og höfundur nýrrar barnabókar, Sjandri og úfurinn, sem kom út um miðjan marsmánuð. 28.3.2011 20:30
Spyr hvort einhver þurfi ekki að ákveða hvort landsbyggðin lifi Oddviti Vopnafjarðarhrepps spyr hvort einhver þurfi ekki að fara að taka ákvörðun um það hvort landsbyggðin eigi að lifa eða ekki. Íbúum Vopnafjarðar hefur fækkað um nærri þrjátíu prósent á rúmum tuttugu árum. 28.3.2011 18:57
Lögreglan leitar manns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is 28.3.2011 16:17
Útilokar ekki skattahækkanir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vill ekki útiloka skattahækkanir á næsta ári. Hann segir hins vegar að engar stórkostlegar aðgerðir séu framundan í skattamálum, eins og hafi verið á árunum 2009 og 2010. Þetta kom fram í máli Steingríms í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. 28.3.2011 15:24
Kveikt í strætóskýli á Ísafirði Kveikt var í strætisvagnaskýli við Hreggnasa í Ísafjarðarbæ í gær. Ekki var um miklar skemmdir að ræða og teljst málið upplýst, en þarna voru ungir drengir að verki. Þá voru skemmdir unnar á anddyri húss við Aðalstræti á Ísafirði um helgina, en lögregla leitar enn þess seka. Lögreglan á Vestfjörðum vill koma því á framfæri að undanfarið hefur borið á því að ungir ökumenn hafa ekið glannalega á hafnarsvæðinu á Ísafirði. Vart þarf að fjölyrða um það hvað gæti komið þar fyrir og vill lögregla biðja foreldra og forráðamenn ungra ökumanna að brýna fyrir börnum sínum, sem komin eru með ökuréttindi, þá hættu sem af þessu getur stafað. 28.3.2011 15:11
Aukafundur í borgarráði um málefni OR Borgarráð kom saman á sérstökum aukafundi í dag þar sem rætt var um málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Fjárhagsstaða fyrirtækisins hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga en erfiðlega hefur gengið að endurfjármagna lán OR. Fundi Borgarráðs var frestað í dag án niðurstöðu en fundarhöld halda áfram á morgun. 28.3.2011 14:51
Geislamengun mælist fyrir utan kjarnorkuverið Mjög geislamengað vatn hefur nú fundist í fyrsta sinn utan Fukushima kjarnorkuversins í Japan þar sem menn hafa reynt að kæla kjarnakljúfana sem urðu illa úti í jarðskjálftanum ellefta mars og flóðbylgunni sem kom á eftir. 28.3.2011 13:53
Skemmdarverk unnin á húsnæði Landsbankans Orðið "Glæpamenn“ var skrifað stórum stöfum á húsnæði útibús Landsbankans við Hamraborg um helgina. Starfsmenn bankans uppgötvuðu þetta þegar þeir mættu til vinnu í morgun. Málið hefur verið kært til lögreglu, samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Kristjánssyni, upplýsingafulltrúa Landsbankans, en ekki liggur fyrir hvort hinn óprúttni aðili sem skrifaði þetta hafi náðst. 28.3.2011 13:33