Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Natóeldurinn kulnar: Óvirðing við listakonuna Logunum í Natóeldinum svokallaða við Hagatorg í Reykjavík fer fækkandi en þeir eru nú aðeins átján, þrátt fyrir að hafa upphaflega verið tuttugu. Listaverkið er eftir Huldu Hákon og heitir 20 logar en verkið var afhjúpað í maí 2002 í tilefni af fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins, Nató, sem haldinn var hér á landi. 10.2.2011 08:48
Kokkur Al Kaída að losna frá Guantanamo Bandaríski herinn hefur stytt fangelsisdóm yfir Súdananum Ibrahim al-Qosi um tvö ár, en hann hefur verið í haldi frá árinu 2001 lengst af í Guantanamo búðunum á Kúbu. Al-Qosi var á sínum tíma dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að aðstoða hryðjuverkamenn en hann var kokkur í þjálfunarbúðum Al Kaída í Afganistan. Nú fær hann að snúa aftur til síns heima í Súdan og foreldrar hans segja að hann muni koma til með að taka við fjölskyldufyrirtækinu, sem er lítil matvörubúð. 10.2.2011 08:40
Dóttir bæjarstjórans á bíl Kópavogsbæjar Bíll sem Kópavogsbær leggur Guðrúnu Pálsdóttur bæjarstjóra til er notaður af nítján ára dóttur hennar. Sjálf notar Guðrún stundum aðra bíla sem bærinn á. 10.2.2011 08:00
Bensínið hækkaði í gær Olíufélagið Skeljungur hækkaði bensínverð síðdegis í gær um fimm krónur og kostar lítrinn nú tæpar 214 krónur. 10.2.2011 07:41
Enn einn mannlausi bíllinn fer á flakk Mannlaus bíll rann útaf veginum yfir Fjarðarheiði í gærkvöldi og hafnaði utan vegar. Þetta er fjórði mannlausi bíllinn sem lendir í havaríi í vikunni, því fyrst rann mannlaus jeppi á tvo bíla á Akureyri og hafnaði inni í trjálundi og tveir mannlausir bílar skullu saman á bílastæði í Vestmannaeyjum í ofsaveðri í fyrrakvöld. 10.2.2011 07:36
Óttast um fagleg sjónarmið í skólum Fyrirhuguð hagræðing í skólastarfi Reykjavíkurborgar hefur valdið nokkrum úlfaþyt þar sem óljósar hugmyndir um sameiningu eða samrekstur stofnana hafa mætt töluverðri andstöðu meðal starfsfólks, stjórnenda og foreldra. 10.2.2011 07:00
Aðdáandi Erps lætur flúra andlit hans á handlegginn „Þetta er sjúklega flott. Alveg geðveikt. Erpur verður hérna að eilífu,“ segir Þorgeir Gunnarsson, eldheitur aðdáandi Erps Eyvindarsonar og hljómsveitar hans, XXX Rottweiler. 10.2.2011 07:00
Tæki mínútur að hakka vef Alþingis Góður hakkari væri aðeins nokkrar mínútur að brjóta sér leið inn í tölvukerfi Alþingis og gæti sótt ýmiss konar upplýsingar og valdið óskunda, segir Wayne Burke, ráðgjafi og sérfræðingur í tölvuöryggismálum. 10.2.2011 07:00
Mínus hjá þeim sem standa utan ESB Methalli var á viðskiptum Breta við helstu viðskiptalönd sín í desember og nam við áramót 9,25 milljörðum punda. Þetta er tæplega átta hundruð milljóna punda verri afkoma en í nóvember, samkvæmt upplýsingum bresku hagstofunnar sem birtar voru í gær. 10.2.2011 07:00
Ráðherra vildi loka án tafar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra beindi þeirri ósk til þriggja sveitarstjórna í gær að hætta eða draga úr sorpbrennslu þar til niðurstöður frekari mengunarmælinga liggja fyrir. Á Kirkjubæjarklaustri hefur verið hætt að brenna sorp á skólatíma, eins og krafa hefur verið um frá íbúum. 10.2.2011 07:00
Beitir sér gegn löndun erlendis Verkfallsboðun starfsmanna í fiskimjölsbræðslum nýtur stuðnings miðstjórnar Alþýðusambands Íslands. 10.2.2011 07:00
Lét ekki reyna á dómsmál Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, lét ekki reyna á rétt sinn fyrir dómstólum þótt hún hafi talið að harkalega hafi verið vegið að henni á netinu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga síðasta vor. 10.2.2011 06:00
Fjórir dómarar lýstu vanhæfi Fjórir hæstaréttardómarar lýstu sig vanhæfa til að sitja í Landsdómi í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Landsdómur kemur í fyrsta skipti saman í dag. 10.2.2011 06:00
Kanna skaðabótaskyldu bankaráðsins Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hafa sent fyrrverandi bankastjórum bankans og fjórum fulltrúum í bankaráðinu bréf þar sem óskað er skýringa á þætti þeirra í meintu misferli með fé bankans við hrun hans. Fólkinu er jafnframt greint frá því að hugsanlega sé talið tilefni til bótakrafna á hendur því. 10.2.2011 06:00
Ákvörðun Sjúkratrygginga ógilt Velferðarráðuneytið hefur ógilt þá ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands að stöðva þátttöku sína í sjúkrakostnaði sjúklinga tannlæknis á Suðurnesjum 15. október í haust. Úrskurður ráðuneytisins er að stöðvun SÍ hafi verið ólögleg og var ákvörðun SÍ því felld úr gildi. 10.2.2011 05:00
Mælingar Umhverfisstofnunar vegna díoxínmengunar Umhverfisstofnun hefur lagt mat á hverjar séu helstu hugsanlegu uppsprettur díoxíns á Íslandi en ekki eru til sértækar mælingar á díoxíni í umhverfinu. 10.2.2011 05:00
Spá 2,7% samdrætti á árinu Í spá Vegagerðarinnar um umferðarþunga á höfuðborgarsvæðinu fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir 2,7 prósenta samdrætti í umferðarþunga. Samdrátturinn var 3,9 prósent í nýliðnum janúarmánuði. 10.2.2011 04:00
Svandís vill ákvæði í stjórnarskrána Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra styður þá hugmynd að ákvæði um rétt almennings til heilnæms umhverfis verði bætt við stjórnarskrána við fyrirhugaða endurskoðun hennar. 10.2.2011 03:45
Kveiktu í trjám og lokuðu vegi Nærri tíu þúsund manns tóku þátt í mótmælunum á Tahrir-torgi í Kaíró í gær, á sextánda degi mótmælanna gegn Hosni Mubarak forseta og stjórn hans, þrátt fyrir hótanir Ómars Suleimans varaforseta um að mótmælin verði ekki liðin miklu lengur. 10.2.2011 03:00
Elsti bjór heims bruggaður á ný Vísindamenn hafa fengið í hendurnar elsta bjórsýni sem fundist hefur. Til stendur að greina það, endurgera uppskriftina og brugga hann á ný. 9.2.2011 20:00
Funduðu með foreldrum um niðurskurð Formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, fundaði með fulltrúum svæðisráða foreldra á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn mánudag, 7. febrúar 2011 samkvæmt tilkynningu frá samtökunum. 9.2.2011 15:39
Bílvelta á Bláfjallavegi Árekstur varð á milli tveggja fólksbíla á Bláfjallavegi um þrjúleytið í dag. Fjórir voru í öðrum bílnum. Að sögn sjúkraflutningamanna gekk þeim erfiðlega að komast út úr bílnum vegna þess að dyr höfðu skemmst og erfitt var að opna. 9.2.2011 15:35
Pallbíll hafnaði á tré við Útlagann Karlmaður var fluttur á sjúkrahús eftir að hann missti stjórn á pallbíl sínum og hafnaði á tré. Slysið átti sér stað í nágrenni Útlagans á Flúðum um hádegisbilið í dag en bíllinn varð stjórnlaus í beygju þar vegna mikils kraps á veginum. Maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður en kann kenndi sér eymsla fyrir brjósti og í baki. Bíllinn er mikið skemmdur og að öllum likindum ónýtur. 9.2.2011 15:29
Gögnin komin frá Havilland banka Sérstakur saksóknari hefur fengið afhent gögn sem voru tekin þegar gerð var húsleit í Banque Havilland í Lúxemborg. Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við Vísi. Gögnin eru mjög umfangsmikil og vega um 150 kíló. Hvailland banki var áður Kaupþing í Lúxemborg. Húsleit var gerð þar í febrúar síðastliðnum í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á meintri markaðsmisnotkun og fleiri auðgunarbrotum í rekstri Kaupþings. 9.2.2011 15:02
Ræddu öryggismál á Atlantshafi Fundurinn, sem Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, átti í gær með Maarten de Sitter, pólitískum ráðgjafa yfirmanns herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu, var vel heppnaður, samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins 9.2.2011 14:47
Kærði til Persónuverndar þegar hann fékk ekki tímana greidda Persónuvernd úrskurðaði í janúar að flutningafyrirtæki á Grundarfirði megi fylgjast með starfsmönnum sínum í gegnum ökurita. Það var starfsmaður fyrirtækisins sem kvartaði til Persónuverndar eftir að fyrirtækið neitaði að greiða alla tímana sem hann sagðist hafa unnið. 9.2.2011 14:39
Forsetinn setti þing Jarðhitasamtakanna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í morgun setningaræðu á þingi Jarðhitasamtaka Bandaríkjanna sem haldið er í New York. Fjöldi sérfræðinga og forystumanna í jarðhitamálum sækir þingið, bæði frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. 9.2.2011 14:18
Fannst getnaðarlimurinn góður felustaður fyrir kókaínið Lögreglumenn fylltust grunsemdum þegar þeir fundu lítinn poka með kókaíni í teygju á boxer-nærbuxum karlmanns sem þeir stöðvuðu fyrir umferðarlagabrot. Antoine Banks var þó með meira af fíkniefnum á sér eins og lögreglumennirnir komust að þegar þeir gerðu líkamsleit á honum í framhaldinu. Þrátt fyrir að vera ýmsu vanir kom þeim það mjög á óvart þegar þeir fundu annan poka af kókaíni á heldur óvenjulegum stað - undir forhúð Antoine. Auk þess að vera ákærður fyrir vörslu fíkniefna má hann búast við ákæru fyrir sölu og smygl á eiturlyfjum. 9.2.2011 13:50
Ríflega 80% strætófarþega ánægð Ríflega átta af hverjum tíu sem ferðast með strætisvögnum Strætó bs. eru ánægðir með þjónustuna. Þetta er megin niðurstaða árlegs þjónustumats, sem framkvæmt var meðal strætisvagnafarþega fyrir skömmu. Ánægjan með þjónustu Strætó er svipuð nú og árið á undan en þá hafði ánægjan hins vegar aukist umtalsvert frá árinu þar áður. 9.2.2011 12:53
Kjöt innkallað vegna hugsanlegrar díoxínmengunar Ferskar kjötvörur hafa fengið tilkynningu frá Sláturhúsi KVH á Hvammstanga um innköllun á nautgripum vegna hugsanlegrar díoxínmengunar í kjöti af þeim. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að gripunum hafi verið slátrað í september 2010 og október 2010 og kjöt af þeim nýtt í framleiðsluvörur Ferskra kjötvara. 9.2.2011 12:45
Árni Páll: Ekki fyndið þegar ráðist er á mann í netheimum „Þetta er greinilega eitt af því sem kemur upp í lífinu, en auðvitað er það ekki fyndið þegar menn eru að ráðast á mann í netheimum,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, en óprúttinn tölvuþrjótur hakkaði sig inn á heimasíðu ráðherrans og tilkynnti um afsögn Árna Páls í gær. 9.2.2011 11:59
Góðkunningjar lögreglunnar brutust inn á veitingastað Tveir karlar voru handteknir eftir innbrot á veitingastað í Reykjavík í nótt. Mennirnir, annar á fertugsaldri en hinn á fimmtugsaldri, voru stöðvaðir skammt frá vettvangi og fannst þýfið í bíl þeirra. Hinum stolnu munum var komið aftur í réttar hendur en innbrotsþjófarnir voru fluttir í fangageymslu. Þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. 9.2.2011 11:51
Birgitta vill að dómari ógildi Twitter-úrskurðinn Birgitta Jónsdóttir þingkona og tveir tölvusérfræðingar sem sagðir eru tengjast Wikileaks vefsíðunni hafa farið fram á það við dómara í Bandaríkjunum að hann ógildi fyrr úrskurð um að upplýsingar á Twitter samskiptasíðum þeirra verði gerðar aðgengilegar bandarískum stjórnvöldum. 9.2.2011 11:48
Hollvinir Strætó sameinast Strætó er ágætis ferðamáti og vanmetinn, segir Vésteinn Valgarðsson, sem stendur að stofnun Hollvinasamtaka Strætó. Samtökin verða stofnuð á morgun. Vésteinn segir að tilgangurinn sé að stofna þverpólitískan hóp til að stuðla að betri almenningssamgöngum, einkum strætó. „Ég fer flestra minna ferða í strætó. Það sem ég fer ekki gangandi," segir Vésteinn. 9.2.2011 11:48
Bandaríkjamenn þrýsta á Egypta um að aflétta neyðarlögum Bandaríkjamenn krefjast þess að Egyptar aflétti þegar í stað neyðarlögum sem sett voru í landinu fyrir þremur áratugum síðan. Joe Biden varaforseti ræddi í gær við kollega sinn Omar Suleiman og tilkynnti honum þetta. Biden hvatti einnig til þess að lögreglan hætti þegar í stað að berja á mótmælendum og blaðamönnum í landinu. 9.2.2011 11:45
Mótmæla því að börnin séu notuð í tilraunaskyni „Lærdómur finnsku þjóðarinnar, af þeirra efnahagshruni, var að skera ekki niður í menntakerfinu! Foreldrar barna í Laugarnesskóla krefjast þess að menntayfirvöld starfi faglega, dragi lærdóm af þeirra reynslu, en noti ekki börnin okkar sem í tilraunaskyni," segir í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi foreldra í Laugarnesskóla sem haldinn var í morgun. 9.2.2011 11:44
Þórður Friðjónsson látinn Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, er látinn, 59 ára að aldri. Þórður lést á sjúkrahúsi í borginni Friedrichshafen í Suður-Þýskalandi í gær eftir skammvinna baráttu við krabbamein en hann var á ferðalagi með 9.2.2011 11:23
Perlan þótti ógn á sínum tíma - Harpan alveg meinlaus Þær áhyggjur sem fram komu í fjölmiðlum í gær um samkeppni frá Hörpunni eru fullkomlega óþarfar. Íslenskum ráðstefnu- og viðburðahöldurum stafar ekki ógn af Hörpunni - heldur felur hún miklu frekar í sér tækifæri fyrir þá og aðra ferðaþjónustuaðila. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpunnar, hefur sent frá sér í tilefni af fréttaumfjöllun þar sem fram hefur komið að rekstraraðilar veislusala hafa áhyggjur af afkomu sinni þegar þeir þurfa að keppa við glæsihýsið Hörpuna. 9.2.2011 11:13
Taylor ekki við lokasprettinn Réttarhöldunum yfir Charles Taylor, fyrrverandi einræðisherra Líberíu, ætlar að ljúka með sama hætti og þau hófust, nefnilega með því að sakborningurinn mætir ekki í réttarsalinn og segir réttarhöldin ósanngjörn og runnin undan pólitískum hvötum. 9.2.2011 11:00
Segist bera ábyrgð á árás Doku Umarov, einn téténsku stríðsherranna sem enn berjast fyrir aðskilnaði Téténíu frá Rússlandi, segist bera ábyrgð á sprengjuárásinni á Domodedovo-flugvelli nálægt Moskvu í síðasta mánuði. 9.2.2011 11:00
Spá fækkun dauðsfalla af völdum krabbameins Sérfræðingar búast við því að töluvert dragi úr dauðsföllum af völdum krabbameins í Evrópu þetta árið samanborið við síðustu ár. Sérfræðingarnir styðjast við gögn frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og segjast þeir geri ráð fyrir að dauðsföllum af völdum krabbameins fækki um sjö prósent hjá körlum og um sex prósent hjá konum, borið saman við árið 2007. Reiknað er með að samanlagt látist 1,3 milljónir manna af völdum krabbameins á árinu. 9.2.2011 11:00
Íslendingar stela meira af tónlist en aðrar þjóðir „Við erum eftir á – við eigum alveg slatta inni,“ segir Engilbert Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Tonlist.is. 9.2.2011 11:00
Hár- og blóðsýni skimuð við leit að díoxínmengun í fólki Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að gera sérstaka heilsufarsrannsókn á íbúum þriggja sveitarfélaga vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslum. Viðlíka rannsókn hefur aldrei verið gerð áður hér á landi. 9.2.2011 11:00
Króatar fá aðildardagsetningu í apríl Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segir að í apríl fái Króatar væntanlega að vita hvenær þeir geta gengið í Evrópusambandið. 9.2.2011 11:00
Krefjast samráðs um sameiningaráform Fulltrúar í menntaráði Reykjavíkurborgar hafa ekki verið hafðir nægilega með í ráðum í yfirstandandi vinnu varðandi sameiningar eða samrekstur innan skólastarfs borgarinnar. 9.2.2011 11:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent