Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvær bílveltur nærri Hvolsvelli Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni til lögreglunnar á Hvolsvelli. Tildrög þeirra má rekja til snjós og hálku á vegum en mikið hefur snjóað. Eins leituðu ökumenn aðstoðar lögreglu og björgunarsveita sem lent höfðu í vandræðum eftir að hafa misst bifreiðar sínar útaf. 8.2.2011 14:25
Líkbrennslan hitar sundlaugina Breska sveitarfélagið Redditch leitar nú allra leiða til að spara eins og flest önnur sveitarfélög í heiminum. Ein hugmyndin hefur þó vakið athygli fyrir frumlegheit en ekki eru allir á eitt sáttir. Hún er að nýta umframorkuna sem til verður í líkbrennslu bæjarins til þess að hita upp sundlaugina sem er á næstu lóð. 8.2.2011 14:23
Slæmt ferðaveður undir Eyjafjöllum Það er slæmt ferðaveður undir Eyjafjöllum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Hvolsvelli. Þar er að hvessa töluvert og töluverðri úrkomu er spáð. Því má búast við mikilli hálku og erfiðu færi. 8.2.2011 14:09
Króaði vopnaðan ræningja af Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir tilraun til ráns, þjófnað og gripdeildir. Manninum er gefið að sök að hafa í nóvember 2009 farið inn í Háteigskjör í Reykjavík, vopnaður hnífi, ógnað starfsmanni og öskrað: „Þetta er rán, þetta er rán.“ 8.2.2011 14:00
Seinni ferð Herjólfs felld niður vegna veðurs Seinni ferð Herjólfs frá Eyjum kl 15.00 og 19.00 frá þorlákshöfn fellur niður vegna óveðurs samkvæmt tilkynningu frá Eimskipi. 8.2.2011 14:00
Sjóræningjar ræna olíuskipi Sjóræningjar hafa ráðist um borð í ítalskt olíuflutningaskip á Indlandshafi og tekið stjórnina af áhöfninni, að því er ítalski sjóherinn segir. Sjóræningjarnir skutu á skipið, sem heitir Savyna Caylin, en það var statt um 800 kílómetra undan ströndum Indlands og um 1300 kílómetra undan ströndum Sómalíu, en flestir sjóræningjar á þessum slóðum koma þaðan. 8.2.2011 14:00
Geitungur snemma á ferð - fór í Byko og fékk sér sykurmola Geitungarnir virðast ætla að vera snemma á ferðinni í ár en einn slíkur smeygði sér inn í Byko í gærmorgun samkvæmt fréttavef Víkurfrétta, vf.is. 8.2.2011 13:58
Óliðlegt hjá borginni að moka ekki eldri borgara út „Ég hef ekki heyrt svona lagað áður og finnst þetta heldur óliðlegt hjá borginni,“ segir Sigurður Einarsson, framkvæmdarstjóri Félags eldri borgara í Reykjavík, en Vísir greindi frá því í morgun að maður á níræðisaldri væri fastur heima hjá sér eftir að borgin stíflaði innkeyrsluna hans eftir snjómokstur. 8.2.2011 13:41
Fréttir af afsögn Árna Páls stórlega ýktar „Fréttir af afsögn minni eru stórlega ýktar,“ sagði Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, í samtali við starfsmann sinn í ráðuneytinu þegar hann tilkynnti honum að frásagnir af afsögn væru komnar á kreik. 8.2.2011 13:31
Reglur um klæðaburð unglinga á dansleikjum hóflegar Gestir á Samfésballinu í ár mega ekki klæðast stuttum pilsum, flegnum bolum eða fráhnepptum skyrtum. Brjóti gestir reglurnar verða þeir umsvifalaust færðir afsíðis inn í herbergi þar til dansleiknum lýkur. Eru þetta nýjar reglur um klæðaburð sem stjórn Samfés hefur samþykkt. Samfés eru samtök félagsmiðstöðva á Íslandi sem halda stórt ball á hverju ári þar sem unglingar frá öllum félagsmiðstöðvum landsins koma saman. 8.2.2011 13:30
Aldrei fór ég suður verður haldin - stuð mælt í travoltum Aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og velunnarar hátíðarinnar blása til opins borgarafundar í sal Edinborgarhússins á Ísafirði á fimmtudagskvöld samkvæmt fréttavef Bæjarins bestu, bb.is. 8.2.2011 13:22
Heimasíða Árna Páls hökkuð - Segir af sér vegna óánægju „Ég hef ákveðið að segja af mér vegna vaxandi óánægju í minn garð frá almenningi.“ Svona hljóðar yfirlýsing sem birt er á vefsíðu Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, í dag. Engar fréttir hafa borist af því að til stæði að Árni Páll viki úr ríkisstjórn á næstunni og því verður að teljast víst að hann hafi ekki skrifað færsluna sjálfur. 8.2.2011 13:03
Hetjan með handtöskuna: „Það gerði enginn neitt svo ég lamdi þá bara“ Ellilífeyrisþeginn sem lét til skarar skríða gegn skartgriparæningjum í gær hefur vakið verðskuldaða athygli í breskum miðlum í dag. Vísir greindi frá því fyrr í dag hvernig konan réðst gegn sex skartgriparæningjum með handtöskuna eina að vopni, en þeir voru vopnaðir sleggjum sem þeir notuðu til að mölva rúðurnar í versluninni. Hún náði að trufla þá við iðju sína og tefja þá nógu lengi þannig að lögreglan handsamaði einn á staðnum. Tveir aðrir voru handteknir síðar og hinna er leitað. 8.2.2011 13:00
Borgarstjóri á spítala Jón Gnarr borgarstjóri fór á spítala í dag og mun vera frá vinnu næstu viku. „Þetta er ekkert alvarlegt og bara búið að standa til lengi. Hann er búinn að vera með þrálátt kvef og þurfti að bregðast við því," segir Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins. 8.2.2011 12:39
Ekkert lát á matvælahækkunum Verð á matvælum heldur áfram að hækka og hefur aldrei verið hærra samkvæmt mati Alþjóðamatvælastofnunarinnar FAO. 8.2.2011 12:13
Þúsundir enn á Frelsistorginu í Kaíró Þúsundir manna hafast enn við á Frelsistorginu í Kairó í Egyptalandi og krefjast þess að Hosní Mubarak forseti landsins segi af sér nú þegar. Í dag hefst þriðja vika mótmæla í landinu en mótmælendur segjast ekki láta af aðgerðum sínum fyrr en forsetinn fari frá og hafa hvatt til allsherjar mótmæla í vikunni. 8.2.2011 12:07
Hvetur til samninga við Alcoa um álver við Húsavík Bæjarstjóri Norðurþings hvetur til þess að gengið verði til samninga við Alcoa um álver á Bakka. Búið sé að undirbúa það verkefni árum saman og tími til kominn að hefja atvinnuuppbyggingu. 8.2.2011 12:03
Bjarni segir starfið leggjast vel í sig Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að ráða Bjarna Bjarnason jarðfræðing og verkfræðing forstjóra fyrirtækisins. Hann tekur við starfinu af Helga Þór Ingasyni, sem ráðinn var tímabundið í ágúst 2010. Bjarni tekur til starfa 1. mars. Umsækjendur um starfið voru sextíu talsins og hefur ráðningarferlið staðið frá 28. september. 8.2.2011 11:48
Leyndardómurinn um svefngöngu leystur? Vísindamenn telja sig hafa fundið breytingu í litningi sem skýrir þá undarlegu hegðun sumra að ganga í svefni. 8.2.2011 11:31
Níræður fastur í innkeyrslunni: „Það er ekkert við þessu að gera“ „Við getum ekki bara látið snjóinn hverfa," segir Guðni Hannesson, yfirverkstjóri gatnahreinsunar hjá Reykjavíkurborg, en það hefur verið óvanalega snjóþungt í borginni síðastliðna daga. Svo hefur borið á því að snjór hefur stíflað innkeyrslur eftir mokstur. 8.2.2011 11:26
Bræðslumenn á Austurlandi í verkfall Mikill meirihluti starfsmanna í báðum fiskimjölsverksmiðjunum í Vestmannaeyjum, í verksmiðjunum sex á Austurlandi og á Akranesi samþykkti tillögu um verkfallsboðun eftir viku. Enginn samningafundur hefur verið boðaður í deilunni. 8.2.2011 11:23
Bestu íslensku vefirnir - listinn Meniga.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir. Simon Collison afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Tjarnarbíói og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 11 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni, en þetta er í tíunda skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin. 8.2.2011 11:19
Lárus ákærður fyrir brot gegn lögreglulögum Lárus Páll Birgisson sjúkraliði hefur verið ákærður fyrir brot gegn lögreglulögum. Hann er sakaður um að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu og flytja sig um set þegar lögreglan stóð fyrir framan Sendiráð Bandaríkjanna að Laufásvegi þann 4. nóvember síðastliðinn. 8.2.2011 11:13
Nokkur þorp enn einangruð eftir að Yasi reið yfir Fimm dögum eftir að fellibylurinn Yasi reið yfir Queensland í Ástralíu eru enn nokkur þorp og bæir sem björgunarliði hefur enn ekki tekist að komast til. Þrátt fyrir að fáir hafi slasast í veðurhamnum er eyðileggingin gríðarleg og standa björgunarliðar og hermenn í ströngu við að ryðja braki af vegum ríkisins. Áströlsk stjórnvöld hafa varað við því að eyðileggingin af völdum Yasi og flóðanna á dögunum muni koma skýrt fram í efnahagsreikningi Queensland ríkis á fyrsta ársfjórðungi. 8.2.2011 11:00
Eigendur steinbæjar kæra borgaryfirvöld „Í mínum huga er þetta ekki steinbær heldur rústir steinbæjar,“ segir Stefán S. Guðjónsson, talsmaður eigenda Klapparstígs 19, sem ekki fá að rífa húsið sem þar stendur til að byggja nýtt. 8.2.2011 11:00
Fordæma „öfgafullt“ frumvarp: Íþyngjandi fyrir skógrækt „Það er skoðun bæjarstjórnar Norðurþings að það frumvarp sem hér er kynnt sé öfgafullt og óþarflega íþyngjandi fyrir íbúa landsins. Það á ekki hvað síst við um ákvæði sem virðast íþyngjandi fyrir framgang skógræktar og landgræðslu." 8.2.2011 10:59
Lög mögulega brotin með hakakrossspilum Þýskir saksóknarar rannsaka nú hvort verið sé að brjóta lög þar í landi með spilum sem hafa verið gefin út þar í landi. Um er að ræða spil með myndum af helstu einræðisherrum tuttugustu aldarinnar þar sem hakakrossinn kemur fyrir. 8.2.2011 10:54
Biðst afsökunar á ummælum um Aratúnsfjölskylduna Tæplega þrítugur karlmaður hefur beðið Aratúnsfjölskylduna afsökunar á ummælum sem hann lét falla um frétt sem birtist á dv.is á síðasta ári. Fjölskylda, sem átti í harðvítugum nágrannadeilum í Aratúni í Garðabæ, hefur hótað sjö einstaklingum lögsókn og krefst hundruð þúsunda króna í skaðabætur ef þeir biðjast ekki afsökunar á ummælum sem þeir létu falla um fjölskylduna á netinu. Þessi maður er sá eini sem hefur beðist afsökunar. 8.2.2011 10:36
Ókeypis fræðsla um Evrópuferli Mímir-símenntun stendur næstu fimm vikur fyrir fundaröð um samningaferli og aðildarumsókn Íslands að ESB. Fyrsti fundur verður í kvöld í Ofanleiti 2, þar sem formaður samninganefndar Íslands, Stefán Haukur Jóhannesson, greinir frá samningaferlinu almennt séð. 8.2.2011 10:15
Bjargaði pilti upp úr Tjörninni: „Algjör heppni að ég sá hann“ „Ég var á leiðinni heim með leigubíl þegar ég sá eitthvað svart út í tjörninni,“ segir bjargvætturinn Andri Vilbergsson, sem bjargaði lífi nítján ára pilts sem hafði verið að stytta sér leið yfir Reykjavíkurtjörn um helgina þegar ísinn brast undan honum. Pilturinn féll ofan í og þurfti að berjast fyrir lífi sínu í myrkrinu aðfaranótt sunnudags. 8.2.2011 10:02
Páll Óskar tekur upp plötu í New York „Ég ætla að hoppa aðeins til New York í sumar. Ég ætla bæði að kúpla mig út og vinna svolítið líka,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Hann ætlar að vinna að nýrri plötu í New York sem mun fylgja eftir hinu gríðarvinsæla Silfursafni sem kom út fyrir jólin 2008. 8.2.2011 10:00
Salernum lokað á Akureyri Framkvæmdaráð Akureyrarbæjar stendur við ákvörðun sína um lokun almenningssalerna undir kirkjutröppunun vegna opnunar menningarmiðstöðvarinnar Hofs og salerna þar. Fyrirspurn var lögð fram í viðtalstíma bæjarfulltrúa um miðjan janúar þar sem spurst var fyrir um salernin við kirkjuna og opnun þar í sumar. „Mikill fjöldi farþega af skipunum fer í miðbæinn, kirkjuna og í Lystigarðinn. Hof muni ekki anna þessu á háannatíma. Óskað eftir að ákvörðun um lokun salernanna verði endurskoðuð í bæjarráði,“ segir í fundargerð framkvæmdaráðs frá 4. febrúar þar sem fyrirspurnin var tekin fyrir. Framkvæmdaráð tók þá endanlega ákvörðun um að staðið verður við lokun salernanna. 8.2.2011 09:56
Styðja Kristján þrátt fyrir málefni sparisjóðsins Bæði stjórn og varastjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis lýstu fyllsta trausti á Kristján G. Gunnarssonar formann félagsins á fundi sínum í gær. 8.2.2011 09:56
Forseti Túrkmenistans fyrirskipar fegurðarsamkeppni hesta Forseti Túrkmenistans hefur látið þau boð út ganga að á hverju ári héðan í frá verði haldin fegurðarsamkeppni í landinu, og skal þar ekki velja fegurstu konuna, heldur fallegasta hestinn. 8.2.2011 09:53
Pink tók sjálf óléttumynd og setti á Twitter Söngkonan Pink er vön því að vera umsetin af blaðaljósmyndurum, eða papparössum eins og þeir eru gjarnan kallaðir. Eftir að hún tilkynnti um óléttu sína hefur hún þó verið heldur þreytt á ágangi þeirra sem virðast leggja margt á sig til að ná myndum af henni þar sem óléttubumban sést. Pink tók því málin í eigin hendur og setti mynd af sér á Twitter-samskiptasíðuna. Með myndinni skrifaði hún: „Jæja... því papparrassar hafa enga ljósmyndahæfileika eða listrænt innsæi, og myndirnar þeirra eru ógeðslegar... Fyrir ykkur sem hafið veirð að biðja um að sjá myndir af bumbunni minni ákvað ég að setja hér inn sjálfsmynd sem ég tók í gærmorgun. Þriggja vikna ljósmyndanámskeið ... og ég er strax miklu betri ljósmyndari en þeir allir til samans...“ 8.2.2011 09:30
Landsmenn nálgast 320 þúsund Landsmenn voru 318.452 talsins þann 1. janúar síðastliðinn og hafði fjölgað um 822 frá sama tíma í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þetta jafngildir fjölgun landsmanna um 0,3%. 8.2.2011 09:10
Hetjan með handtöskuna lét ræningja fá það óþvegið Eldri kona á Bretlandi hefur vakið gríðarlega athygli fyrir vasklega framgöngu en hún lét til skarar skríða gegn ræningjagengi sem var að ræna skartgripaverslun á dögunum. 8.2.2011 09:09
Börn sem borða mikið ruslfæði hafa lægri greind Börn sem borða mikið ruslfæði eru líklegri til að vera með lægri greindarvísitölu en börn sem borða hollan mat. Þetta er niðurstaða breskrar rannsóknar sem birtist í vísindaritinu Journal of Epidemiology and Community Health. 8.2.2011 09:07
Sonur Ólafs metinn sakhæfur Þorvarður Davíð Ólafsson, sem réðst með hrottafengnum hætti á föður sinn, Ólaf Þórðarson, í nóvember, er sakhæfur. Þetta er niðurstaða geðrannsóknar sem hann hefur gengist undir, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 8.2.2011 09:00
Japanskir súmókappar riða til falls Margir af þekktustu súmóglímuköppum Japans hafa verið yfirheyrðir síðustu daga en ásakanir hafa komið fram um að þeir hafi hagrætt úrslitum í þessari þjóðaríþrótt Japans. 8.2.2011 08:46
Heimildarmynd um Khodorkovskí stolið - átti að frumsýna í næstu viku Lokaútgáfu af heimildarmynd um Michael Khodorkovski, rússneska auðjöfurinn fyrrverandi, sem setið hefur í fangelsi síðustu ár, var stolið af heimili leikstjórans í gær. 8.2.2011 08:42
Spáir stormi í dag Veðurstofan spáir stormi, eða 18 til 25 metrum á sekúndu, á Suðvesturlandi upp úr hádegi og að það fari að hlýna. 8.2.2011 08:41
Forstjórinn valdi fyrrum yfirmann sem eftirmann Bjarni Bjarnason verður næsti forstjóri Orkuveitunnar samkvæmt ákvörðun stjórnar fyrirtækisins í gær. Bjarni er forstjóri Landsvirkjunar Powers, dótturfélags Landsvirkjunar. 8.2.2011 08:30
Segja Assange ofsóttann af illgjörnum öfgafemínista Sænski saksóknarinn sem vill fá Julian Assange stofnanda Wikileaks framseldan til Svíþjóðar er á móti karlmönnum, ef marka má orð sænsks dómara á eftirlaunum sem gaf vitnisburð sinn í réttarhöldum yfir Assange í London í gær. 8.2.2011 08:16
Umarov segist bera ábyrgð á sprengjuárásinni í Moskvu Eftirlýstasti hryðjuverkamaður Rússlands, tjéténinn Doku Umarov, hefur lýst ábyrgðinni á sprengjuárásinni á Demo-ded-ovo flugvellinum í Moskvu á hendur sér. Árásin var framin þann 24 janúar síðastliðinn og létust 36 og 180 særðust. 8.2.2011 08:10