Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jón Gnarr sendi borgarstjóra Christchurch samúðarkveðju Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, sendi Bob Parker, borgarstjóra Christchurch, samúðarkveðju í dag vegna jarðskjálftanna á svæðinu á þriðjudaginn en þeir hafa kostað tugi mannslífa og valdið gríðarlegu eignartjóni. 24.2.2011 15:49
Leit að ræningja: Vopnaður hnífi og forðaði sér á hjóli Maðurinn sem rændi Reykjavíkur Apótek í síðustu viku er enn ófundinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom maðurinn á hjóli að versluninni á fimmtudaginn klukkan sex. 24.2.2011 15:37
Eagles á leið til landsins Stórhljómsveitin Eagles, sem á fjölmarga slagara í pokahorninu á borð við Hotel California og Desperado, er á leið til landsins. Sena ehf. hefur náð samningum við umboðsskrifstofu hljómsveitarinnar og munu tónleikarnir fara fram í nýju Laugardalshöllinni fimmtudaginn 9. júní. Sveitin hyggur á tónleikaferð um heiminn og mun hún hefjast hér á landi. 65 manna fylgdarlið er með í för og í tilkynningu frá Senu segir að bandið ætli að æfa sig hér á landi í nokkra daga fyrir tónleikaferðina. 24.2.2011 15:32
Birkir vill að Ríkisendurskoðun skoði stjórnvaldsathafnir Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur sent forsætisnefnd Alþingis bréf þar sem farið er fram á að nefndin krefji Ríkisendurskoðun um skýrslu um stjórnvaldsathafnir ráðherra, stofnana eða annarra stjórnvalda. Birkir vill að allar þær athafnir, sem hafa falið í sér „ veitingu fjár eða undirgöngu annarra fjárhagslegra skuldbindinga ríkissjóðs til handa fyrirtækjum í kjölfar bankahrunsins í október 2008," verði kannaðar. 24.2.2011 15:18
Sviptur ökuleyfi á þrjátíu götu Ökumaður var sviptur ökuleyfi eftir að hafa ekið á 64 kílómetra hraða við Engjaveg í dag en þar er hámarkshraði 30 kílómetra hraði. 24.2.2011 14:39
Móta íslenska hönnunarstefnu Iðnaðarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið í félagi við Hönnunarmiðstöð Íslands eru að ýta úr vör vinnu við að móta hönnunarstefnu fyrir Ísland. 24.2.2011 14:37
Íbúinn varð var við þjófana og hringdi á lögreglu Par á þrítugs og fertugsaldri var handtekið í Kópavogi í dag eftir að hafa brotist inn í íbúðarhús við Álfaheiði um klukkan hálf tíu í morgun. 24.2.2011 14:27
Naktir Norðlendingar vekja heimsathygli Þess verður eflaust eitthvað beðið að nekt norðlenskra bænda verði ein af stoðum íslensks útflutnings. Engu að síður vöktu fréttir Vísis af því að bændur fyrir norðan hefðu ákveðið að setja upp leikritið Með fullri reisn og gefa út dagatal svo mikla athygli að fyrirspurnir um dagatalið eru farnar að berast víðsvegar að úr heiminum. Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar, segir að bændurnir séu himinlifandi yfir móttökunum. 24.2.2011 13:45
Stakk foreldra sína í augun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til þess að sæta gæslu á öryggisstofnun fyrir árás á foreldra sína. Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til manndrápa en var sýknaður af þeirri ákæru. Til vara var þess krafist að hann yrði dæmdur til að sæta öryggisgæslu. 24.2.2011 12:50
Vegagerð á Vestfjörðum brýnust - ekkert suðvestanlands án vegtolla Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, segir alveg skýrt að ekki verði ráðist í stórfellda vegagerð suðvestanlands án vegtolla. Brýnast telur hann hins vegar að bæta vegina á Vestfjörðum. 24.2.2011 12:30
Stráksi fann nýtt gæludýr Ung móðir í smábæ í Brasilíu varð forvitin þegar hún sá að þriggja ára gamall sonur hennar var kominn á bakvið sófa í stofunni og hjalaði þar og skríkti. Hún kíkti á bakvið sófann og sá að drengurinn var að klappa á kollinn á fimm feta löngum krókódíl. 24.2.2011 12:21
Vonast til að skýrist með stjórnlagaþingið í dag Vonast er til að þingmannanefnd um stjórnlagaþing skili niðurstöðu í dag. Ekki er komin sátt um málið í nefndinni en samkvæmt heimildum fréttastofu er þrýstingur frá ríkisstjórninni að niðurstaða fáist í dag. Nú í hádeginu munu þingflokkar allra flokka funda og í framhaldi af því mun þingmannanefndin um stjórnlagaþing setjast að fundi og vonast er til að niðurstaða fáist í það hver framtíð stjórnalagaþings mun vera fyrir lok dags í dag. Eftir um tveggja tíma fund nefndarinnar í gærkvöldi var engin niðurstaða komin í málið. 24.2.2011 12:15
Gremja meðal fimmmenninga vegna seinagangs Dómari í Glitnis-málinu í New York tók upp málið gegn sjömenningunum öllum vegna þess að tveir þeirra skiluðu ekki yfirlýsingum til dómstólsins á réttum tíma. Það voru Pálmi Haraldsson og Hannes Smárason. Hinir fimm eru gramir vegna þessarar þróunar. 24.2.2011 12:10
Ók ölvuð með barn í bílnum Kona um þrítugt var tekin fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Með í för var barn konunnar en það er á leikskólaaldri. Málið var tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. 24.2.2011 11:40
Dómari fellst á framsal Assange til Svíþjóðar Breskur dómari hefur samþykkt framsal Julian Assange til Svíþjóðar vegna nauðgunarásakana á hendur honum. Assange hefur staðfastlega neitað ásökununum og hefur barist hart gegn því að verða framseldur til Svíþjóðar. Fyrir dómi fyrr í mánuðinum héldu lögmenn Assange því fram að evrópska handtökuskipunin eigi ekki við í þessu máli þar sem ekki sé búið að ákæra hann. Fastlega er búist við því að Assange áfrýji úrskurðinum. 24.2.2011 11:37
Gaddafi býr sig undir ragnarök Uppreisnarmenn í Libyu virðast hafa austurhluta landsins á sínu valdi og sækja nú inn í vesturhlutann. BBC fréttastofan segir að í borginni Benghazi standi fólk í biðröðum eftir að fá afhent skotvopn sem rænt hefur verið úr vopnabúrum lögreglu og hersins. 24.2.2011 11:26
Skora á Menntaráð að hætta við sameiningarhugmyndir Stjórn Félags stjórnenda leikskóla hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á Menntaráð Reykjavíkur að draga nú þegar til baka tillögur um sameiningu og samrekstur leikskóla. 24.2.2011 11:21
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórhættulega líkamsárás Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður, Andri Vilhelm Guðmundsson, var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir alvarlega líkamsárás í Hafnarstræti síðastliðinn nýársdag. 24.2.2011 11:12
Leysir ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart með DNA rannsókn á bréfi Dongya Yang, fornleifafræðingur við Simon Fraser háskólann, vonast nú til að geta fundið DNA úr flugkonunni frægu, Ameliu Earhart, og komist að því hvað varð um hana. Earhart, sem varð fyrst kvenna til að fljúga ein yfir Atlantshafið, hvarf árið 1937 þegar hún freistaðist til þess að verða fyrsta konan til að fljúga umhverfis jörðina. Hvarf Earhart hefur verið óleyst gáta og vonast Yang nú til að geta leyst málið með aðstoð vísindanna. 24.2.2011 10:28
Ríkisendurskoðun snuprar ráðherra vegna Árbótarmálsins Ríkið hefur greitt rekstraraðilum þriggja meðferðarheimila samtals 84 milljónir króna í bætur vegna samningsslita um rekstur heimilanna. Ríkisendurskoðun telur að greiðslurnar orki um margt tvímælis. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem birt var í morgun. 24.2.2011 10:18
Reynt að draga úr hundahaldi í Shanghai Borgaryfirvöld í kínversku borginni Shanghai hafa tilkynnt borgarbúum um nýja stefnu sem byggir þekktri stefnu stjórnvalda í landinu um aðeins eitt barn fyrir hver hjón. 24.2.2011 08:01
Undirbúa repjurækt í öllum sveitum A-Skaftafellssýslu Verið er að undribúa tiraunaræktun á olíurepju í öllum sveitum Austur-Skaftafellssýslu, en úr hráolíu úr olíufræjum má meðal annars vinna lífefnaeldsneyti og matarolíu. 24.2.2011 07:59
Fjórar borgir í Líbýu á valdi mótmælenda Mótmælendur í Líbýu hafa nú fjórar af borgum landsins á valdi sínu. Þar á meðal eru Benghazi, næststærsta borga landsins og hin sögufræga borg Tobruk. 24.2.2011 07:54
Eldflaug skotið frá Gaza á Ísrael Eldflaug var skotið frá Gaza svæðinu í gærkvöldi og sprakk hún í ísrölsku borginni Beersheba. 24.2.2011 07:51
Hugh Hefner tilkynnir þriðja hjónaband sitt Gamli Playboy kóngurinn Hugh Hefner hefur tilkynnt um þriðja brúðkaup sitt og verður það haldið í júní. 24.2.2011 07:47
Vonir dvína um að fleiri finnist á lífi í Christchurch Tala látinna í borginni Christchurch á Nýja Sjálandi heldur áfram að hækka. Nú hafa 98 fundist látnir. Enn er 226 manns saknað eftir jarðskjálftann fyrr í vikunni. 24.2.2011 07:44
Gaddafi orðinn réttdræpur meðal múslima Búið er að setja svokallað fatwa á Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu. Þetta þýðir að leiðtoginn er réttdræpur meðal múslima hvar sem þeir finna hann. 24.2.2011 07:28
Sjálfstæðismenn sagðir tefja Andstaða sjálfstæðismanna í stjórnlagaþingsnefnd og málþóf þeirra er sagt valda því að nefndin komst ekki að niðurstöðu um það í gær hvaða tillögur á að leggja fram varðandi tilhögun í kjölfar ógildingar Hæstaréttar á kosningum til stjórnlagaþings. 24.2.2011 06:30
Farmeigendur borgi tjón vegna Goðafoss Eigendur farms um borð í Goðafossi hafa fengið bréf frá Eimskip um að þeir verði að bera hluta af kostnaðinum vegna strands skipsins við Fredrikstad í Noregi. 24.2.2011 05:00
Íslenskir karlar langlífastir í Evrópu Í fyrra dóu 2.017 einstaklingar búsettir á Íslandi, 1.063 karlar og 954 konur. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands létust 6,3 á hverja 1.000 íbúa, en dánartíðni stóð í stað milli ára. 24.2.2011 04:30
Fjölgar í hópi jákvæðra í garð ESB Viðhorf Íslendinga gagnvart Evrópusambandinu (ESB) og aðild að því varð jákvæðara á seinni hluta síðasta árs. Áfram eru þó fleiri sem efast um ágæti aðildar. 24.2.2011 03:00
Hundruð manna enn í rústum húsa Nokkrum hundruðum manna hefur verið bjargað á lífi úr rústum húsa í Christchurch á Nýja-Sjálandi en um 300 manns var enn saknað í gær, daginn eftir að 6,3 stiga jarðskjálfti reið þar yfir. Að minnsta kosti 75 manns eru látnir. 24.2.2011 01:00
Enn kvarnast úr liði Gaddafís Austan til í Líbíu fagnar fólk sigri yfir Muammar Gaddafí, en í vesturhlutanum er ástandið lævi blandið. Stjórnarherinn er sagður skjóta handahófskennt á hvern sem lætur sjá sig úti á götum höfuðborgarinnar Trípólí. 24.2.2011 00:00
Telur sig hafa fundið verk eftir Michelangelo Bandaríski rithöfundurinn Roy Doliner telur sig hafa fundið listaverk eftir endurreisnarmálarann Michelangelo. Verkið sem er lítil höggmynd fannst við ítalska forngripabúð í gömlum og skítugum pappakassa. Doliner segist hafa orðið orðlaus af hrifningu þegar hann sá styttuna og strax verið fullviss um að þetta væri listaverk eftir meistarann, en hann hefur nú skrifað bók um þennan merka fund sem von er á næstu misserum. 23.2.2011 21:30
Lést eftir að hafa spilað tölvuleiki í þrjá sólarhringa Kínverskur maður á þrítugsaldri lést eftir að hafa spilað tölvuleiki samfleytt í þrjá sólarhringa. Maðurinn hafði ekkert sofið, borðað né staðið upp úr stólnum sínum þegar leið yfir hann á mánudagskvöld á internet kaffihúsi í nágrenni við Peking, höfuðborg Kína. 23.2.2011 21:00
Hraðbraut leggst af árið 2012 - skólastjórinn brúar bilið þangað til Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Menntaskólinn Hraðbraut hafa framlengt þjónustusamning skólans við ríkið fram til útskriftar núverandi nemenda á fyrra ári. Þetta var tilkynnt á sameiginlegum fundi nemenda og starfsfólks nú síðdegis en tilkynning þess eðlis var birt á heimasíðu skólans í dag. 23.2.2011 18:09
Verkamenn biðja Steve Jobs um hjálp Kínverskir verkamenn sem veikst hafa við framleiðslu snertiskjáa fyrir ýmis raftæki frá Apple, svo sem iPhone og iPod Touch, hafa nú skrifað bréf til Steve Jobs og kvartað yfir illri meðferð. 137 vinnumenn hafa veikst vegna eitrunar af völdum efnisins n-hexane og segja farir sínar ekki sléttar. Hinn tævanski verksmiðjueigandi hafi ekki greitt þeim nægar bætur, þeim verkamönnum sem þáðu bætur hafi verið bolað úr starfi og ekki hafi verið samþykkt að ábyrgjast sjúkrareikninga ef til frekari veikinda komi. 23.2.2011 17:45
Dæmdur fyrir að taka í lurginn á unglingi Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur fyrir að sparka í unglingspilt og hóta honum með hafnaboltakylfu á Egilsstöðum í maí á síðasta ári. Drengurinn, sem er fjórtán ára gamall, var ásamt vini sínum á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum þegar atvikið átti sér stað. 23.2.2011 17:25
Pantið áhrifin frá Móður jörð veitt nýsköpunarverðlaun Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2011 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 23. febrúar. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Pantið áhrifin frá Móður jörð og var það unnið af Auði Ösp Guðmundsdóttur, Emblu Vigfúsdóttur og Katharinu Lötzsch frá Listaháskóla Íslands og Robert Peterssen frá Háskólanum í Gautaborg. Leiðbeinandi þeirra í verkefninu var Brynhildur Pálsdóttir. 23.2.2011 17:07
Ríkisendurskoðun: Vel staðið að sameiningu ráðuneyta Ríkisendurskoðun telur að sameining heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis hafi um flest verið vel af hendi leyst. Í nýrri skýrslu kemur fram að ákvörðun um að sameina ráðuneytin undir hatti velferðarráðuneytis hafi verið tekin að vel athuguðu máli, markmið hennar hafi verið skýr sem og verkstjórn og verkaskipting í sameiningarferlinu. 23.2.2011 16:35
Hagræðing í skólum kynnt 3. mars - hugmyndirnar í heild Starfshópur sem vinnur að hugmyndum um hagræðingu í starfi grunnskóla, leikskóla og á frístundaheimilum mun skila af sér tillögunum á borgarráðsfundi þann 3. mars næstkomandi. Tillögurnar eru enn í mótun eftir því sem Vísir kemst næst og því er ekki komin endanleg tala á það hversu miklu hagræðingin mun skila. 23.2.2011 16:26
Leita vitna að skemmdarverkum í Vesturbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna eða annarra sem kunna að búa yfir upplýsingum um skemmdarverk sem voru unnin á tæplega fjörutíu ökutækjum í vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. 23.2.2011 16:25
Stakk fólk af handahófi Fjörutíu og eins árs gamall maður frá Marokkó hefur verið handtekinn á eyjunni Ibiza eftir að hafa sært að minnsta kosti níu manns í hnífaárásum í dag. Einn aðili er alvarlega særður á hálsi og hefur gengist undir skurðaðgerð. 23.2.2011 16:08
Gaddafi berst við að halda völdum Muammar Gaddafi leiðtogi Líbíu berst nú við að halda völdum í höfuðborginni Trípólí og á stórum svæðum í vesturhluta landsins en uppreisnarmenn eru sagðir hafa austurhlutann á valdi sínu að mestu. 23.2.2011 15:55
Sjálfstæðismenn gagnrýna breytingar á samkeppnislögum Breytingar á samkeppnislögum voru samþykktar á Alþingi í dag en breytingarnar gera Samkeppniseftirlitinu meðal annars kleift að brjóta upp fyrirtæki án þess að þau hafi gerst sek um brot á samkeppnislögum eða öðrum landslögum í starfsemi sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. 23.2.2011 15:35