Fleiri fréttir

Hitna um 0,5°C á 10 ára tímabili

Yfirborðshiti 167 stórra stöðuvatna víða um heim hefur hækkað um að meðaltali 0,45 gráður á Celsius á síðasta áratug, samkvæmt vísindamönnum NASA, bandarísku geimferðastofnunarinnar.

Flaug neðan við lágmarkshæð

Orsök flugslyssins í Selárdal í Vopnafirði í fyrrasumar, sem kostaði einn mann lífið, er að flugvélinni, eins hreyfils Cessnu var flogið undir lágmarksflughæð.

Segja brýnt að sinna skurðum

Byggðaráð Rangárþings eystra mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði á jarðabótastyrkjum vegna upphreinsunar skurða. Heildarlengd skurða í sveitarfélaginu er 1.000 til 1.500 kílómetrar.

Stærsta húsleit alríkislögreglu

Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, staðfestir að yfirvöld rannsaki mál sem tengist hugsanlegum fjármálabrotum á Wall Street.

Stórskotalið frestar æfingu

Suður-kóreski herinn tilkynnti í gær að til stæði að hefja á ný stórskotaliðsæfingar á eyjum skammt frá norður-kóresku yfirráðasvæði. Stuttu síðar var tilkynnt að æfingunum hefði verið frestað.

Rússar staðfesta glæp Stalíns

Rússneska dúman, neðri deild rússneska þjóðþingsins, samþykkti fyrir helgi yfirlýsingu þar sem staðfest er að Jósef Stalín hafi gefið út skipun um fjöldamorðin í Katýnskógi Pólskir ráðamenn fögnuðu yfirlýsingunni og sögðu hana marka tímamót í samskiptum landanna.

Palestínumenn í innbyrðis deilum

Meðan Ísraelar og Palestínumenn eiga í stopulum friðarviðræðum hafa Palestínumenn innbyrðis einnig reynt að slíðra sverðin, með álíka litlum árangri. Sveinn Rúnar Hauksson segir þetta stóra málið meðal Palestínumanna í dag.

Þorvaldur Gylfason er sigurvegari kosninganna

Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor fékk langflest atkvæði í fyrsta sæti. Hann fékk alls 7192 atkvæði í fyrsta sæti. Næstur á eftir honum kemur Salvör Nordal með 2482 atkvæði.

Lóðrétt á leið til andskotans

Litlu munaði að Boeing 737 þota frá Air India færist maí síðastliðnum þegar aðstoðarflugmaðurinn sem er 25 ára gamall var að stilla sæti sitt.

Niðurstöður kosninga birtar á morgun

Nú er orðið ljóst að talningu atkvæða í stjórnlagaþingskosningunni mun ekki ljúka í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Landkjörstjórn verður send út tilkynning á morgun um það hvenær er að vænta að talningu ljúki og úrslit verða birt.

Þú verður víst blindur af því

Það tók lækna í Danmörku nokkurn tíma að komast að því hvað olli því að maður sem leitaði til þeirra varð alltaf blindur um stund eftir að hann fékk kynferðislega fullnægingu.

Ríkisendurskoðun óskar upplýsinga um meðferðarheimili

Ríkisendurskoðun er byrjuð að rannsaka málefni meðferðarheimila fyrir börn eftir að Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að samið hefði verið við aðstandendur meðferðarheimilisins Árbótar um bætur vegna lokunar heimilisins. Þetta staðfesti Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, í samtali við Vísi.

Ófremdarástand á Kastrup flugvelli

Yfir 160 flugtökum og lendingum var aflýst á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í dag. Talsmaður flugvallarins sagði í samtali við Berlingske Tidende að þetta hafi verið verstu veðurskilyrði sem komið hafa á flugvellinum í 22 ár.

Ónýt raftæki til styrktar Fjölskylduhjálpinni

Síminn hvetur fólk til þess að styðja starf Fjölskylduhjálpar Íslands fyrir jólin með því að koma með gömul og ónýt smáraftæki í verslanir fyrirtækisins. Tækin verða send í endurnýtingu og mun andvirði af sölu þeirra renna til Fjölskylduhjálparinnar.

Gangandi vegfarendur slasast í hálkunni

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag verið töluvert um tilkynningar vegna slysa á gangandi vegfarendum sem rekja má til hálku og erfiðra aðstæðna vegna ísingar. Umferðarstofa vill vara fólk við hálku, sérstaklega á gangstígum og bílastæðum, og þess skal gætt að fólk sé vel búið til fótanna.

Kristófer Kólumbówicz?

Alþjóðlegur hópur virtra sagnfræðinga hefur komist að þeirri niðurstöðu eftir tuttugu ára rannsóknir að Kristófer Kólumbus hafi verið pólskur innflytjandi.

Sjúkrabílar í hergagnaflutningum

Í einu af skeytunum sem Wikileaks birtir um samskipti milli bandarískra sendiráða og utanríkisráðuneytisins er því haldið fram að Íran hafi notað sjúkrabíla til þess að koma hergögnum til Hisbolla hreyfingarinnar í Líbanon í 34 daga stríði hennar við Ísrael árið 2006.

Jónína: Maður drepinn fyrir framan augu okkar

„Það er verið að drepa mann fyrir framan augun á okkur og flestum virðist alveg sama. Ég þakka ykkar stuðning og bið ykkur blessunar," segir Jónína Benediktsdóttir, eiginkona Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum. Jónína segir að um sé að ræða eitt mesta mannréttindabrot Íslandssögunnar og hún biður Guð um blessun.

Fíkniefnahundar leituðu á Laugarvatni en fundu ekkert

Lögreglumenn fóru í síðustu viku með tvo fíkniefnahunda í Menntaskólann á Laugarvatni með það fyrir augum að kanna hvort fíkniefni væru í skólanum. Hundarnir fóru um húsnæði skólans og skemmst er frá því að segja að engin merki fundust um að fíkniefni hefðu verið í húsi skólans.

Skallaði í gegnum rúðu

Ungur maður var handtekinn á föstudagskvöldið við Farfuglaheimilið í Grundarfirði eftir að hafa skallað í gegnum rúðu á útihurð heimilisins. Maðurinn var mjög ölvaður og æstur, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar. Því var ekkert um annað að ræða en að vista hann í fangaklefa fram á morgun eftir læknisskoðun.

Ég á sólina -borgiði

Fjörutíu og níu ára spænsk kona hefur slegið eign sinni á sólina og gengið frá öllum skjölum þar að lútandi. Hún hyggst rukka alla þá sem nota þessa eign hennar hvort sem er til ræktunar eða sólbaða.

Stjórnlagaþing: Úrslit liggja fyrir síðar í dag

Úrslit í kosningum til stjórnlagaþings liggja fyrir seinnipartinn í dag eða snemma í kvöld ef ekkert óvænt kemur upp við talninguna. Kjósandi á Álftanesi hefur kært kosningarnar þar til landskjörstjórnar.

Þrjár konur til viðbótar ásaka Gunnar

Þrjár konur, til viðbótar við þær fimm sem þegar hafa stigið fram, munu á næstunni skila frá sér yfirlýsingum um kynferðislega áreitni Gunnar Þorsteinssonar í Krossinum í sinn garð. Gunnar hefur stigið til hliðar sem forstöðumaður á meðan það sem hann kallar gjörningaverður gengur yfir.

Skítamál tekur á sig nýja mynd

Nú liggur fyrir að nemendur sem sakaðir voru um að hafa látð dólgslega í rútu sem flutti þau að framhaldsskóla á Akureyrar á dögunum voru hafðir fyrir rangri sök.

Salmonellusýkt kjúklingafóður - sprenging í fjölda sýktra kjúklinga

Gríðarleg aukning hefur verið á salmonellusmitum í kjúklingi á þessu ári. Það sem af er árs hefur 21 sláturhópur verið innkallaður vegna rökstudds gruns um salmonellusmit, sem eru um þrjú prósent allra sláturhópa. Í liðinni viku innkölluðu bæði Reykjargarður og Matfugl kjúkling úr verslunum vegna salmonellu.

Upplýsingafulltrúi stjórnlagaþings - listi yfir umsækjendur

Tuttugu og tveir sóttu um starf upplýsingafulltrúa stjórnlagaþings. Ráðið verður í stöðuna fyrir mánaðarmót. Berghildur Erla Bernharðsdóttir, sem nú sinnir stöðunni, er meðal umsækjenda. Hún var ráðin tímabundið og án auglýsingar í septembermánuði, en samkvæmt lögum þurftu ekki að auglýsa starfið. Berghildur Erla er fyrrverandi upplýsingafulltrúi Nýja-Kaupþings og síðar Arion banka.

Hlín Einars fór úr axlarlið Í bítinu í morgun

Allt getur gerst í útvarpinu eins og Hlín Einarsdóttir, ritstjóri Bleikt.is, fékk að reyna í morgun þegar hún kom til þeirra Heimis Karlssonar og Þráins Steinssonar Í bítið á Bylgjunni. Til stóð að Hlín myndi ræða við þá félaga um nýja vefinn sem hún ritstýrir en áður en til þess kom fór hún úr axlarlið og var ekið brott í sjúkrabíl.

Ekki tala of hátt í símann

Skrifstofustjóri í bæjarstjórn Karlskrona í Svíþjóð hefur verið rekinn úr starfi fyrir símtal sem hann átti í járnbrautarlest.

Sköpunargleði og metnaður hjá ungu kvikmyndagerðarfólki

Mikil sköpunargleði og metnaður einkenndi myndbönd barna og unglina sem tóku þátt í myndbandakeppni grunnskólanna sem haldin var í þriðja sinn í ár. Verðlaunaafhending fór fram í verslun 66° Norður í Faxafeni en þar veitti Katrín Jakobsdóttir bestu kvikmyndagerðarmönnunum verðlaun en börn af landsbyggðinni komu einstaklega vel út úr þessari keppni.

Enn eitt áfall fyrir Silviu drottningu

Silvia Svíadrottning hefur orðið fyrir enn einu áfallinu. Í fréttaskýringaþætti í sænska sjónvarpinu í gær var því haldið fram að faðir hennar Walther Sommerlath hafi verið miklu tengdari nazistahreyfingunni en hingaðtil hefur komið fram.

Umboðsmaður Alþingis kvartar yfir fjársvelti

Starfsmönnum Umboðsmanns Alþingis hefur fækkað vegna þess að embættið fær ekki nægjanlegt fjármagn til rekstursins. Niðurstaðan verður sú að afgreiðslutími mála verður lengri og Umboðsmaður Alþingis mun ekki geta tekið upp frumkvæðismál á næsta ári. Þetta kom fram í máli Tryggva Gunnarssonar, umboðsmanns Alþingis, á opnum fundi allsherjarnefndar Alþingis í morgun.

Berlusconi hlær að Wikileaks

Þótt ýmsir ráðamenn víðsvegar um heiminn séu sármóðgaðir vegna ummæla um sig í diplomatapóstum sem Wikileaks hefur birt á það ekki við um forsætisráðherra Ítalíu.

Kom í leitirnar um helgina

Fimmtán ára gamall drengur sem lögregla lýsti eftir á laugardag er kominn í leitirnar. Ekkert hafði spurst til hans síðan um miðja viku en hann kom fram eftir að lýst hafði verið eftir honum.

Rúmlega 32 prósenta kjörsókn í Hafnarfirði

Kjörsókn í Hafnarfirði var 32,43%. Tölur yfir kjörsókn í Hafnarfirði eru nú ljósar vegna kosninga til stjórnlagaþings. Þar voru 18.578 á kjörskrá en alls kusu 6.024. Kynjaskipting kjósenda var nánast hnífjöfn en 3.007 konur greiddu atkvæði og 3.017 karlar.

Þörf á rúmlega 300 nýjum leikskólaplássum á næsta ári

Þörf er á að fjölga leikskólaplássum um 309 seinni hluta næsta árs vegna barna sem verða tveggja ára á því ári. Þetta kemur fram í svari sviðsstjóra Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hingað til hefur Reykjavíkurborg reynt að tryggja öllum börnum sem náð hafa tveggja ára aldri leikskólapláss og er gert ráð fyrir að svo verði áfram.

Leslie Nielsen er látinn

Gamanleikarinn Leslie Nielsen er látinn, 84 ára að aldri. Nielsen er frægastur fyrir hlutverk sín í Airplane myndunum og Naked Gun þríleiknum. Hann lést á sjúkrahúsi í Flórída en hann hafði barist við lungnabólgu undanfarið.

Gripinn við að míga á löggubíl

Ölvaður karlmaður á miðjum aldri tók sig til og fór að spræna á mannlausan lögreglubíl í miðborginni í nótt, þar sem lögreglumennirnir höfðu brugðið sér frá til að sinna verkefni.

Handtekinn með hníf á lofti

Ungur maður ógnaði félaga sínum með hnífi í heimahúsi í Kópavogi í nótt, og náði þolandinn að hringja í lögregu, sem var skammt undan.

Fyrirskipaði að njósnað skyldi um SÞ

Upplýsingar úr 250 þúsund leynilegum skjölum sem vefsíðan Wikileaks hefur undir höndum, voru birtar í fjölmiðlum víða um heim í gærkvöldi. Skjölin sem um ræðir koma úr sendiráðum Bandaríkjanna um allan heim og veita sjaldséða innsýn í starfsemi bandarísku utanríkisþjónustunnar.

Kosta um 600 þúsund líf á hverju ári

Óbeinar reykingar kosta 600 þúsund manns lífið ár hvert. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar, sem birt er í breska læknatímaritinu Lancet. Rannsökuð voru gögn frá árinu 2004 frá alls 192 löndum. Í ljós kom að 40 prósent barna og þrjátíu prósent karla og kvenna sem ekki reykja anda reglulega að sér reyk frá reykingafólki.

Rannsaki sögusagnir um mismunun

Frumvarp til laga um rannsókn á starfsemi fjármálafyrirtækja á tímabilinu frá október 2008 til ársloka 2009 er nú til umfjöllunar í viðskiptanefnd.

Fermetri af stuðlabergi á 16 þúsund

Stuðlabergsskífurnar á húsið sem Reykjavíkurborg er að láta reisa á Lækjargötu 2 kostuðu um sextán þúsund krónur á fermetrann.

Sjá næstu 50 fréttir