Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgvin vill fyrsta sætið í Suðurkjördæmi Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra hefur lýst yfir framboði í Suðurkjördæmi og sækist hann eftir fyrsta sæti listans sem hann skipaði í síðsustu kosningum. Samþykkt hefur verið að halda netprófkjör þar sem tvö efstu sætin eru bundin sitt hvoru kyninu. 17.2.2009 11:56
Greiningadeildin: Aukin hætta á hryðjuverkum Greiningadeild ríkislögreglustjórans telur aukna hættu á hryðjuverkum hér á landi samkvæmt skýrslu þeirra um mat á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum. Í skýrslunni segir að aukin alþjóðleg hryðjuverkastarfsemi og greiðari för fólks milli landa hefur í för með sér aukna hættu á að hérlendis verði framin hryðjuverk eða fram fari undirbúningur hryðjuverkaárása í öðrum löndum. 17.2.2009 11:41
Greiningadeildin: Fíkniefnaviðskipti arðbær í kreppu Ein af afleiðingum hruns fjármálakerfisins og þeirrar efnahagskreppu sem skollin er á verður sú að hagnaði af fíkniefnaviðskiptum verður í auknum mæli varið til fjárfestinga hérlendis er ein af meginniðurstöðum skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi sem ríkislögreglustjóri gaf út í dag. 17.2.2009 11:24
Húsbruni á Akureyri - einn fluttur á slysadeild Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Hrafnabjörg á Akureyri á tíunda tímanum í morgun. Að sögn lögreglu stendur slökkvistarf enn yfir en um gamalt timburhús er að ræða. 17.2.2009 11:02
Brutust inn í gróðurhús á Flúðum Þrír ungir karlmenn gista nú fangageymslur lögreglunnar á Selfossi vegna gruns um innbrot í gróðurhús á Flúðum. 17.2.2009 10:33
Hvalaskoðunarfyrirtækin vilja veiðimenn úr Faxaflóa „Ef svo ótrúlega vill til að ráðamenn leyfi hrefnuveiðar þarf Reykjavíkurborg að standa við bakið á hvalaskoðunarfyrirtækjum við Reykjavíkurhöfn, að Faxaflóinn verði griðland þar sem veiðar verða ekki leyfðar," segja forsvarsmenn hvalaskoðunarfyrirtækjanna Eldingar og Hvalalífs í bréfi til Áslaugar Friðriksdóttur, formanns menningar- og 17.2.2009 09:35
Stofnandi múslimasjónvarps hjó höfuðið af konu sinni Stofnandi sjónvarpsstöðvar fyrir múslima í New York hefur verið handtekinn fyrir að hálshöggva eiginkonu sína. 17.2.2009 08:07
Japanskur kokkur sneiðmyndaði ál Japanskur kokkur sem hefur látið sneiðmynda ál til að kanna beinabyggingu hans boðar nú nýja strauma í matargerð. 17.2.2009 07:32
Telja lögreglu í Danmörku sýna kynþáttafordóma Um 16 prósent Dana telja lögregluna þar í landi almennt gera sig seka um að mismuna fólki eftir kynþætti og þriðjungur þeirra sem nýleg Gallup-könnun náði til telja nýleg ummæli lögreglumanns um mótmælanda, sem mótmælti stríðinu á Gaza-svæðinu, hafa verið niðrandi með tilliti til kynþáttar hans en lögreglumaðurinn notaði orðið „perle" sem er eins konar slanguryrði yfir fólk frá Austurlöndum. Málið hefur hlotið töluverða athygli í dönskum fjölmiðlum. 17.2.2009 07:29
Ráðherra segir af sér vegna ölvunar Japanski fjármálaráðherrann Shoichi Nakagawa hefur boðað afsögn sína í kjölfar ásakana um að hann hafi verið áberandi ölvaður á blaðamannafundi í kjölfar ráðstefnu sjö stærstu iðnríkja heims um helgina. 17.2.2009 07:19
Obama skipar fimmtu björgunarnefndina Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur skipað sérstaka nefnd undir forystu Timothys Geithner fjármálaráðherra til að hafa yfirumsjón með enduruppbyggingu ameríska bílaiðnaðarins. 17.2.2009 07:17
Afrísk flugáhöfn tekin með fíkniefni - aftur Fimmtán manna áhöfn suðurafríska flugfélagsins South African Airlines var handtekin á Heathrow-flugvellinum í London í gær við komu frá Jóhannesarborg eftir að fimm kílógrömm af meintu kókaíni fundust í fórum áhafnarinnar. 17.2.2009 07:15
Ótti við hryðjuverk gæti gert Bretland að lögregluríki Ótti bresku ríkisstjórnarinnar við hryðjuverk er orðinn svo mikill að hann er farinn að hafa áhrif á grundvallarmannréttindi þegnanna. 17.2.2009 07:12
Botninn dottinn úr gulldepluveiðum í bili Botninn er dottinn úr gulldepluveiðunum í bili að minnsta kosti, en þessi óvænta búbót nemur nú um það bil 30 þúsund tonnum. 17.2.2009 07:10
Erlendar skuldir bankanna eru hagkerfinu ofviða Erlendar skuldir gömlu bankanna eru íslensku hagkerfi ofviða og í engu samaræmi við landsframleiðslu okkar, sagði Haraladur L. Haraldsson, hagfræðingur og einn frummælenda á opnum borgarafundi í Háskólabíói í gærkvöldi. 17.2.2009 07:08
Seðlabankastjórar hitta viðskiptanefnd í dag Bankastjórar Seðlabankans koma fyrir viðskiptanefnd Alþingis klukkan níu til að svara spurningum nefndarmanna um álit bankans á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um Seðlabankann, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að stöður bankastjóranna þriggja verði lagðar niður. 17.2.2009 07:06
Ásakanir Geirs ekki á rökum reistar Ásakanir Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins, á hendur Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, um að hafa farið með ósannindi um kröfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um leynd á fyrstu athugasemdum sjóðsins við frumvarp um Seðlabankann, voru ekki á rökum reistar. 17.2.2009 07:02
Segir ríkið skulda 465 milljarða Tryggvi Þór Herbertsson fyrrum efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar segir að samkvæmt sínum útreikningum sé hrein skuld ríkisins um 465 milljarðar sem jafngildir 33% af landsframleiðslu. Þetta eru allt aðrar tölur en dregnar hafa verið fram undanfarið og hafa sumir talað um að skuldir ríkisins séu nær 2000 milljörðum króna. Tryggvi var gestur í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. 16.2.2009 21:01
Fulltrúi AGS staðfestir orð Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir hefur nú fengið staðfest með símtali við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að misskilnings hafi gætt í túlkun Geirs H. Haarde á samskiptum forsætisráðuneytisins við AGS sem gerð voru að umtalsefni á Alþingi og í fjölmiðlum í dag 16.2.2009 21:39
Ásbjörn sækist eftir 1.sæti í Norðvesturkjördæmi Ásbjörn Óttarsson, hefur ákveðið að sækjast eftir 1 -2 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Ásbjörn er forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður. 16.2.2009 23:22
Styðja Guðjón Arnar áfram sem formann Aðildarfélög Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi lýsa yfir eindregnum stuðningi við Guðjón Arnar Kristjánsson til áframhaldandi setu sem formaður flokksins. 16.2.2009 21:47
Mikið um slys á fólki um helgina Allnokkuð var um slys á fólki um helgina en lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust vel á annan tug tilkynninga þess efnis. Óhöppin voru af ýmsu tagi en minnst þrír beinbrotnuðu á laugardagsmorgun. 16.2.2009 22:13
Steinunn stefnir á 4.sætið Steinunn Þóra Árnadóttir öryrki og mannfræðinemi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4.sæti í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrri Reykjavíkurkjördæmin sem haldið verður í byrjun næsta mánaðar. 16.2.2009 21:56
Farið fram á forsjársviptingu Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu segir það liggja fyrir að barnverndarnefnd fari fram á forsjársviptingu foreldra stúlkunnar sem misnotuð var af föður sínum ítrekað. Faðirinn fékk tveggja ára fangelsisdóm í síðustu viku en málið hefur vakið talsverða athygli fjölmiðla. Bragi segir stúlkuna fá alla þá meðferð sem hægt sé að veita og segir dóminn marka tímamót hér á landi. Bragi var gestur í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. 16.2.2009 20:15
Kjarnorkukafbátar í árekstri djúpt í Atlantshafi Tveir kjarnorkukafbátar frá Bretlandi og Frakklandi skemmdust mikið þegar þeir lentu í hörðum árekstri djúpt í Atlantshafinu fyrr í þessum mánuði. Flotastjórnir landanna reyndu að leyna atburðinum 16.2.2009 19:52
Færeyjar og Ísland Nokkur umfjöllun hefur átt sér stað um þungan dóm sem íslenskur maður hlaut í Færeyjum en hann hlaut 7 ára fangelsisdóm fyrir litlar sakir. Um leið og Íslendingar velta fyrir sér óréttlæti í réttarkerfi Færeyja ættu þær að nýta tækifærið og líta sér nær. 16.2.2009 19:09
Ólíklegt að laun hækki um næstu mánaðarmót Ólíklegt er að laun á almennum vinnumarkaði hækki um næstu mánaðarmót eins og kjarasamningar gera ráð fyrir. Meirihluti formanna aðildarfélaga ASÍ vill fresta endurskoðun samninganna fram á sumar sem þýðir að hækkanirnar frestast þangað til. 16.2.2009 18:45
Ný stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu innan árs Drög að nýrri stjórnarskrá fyrir íslenska lýðveldið gæti verið komin til þjóðaratkvæðagreiðslu eftir níu til ellefu mánuð. 16.2.2009 18:32
Bílafloti Kaupþings seldur með allt að 300 milljóna króna afslætti Bankastjórn Nýja Kaupþings seldi lúxusbílaflota gömlu stjórnenda bankans með allt að 300 milljóna króna afslætti. Bankinn óttaðist að sitja uppi með bílana og vildi koma þeim sem fyrst í verð. 16.2.2009 18:30
Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa sofið á verðinum Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að viðurkenna mistök sín og biðja þjóðina afsökunar. Þetta sagði Guðlaugur Þór í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fyrir stundu. Hann segist ekki vera búinn að gera upp við sig hvort hann fari í formannsslag á komandi landsfundi. 16.2.2009 18:14
Tölvupóstar Geirs og AGS Geir H. Haarde hefur sent fjölmiðlum tölvupóstsamskipti sín og Poul Thomsen hjá IMF dagana 9. og 12. febrúar en það var á grundvelli þessarar samskipta var ákveðið að spyrja forsætisráðherra út í hina upphaflegu umsögn sjóðsins um frumvarp um breytingar á lögum um Seðlabankann. 16.2.2009 18:00
Segir fullyrðingar Geirs Haarde ekki réttar Forsætisráðuneytið hefur ákveðið að birta tölvupóstsamskipti milli ráðuneytisins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í tilefni orða Geirs H. Haarde á Alþingi í dag. Þar sagði Geir að forsætisráðherra hefði sagt ósatt um áskilinn trúnað AGS á athugasemdum sem sjóðurinn sendi stjórnvöldum fyrr í þessum mánuði. 16.2.2009 17:08
Tvær og hálf milljón á mann hjá Sjálfstæðisflokknum Þeim tilmælum hefur verið beint til þáttakenda í prófkjörum Sjálfstæðisflokknum um allt land að þeir leggi að hámarki 2,5 milljónir króna í baráttuna. Þetta var ákveðið á sameiginlegum fundi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, formanna kjördæmisráða og formanna kjörnefnda í síðustu viku þar sem fjallað var um takmarkanir á kostnaði frambjóðenda í fyrirhuguðum prófkjörum flokksins. 16.2.2009 16:36
Lyfjakostnaður jókst um 32% vegna gengishruns Lyfjakostnaður sjúkratrygginga nam 9.287 milljónum króna árið 2008 og jókst um 2.233 millj.kr. eða um 32% frá fyrra ári. 16.2.2009 16:21
Sara Dögg gefur kost á sér Sara Dögg Jónsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3ja sæti á lista Samfylkingar í suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 25. apríl 2009. „Köllun eftir nýju fólki til starfa er áskorun sem ég tek fagnandi,“ segir Sara Dögg. 16.2.2009 16:16
Davíð býður sig fram í Reykjavík Þá hefur Davíð Stefánsson gefið kost á sér í 2.-3. sæti í forvali VG fyrir komandi Alþingiskosningar. Davíð er 35 ára bókmenntafræðingur. Börn hans heita Ása Rut og Askur Ari og er hann í sambúð með Höllu Gunnarsdóttur. 16.2.2009 16:13
Tíkin drapst: Rannsókn á banameini hafin Fíkniefnahundur lögreglunnar á Selfossi, Bea, er allur. 16.2.2009 16:05
Vill tengja íslensku krónuna við þá norsku Kannaður verður möguleikinn á því að tengja íslensku krónuna við aðra mynt, til dæmis norsku krónuna í samráði og samstarfi við norsk stjórnvöld, verði þingsályktunartillaga, sem Jón Magnússon mælti fyrir á Al 16.2.2009 15:51
Hnífamanni sleppt Búið er að sleppa manni sem reyndi að skera annan mann á háls í samkvæmi á Ísafirði síðustu helgi. Árásin átti sér stað aðfaranótt sunnudags en þá réðist maðurinn að öðrum í samkvæmi. Hann var vopnaður hnífi og reyndi að skera hann á háls en gestir í samkvæminu stöðvuðu manninn. 16.2.2009 15:39
Geir segir Jóhönnu fara með rangt mál Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins kom í pontu á Alþingi í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir þar sem hann spurði Jóhönnu Sigurðardóttur út í samskipti forsætisráðuneytisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Geir sakaði Jóhönnu um að hafa sagt ósatt þegar hún sagði að fyrstu athugasemdir sjóðsins við nýju frumvarpi um Seðlabanka Íslands yrði að fara með sem trúnaðarmál. 16.2.2009 15:38
Sirrey jarðsungin Sirrey María Axelsdóttir, var jarðsungin í dag frá Bústaðakirkju en hún fannst látin í dúfnakofa við Kapelluhraun í Hafnarfirði í byrjun febrúar. 16.2.2009 15:15
Árni Þór býður sig fram í annað sætið Árni Þór Sigurðsson þingmaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, sem fram fer þann 7. mars næstkomandi. Árni hefur setið á þingi síðan 2007 en þá skipaði hann annað sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður. Árni mun sækjast eftir því að skipa áfram 2. sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. 16.2.2009 15:11
Vændiskonur umkringja lögreglustöðina Þrjár vændiskonur halda til í íbúð við Rauðaárstíg í Reykjavík en Stöð 2 sagði frá því í síðustu viku að annað vændishús væri hinu megin við lögreglustöðina, það er að segja við Hverfisgötu 105. 16.2.2009 14:57
Hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni Hjúkrunarfræðinemar munu hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni á Háskóladeginum sem fram fer í Háskóla Íslands næstkomandi laugardag. Hermann er nýtt verkfæri, brúða í fullri líkamsstærð sem getur kveinkað sér undan sýndarverkjum. Þá hefur hæfileiki Hermanns til að skipta um kyn einnig vakið athygli þeirra sem með hann hafa sýslað. 16.2.2009 14:42
Kjarnorkukafbátar rákust saman Tveir kjarnorkukafbátar rákust saman á miðju Atlantshafinu fyrr í mánuðinum. Þetta var staðfest í dag af breska varnarmálaráðuneytinu en annar báturinn var breskur en hinn var franskur. 16.2.2009 14:09