Fleiri fréttir

Ætlar ekki að senda Villa til Kanada

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ekkert til í því að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna í borginni sé að verða sendiherra í Kanada. Þetta kom fram í Íslandi í dag fyrir stundu.

Beðið í Karphúsinu eftir ákvörðun Seðlabankans

Vaxtaákvörðun Seðlabankans í fyrramálið ræður miklu um framhald kjaraviðræðna, að mati Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúar þeirra sitja þessa stundina hjá ríkissáttasemjara á fundi með fulltrúum Alþýðusambands Íslands.

Tillögur um Miklubraut í stokk

Miklabraut verður lögð í stokk milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar, samkvæmt tillögum vinnuhóps Vegagerðar og Reykjavíkurborgar, sem verið er að kynna í borgarkerfinu. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á næsta ári og þeim verði að fullu lokið eftir sex ár.

Guðlaugur Þór styður Vilhjálm sem borgarfulltrúa

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra styður Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og þvertekur fyrir að vera sjálfur á leið í borgarmálin. Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sem fréttastofa náði tali af í dag vildu ekki lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við Vilhjálm, en hinir fjórir hafa ekki látið ná í sig í dag.

Matsmaður metur hvort farið hafi verið illa með hest

Hæstiréttur hefur vísað frá kærumáli manns, sem sakaður er um að hafa farið illa með hross, á þeim grundvelli að kæra mannsins til Hæstaréttar hafi borist of seint. Matsmaður verður því kallaður til í málinu.

Spielberg hættir við listræna stjórnun Ólympíuleikanna

Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg hefur hætt við að taka að sér listræna stjórnun Ólympíuleikanna í Peking á þessu ári. Í tilkynningu frá leikstjóranum sakar hann yfirvöld í Kína um að beita Súdan ekki nægilegum þrýstingi til að binda endi á þjáningu fólks í Darfur héraði.

Aldraðir fá inni í Heilsuverndarstöðinni

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og María Ólafsdóttir, yfirlæknir eignarhaldsfélagsins Heilsuverndarstöðvarinnar, skrifuðu í dag undir samning um rekstur 20 skammtímahvíldarrýma fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dagvistarrýma þar sem áhersla verður lögð á endurhæfingu.

Geir útilokar evru

„Það er einfaldlega ekki kostur að taka einhliða upp evru. Slíkt er ekki trúverðugt og því fylgir margs konar óhagræði og aukakostnaður," sagði Geir Haarde forsætisráðherra á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í dag. Hann benti því á að tveir kostir væru í stöðunni. Að halda íslensku krónunni eða taka upp evru sem jafnframt þýði inngöngu í Evrópusambandið.

Bush varar við frumvarpi um hleranir

George Bush forseti Bandaríkjanna hefur sagt bandaríska þinginu að hann muni ekki samþykkja annað tímabundið frumvarp sem leyfi að grunaðir hryðjuverkamenn séu hleraðir án dómsúrskurðar. Hann varaði þingið við að samþykkja varanlegt frumvarp þess efnis sem myndi auk þess gera undanþágur símafyrirtækja afturvirkar.

Markús Örn í Þjóðmenningarhúsið

Markús Örn Antonsson, fyrrverandi borgarstjóri og útvarpsstjóri, hefur verið skipaður forstöðumaður Þjóðmenningarhússins frá og með 1. september næstkomandi.

Gafst upp eftir gíslatöku á ítölskum leikskóla

Karlmaður vopnaður dúkahnífi sem réðist inn í leikskóla í Reggio Calabria á suðurhluta Ítalíu í dag og hélt þar börnum og starfsmanni í gíslingu hefur gefist upp. Að minnsta kosti 11 börn og kennari voru inni á leikakólanum þegar maðurin réðist þar inn. Enginn slasaðist. Lögreglan og ættingjar mannsins eyddu klukkutímum í að reyna að fá manninn til að yfirgefa bygginguna og sleppa föngunum.

Framtíð Nasa rædd í skipulagsráði

Óskar Bergsson, áheyrnarfulltrúi framsóknarmanna í skipulagsráði segir að málefni Nasa við Austurvöll hafi verið til umræðu á fundi skipulagsráðs í dag án þess að niðurstaða væri tekin í málinu. Hugmyndir eru uppi um að rífa salinn sem hýsir tónleikastaðinn í dag en gert er ráð fyrir að endurbyggja hann að nýju á sama stað, eða í kjallara þeirrar byggingar sem á að reisa á reitnum.

40.000 króna aukakostnaður á hverja fjölskyldu

Gengi krónunnar og heimsmarkaðsverð skýra hækkun eldsneytisverðs að undanförnu einungis að hluta til. Þetta kom fram í máli Runólfs Ólafssonar, formanns Félags íslenskra bifreiðaeigenda, í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag.

Hafa áhyggjur af dæmdum barnaníðingi í Reykjanesbæ

Foreldrar og aðrir forráðamenn barna í Reykjanesbæ, hafa miklar áhyggjur af því að þar í bæ hefur dæmdur barnaníðingur, Ágúst Magnússon sést á ferli, en hann var nýverið var látinn laus til reynslu.

Ritstjóri Kastljóss tjáir sig ekki um lögsókn

Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, vildi lítið tjá sig um stefnu sonar og tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, á hendur útvarpsstjóra og ritstjórn Kastljóss.

Obama gæti komið japönsku fiskiþorpi á kortið

Barack Obama hefur nú naumt forskot á Hillary Clinton eftir að hann hafði sigur á henni í forkosningum í þremur fylkjum í Bandaríkjunum í gær. Obama barst stuðningur úr óvæntri átt á dögunum.

Ekki fyrsti misskilningur Gísla og Ástu

Misskilningur leiddi til þess að kjósa þurfti tvisvar um varaformann í umhverfis og samgönguráð Reykjavíkur í gær. Sjálfstæðismenn töldu einn fulltrúa sinn tilheyra F-lista og að þess vegna ætti varaformaður nefndarinnar að koma úr röðum sjálfstæðismanna.

Setur strik í kjaraviðræður ef vextir verða ekki lækkaðir á morgun

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að það muni setja verulegt strik í kjaraviðræður ef Seðlabankinn hefur ekki vaxtalækkunarferli á morgun. Búist er við að á fundum þeirra með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar síðar í dag skýrist mjög hvort samningar takist á næstu sólarhringum.

Þrír ákærðir fyrir að ráðast á fíkniefnalögreglumenn

Algis Rucinskas, Sarunas Urniezius og Vitalij Gagin hafa verið ákærðir fyrir að ráðast með ofbeldi á lögreglumenn við fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem voru við skyldustörf fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi þann 11. janúar síðastliðinn.

Vilja 3,5 milljónir í bætur vegna umfjöllunar Kastljóss

Sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, fara fram á að útvarpsstjóri og fjórir úr ritstjórn Kastljóss greiði sér samtals 3,5 milljónir króna í miskabætur og verði dæmd fyrir ærumeiðingar vegna umfjöllunar um ríkisborgararétt tengdadótturinnar í Kastljósi.

Stærsta lögregluaðgerð í sögu Bretlands

Yfir 500 breskir lögregluþjónar réðust í dag til inngöngu í tugi húsa til þess að uppræta kókaín-smyglhring sem sagður er hafa selt kókaín fyrir meira en þrettán milljarða króna á ári.

Slökkviliðsmenn í hrakningum í Grímsnesi

Slökkvilið, lögreglumenn og sjúkralið frá Selfossi voru kallaðir að sumarbústað í Grímsnesi í gær þegar kviknaði í skúr sem stóð við bústaðinn.

Háttsettur Hizbollah-liði drepinn í Damaskus

Háttsettur maður innan Hizbollah-samtakanna í Sýrlandi var drepinn í sprengingu í Damaskus í morgun eftir því sem samtökin greina frá. Þau saka Ísraela um tilræðið.

Enn reykt á 150 ölstofum í Danmörku

Danskir vertar hafa verið misduglegir við að framfylgja reykbanninu sem sett var á dönskum öldurhúsum um áramótin. Vinnueftirlitið þar í landi hefur heimsótt 6000 ölstofur vítt og breytt um landið og ávítt 150 staði fyrir að brjóta bannið.

Eldur í bílskúr

Eldur kviknaði í bílskúr úr timbri í vesturbæ Reykjavíkur á ellefta tímanum í gærkvöldi. Svo vel vildi til að eldsins varð vart skömmu eftir að hann kviknaði þannig að hann hafði ekki náð að breiðast um innviði skúrsins áður en slökkvilið kom á vettvang og slökkti í snatri.

Dönsku blöðin birta mynd af Múhameð

Þrjú stærstu dagblöð Danmerkur birta skopmynd af Múhameð spámanni í dag. Blöðin sem um ræðir, Jyllands Posten, Politiken og Berlingske Tidende birta myndina til þess að undirstrika að þau láti morðhótanir ekki hafa áhrif á tjáningarfrelsið.

Sigurganga Obama heldur áfram

Barack Obama bar sigur úr býtum á öllum svæðunum þremur sem héldu forkosningar í gær í baráttunni um útnefningu í bandarísku forkosningunum. Sigrar Obama í Mayryland, Virginíu og höfuðborginni Washington þýða að hann hefur nú nokkuð forskot á keppinaut sinn Hilllary Clinton.

Útlit fyrir sigur Obama í Virginíu

Útlit er fyrir að öldungardeildarþingmaðurinn Barack Obama sigri í forskosningum demókrata í Virgínu í kvöld ef marka má útgöngusprár sem CNN birtir. Spennan er hins vegar mikil í baráttu repúblikananna John McCain og Mike Huckabee í sama fylki.

Sjá næstu 50 fréttir