Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sérhanna barn til lækninga Richardsson-hjónin í Svíþjóð eygja nú von í baráttu fjögurra ára sonar þeirra við alvarlegan arfgengan sjúkdóm. Þau hafa fyrst Svía fengið leyfi að velja fósturvísa til að sérhanna barn til glasafrjóvgunar. Íslenskur kvensjúkdómalæknir segir Vísindasiðanefnd ákveða hvort slíkt yrði leyft hér. 1.6.2007 19:15
Íþróttafatnaði safnað fyrir ungmenni í Gambíu Í dag hófst á Smáratorginu í Kópavogi átakið og söfnunin Útspark til Gambíu. Tilgangurinn er að safna íþróttafatnaði sem fólk getur séð af og flytja til ungmenna í Gambíu. 1.6.2007 19:13
Með kúlu í höfðinu í 64 ár Læknar í Kína fjarlægðu á dögunum þriggja sentimetra langa byssukúlu úr höfuðkúpu tæplega áttræðrar konu. Kúlan hafði setið þar föst í 64 ár. 1.6.2007 19:11
Jákvætt að einkaaðilar vilji leggja fram fjármagn Forsvarsmenn Grensásdeildar Landspítalans og sjúklingar sem þar þiggja þjónustu segja það jákvætt að einkaaðilar vilji leggja fram fjármagn til að reisa nýja álmu við deildina. Aðstaðan sé nokkuð þröng, en mikil aukning hefur verið á starfsemi deildarinnar undanfarin ár. 1.6.2007 19:08
Velta minni eftir bann Reykingabann á opinberum stöðum er í gildi víða. Bannið hefur haft áhrif á veltu veitingastaða í Noregi og knæpurekstur í dreifbýli á Írlandi. 1.6.2007 19:02
Glerhöll í Nauthólsvík Gestir Nauthólsvíkur geta í allt sumar skoðað tölvumyndasýningu af tilvonandi húsnæði Háskólans í Reykjavík. Framkvæmdir hefjast strax í haust, að þessu næststærsta húsi Reykjavíkur. 1.6.2007 19:01
Löng bið eftir sjúkdómsgreiningu hjá Greiningarstöð ríkisins Móðir 12 ára einhverfrar stúlku segir skelfilegt að foreldrar þurfi að bíða í eitt til þrjú ár eftir að börn þeirra verði sjúkdómsgreind, hjá Greiningarstöð ríkisins. Hún segir takmarkaðan skilning hjá almenningi í garð foreldra einhverfra barna, því fötlun þeirra sé ekki sýnileg. 1.6.2007 18:59
Hugmyndasamkeppni um hjarta miðborgarinnar Allt að sex arkitektastofur verða valdar til að leggja fram hugmyndir um enduruppbyggingu í Kvosinni eftir bruna húsanna að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. 1.6.2007 18:57
Ekki ástæða til að ætla að lög og reglur hafi verið brotin Félagsmálaráðherra telur ekki ástæðu til að ætla að lög og reglur um virkjunarsamninga og aðbúnað á Kárahnjúkasvæðinu hafi verið brotin. Sendiherra Portúgala á Íslandi skoðaði vinnusvæðið í dag. 1.6.2007 18:52
Ísafold fjarlægt úr verslunum Kaupáss Kaupás lét fjarlægja tímaritið Ísafold úr öllum verslunum sínum í dag. Forráðamenn blaðsins segja það tengjast umfjöllun Ísafoldar um aðkomu bæjarstjóranns í Kópavogi að næturklúbbnum Goldfinger. Forstjóri Kaupáss segir þetta viðskiptaákvörðun og hótar því að taka öll blöð Birtings úr sölu. Bæjarstjórinn segir lygar og rangfærslur koma fram í grein Ísafoldar. 1.6.2007 18:51
Reykingabann gengið í gildi Virði veitinga- og skemmtistaðir ekki reykingabannið sem tók gildi á miðnætti er hægt að beita þá dagsektum, dugi þær ekki til að stöðva reykingarnar er hægt að loka stöðunum. Ekki er hægt að beita gestina sjálfa neinum peningasektum. 1.6.2007 18:42
Bresk yfirvöld fordæma myndband af Johnston Tony Blair forsætisráðherra Breta, vottaði í dag fjölskyldu breska blaðamannsins Alan Johnstons samúð sína í kjölfar þess að myndband með Johnston, sem haldið er af mannræningjum í Palestínu, var gert opinbert. Gordon Brown fjármálaráðherra fodæmdi myndbandið sem hann sagði aðeins auka á áhyggjur fjölskyldu Johnstons. 1.6.2007 18:03
Grafið undan eignarréttinum með reykingabanni Stjórnvöld grafa undan eignarrétinum með því að banna reykingar á veitinga- og skemmtistöðum að mati Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. 1.6.2007 17:46
Þrítugur veggjakrotari handtekinn Þrítugur karlmaður var handtekinn á Reykjavíkurflugvelli laust eftir hádegi í dag. Það teldist varla til frásögu færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að krotarinn er á fertugsaldri. 1.6.2007 17:36
Unga parið enn á gjörgæslu Unga parið sem lentu í bílslysi á Suðurlandsvegi í gærdag er enn á gjörgæsludeild Landsspítalans í Fossvogi, að sögn vakthafandi læknis. Þriggja mánaða gamalt barn þeirra hefur verið útskrifað af gjörgæslu og er nú á barnaspítalanum við Hringbraut. 1.6.2007 17:31
Ari segir Egil samningsbundinn 365 til a.m.k. tveggja ára Ari Edwald, forstjóri 365, segir að þáttarstjórnandinn Egill Helgason, sem er á leið á Ríkisútvarpið með þátt sinn Silfur Egils, sé samningsbundinn 365 til að minnsta kosti tveggja ára. 1.6.2007 17:20
Erfðaefni úr óþekktum manni í herbergi Madeleine Erfðaefni úr óþekktum manni fannst í herbergi Madeleine McCann þar sem hún svaf þegar henni var rænt. Þetta kemur fram í portúgalska innanbæjarblaðinu 24 Horas. Blaðið segir að erfðaefnið sé hvorki úr foreldrum stúlkunnar né börnunum þremur. Það er ekki heldur úr þeim sem hafa legið undir grun í málinu. 1.6.2007 17:16
Kalt og notalegt í Nauthólsvíkinni Starfsmenn Háskólans í Reykjavík létu ekki hvassviðri og nokkurn kulda stöðva sig í dag þegar þau skelltu sér til sunds í Nauthólsvíkinni. Svo slæmt var veðrið reyndar að flytja þurfti sumarfögnuð starfsmanna úr Nauthólsvíkinni í húsakynni HR í Ofanleiti. 1.6.2007 17:05
Egill segist á leið á RÚV Þáttarstjórnandinn og álitsgjafinn Egill Helgason, sem séð hefur um umræðuþáttinn Silfur Egils á Stöð 2, er á leið á Ríkisútvarpið. Frá þessu greinir hann í tölvupósti til samstarfsmanna sinna. 1.6.2007 17:03
Þarf að afplána eftirstöðvar refsingar vegna árásar og ráns Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms um að maður skyldi afplána eftirstöðvar fangelsisirefsingar vegna þess að hann rauf skilorð með því að ráðast á mann og ræna hann í miðbæ Reykjavíkur um síðustu helgi. 1.6.2007 16:46
Skelfilegt kjarnorkuslys vofir yfir Evrópu Gríðarstórir geymar fullir af notuðum eldsneytis-stjórnstöngum úr vélum rússneskra kjarnorkukafbáta geta sprungið hvenær sem er. Þeir eru aðeins 50 kílómetra frá landamærunum við Noreg. Það yrði hrein kjarnorkumatröð, margfallt verri en kjarnorkuslysið í Chernobyl á sínum tíma. 1.6.2007 16:27
Leg með flestar tilnefningar til Grímunnar Leikritið Leg eftir Hugleik Dagsson fékk flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku leiklistarverðlaunanna, í ár en þær voru kunngjörðar í Íslensku óperunni í dag. 1.6.2007 16:17
Fimm sækja um embætti forstöðumanns Húsafriðunarnefndar Fimm manns sóttu um embætti forstöðumanns Húsafriðunarnefndar en umsóknarfrestur rann út fyrir viku. Umsækjendur eru arkitektarnir Friðrik Friðriksson, Guðmundur Lúther Hafsteinsson og Nikulás Úlfar Másson, blaðamaðurinn Kjartan Gunnar Kjartansson og Páll Björgvinsson, arkitekt og byggingarmeistari. 1.6.2007 16:11
HÍ og Harvard rannsaka saman blöðruhálskrabbamein Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Faraldsfræðideild Harvard-háskóla undirrita á þriðjudag viljayfirlýsingu um samstarf sem felur í sér sameiginleg rannsóknarverkefni og uppbyggingu á framhaldsmenntun í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands. Ætla skólarnir jafnframt að vinna að rannsóknarverkefni á krabbameini í blöðruhálskirtli sem byggir á einstökum íslenskum gögnum. 1.6.2007 16:00
Siggi stormur leitar að veðurgleggstu Íslendingunum Veðravon, veðurleikur Vísis og Stöðvar tvö hefst í dag í styrkri umsjá Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. Leikurinn felst í því að landsmenn geta skráð á visir.is hvernig þeim finnst veður dagsins hafa verið og síðan er metið hver stendur sig best, hvaða sveitarfélagið hefur veðurglöggasta fólkið og hvar á Íslandi veðursæld sé mest. 1.6.2007 15:42
Illugi varaformaður þingflokks sjálfstæðismanna og Ásta ritari llugi Gunnarsson var í gær kjörinn varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Ásta Möller ritari á fundi þingflokksins í gær. Áður hafði Arnbjörg Sveinsdóttir verið kjörin formaður þingflokksins. 1.6.2007 15:29
Sjö teknir fyrir ölvunarakstur í gær Fjórar konur voru í hópi þeirra sjö ökumanna sem teknir voru fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Telst það nokkuð óvenjulegt en jafnan eru fleiri karlar teknir fyrir ölvunarakstur en konur. 1.6.2007 15:22
Ákæruliðum í Baugsmáli vísað aftur í hérað Hæstiréttur vísaði í dag níu ákæruliðum og hluta af tveimur öðrum í endurákæru Baugsmálsins aftur til héraðs en þeim hafði verið vísað frá héraði. Meðal ákæruliðanna sem héraðsdómur verður að taka afstöðu til er ákæra á hendur Jóni Gerald Sullenberger. Það var Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari, sem áfrýjaði frávísunum til Hæstaréttar. 1.6.2007 15:13
Berklamaðurinn sér eftir flugferðunum Bandarískur berklasjúklingur sem ferðaðist smitaður með tveimur farþegaflugvélum yfir Atlantshafið hefur beðist afsökunar á að hafa mögulega stofnað öðrum farþegum í hættu. Í þættinum Good Morning America sagði Andrew Speaker, lögmaður á fertugsaldri: “Mér þykir mjög leitt að hafa valdið farþegum raun og sársauka.” 1.6.2007 14:57
Lét af störfum eftir 37 ár í lögreglunni Þröstur Brynjólfsson, yfirlögregluþjónn á Selfossi, lét af störfum í gær eftir 37 ára farsælt starf í lögreglu ríkisins. Hann hóf störf hjá lögreglunni á Húsavík árið 1970 og varð yfirlögregluþjónn þar árið 1982. Hann flutti sig svo til Selfoss árið 1996 og hefur starfað þar síðan. 1.6.2007 14:29
Lögregla handtók fíkniefnasala Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær karlmann í austurborginn en hann er grunaður um fíkniefnasölu. Í híbýlum hans fundust um 100 grömm af ætluðu hassi. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála segir lögregla í tilkynningu. 1.6.2007 14:19
Flytja opnun sýningar í Nauthólsvík vegna veðurs Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir ljós- og tölvumyndasýningu í Nauthólsvík í sumar. Áætlað hafði verið að opna sýninguna í Nauthólsvík í dag en vegna veðurs verður sýningin opnuð á lóð skólans við Ofanleiti. Hún verður síðan færð í Nauthólsvík og stendur þar í allt sumar. Myndir af framtíðarhúsnæði HR munu skreyta sýninguna sem verður staðsett við rætur Öskjuhlíðar. 1.6.2007 13:52
Venesúelska sjónvarpsstöðin sendir út á YouTube Venesúelska sjónvarpsstöðin RCTV sendir nú fréttaþátt sinn "El Observador" út á YouTube. Þannig fundu stjórnendur hennar leið til að koma efni fréttamanna til hluta áhorfenda sinna, þrátt fyrir að hafa misst útsendingarleyfið. Hugo Chavez forseti hafnaði endurnýjun leyfisins sem rann út á sunnudag. Fjöldamótmæli hafa verið haldin á götum Venesúela vegna málsins. 1.6.2007 13:35
Lucy in the Sky er fundin Bresk kona sagði í dag að hún hafi verið innblástur Johns Lennon að laginu Lucy in the Sky with Diamonds. Margir aðdáendur Bítlanna hafa talið að nafnið hafi verið lítt dulin lofgjörð um ofskynjunarlyfið LSD. Vegna þess var skífan ritskoðuð í mörgum íhaldssamari löndum og laginu um Lucy sleppt. Það var t.d. gert víða í Asíu. 1.6.2007 13:15
Iceland Express hefur flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar Flugfélagið Iceland Express hóf i dag áætlunarflug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar. Fyrsta flugvél frá Kaupmannahöfn lenti á Egilsstaðaflugvelli á níunda tímanum í morgun. 1.6.2007 12:34
Sendiherra Portúgals í Noregi á Kárahnjúkum Sendiherra Portúgals í Noregi er nú staddur á Kárahnjúkum til að kanna aðstæður landa sinna sem þar starfa. Portúgalskur verkamaður sem bjó og starfaði á Kárahnjúkum dró í viðtali við portúgalska fjölmiðla fyrir skömmu upp dökka mynd af ástandinu þar. 1.6.2007 12:17
Nemendur í Suðvesturkjördæmi komu best út úr samræmdum prófum Grunnskólanemendur í Suðvesturkjördæmi stóðu sig að meðaltali best í samræmdu prófunum í vor samkvæmt tölum Námsmatsstofnunar. Fengu þeir að meðaltali 0,1 hærra í meðaleinkunn en nemendur í Reykjavík sem stóðu sig næst best. Lægstu meðaleinkunn fengu nemendur í Suðurkjördæmi. 1.6.2007 12:12
Frístundakortin bylting fyrir börnin Frístundakortin verða bylting fyrir börnin í borginni, segir formaður Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs. Fyrstu kortin verða send út í haust. 1.6.2007 12:08
Markvissar aðgerðir í þágu barna og kröftugt efnahagslíf Eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar snýr að markvissum aðgerðum í þágu barna, aldraðra og kröftugs efnahagslífs sagði forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í gær. Utanríkisráðherra sagði vandasama siglingu framundan, ekki síst í efnahagsmálum. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýndu stefnu ríkisstjórnarinnar í umhverfis og efnahagsmálum. 1.6.2007 11:48
Nemendum á öllum skólastigum fjölgar Rúmlega 16 þúsund fleiri nemendur stunduðu nám á öllum skólastigum landsins í vetur en fyrir tíu árum samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Fleiri konur stunda nám á framhalds- og háskólastigi en karlar og þá dregur úr skólasókn 16 ára ungmenna í framhaldsskólum milli ára. 1.6.2007 11:39
Kínverjar fjalla um sæti Íslands í Öryggisráðinu Kínverskir fjölmiðlar fjalla í dag um kosningabaráttu Íslendinga fyrir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 og 2010. Í vefútgáfu dagblaðsins People Daily segir að Íslendingar þurfi stuðning 28 þjóða til viðbótar þeim 100 sem þegar hafa heitið stuðningi, til að fá öruggt sæti í ráðinu. Aðildarlöndin eru 192 og Ísland þarf stuðning 66 prósenta þeirra. 1.6.2007 11:37
Vilja draga úr sókn í þorskstofninn Náttúruverndarsamtök Íslands skora á sjávarútvegsráðherra að draga úr sókn í þorskstofninn með það fyrir augum að vernda stofninn. Þetta kemur fram ályktun aðalfundar samtakanna sem haldinn var í vikunni. Vísa samtökin meðal annars í ástandsskýrslu Hafrannsóknarstofnunar frá því í fyrra þar sem lagt er til aflamark fyrir þorsk verði endurskoðað og jafnframt lækkað. 1.6.2007 11:05
Átökin í Líbanon: Hræðilegt ástand í flóttamannabúðum Mannúðarsamtök segja ástandið í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Líbanon vera hræðilegt. Ekkert lát er á átökum meðlima hryðjuverkasamtakanna Fatah al-Islam og líbanskra hermanna sem staðið hafa í 13 daga. Sameinuðu þjóðirnar segja 31 þúsund manns vera innilokaða í búðunum, en 25 þúsund hafi flúið. Mannúðarsamtök segja ástandið hræðilegt. Um 80 manns hafa látið lífið í átökunum. 1.6.2007 10:57
Stærsta rannsóknarsvæði Orkuveitunnar í Djíbútí Orkuveita Reykjavíkur hefur fengið einkaleyfi til jarðhitarannsókna og forgang á hugsanlegri nýtingu um 750 ferkílómetra lands í afríkuríkinu Djíbútí. Það er stærsta rannsóknarsvæði OR til þessa. Staða Djíbútíbúa í raforkumálum er svipuð og hjá Íslendingum fram til ársins 1960. Þeir fá rafmagn með brennslu innflutts jarðefnaeldsneytis. 1.6.2007 10:35
Metaðsókn hjá Leikfélagi Akureyrar Tæplega 27 þúsund manns sáu sýningar Leikfélags Akureyrar í vetur og hafa leikhúsgestir aldrei verið fleiri. Þá sáu um 11 þúsund manns sýningar leikfélagsins í höfuðborginni. Leikhússtjóri segir árangurinn byggjast fyrst og fremst á frábæru starfsfólki og velheppnuðu verkefnavali leikhússins. 1.6.2007 10:32