Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
319 milljónir í boði fyrir upplýsingar um Madeleine Menn keppast nú við að bjóða verðlaun til handa þeim sem gefið gæti upplýsingar um hvar Madeleine McCann, er niðurkomin. 319 milljónir íslenskra króna, eru nú í boði fyrir upplýsingar sem varpað gætu ljósi á málið. 12.5.2007 17:24
Kjörsókn meiri í Norðausturkjördæmi Kjörsókn hefur gengið vel víðsvegar um landið en er heldur minni en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðausturkjördæmi. Þar er kjörsókn umtalsvert meiri á Egilsstöðum og á Akureyri en í síðustu kosningum. 12.5.2007 16:52
Fórnarlömb árásarmanns í Virginia Tech fá prófskírteini Skólayfirvöld í Virginia Tech háskólanum hafa veitt nokkrum þeirra sem létu lífið í skotárásinnni í skólanum í síðasta mánuði prófgráður. Ættingjar hinna látnu tóku við prófskírteinum þeirra við hátíðlega athöfn í gær. 12.5.2007 15:51
Risessan reynir að róa pabba sinn Risinn er fundinn og nú freistar risessan, dóttir hans, þess að sannfæra hann um að koma með sér úr landi. Risinn hefur verið mjög pirraður síðan hann var vakinn upp og hefur skemmt bíla með hnífapörunum sínum. 12.5.2007 15:20
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi kærðir Samfylkingin í Suðurkjördæmi hefur kært til yfirkjörstjórnar störf fulltrúa Sjálfstæðismanna í kjördeild á Selfossi, í Þorlákshöfn og Vestmanneyjum. Athugasemd er gerð við það að Sjálfstæðismenn miðli upplýsingum um kjörsókn út úr kjördeildum. 12.5.2007 15:13
Öflug sprenging í Árósum Einn mann sakaði þegar stór gaskútur sprakk nærri veitingastað við veðhlaupabrautina í Højbjerg í Árósum í Danmörku í morgun. Að sögn vitna var sprengingin mjög öflug og skók næsta nágrenni. Miklar skemmdir urðu á veitingahúsinu. 12.5.2007 15:09
Kjörsókn ívið minni víðast hvar Kosningar til Alþingis hafa gengið vel fyrir sig það sem af er. Kjörsókn hefur víðast verið heldur dræmari en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðvesturkjördæmi þar sem kjörsókn hefur verið töluvert meiri og á Akureyri hafa nokkuð fleiri greitt atkvæði en árið 2003. 12.5.2007 14:34
Risessan leitar að pabba sínum Leit risessunnar að föður heldur áfram í dag en faðir hennar, risinn, hefur gengið berserksgang um borgina. Risessan hóf daginn á því að fara í sturtu áður en hún hélt af stað á nýjan leik. 12.5.2007 13:08
Nýjustu tölur á Vísi Á kosningavef Vísis verður í kvöld hægt að fylgjast með stöðunni í Alþingiskosningunum eins og hún er hverju sinni. Staðan verður uppfærð um leið og nýjar tölur berast og reiknað út hvaða frambjóðendur eru inni á þingi eins og staðan er á þeim tíma. 12.5.2007 12:47
Kaldo, en ekki Kaldi Maður af eistneskum uppruna hefur ítrekað orðið fyrir símaónæði vegna þess hve nafn hans líkist bjórnum sem bruggaður er á Árskógssandi. Hann heitir Kaldo en bjórinn Kaldi. 12.5.2007 12:45
Hagnaður Baugs dregist saman Hagnaður Baugs dróst saman um tvo þriðju í fyrra miðað við árið á undan að því er breska dagblaðið Daily Telegraph greinir frá í morgun. Þar er vitnað til gagna sem það hefur undir höndum sem afhent voru fulltrúum fyrirtækisins Blueheat sem er að yfirtaka matvælaþjónustuna Booker sem Baugur á stóran hlut í. 12.5.2007 12:45
Kæra í Suðurkjördæmi Samfylkinginn í Suðurkjördæmi undirbýr nú kæru vegna starfa fulltrúa Sjálfstæðismanna í kjördeild á Selfossi og í Vestmannaeyjum. 12.5.2007 12:21
Hvað má og hvað má ekki gera við kjörseðil Það getur vafist fyrir sumum hvað megi gera við kjörseðilinn og hvað ekki. Auðvelt er að gera kjörseðil ógildan með því að fara ekki rétt með hann. Þannig má ekki strika út frambjóðendur af öðrum listum en þeim eina sem kjósandi merkir við. 12.5.2007 12:11
Kosningasjónvarp með stæl á Stöð 2 Stöð tvö mun fjalla skilmerkilega um kosningarnar í kvöld. Kosningasjónvarpið hefst formlega klukkan níu. Þar verður boðið upp á skýringar á framvindu mála, auk skemmtunar fram á rauða nótt. Þá verður kosningavefur Vísis með nýjustu tölur á hverjum tíma. 12.5.2007 11:59
Ingibjörg Sólrún kaus í Hagaskóla Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar hefur greitt sitt atkvæði í Alþingiskosningunum. Hún mætti í Hagaskóla á ellefta tímanum og kaus í 5. kjördeild. 12.5.2007 11:30
Geir Haarde kaus í Hagaskóla Geir Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætti á kjörstað í Hagaskóla fyrir stundu til þess að greiða atkvæði sitt í kosningunum. 12.5.2007 11:21
Útgerðarfyrirtæki vísar ásökunum á bug Vísir hf. í Grindavík vísar á bug ásökunum sem fram komu í frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í fréttinni var sagt frá því að fyrirtækið hafi landað þorski og gefið upp sem ufsa. Í yfirlýsingu sem borist hefur fyrirtækinu er þessu vísað alfarið á bug. 12.5.2007 11:09
Sögulegt samkomulag Rússar, Túrkmenar og Kasakar hafa náð sögulegu samkomulagi um lagningu nýrrar gasleiðslu meðfram strönd landanna við Kaspíahaf. Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, greindi frá þessu á fundi leiðtoga Mið-Asíuríkja í Túrkmenistan í morgun. 12.5.2007 11:00
Simbabve stjórnar sjálfbærri þróun fyrir SÞ Afríkuríkið Simbabve var í gær valið til formennsku í nefnd Sameinuðu þjóðanna um málefni sjálfbærrar þróunar. Álfur heims skiptast á að fara fyrir nefndinni og var komið að Afríku. 12.5.2007 10:45
Ómar kaus í Laugardalshöll Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, mætti á kjörstað nú fyrir stundu til að greiða sitt atkvæði í Alþingiskosningunum. Ómar kaus í Laugardalshöllinni. 12.5.2007 10:31
Gíslatöku lauk án blóðbaðs Umsátri við sendiráð Rússa í San Jose, höfuðborg Kosta Ríka, lauk í nótt þegar tvítugur maður frá Kirgistan, sem hafi tekið annan mann í gíslingu þar, gaf sig fram við lögreglu. 12.5.2007 10:30
Sprengjuárás í tyrkneskum hafnarbæ 15 særðust, þar af 2 lífshættulega, þegar sprengja sprakk á fjölförnu markaðstorgi í hafnarbænum Izmír, þriðju stærstu borg Tyrklands, í morgun. Mótmælafundur stjórnarandstæðinga er fyrirhugaður þar á morgun. Mikil spenna er í Tyrklandi vegna deilan um val á forseta. Kosið er til tyrkneska þingsins í júlí. 12.5.2007 10:15
Jón kaus í Kópavogi Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrsti maður á lista í Reykjavík norður, mætti snemma á kjörstað og greiddi sitt atkvæði. Jón er búsettur í Kópavogi og greiddi því atkvæði í Kópavogsskóla. 12.5.2007 10:11
Tveir á slysadeildir eftir líkamsárásir Lögregla á Suðurnesjum var kölluð til á Veitingastaðinn Twix undir morgun þar sem maður lá meðvitundarlaus eftir líkamsáras. Maðurinn mun hafa lent í átökum við annan með þessum afleiðingum. Hann var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild með áverka í andliti. Líðan hans er eftir atvikum. 12.5.2007 10:08
Unglingar í samræmdum fögnuðum Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af stórum hóp unglinga sem hafði safnast saman í Kjarnaskógi til að fagna lokum samræmdu prófanna. Tæplega 150 unglingar fögnuðu þar friðsamlega í slyddu og kulda. Lögreglan hafði fengið pata af samkomunni og var með virkt eftirlit á svæðinu. Um 20 foreldrar mættu á staðinn og aðstoðuðu lögreglu við eftirlit. 12.5.2007 10:02
Kosningar til Alþingis hafnar Kjörstaðir opnuðu um allt land núna klukkan níu og á kjörskrá eru 221.368 manns. Fjöldi karla og kvenna er svo til jafn að þessu sinni, 110.399 karlar og 110.969 konur. 12.5.2007 09:54
Samkomulag næst um stjórn í Serbíu Forseti Serbíu, Boris Tadic, tilkynnti í dag að samkomlag hefði nást á milli flokks hans og flokks fráfarandi forsætisráðherra, Voijslav Kostunica, um að Kostunica muni gegna embætti í eitt kjörtímabil í viðbót. Einnig mun lítill flokkur teknókrata bætast í hópinn og flokkarnir þrír mynda því með sér ríkisstjórn. 11.5.2007 23:30
Föðurlandið, sósíalismi eða dauði! Venesúela hefur tekið sér slagorð forseta landsins, Hugo Chavez, „Föðurlandið, sósíalismi eða dauði“ sem opinbera kveðju landsins. Það er talið merki um aukin völd Chavez í opinberum stofnunum í landinu. Slagorðið er afleiða af slagorði Fidels Castro, forseta Kúbu, „Föðurland eða dauði, Við munum sigra“ og er nú notað á öllum fundum Chavez. 11.5.2007 23:00
Gæslan keypti búnað til að slökkva gróðurelda Landhelgisgæslan hefur fengið búnað til að nota í þyrlum Landhelgisgæslunnar sem er sérstaklega hannaður til að slökkva gróðurelda. Um er að ræða sérhannaða fötu sem notuð er í þessum tilgangi. Hún rúmar alls 2000 lítra af vatni. 11.5.2007 22:30
Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta samkvæmt könnun Gallup Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta sinn samkvæmt niðurstöðum síðustu raðkönnunar Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið, sem gerð var dagana 9. til 10. maí. Þetta kom fram í fréttum Ríkssjónvarpsins í kvöld. 11.5.2007 22:00
Stjórn Alþjóðabankans vill að Wolfowitz segi af sér Meirihluti þeirra landa sem eiga sæti í stjórn Alþjóðabankans finnst að Paul Wolfowitz, forseti bankans, eigi að segja af sér. Einn af meðlimum stjórnarinnar, sem kemur frá þróunarlandi, sagði að meirihluti meðlima væru á þessari skoðun. „Við erum þeirrar trúar að Alþjóðabankinn geti ekki haldið áfram undir stjórn Hr. Wolfowitz.“ sagði hann enn frekar. Lokaákvörðun um framtíð Wolfowitz verður tekin í næstu viku. 11.5.2007 21:45
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að framlengja gæsluvarðhald yfir 18 ára karlmanni sem er grunaður um að hafa nauðgað stúlku á salerni á hóteli í Reykjavík. Gæsluvarðhaldið mun þó ekki standa lengur en til 20. júní. Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. 11.5.2007 21:30
Gæsluvarðhald framlengt í hnífsstungumáli Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir karlmanni á fimmtugsaldri sem hefur játað að hafa stungið annan mann í brjóstkassa og kvið með hnífi. Gæsluvarðhaldið var framlengt til 6. júní en beðið er niðurstöðu úr lyfja- og áfengisprófum. 11.5.2007 21:00
Gíslataka í rússneska sendiráðinu í Kosta Ríka Maður frá fyrrum Sovíetríkjunum hefur tekið einn gísl í sendiráði Rússlands í San Jose í Kosta Ríka. Lögregla í San Jose hefur umkringt bygginguna. Maðurinn er talinn vera vopnaður. Ráðherra Almannavarna skýrði ríkissjónvarpi Kosta Ríka frá þessu fyrir örfáum mínútum. Sem stendur er ekki vitað hvað manninum gengur til. 11.5.2007 20:46
Vesturveldin vilja sjálfstætt Kosovo Bandaríkin og evrópskir bandamenn þeirra hafa dreift uppkasti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að Kosovo verði sjálfsstætt ríki undir verndarvæng Evrópusambandsins. Rússar eru á móti því. Reuters fréttastofan komst yfir eintak af uppkastinu og fylgir það ráðleggingum Martti Ahtisaari. 11.5.2007 20:36
Veður hefur ekki áhrif á kjörfylgi Sjálfstæðisflokks Veður á kjördag hefur áhrif á úrslit kosninganna hjá Framsóknarflokknum og Vinstriflokkunum en ekki Sjálfstæðisflokknum. Þetta sýna niðurstaður rannsóknar sem Sigurðar Þ. Ragnarsson veðurfræðingur hefur gert. Öfugt við það sem margir halda hefur veðrið ekki áhrif á heildarkjörsókn. 11.5.2007 20:15
Risessa á ferð um miðborgina Átta metra há og tignarleg risessa hægði á umferð í miðborginni í dag. Tafirnar verða ekki minni á morgun þegar berserkurinn faðir hennar slæst í för. 11.5.2007 20:11
Mátti dúsa í dýflissu Þrítug tékknesk kona á yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir að hafa hlekkjað átta ára son sinn nakinn niður og lokað hann í kjallara á heimili þeirra. Tilviljun ein réð því að nágrannar konunnar fundu strákinn. 11.5.2007 19:30
MND sjúklingur fer heim eftir margra mánaða bið Útlit er fyrir að 63 ára MND sjúklingur sem dvalið hefur á taugadeild Landspítalans hátt í 10 mánuði fái nú loks að dvelja heima hjá fjölskyldu sinni alla daga vikunnar. Kópavogsbær hefur útvegað honum fulla heimahjúkrun, en fjölskylda hans hefur sóst eftir að fá slíka þjónustu í fleiri mánuði. 11.5.2007 19:07
Brown vill leiða ríkisstjórn Gordon Brown, fjármálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, hellti sér í morgun formlega í slaginn um leiðtogaembættið í Verkamannaflokknum. Talið er að hann eigi greiða leið í embættið og takið við forsætisráðuneytinu af Tony Blair í lok júní. Blair tilkynnti um afsögn sína í gær. 11.5.2007 18:45
Jónas áfram formaður Ekki er útilokað að Jónas Garðarsson setjist aftur í formannsstól Sjómannafélags Reykjavíkur þegar hann hefur afplánað sína refsingu. Jónas var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. 11.5.2007 18:45
Talsmenn flokkanna allir bjartsýnir Talsmenn stjórnmálaflokkanna eru allir bjartsýnir á úrslit kosninganna á morgun. Síðustu klukkustundirnar er lögð áhersla á að ganga maður á mann, gefa blöðrur, forstpinna og annan varning merktum flokkunum. 11.5.2007 18:43
Trúarhópar takast á í Egyptalandi Að minnsta kosti 10 kristnir Egyptar særðust í átökum á milli trúarhópa í þorpi nálægt Kaíró. Kristnir ætluðu sér að byggja kirkju í þorpinu án þess að hafa fyrir því tilskilin leyfi og því brutust átökin út. Kveikt var í fjórum húsum í þropinu Behma í átökunum sem blossuðu upp í morgun, stuttu eftir að bænastund múslima var lokið. 11.5.2007 17:57
Verulegar líkur á hryðjuverkaárás í Þýskalandi Samkvæmt fréttum á vefsíðu ABC fréttastöðvarinnar er veruleg hætta á hryðjuverkaárás á bandarísk skotmörk í Þýskalandi. Talið er að hryðjuverkamennirnir ætli sér að ráðast gegn herstöðinni Patch Barracks, með því takmarki að valda sem mestum mannskaða. 11.5.2007 17:42
Tveir leiðtogar á leið út funduðu í París Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom til Frakklands í dag til að kveðja Jacques Chirac, fráfarandi Frakklandsforseta, og ræða við Nicolas Sarkozy, arftaka Chiracs. Vel virtist fara á með þeim Chirac og Blair í heimsókninni en Blair er eins Chirac á leið af valdastóli. 11.5.2007 16:46