Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hunda- og kattamatur innkallaður í Bandaríkjunum Rottueitur hefur greinst í katta- og hundamat frá framleiðslufyrirtækinu Menu Foods í Bandaríkjunum. 15 kettir og 2 hundar hafa drepist eftir að hafa étið mat frá fyrirtækinu og óttast er að fleiri dýr hljóti sömu örlög. 60 milljón dósir og pokar með hunda- og kattamat frá fyrirtækinu hafa verið innkölluð. 24.3.2007 19:45
Hólaskóli verður háskóli Hólaskóli verður að háskóla frá og með 1. júlí. Af því tilefni var boðað til hátíðar á Hólum í gær og stærsta hesthús landsins tekið í notkun. Það var landbúnaðarráðherra sem boðaði til hátíðarinnar en nýlega voru sett lög um Hólaskóla, Háskólann á Hólum. Lögin marka tímamót í sögu skólans og gefa honum tækifæri til þróunar á næstu árum. 24.3.2007 19:17
Lögregla gerir upptæk mikið magn fíkniefna Þrír karlmenn voru handteknir í gærkvöldi eftir að mikið magn fíkniefna fannst í húsnæði í vesturbæ Reykjavíkur. Mennirnir voru handteknir á staðnum þar sem þeir voru í óða önn að pakka efnunum á smærri umbúðir. Við leit fann fíkniefnalögreglan 250 grömm af hassi, 60 grömm af maríjúana, 20 E-töflur og 20 grömm af kókaíni. Þá voru mennirnir með nokkuð af fjármunum á sér. Yfirheyrslur yfir mönnum stóðu fram eftir degi í dag en þeir er nú lokið og telst málið upplýst. Þá var ein kona yfirheyrð í tengslum við málið. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fíkniefnadeild LRH hafi komið að 107 málum frá áramótum. Það er umtalsverð fjölgun sé miðað við sama tímabil í fyrra. 24.3.2007 19:12
Karlmaður hyggst kæra ráðherra fyrir að hagnast á vændi Karlmaður á fimmtugsaldri kveðst hafa selt erlendri fiskverkunarkonu blíðu sína og ætlar að greiða virðisaukaskatt í ríkissjóð af því sem hann fékk fyrir. Hann hyggst síðan kæra fjármálaráðherra fyrir að hagnast á vændi. 24.3.2007 19:00
Kúbumenn og Svíar í hár saman Stirt er á milli Svía og Kúbumanna eftir að sænski utanríkisráðherrann sagði mannréttindabrot viðgangast á Kúbu. Svíar saka þá einnig um að hnýsast í póst sænska sendiráðsins í Havana. Kúbumenn segjast á móti ekki hegða sér eins og víkingar forðum daga. 24.3.2007 19:00
Alvarlegt vinnuslys Alvarlegt vinnuslys varð í álverinu á Grundartanga rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Slysið varð utan við einn kerskála álversins þegar stórum lyftara var ekið á starfsmann sem var þar á gangi. Aðkoman að slysinu var mjög ljót að sögn lögreglu en maðurinn missti annan fótinn í slysinu. Hann var fluttur með þyrlu á Landspítalann við Hringbraut þar sem hann gengst nú undir aðgerð. 24.3.2007 18:53
Sjóliðarnir sagðir hafa játað Íranar segja breska sjóliða, sem teknir voru höndum á Persaflóa í gær, hafa viðurkennt að hafa siglt ólöglega inn í íranska landhelgi þar sem þeir voru teknir. Bretar segja þetta þvætting. Þeir hafi verið við eftirlit á írösku hafsvæði. Þess er krafist að mennirnir verði þegar látnir lausir. 24.3.2007 18:45
Byggðasjónarmið eiga að ráða stóriðjuuppbyggingu Smári Geirsson bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð, segir ekkert hafa komið út úr loforðum náttúruverndarsinna sem lofað hafi Vestfirðingum aðstoð við atvinnuuppbyggingu eftir að þeir lýstu Vestfirði stóriðjulaust svæði árið 2003. Hann telur að byggðasjónarmið eigi að ráða uppbyggingu stóriðjunnar og segir enga þörf á auknum umsvifum álvera á höfuðborgarsvæðinu. 24.3.2007 18:30
Samið um auglýsingar stjórnmálaflokkanna Stjórnmálaflokkarnir munu að öllum líkindum ganga frá samkomulagi á morgun um takmarkanir á auglýsingum vegna kosninganna í vor. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 verður settur rammi utan um birtingar á auglýsingum flokkanna í sjónvarpi, útvarpi og landsmálablöðum, en ekki verður samið um auglýsingar í landshlutamiðlum. 24.3.2007 18:30
Tolli sýnir í Magasin du Nord Myndlistarmaðurinn Tolli opnaði sýningu á fjörutíu olíumálverkum í Magasin du Nord í Kaupmannahöfn fyrir helgi. Sýningin er sú fyrsta í verslunarmiðstöðinni í háa herrans tíð, en íslenskir eigendur hennar hyggjast bjóða upp á listsýningar í framtíðinni. 24.3.2007 18:29
Svona sprengja menn dekk á felgu Félagar í 4x4 klúbbnum á Austurlandi og björgunarsveitarmenn frá Vopnafirði keyrðu stóra hálendis hringinn í síðustu viku á stórum og vel útbúnum jeppum. Eins og jeppamenn og fleiri þekkja þá eru góð ráð dýr þegar dekk fer af felgu. Það gerist hins vegar stundum þegar hleypt er úr dekkjunum. Það gerðist einmitt í ferð jeppamannanna í vikunni en eins og ferðalanganna var von og vísa þá kunnu þeir ráð við því. Á myndbandi sem gengið hefur um netið að undanförnu má sjá hvernig þeir sprengja dekkið aftur upp á felguna. 24.3.2007 17:00
Vínrækt á Íslandi Landbúnaður á Íslandi gæti átt eftir að njóta góðs af hlýnun jarðar í framtíðinni. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Gluggans. Þar segir að á fyrirlestri sem Trausti Valsson umhverfisfræðingur hélt nýlega á vegum þóunarfélags Hrunamanna hafi ýmislegt komið í ljós. Meðal annars að í framtíðinni verði hægt að rækta hér sitthvað sem ekki hefur verið hægt áður. Tekur fréttamaður Gluggans sem dæmi jarðarber og vínber. 24.3.2007 15:42
Mona Sahlin og Helle Thorning-Schmidt á landsfundi Samfylkingarinnar Mona Sahlin nýkjörinn formaður sænska jafnaðarmannaflokksins og Helle Thorning Schmidt formaður danska jafnaðarmannaflokksins verða heiðursgestir á landsfundi Samfylkingarinnar 13. apríl. Þær flytja ávörp á setningardegi fundarins. 24.3.2007 15:28
Keypti dagbækur Önnu Nicole fyrir 33 milljónir Tvær dagbóka Önnu Nicole Smith hafa verið seldar þýskum auðjöfri. Dagbækurnar eru frá árunum 1992 og 1994 og eru handskrifaðar af Önnu Nicole. Að því er fram kemur á danska fréttavefnum bt.dk þá hyggst þýski auðjöfurinn selja brot úr dagbókunum þeim fjölmiðlum sem áhuga á því hafa. 24.3.2007 14:54
Elliðaá flæddi yfir bakka sína Víða eru talsverðir vatnavextir vegna hlýinda og rigninga. Miklir vatnavextir eru í Elliðaám og við Sandskeið þessa dagana og hafa Elliðaár sem og Hólmsá flætt yfir bakka sína. Spáð er að hiti verði allt að 7 stig um helgina suð-vestanlands þannig að ár og lækir gætu bólgnað meira. Á sléttlendi hafa víða myndast stórar tjarnir og sumstaðar er eins og yfir stöðuvötn að líta því frost er í jörðu, og það kemur í veg fyrir að vatnið sjatni ofan í jarðveginn. Þá hefur hálku verið að taka upp af vegum og er hún horfin á láglendi, en hálkublettir eru sumstaðar enn á suður og vesturlandi, einkum á fjallvegum. 24.3.2007 14:35
Kveiktu í fíkniefnum Yfirvöld í Bólívíu og Perú lögðu fyrir helgi eld að um 35 tonnum af eiturlyfjum. Götuverðmætið er sagt mörg hundruð milljónir króna. Hald var lagt á efnin í fjölmörgum aðgerum lögreglu í báðum löndum. 24.3.2007 13:45
Sjóliðar fluttir til Teheran Evrópusambandið og bresk stjórnvöld krefjast þess að Íranar láti þegar lausa 15 breska sjó- og landgögnuliða sem teknir voru höndum á Persaflóa í gær. Stjórnvöld í Teheran segjast geta sannað það að mennirnir hafi farið ólöglega inn í íranska landhelgi. 24.3.2007 13:15
Biður menn að ,,perrast" annars staðar Stefán Konráðsson, framkvæmdarstjóri ÍSÍ, gerir karlakvöld íþróttafélaga að umtalsefni sínu í pistli á vef ÍSÍ í gær. Þar segist hann hafa heyrt af því að nýlega hafi íþróttafélag haldið herrakvöld þar sem erótískar dansmeyjar hafi verið fengnar til að skemmta gestunum. Stefán segir í pistlinum að sér hafi verið brugðið við þetta sérstaklega í ljósi þeirrar umræðu sem varð í kringum mansal og vændi í kringum Ólympíuleikana í Aþenu og Heimsmeistarakeppni í knattspyrnu í Þýskalandi síðastliðið sumar. 24.3.2007 13:11
Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi á frumvarp sem felur í sér heimkvaðningu bandarískra bardagasveita frá Írak fyrir fyrsta september á næsta ári. Varaforseti Íraks segist fullviss um að hægt verði að senda erlenda hermenn heim frá Írak fyrir þann tíma. 24.3.2007 12:45
Ný hjáleið í bókhaldi ríkissjóðs Sundabraut sem var þensluskapandi ríkisframkvæmd fyrir viku, er það ekki lengur, og þar sem ríkissjóður mátti sjá af átta milljörðum fyrir viku á næstu fjórum árum, má nú kosta rúma tuttugu milljarða, segir Þorsteinn Pálsson í leiðara Fréttablaðsins í dag. Með þessu hafi menn fundið stóru hjáleiðina í bókhaldi ríkissjóðs. 24.3.2007 12:44
40% kjósenda skráðir í stjórnmálaflokk Áttatíu og fimm þúsund manns eru skráðir í stjórnmálaflokka samkvæmt upplýsingum úr flokksskrám stjórnmálaflokkanna. Fréttablaðið segir frá þessu í dag. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir tölurnar gefa til kynna að fleiri séu skráðir í stjórnmálaflokka hér á landi en víðast hvar annars staðar. 24.3.2007 12:00
Ný ályktun gegn Íran samþykkt í kvöld Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í kvöld atkvæði um nýja ályktun gegn Írönum. Í gærkvöldi var gengið frá texta ályktunarinnar sem felur í sér frekari refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran. Fulltrúi Breta í ráðinu greindi frá þessu og sagðist þess fullviss að ályktunin yrði samþykkt einróma. 24.3.2007 11:45
Arðsamasta vegagerð sem hægt er að ráðast í Sundabraut er arðsamasta vegagerð sem hægt er að ráðast í á Íslandi samkvæmt umhverfismati Vegagerðarinnar, segir Björn Ingi Hrafnsson stjórnarformaður Faxaflóahafna. Hann segir Sundabraut ekki bara til hagsbóta fyrir Faxaflóahafnir og íbúa á höfuðborgarsvæðinu, því hún muni stytta leiðir umtalsvert og breyta miklu fyrir íbúa á Vesturlandi og Norðurlandi. 24.3.2007 11:30
Alvarlegt vinnuslys á Grundartanga Alvarlegt vinnuslys varð í álverinu á Grundartanga rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Slysið varð í einum kerskála álversins. Stórum lyftara var ekið á starfsmann sem var á gangi í skálanum. Að sögn lögreglu var aðkoman nokkuð ljót og þykir líklegt að maðurinn hafi misst neðan af fæti. Hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann við Hringbraut þar sem hann er nú til skoðunar. 24.3.2007 16:05
Dagbækur Önnu seldust á 35 milljónir Tvær dagbækur sem Anna Nicole Smith hélt voru í dag seldar uppboðsvefnum eBay fyrir meira en hálfa milljón dollara, eða um 35 milljónir íslenskra króna. Kaupandinn sagðist ætla að nota þær til þess að skrifa bók um Önnu. Dagbækurnar fundust þegar að hreingerningamaður var að fara í gegnum hús sem að Anna bjó í á meðan hún var við tökur á bíómyndum árið 1992 og 1994. Hann seldi þær síðan til safnara sem síðan geymdi þær allt þar til Anna lést og seldi þær nú á eBay. 23.3.2007 23:49
Íranar segja Breta hafa verið í órétti Stjórnvöld í Íran halda því fram að sjóliðarnir bresku sem þau handtóku í dag hafi verið á írönsku yfirráðasvæði. Utanríkisráðherra Breta, Margaret Beckett, þvertekur hins vegar fyrir þær fullyrðingar. 23.3.2007 23:30
Friður kominn á í Kinshasa Kongóski herinn hefur náð að stilla til friðar í höfuðborginni Kinshasa á ný. Síðastliðna tvo daga hafa harðir bardagar átt sér stað á milli fylgismanna Jean-Pierre Bemba, stjórnarandstöðuleiðtoga, og stjórnarhersins. Bemba, sem er fyrrum uppreisnarleiðtogi, hefur verið sakaður um landráð af yfirvöldum í Kongó. 23.3.2007 23:02
Kosið í Hong Kong á sunnudaginn Á sunnudaginn fara fram í Hong Kong fyrstu kosningar, þar sem kosið er um fleiri en einn frambjóðanda, síðan Bretar létu svæðið af hendi til Kínverja fyrir tæpum tíu árum. Í henni verður kosið á milli Donald Tsang, sem nú er framkvæmdastjóri svæðisins, og Alan Leong, en hann er lýðræðissinni. 23.3.2007 22:24
Íranar vilja samstarf með Evrópuþjóðum Íranar ætla sér að leggja fram nokkrar tillögur fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á morgun til þess að reyna að komast hjá refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Ein af þeim er að Evrópuþjóðir taki þátt í kjarnorkuáætluninni og fjárfesti í henni. 23.3.2007 22:07
Ætla að bæta gæludýraeigendum tapið Fyrirtækið Menu Foods hefur lofað að bæta gæludýraeigendum sem misstu gæludýr sín vegna eitrunar í mat frá fyrirtækinu allan skaða sem þeir urðu fyrir. Að því gefnu að eigendurnir geti sannað að dýrin hafi drepist vegna eitrunar úr gæludýramat fyrirtækisins. 23.3.2007 21:29
Bush að beita neitunarvaldi George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hótaði því í dag að beita neitunarvaldi gegn tillögu demókrata um að kalla alla bardagabúna hermenn heim frá Írak fyrir september 2008. Tillagan hefur þegar verið samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins. 23.3.2007 20:56
Framdi sjálfsmorð í beinni Tveggja barna breskur faðir sem framdi sjálfsmorð í beinni útsendingu á netinu átti við veikindi að stríða að sögn eiginkonu hans. Lögregla fann Kevin Whitrick, 42 ára, látinn á heimili sínu stuttu eftir hún var látin vita. Einn af áhorfendum á netinu hafði þá hringt í lögregluna. 23.3.2007 20:46
Forseti Írans ekki til Bandaríkjanna Forseti Írans, Mahmoud Amhadinejad, hefur aflýst ferð sinni til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna þar sem Bandaríkin voru of lengi að gefa út vegabréfsáritanir fyrir fylgdarlið hans. Sendiherra Íran hjá Sameinuðu þjóðunum, Javad Zarif, skýrði frá þessu í kvöld. „Forsetinn kemur ekki." sagði Zarif við fréttamenn í kvöld. 23.3.2007 20:17
Þriggja bíla árekstur en engan sakaði Þriggja bíla árekstur varð á Holtavörðuheiðinni um sex leytið í kvöld. Engin slys urðu á fólki en bílarnir þrír enduðu allir utan vegar. Töluverð hálka og slæmt veður var á slysstað og er talið að hálkan hafi valdið slysinu. Lögreglan í Borgarnesi er nú á staðnum og hefur lokað heiðinni á meðan bílunum er komið aftur upp á veginn. 23.3.2007 20:09
Knútur vinsæll Berlínarbúar sem og aðkomumenn flykktust í dýragarðinn í Berlín í dag til að berja ísbjarnarhúninn Knút augum. Örlög hans hafa verið Þjóðverjum hugleikin síðustu daga en móðir hans hafnaði Knúti og bróður hans skömmu eftir að þeir komu í heiminn í byrjun desember. Bróðirinn drapst en sjálfur dafnar Knútur vel hjá þjálfara sínum. 23.3.2007 19:45
Stórtjón í fárviðri á Akureyri Stórtjón varð á Akureyri í gærkvöld þegar þakdúkur fauk af fjölbýlishúsi í fárviðri. Minnstu munaði að íbúi stórslasaðist í hamaganginum, vatn streymdi inn í íbúðir og íbúar sváfu ekki dúr. 23.3.2007 19:33
Rómarsáttmálinn fimmtugur á sunnudaginn Á sunnudaginn er hálf öld frá því að Rómarsáttmálinn var undirritaður og Efnahagsbandalag Evrópu, forveri Evrópusambandsins, stofnað. Um fimmtugt skartar ESB 27 aðildarríkjum og sameiginlegri mynt. Það sinnir friðargæslu í Afríku, Asíu, Miðausturlöndum og á Balkanskaga. Í sambandsríkjunum er fimmtung verslana heimsins að finna og þar býr tæplega hálfur milljarður manna. 23.3.2007 19:30
Samstarf eflt um málefni heimilislausra Stefnt er að því að efla samstarf milli allra þeirra sem komu að málefnum heimilislausra í samfélaginu. 40 til 60 eru nú heimilislausir á höfuðborgarsvæðinu. Kona á fimmtugsaldri sem var á götunni í fjögur ár sagðist hafa ákveðið að hætta að drekka þegar hún horfðist í augu við dauðann, í byl fyrir rúmum tveimur árum. 23.3.2007 19:23
Myrtur á heimsmeistaramótinu í krikket Bob Woolmer, landsliðsþjálfari Pakistana í krikket, var myrtur á hótelherbergi sínu á Jamaíka fyrir tæpri viku. Talið er að einhver nákominn honum hafi framið ódæðið og fórnarlambið haft uppi áform um að afhjúpa spillingu í íþróttinni. 23.3.2007 19:15
Ógnað með byssum og síðan rænt Liðsmenn íranska byltingarhersins tóku í dag höndum 15 breska sjó- og landgönguliða sem voru við eftirlit í íraskri landhelgi. Þeim var ógnað með skotvopnum en ekki kom til átaka. 23.3.2007 19:00
Fjölsmiðjan í útgerð Ef Fjölsmiðjunni tekst að safna hátt í fjörutíu milljónum gæti hópur ungmenna sem ekki hefur fótað sig í vinnu eða skóla komist á sjóinn. Fagriklettur HF 123 er nýtt verkefni á vegum Fjölsmiðjunnar en rösklega 200 ungmenni hafa fundið farveg sinn í lífinu með hennar hjálp. 23.3.2007 18:55
Bardagasveitir heim 2008 Fulltrúardeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag frumvarp sem felur í sér að kalla skuli alla bardagasveitir Bandaríkjahers heim frá Írak fyrir 1. september 2008. Frumvarpið fól í sér rúmlega 8.000 milljarða króna aukafjárveitingu til stríðsrekstursins en demókratar í fulltrúadeildinni bættu heimkvaðningarskilyrðinu við. 23.3.2007 18:45
Tilraun til sjálfsvígs Að aka á nærri 300 kílómetra hraða á mótorhjóli er tilraun til sjálfsvígs, segir Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu. Nærri þrjú hundruð mótorhjólamenn hafa slasast í umferðarslysum síðastliðinn áratug. Sex hafa beðið bana. 23.3.2007 18:45
Sveitarfélögin skulda meira en ríkið Sveitarfélögin skulda meira en ríkissjóður og segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga brýnt að færa þeim aukna hlutdeild í tekjustofnum ríkisins til að vinna á skuldavandanum. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka framlög til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samanlagt um 1.400 milljónir á þessu ári og næsta. 23.3.2007 18:30
Alger bylting í samgöngumálum Alger bylting verður í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu á næstu þremur til fimm árum með lagningu Sundabrautar, tvöföldun Hvalfjarðarganga og hluta Vesturlandsvegar. Heildarkostnaður við þetta er um þrjátíu milljarðar króna. Forsætisráðherra telur jákvætt að hraða Sundabraut með þátttöku Faxaflóahafna. 23.3.2007 18:30