Fleiri fréttir Erkibiskup hvetur til mótmæla Erkibiskup rómversk kaþólsku kirkjunnar í Bulawayo í Zimbabwe, Pius Ncube, hefur skorað á almenning að mótmæla þangað til Robert Mugabe, forseti landsins, segir af sér. Ncube sagðist jafnvel tilbúinn að mótmæla þó svo skothríð lögreglumanna myndi dynja á honum. 22.3.2007 23:13 Bemba leitar hælis í sendiráði Suður-Afríku Jean-Pierre Bemba, fyrrum uppreisnarleiðtogi og núverandi stjórnarandstöðuleiðtogi í Kongó, hefur leitað hælis í sendiráði Suður-Afríku eftir að fylgismönnum hans sló í brýnu við stjórnarher landsins í höfuðborginni Kinshasa í dag. Suður-afríska utanríkisráðuneytið skýrði frá þessu í kvöld. Í tilkynningunni frá utanríkisráðuneytinu var einnig tekið fram að aðeins væri um tímabundna ráðstöfun að ræða. 22.3.2007 22:58 Handtóku þrjá í tengslum við hryðjuverk Breska lögreglan handtók í dag þrjá menn sem taldir eru tengjast sjálfsmorðssprengjuárásunum í Lundúnum þann 7. júlí árið 2005. Tveir menn voru handteknir á flugvellinum í Manchester rétt áður en þeir fóru um borð í flugvél á leið til Pakistan. Þriðji maðurinn var handtekinn í heimahúsi í Leeds. 22.3.2007 22:32 Varað við óveðri á norðanverðu Snæfellsnesi Það er mjög hvasst víða um land og tæplega ferðaveður. Sérstaklega er varað við óveðri á Fróðárheiði og norðanverðu Snæfellsnesi en einnig á Vopnafjarðarheiði. Þá er viðbúið að það séu slæmar hviður norðan í Hafnarfjallinu en þar er ekki vindmælir. 22.3.2007 22:07 Ómar Ragnarsson Becomes Party Chairman 22.3.2007 22:04
Sjá næstu 50 fréttir
Erkibiskup hvetur til mótmæla Erkibiskup rómversk kaþólsku kirkjunnar í Bulawayo í Zimbabwe, Pius Ncube, hefur skorað á almenning að mótmæla þangað til Robert Mugabe, forseti landsins, segir af sér. Ncube sagðist jafnvel tilbúinn að mótmæla þó svo skothríð lögreglumanna myndi dynja á honum. 22.3.2007 23:13
Bemba leitar hælis í sendiráði Suður-Afríku Jean-Pierre Bemba, fyrrum uppreisnarleiðtogi og núverandi stjórnarandstöðuleiðtogi í Kongó, hefur leitað hælis í sendiráði Suður-Afríku eftir að fylgismönnum hans sló í brýnu við stjórnarher landsins í höfuðborginni Kinshasa í dag. Suður-afríska utanríkisráðuneytið skýrði frá þessu í kvöld. Í tilkynningunni frá utanríkisráðuneytinu var einnig tekið fram að aðeins væri um tímabundna ráðstöfun að ræða. 22.3.2007 22:58
Handtóku þrjá í tengslum við hryðjuverk Breska lögreglan handtók í dag þrjá menn sem taldir eru tengjast sjálfsmorðssprengjuárásunum í Lundúnum þann 7. júlí árið 2005. Tveir menn voru handteknir á flugvellinum í Manchester rétt áður en þeir fóru um borð í flugvél á leið til Pakistan. Þriðji maðurinn var handtekinn í heimahúsi í Leeds. 22.3.2007 22:32
Varað við óveðri á norðanverðu Snæfellsnesi Það er mjög hvasst víða um land og tæplega ferðaveður. Sérstaklega er varað við óveðri á Fróðárheiði og norðanverðu Snæfellsnesi en einnig á Vopnafjarðarheiði. Þá er viðbúið að það séu slæmar hviður norðan í Hafnarfjallinu en þar er ekki vindmælir. 22.3.2007 22:07
Níu létust vegna sprenginga í hergagnageymslu Há hitastig í höfuðborg Mósambík, Maputo, settu af stað miklar sprengingar í hergagnageymslu í dag. Níu manns létu lífið vegna sprenginganna og 99 slösuðust í þeim. Sprengingarnar urðu í hergagnageymslu sem geymdi gamlar sprengjur og eldflaugar. Þær fóru síðan í nærliggjandi hús með fyrrgreindum afleiðingum. 22.3.2007 22:00
Unglingar verða sektaðir fyrir að mæta ekki í skólann Bresk stjórnvöld ætla sér að refsa unglingum á aldrinum 16 til 18 ára sem neita að vera í námi. Samkvæmt nýrri tillögu sem brátt verður lögð fram eiga unglingarnir yfir höfði sér 50 punda sekt eða nokkurra daga samfélagsþjónustu ef þeir mæta ekki í skólann. 22.3.2007 21:27
Stálu nærfötum fyrir 785 þúsund krónur Þrír djarfir ræningjar stálu nærbuxum og brjóstahöldurum úr verslun Victoria's Secret í New Jersey í Bandaríkjunum á þriðjudaginn var fyrir andvirði um 785.000 krónur. Þeir voru með sérstakar töskur til þess að koma í veg fyrir að öryggiskerfi verslunarinnar myndi gera starfsmönnum viðvart. 22.3.2007 21:14
Eiginkona Edwards með krabbamein Elizabeth Edwards, eiginkona John Edwards sem er að vonast til þess að hljóta útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi þeirra, hefur greinst með krabbamein. Um er að ræða brjóstakrabbamein sem er að taka sig upp á ný. Nú er það komið í beinin. Upp komst þegar að hún rifbeinsbrotnaði og þurfti að fara í röntgenmyndatöku. 22.3.2007 20:40
Lögregla rannsakar dauðsfall Woolmers Lögreglan á Jamaíka rannsakar nú sviplegt fráfall þjálfara pakistanska landsliðsins í krikket sem grunsamlegt dauðsfall. Hún hefur lokið við að yfirheyra alla liðsmenn pakistanska krikketlandsliðsins og eru þeir nú frjálsir ferða sinna. Enginn er grunaður í málinu enn sem komið er. 22.3.2007 20:28
Demókratar ögra Bush Fjármálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins samþykkti í dag tillögu sem að kveður á um að George W. Bush, forseti Bandaríkjanna verði að kalla nær alla bardagabúna hermenn frá Írak fyrir 31. mars árið 2008. Ákvæðið var hluti af aukafjárveitingu til stríðsrekstursins í Írak og Afganistan. 22.3.2007 20:22
Átök í Kongó Vígamenn hliðhollir Jean-Pierre Bemba og hermenn stjórnvalda í Kongó tókust á í höfuðborginni Kinshasa í dag eftir að Bemba hunsaði tilskipun forseta landsins um að fækka í persónulegu verndarliði sínu. Bemba hefur nú nokkur þúsund menn í verndarliði sínu en má einungis hafa tólf. 22.3.2007 20:17
Varað við stormi víða um land Veðurstofa Íslands varar við stormi víða um land í kvöld og fram á nótt. Sunnanlands og vestantil verður suðlæg átt, 10-18 m/s og súld, annars þurrt að kalla. Hiti verður 2 til 8 stig. Suðaustan 18-25 í kvöld með mikilli rigningu um landið vestanvert, og síðar einnig suðaustantil. Úrkomulítið verður norðaustan- og austanlands. Suðvestan 8-15 á morgun með skúrum eða éljum um landið vestanvert, rigningu suðaustanlands, en þurrt á Norðausturlandi. Kólnar heldur. 22.3.2007 19:54
Öruggt vatn er jafnréttismál Tæpur fimmtungur jarðarbúa hefur ekki aðgang að öruggu drykkjarvatni og fjórir af hverjum tíu hafa ekki aðgang að viðunandi frárennslisaðstöðu. Hreint vatn er brýnasta jafnréttismál þróunarlandanna að mati fræðslufulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar. 22.3.2007 19:30
Ölvun og hraðakstur helsti valdur alvarlegra slysa Ölvun og hraðakstur skýra meirihluta banaslysa á síðasta ári, en slík slys hafa ekki verið fleiri síðan 1977. Þetta kom fram við kynningu á skýrslu Umferðarstofu í morgun. Flest slys og óhöpp í umferðinni verða síðdegis á föstudögum. Sem fyrr eru yngstu ökumennirnir valdir að flestum slysum. 22.3.2007 19:15
Ráðherrar funda um Sundabraut á vegum Faxaflóahafna Stjórn Faxaflóahafna fundar á morgun með forsætisráðherra, viðskiptaráðherra og samgönguráðherra um áhuga hafnaryfirvalda á því að taka að sér framkvæmd Sundabrautar. Kostnaðurinn getur verið á bilinu tuttugu til tuttugu og tveir milljarðar króna og yrði þetta langstærsta samgöngumannvirkið í einkaframkvæmd til þessa. Bæði forsætis- og samgönguráðherra fagna frumkvæðinu og líst vel á þessi áform. 22.3.2007 19:11
Samfylkingin vill fella niður innflutningsvernd á landbúnaðarvörur Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn sem vill ganga skrefi lengra til að lækka matarverð hér á landi með því að fella niður innflutningsvernd á landbúnaðarvörur. Allir flokkar, nema Sjálfstæðisflokkur, eru hins vegar á móti sölu léttvíns í matvöruverslunum. Skiptar skoðanir eru um málið innan Samfylkingar. 22.3.2007 19:01
Ný tækifæri felast í samningnum Samgönguráðherrar Evrópusambandsins náðu í morgun samkomulagi um umfangsmikinn loftferðasamning við Bandaríkin, sem búist er við að muni stórauka samkeppni á flugleiðum yfir Atlantshafið. Forstjóri Icelandair fagnar samningnum og sér í honum margvísleg tækifæri. 22.3.2007 19:00
Féll niður í lest í Grindavík Nítján ára piltur slapp ótrúlega vel þegar hann féll niður í lest um borð í fiskiskipi í Grindavíkurhöfn í dag. Hjálmur sem hann hafði á höfði er talinn hafa bjargað miklu. Pilturinn var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Borgarspítalans og reyndist handleggsbrotinn. 22.3.2007 18:52
Óvenju góð aflabrögð um land allt Mikil og góð aflabrögð eru nú nánast allt í kringum landið. Skipstjórar á Suðurnesjum segjast aldrei hafa lent í öðru eins fiskeríi og þorskurinn sé vænni en sést hafi í manna minnum. Þeir segja skilyrði í hafinu gefa tilefni til miklu meiri veiða og hvetja fiskifræðinga til að koma út á sjó og sjá þetta með eigin augum. 22.3.2007 18:48
Akureyrarsjónvarp um land allt Sjónvarpsstöðin N4, sem sent hefur út frá Akureyri undanfarin ár, hyggst hefja útsendingar á landsvísu á næstu vikum. Stjórnarformaður N4 segir sjónvarpsstöðina þá einu utan höfuðborgarsvæðisins sem haldi úti reglulegum fréttum á virkum dögum. 22.3.2007 18:45
Eldur í bensínstöð Rétt fyrir sex í kvöld kviknaði í þaki söluskála Olís á Reyðarfirði. Slökkvilið Fjarðarbyggðar kom fljótt á staðinn og slökkti eldinn. Iðnaðarmenn voru að klæða þak hússins þegar eldurinn blossaði upp. Litlar skemmdir urðu vegna eldsins en viðbúið er að einhverjar skemmdir hafi orðið vegna reyks og vatns. 22.3.2007 18:30
Sýknaður af ákæru um utanvegaakstur í gullleit Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms Austurlands og sýknaði mann af ákæru um að hafa ekið utan vegar á Skeiðarársandi og valdið skemmdum. Í málinu var deilt um hvort sú leið sem maðurinn ók umrætt sinn teldist vegur í skilningi laga. 22.3.2007 17:29
Stakk sér undir borð Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, stakk sér undir borð þegar sprengja sprakk meðan hann hélt blaðamannafund í Írak í dag ásamt Nouiri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks. 22.3.2007 17:20
Sýknaði mann af þjófnaði vegna vankanta á skýrslutöku Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um að hafa brotist inn í Skíðaskálann í Hveradölum í félagi við konu og haft þaðan á brott peninga, hitakönnu og matvæli. Maðurinn neitaði sakargiftum fyrir dómi og bar við minnisleysi. 22.3.2007 17:17
Eins árs fangelsi fyrir árás með stálkylfu Rúmlega fertugur karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með stálkylfu. Manninum hafði orðið sundurorða við fórnarlambið. 22.3.2007 17:14
Lést í bílslysi við Kotströnd í gær Konan sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi við Kotströnd í gær hét Lísa Skaftadóttir til heimilis að Engjavegi 32 á Selfossi. Lísa var 43 ára, fædd 17. janúar 1964. Hún lætur eftir sig eiginmann, fimm börn og eitt barnabarn. 22.3.2007 17:08
Heimskautaréttur verður kenndur við HA Undirritaður var samningur um að hefja meistaranám í heimskautarétti (polar law) við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri í dag. Dr. Guðmundur Alfreðsson, prófessor, mun veita náminu forstöðu. 22.3.2007 17:03
Enn snjóflóðahætta á Vestfjörðum Vegagerðin varar við hvassviðri á Snæfellsnesi og á Holtavörðuheiði en segir aðalleiðir á á Suður- og Vesturlandi víðast auðar. Þá varar Vegagerðin við snjóflóðahættu í Óshlíð og eins milli Ísafjarðar og Súðavíkur. 22.3.2007 17:02
Háskólinn í Reykjavík á heimsmælikvarða Aðstaða nemenda og starfsfólks Háskólans í Reykjavík verður á heimsmælikvarða þegar nýbyggingar skólans í Vatnsmýri verða teknar í notkun. Í dag undirritaði Háskólinn samning við Eignarhaldsfélagið Fasteign um byggingar skólans. Þær munu rísa við Hlíðarfót ofan við Nauthólsvík og verða samtals 34 þúsund fermetrar. 22.3.2007 15:46
Hyggjast styrkja sjóvarnagarða í Vesturbænum Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar undirbýr að styrkja sjóvarnagarða við Ánanaust og Eiðisgranda í vesturbæ Reykjavíkur vegna þess að sjór hefur þar ítrekað gengið á land. 22.3.2007 15:38
Ökufantur lofaði bót og betrun Hálffertugur karlmaður var stöðvaður á Reykjanesbraut í gær eftir að hafa ekið langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Í samtali við lögreglumenn sagðist maðurinn skammast sín.Maðurinn hefur margsinnis verið tekinn fyrir hraðakstur. En hann lofaði bót og betrun varðandi aksturslag. 22.3.2007 15:23
Vill vinnuverndarráð í stað stjórnar Vinnueftirlitsins Ríkisendurskoðun vill að stjórn Vinnueftirlits ríkisins verði lögð niður og í stað hennar komi sérstakt vinnuverndarráð sem skipað verði fulltrúum aðila vinnumarkaðarins. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á Vinnueftirlitinu segir að stjórn Vinnueftirlitsins hafi ekki náð að laga sig að breyttu hlutverki sínu sem ráðgefandi stjórn og hafi það torveldað samskipti stofnunar og félagsmálaráðuneytis. 22.3.2007 15:21
Herjólfur fer ekki seinni ferðina í dag Herjólfur fer ekki seinni ferð sína í dag vegna veðurs eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Eimskipi sem rekur ferjuna. 22.3.2007 14:59
Óvissuferð með júmbó þotu Í fyrramálið fara 550 starfsmenn Eimskips og dótturfélaga þess í óvissuferð með breiðþotu Atlanta flugfélagsins. Mikil spenna ríkir meðal starfsfólksins um hver áfangastaðurinn verður segir í tilkynningu frá félaginu. Flogið verður á Boeing 747-300 vél Atlanta. En flugfélagið er eitt af dótturfyrirtækjum félagsins. 22.3.2007 14:58
Helstu fljót heimsins í hættu Talið er að um fimm þúsund börn láti lífið daglega vegna skorts á hreinu drykkjarvatni. Margir óttast að þetta eigi enn eftir að versna, bæði vegna loftslagsbreytinga og annarra þátta. Því er til dæmis haldið fram að mörg helstu fljót heimsins séu í hættu vegna aðgerða mannanna. Það er sagt hafa mjög slæm áhrif á fljót og vötn að setja þar stíflur, eða breyta farvegi. 22.3.2007 14:22
Sinfónía Norðurlands gerir tímamótasamning Nýr samningur á milli Akureyrarbæjar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands var undirritaður í dag. Samningurinn tekur til starfsemi hljómsveitarinnar næstu þrjú árin. Með honum er tryggð áframhaldandi starfsemi hljómsveitarinnar. Framlög hækka um samtals 10,5 m.kr. á samningstímanum. 22.3.2007 14:13
Umhverfismál, hagstjórn og nýsköpun hjá Íslandshreyfingunni Umhverfismál, bætt hagstjórn, betri kjör aldraðra og öryrkja og nýsköpun og jöfnuður eru þau mál sem nýr stjórnmálaflokkur, Íslandshreyfingin - lifandi land leggur áherslu á. Flokkurinn kynnti stefnu sína í dag í Þjóðmenningarhúsinu 22.3.2007 14:03
Gore gagnrýndur fyrir eigin orkunotkun. Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, skoraði í gær á Bandaríkjaþing að grípa til aðgerða gegn hlýnun jarðar sem allra fyrst. Þingmenn gagnrýndu Gore á móti fyrir eigin orkunotkun. 22.3.2007 13:45
Lögregluhundur fann fíkniefni í bíl Karlmaður um tvítugt var handtekinn í austuhluta Reykjavíkur í gærkvöldi. Lögregla fann tvö grömm af ætluðu amfetamíni í fórum hans. Í framhaldinu leituðu var leitað í bíl mannsins. Lögregluhundur fann þá um 30 grömm af sama efni sem falið hafði verið í bifreiðinni. Á heimili mannsins fundust einnig tæki og áhöld til neyslu og dreifingar á fíkniefnum. 22.3.2007 13:39
Afmælistónleikar kvennakórs Kópavogs Kvennakór Kópavogs heldur afmælistónleika í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 25. mars. Gestir á tónleikunum eru Regína Ósk og Englakórinn, undir stjórn Natalíu Chow Hewlett. Í byrjun apríl leggst kórinn síðan í víking til Búdapest og tekur þar þátt í kórakeppni sem ber heitið Musica Mundi. Stofnandi kórsins er Natalia Chow Hewlett og undirleikari frá upphafi er Julian Hewlett. 22.3.2007 13:25
Samkeppnin mun að líkindum stóraukast Leiðtogar Evrópusambandsins náðu í morgun samkomulagi um umfangsmikinn loftferðasamning við Bandaríkin sem búist er við að muni stórauka samkeppni á flugleiðum yfir Atlantshafið. 22.3.2007 13:06
Reyna á að koma í veg fyrir að sjór gangi á land Verkfræðistofa vinnur að tillögum um aðgerðir til að koma í veg fyrir að sjór gangi á landi í Ánanaustum í Reykjavík, eins og gerðist í gærkvöldi og hlaust talsvert tjón af. 22.3.2007 12:45
Ógrynni af þorski Ógrynni af þorski eru í Faxaflóanum og verða sjómenn á línubátum að leggja mun færri bjóð í sjó en venjulega, til þess að fá ekki of mikinn afla í einu. Annarsvegar hætta þeir ekki á að ofhlaða bátana og hinsvegar vilja þeir ekki ofbjóða mörkuðunum, því þá lækkar fiskverðið. Þá þykir þorskurinn vænni en verið hefur um árabil. 22.3.2007 12:30
Tekur vel í að Faxaflóahafnir leggji Sundabraut Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tekur vel í þá hugmynd að Faxaflóahafnir standi að því að leggja Sundabrautina. Segir hann að breyting á lagaumhverfi opni á þann möguleika að einkaaðilar taki að sér einkaframkvæmdir eins og þarna verði þá um að ræða. 22.3.2007 12:21