Fleiri fréttir Býst ekki við misskilningi Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, segir að hún búist ekki við miklum misskilningi vegna vefsíðunnar island.is. Hún segir að Íslenskir netnotendur séu vanir því að heiti vefslóða séu ekki með íslenskum stöfum. 8.3.2007 16:32 Félagsmálaráðherra frestaði framsöguræðu og fór heim Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem fékk aðsvif í miðri ræðu á Alþingi í morgun, hætti við að halda ræðunni áfram á Alþingi síðdegis og fór heim. Læknar hafa sagt honum að hvíla sig. Hann hafði ætlað að mæla fyrir jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára, og halda ræðuna sem hann þurfti að gera hlé á í morgun. 8.3.2007 16:24 Kínverskt flugmóðurskip Kínverjar segjast geta hleypt sínu fyrsta flugmóðurskipi af stokkunum árið 2010, sem veldur Bandaríkjamönnum miklum áhyggjum. Þeir óttast að Kínverjar hyggist keppa við þá um yfirráð á Kyrrahafi, og þá ekki síst í grennd við Tævan, sem Kínverjar segjast munu endurheimta með góðu eða illu. 8.3.2007 16:22 Ný lyfjastefna Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag nýja lyfjastefnu til ársins 2012. Í lyfjastefnunni eru dregin fram þau atriði sem betur mega fara í lyfjamálum á Íslandi og sett fram áætlun um úrbætur. Stefnan var samin af 18 manna nefnd sem ráðherra skipaði um málið í september 2004. 8.3.2007 15:35 Hamingjuóskum rignir yfir Varmársamtökin „Þetta er viðurkenning á því sem við höfum verið að berjast fyrir og áfangasigur fyrir skipulagsmál almennt á Íslandi,“ sagði Sigrún Pálsdóttir stjórnarmaður Varmársamtakanna. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað í morgun að endurskoða deiliskipulagsgögn fyrir Helgafellsveg um Álafosskvos og auglýsa skipulagstillöguna ásamt umhverfisskýrslu að nýju. 8.3.2007 15:35 Respecting Cultural Heritage 8.3.2007 15:34 Sameignarákvæði í stjórnarskrá nái til allra náttúruauðlinda Íslands Samkomulag hefur tekist milli stjórnarflokkanna um auðlindamálið. Samkomulagið gerir ráð fyrir, að formenn flokkanna flytji frumvarp til stjórnarskipunarlaga í eigin nafni þar sem ákvæðið um þjóðareign í lögum um fiskveiðar verði sett inn í stjórnarskrá og látið gilda um allar náttúruauðlindir Íslands. 8.3.2007 15:28 Esja, a New Peak in the Musical Landscape 8.3.2007 15:12
Sjá næstu 50 fréttir
Býst ekki við misskilningi Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, segir að hún búist ekki við miklum misskilningi vegna vefsíðunnar island.is. Hún segir að Íslenskir netnotendur séu vanir því að heiti vefslóða séu ekki með íslenskum stöfum. 8.3.2007 16:32
Félagsmálaráðherra frestaði framsöguræðu og fór heim Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem fékk aðsvif í miðri ræðu á Alþingi í morgun, hætti við að halda ræðunni áfram á Alþingi síðdegis og fór heim. Læknar hafa sagt honum að hvíla sig. Hann hafði ætlað að mæla fyrir jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára, og halda ræðuna sem hann þurfti að gera hlé á í morgun. 8.3.2007 16:24
Kínverskt flugmóðurskip Kínverjar segjast geta hleypt sínu fyrsta flugmóðurskipi af stokkunum árið 2010, sem veldur Bandaríkjamönnum miklum áhyggjum. Þeir óttast að Kínverjar hyggist keppa við þá um yfirráð á Kyrrahafi, og þá ekki síst í grennd við Tævan, sem Kínverjar segjast munu endurheimta með góðu eða illu. 8.3.2007 16:22
Ný lyfjastefna Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag nýja lyfjastefnu til ársins 2012. Í lyfjastefnunni eru dregin fram þau atriði sem betur mega fara í lyfjamálum á Íslandi og sett fram áætlun um úrbætur. Stefnan var samin af 18 manna nefnd sem ráðherra skipaði um málið í september 2004. 8.3.2007 15:35
Hamingjuóskum rignir yfir Varmársamtökin „Þetta er viðurkenning á því sem við höfum verið að berjast fyrir og áfangasigur fyrir skipulagsmál almennt á Íslandi,“ sagði Sigrún Pálsdóttir stjórnarmaður Varmársamtakanna. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað í morgun að endurskoða deiliskipulagsgögn fyrir Helgafellsveg um Álafosskvos og auglýsa skipulagstillöguna ásamt umhverfisskýrslu að nýju. 8.3.2007 15:35
Sameignarákvæði í stjórnarskrá nái til allra náttúruauðlinda Íslands Samkomulag hefur tekist milli stjórnarflokkanna um auðlindamálið. Samkomulagið gerir ráð fyrir, að formenn flokkanna flytji frumvarp til stjórnarskipunarlaga í eigin nafni þar sem ákvæðið um þjóðareign í lögum um fiskveiðar verði sett inn í stjórnarskrá og látið gilda um allar náttúruauðlindir Íslands. 8.3.2007 15:28
Rafræn skilríki á Íslandi Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, tóku í dag í notkun fyrsta rafræna skilríkið hér á landi. Opnaður hefur verið nýr upplýsingavefur um rafræn skilríki, skilriki.is. 8.3.2007 15:09
Chirac kveður á sunnudaginn Búist er við að Jacques Chirac, forseti Frakklands, tilkynni á sunnudaginn að hann muni ekki bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Tilkynnt hefur verið að forsetinn muni flytja ávarp í sjónvarpi klukkan 7 á sunnudagskvöld. 8.3.2007 15:08
Palestínsk þjóðstjórn kynnt í næstu viku Palestínsk þjóðstjórn er 99 prósent tilbúin, að sögn Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Abbas átti í dag fund með Ismail Haniyeh forsætisráðherra Hamas í núverandi heimastjórn. Ráðherralisti verður kynntur í næstu viku, en líklega ekki fyrr en eftir fund sem Abbas mun þá eiga með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. 8.3.2007 14:45
Sjö milljarða tekjuauki af erlendum ferðamönnum Rúmlega sjö milljarða tekjuauki varð af erlendum ferðamönnum á síðasta ári miðað við árið 2005. Samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Íslands voru heildargjaldeyristekjur af erlendum gestum tæpir 47 milljarðar króna á síðasta ári, en voru tæpir 40 milljarðar árið 2005. 8.3.2007 14:39
Skrifræði skrattans Serbneskur maður varð svo reiður yfir skrifræðinu sem kom í veg fyrir að hann gæti gefið konunni sinni gjöf á baráttudegi kvenna, að hann fór á tollstofuna með járnstöng og braut þar allt og bramlaði. Sasa Dunesijevits keypti á síðasta ári franska örbílinn Axiam 500, sem er svo nettur að það má keyra hann ef maður hefur próf á skellinöðru. 8.3.2007 14:11
Samningur við Eir stenst ekki lög Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir vinnubrögð meirihluta varðandi uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Spöng. Málið var tekið fyrir í borgarráði í dag. Fyrirætlanir meirihlutans um að semja beint við Eir um byggingu menningarmiðstöðvarinnar án útboðs standast ekki sveitastjórnarlög. Þetta segir í bókun sem fulltrúar minnihluta í borgarstjórn lögðu fram í ráðinu í dag. 8.3.2007 14:01
Danir vilja eldflaugar Danska ríkisstjórnin vill verða þáttakandi í eldflaugavarnakerfinu sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Evrópu. Sören Gade, varnarmálaráðherra hefur margsinnis lýst þessu yfir og Per Stig Möller, utanríkisráðherra, er sammála. 8.3.2007 13:44
Netvistun á ísland.is Fyrirtækið Netvistun ehf. hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna vefsíðunnar island.is sem Forsætisráðuneytið hefur verið að kynna. Vefsíðan hefur verið kynnt sem ísland.is með íi en það lén er í eigu Netvistunnar. 8.3.2007 13:41
Fjármálafyrirtæki styðja meistaranám hjá Háskólanum á Akureyri Fjármálafyrirtækin Saga Capital, Sparisjóður Norðlendinga og fleiri sparisjóðir, Glitnir og Íslensk verðbréf ætla að styðja við uppbyggingu meistaranáms í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Skrifað var undir samstarfssamning um faglegan og fjárhagslegan stuðning fyrirtækjanna við verkefnið í morgun. 8.3.2007 13:29
Segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg Sighvatur Björgvinsson, forstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg og það beri vott um valdhroka að leggja stofnunina niður og sameina ráðuneytinu. Hann segir þetta svipað og að leggja Vegagerðina niður og sameina samgönguráðuneytinu. 8.3.2007 13:23
Ekki áhugamaður um báta Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings sagðist í þrígang hafa verið í bátum á Miami, bátum sem teknir eru fyrir í Baugsmálinu. Hann sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegið að hann væri þó ekki áhugamaður um báta og vissi ekki hvort um hefði verið að ræða Thee Viking sem tekist hefur verið á um. 8.3.2007 13:04
Kínverjar til tunglsins Kínverjar ætla að senda könnunargeimfar til tunglsins á þessu ári og senda mannað geimfar þangað innan fimmtán ára. Kínverjar hafa tvisvar sent mönnuð geimför á braut um jörðu, það fyrra árið 2003. Þeir eru því þriðja geimferðaþjóðin, á eftir Rússum og Bandaríkjamönnum. 8.3.2007 12:36
Semja verður við uppreisnarmenn David Petraeus, yfirmaður Bandaríkjahers í Írak, segir útilokað að koma á friði í Írak með hernaðaraðgerðum einum saman heldur verði að fá uppreisnarmenn að samningaborðinu. Á blaðamannafundi í morgun sagði hann teikn á lofti um að átök trúarhópa í landinu væru í rénun. 8.3.2007 12:30
Tillögur um jafnréttislög of róttækar Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðismanna við endurskoðun jafnréttislaga, segir tillögur nefndarinnar of róttækar. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur hefur síðan í sumar setið við endurskoðun jafnréttislaga, sem fyrst voru sett fyrir 30 árum. 8.3.2007 12:21
Hvort er frétt; húsleit eða blaðamaður Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Kaupthing bank í Luxemborg sagði í morgun að það hefði vakið grunsemdir hjá honum hvernig blaðamaður Morgunblaðsins gat vitað af húsleit í bankanum á undan honum. Þetta sagði hann í skýrslutöku vegna Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. 8.3.2007 11:57
Vilja láta kjósa í lávarðadeildina Breskir þingmenn kusu um það í kvöld hvort að það ætti að kjósa í lávarðadeild breska þingsins. Tillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Hingað til hafa sæti í deildinni erfst eða verið skipað í þau. Engu að síður er kosningin ekki bindandi en hún gefur til kynna hvað þingið mun leggja til þegar lávarðadeildin verður endurskipulögð síðar á árinu. 7.3.2007 23:21
Bush gagnrýnir Chavez George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í viðtali sem birtist í dag að efnahagsstefna Hugo Chavez, forseta Venesúela, myndi leiða til enn meiri fátæktar í landinu. Viðtalið er birt rétt áður en Bush leggst í ferðalag um Suður-Ameríku sem á að vara við hentistefnu af því tagi sem Bush segir Chavez stunda. 7.3.2007 22:45
Gates vill slaka á innflytjendalögum Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, varaði við því í dag að höft sem sett eru á að hæfir erlendir starfsmenn megi starfa í Bandaríkjunum skerði samkeppnishæfi landsins. Ummæli Gates eru nýjasta árásin á innflytjendalög í tæknigeiranum í Bandaríkjunum en hann vantar sárlega starfsfólk. 7.3.2007 22:30
Samkynhneigðir vilja í bandaríska herinn Tólf fyrrum hermenn í bandaríska hernum, sem eru samkynhneigðir, fóru í dag í mál við ríkisstjórn Bandaríkjanna til þess að fá aftur inngöngu í herinn. Þeim hafði verið vísað úr hernum fyrir að vera samkynhneigð. Í dag er stefna hersins gagnvart samkynhneigðum sú að herinn má ekki spyrja við inngöngu hvort að viðkomandi sé samkynhneigður. Ef það kemst hins vegar upp er hernum heimilt að vísa viðkomandi úr hernum. 7.3.2007 22:00
Búa til reglur um umgengni við vélmenni Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur sett saman nefnd sem á að setja vinnureglur fyrir þá sem búa til vélmenni. Reglurnar eiga að skilgreina hvernig mannfólkið á að umgangast vélmenni og hvernig þau eiga að umgangast mannfólkið. Skýrslan verður tilbúin síðar á þessu ári. 7.3.2007 21:45
Nowak rekin frá NASA Lisa Nowak, geimfarinn sem reyndi að ræna keppinaut sínum um ástir annars geimfara, hefur verið rekin frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA). Brottreksturinn kemur í kjölfar þess að lögregla kærði hana fyrir tilraun til mannráns. 7.3.2007 21:30
Tyrkir loka á YouTube Tyrkir hafa lokað fyrir aðgang að hinni vinsælu vefsíðu YouTube. Ástæðan fyrir þessu er að einhver setti myndskeið á síðuna þar sem gert var grín að stofnanda nútíma Tyrklands, Mustafa Kemal Ataturk, en í Tyrklandi er ólöglegt að gera grín að honum. 7.3.2007 21:00
Deila Rússa og Írana enn óleyst Deilan á milli Rússa og Írana varðandi afborganir af kjarnorkuverinu sem Rússar ætla að byggja í Íran er enn óleyst. Þjóðirnar áttu sáttafund í dag en eftir sex tíma setu var fundinum slitið. Viðræðurnar halda áfram á morgun. Bandaríkin hafa reynt að setja pressu á Rússa til þess að koma í veg fyrir að þeir byggi kjarnorkuverið en þeir halda því fram að Íranar ætli sér að auðga úran í því og nota til vopnaframleiðslu. 7.3.2007 20:36
Abdullah skorar á Bandaríkin Konungurinn í Jórdaníu, Abdullah, hefur skorað á Bandaríkin til þess að beita sér fyrir friði í Mið-Austurlöndum. Þetta sagði hann á sameiginlegum þingfundi öldungadeildarinnar og fulltrúadeildarinnar. Hann sagði einnig að deilan á milli Ísraela og Palestínumanna væri mikilvægari en ástandið í Írak. 7.3.2007 20:13
Loftsteinn á stofugólfinu búum húss, í Bloomingdale í Illinois í Bandaríkjunum, varð allhverft við í fyrrakvöld þegar heljarinnar brothljóð kvað við úr stofunni . Undrun þeirra varð ekki minni þegar í ljós kom að á stofugólfinu lá loftsteinn sem þeyst hafði úr himingeimnum inn í gufuhvolf jarðar og svo beina leið í gegnum rúðuna hjá þeim. 7.3.2007 19:30
Sátt um auðlindaákvæðið á næstu dögum Formenn stjórnarflokkanna stefna að sameiginlegri niðurstöðu um auðlindaákvæðið sem framsóknarmenn hafa lagt þunga áherslu á að fari inn í stjórnarskrá. Forsætisráðherra á von á því að lending náist í málinu á næstu dögum. 7.3.2007 19:30
Gáfu smákrökkum marijúana Tveir unglingspiltar, frá Texas í Bandaríkjunum, hafa verið hnepptir í varðhald eftir að myndband sýndi þá láta tvo drengi, tveggja og fimm ára gamla, reykja marijúana. 7.3.2007 19:15
Fundað með samgöngunefnd Alþingis Borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaga krefjast þess að framlög ríkisins til samgöngumála á höfuðborgarsvæði verði ríflega tvöfölduð frá því sem áformað er í samgönguáætlun 7.3.2007 19:15
Eldur á vélaverkstæði í Stapahrauni Eldur kviknaði á vélaverkstæði í Stapahrauni í Hafnarfirði um klukkan hálfsjö í kvöld. Allt tiltækt lið var kallað út vegna atviksins sem reyndist síðan ekki jafn mikið og óttast var. Eldurinn var í lítilli skemmu, í einu rými af þremur í henni. Engin hætta stafar af eldinum og ekki er óttast að hann breiðist út. Slökkviliðsmenn eru nú að fullvissa sig um að enginn eldur sé lengur í skúrnum og eru að rífa þakið af honum til þess. 7.3.2007 19:09
Ísland.is komið á netið Ferðum manna á opinberar stofnanir gæti fækkað, nú þegar íslenska vefgáttin ísland.is hefur verið opnuð. Það var forsætisráðherra sem fór fyrstur manna á slóðina. 7.3.2007 19:04
Snjóflóð á Ísafirði undanfarinn sólarhring Snjóflóð féll á varnargarðinn, við Sorpbrennslustöðina Funa á Ísafirði, á níunda tímanum í morgun. 7.3.2007 19:00
Launaleynd hugsanlega aflétt Launaleynd verður aflétt og fyrirtæki verða sektuð fyrir brot á jafnréttislögum ef frumvarp, sem þverpólitísk nefnd hefur samið, nær fram að ganga. Guðrún Erlendsdóttir, formaður nefndarinnar, vonast til að launajafnrétti verði náð innan tíu ára. 7.3.2007 18:50
Norður-Írar ganga að kjörborðinu Þingkosningar standa nú yfir á Norður-Írlandi og hefur kjörsókn verið jöfn og þétt í allan dag. Fimm ár eru liðin frá því norðurírska þingið kom síðast saman. 7.3.2007 18:45
Aron Pálmi blandast í hneykslismál sem skekur Texas Aron Pálmi Ágústsson hefur verið beðinn að vitna í pólitísku hneykslismáli sem skekur Texas-fylki í Bandaríkjunum. Yfirvöld barnafangelsa í fylkinu og ríkisstjórinn eru sakaðir um að hylma yfir víðtæku kynferðislegu ofbeldi gegn ungmennum í fangelsunum. Aron, sem lýkur afplánun á tíu ára dómi sínum eftir fimm mánuði, vill vitna um eigin reynslu af kynferðisofbeldinu en óttast hefndaraðgerðir. Hann hefur beðið sendiráðið um stuðning. 7.3.2007 18:45
26 láta lífið í sprengjuárás í Írak Sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp á kaffihúsi í bæ norðaustur af Bagdad í dag. Samkvæmt lögreglu á staðnum létu að minnsta kosti 26 manns lífið. Sprengingin átti sér stað í bænum Balad Ruz en þar búa bæði sjía og súnní múslimar. Talið er að allt að 35 manns hafi særst í árásinni. 7.3.2007 18:30
Evrópusambandið og Rússland ræða kjöt Sérfræðingar Evrópusambandsins í matvælamálum ferðast til Rússlands í næstu viku til þess að eiga viðræður við Rússa til þess að koma í veg fyrir hugsanlegt bann á innflutning á kjöti frá Evrópusambandinu. Rússneska matvælastofnunin sendi Evrópuráðinu beiðni um að það gerði hreint fyrir sínum dyrum varðandi leifar af bönnuðum og hættulegum efnum í dýrakjöti og fæði frá Evrópusambandinu. 7.3.2007 18:15
Lilja Viðarsdóttir sendiherra látin Lilja Viðarsdóttir sendiherra og aðstoðarframkvæmdastjóri Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) andaðist á Landspítala – háskólasjúkrahúsi fyrr í dag, 49 ára að aldri, eftir stutta sjúkrahúslegu. 7.3.2007 17:43