Fleiri
Þrír hröpuðu til bana 14.1.2007 14:09 Sarkozy í forsetaframboð í Frakklandi Hinn hægri sinnaði ríkisstjórnarflokkur Frakklands, UMP hefur valið Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra frambjóðanda sinn í forsetakosningunum sem fara fram í sumar. Hættulegasti andstæðingur Sarkozys í þeim kosningum verður frambjóðandi sósíalista Segolene Royal. 14.1.2007 14:02 Festist í kattalúgu Konu í Oregon í Bandaríkjunum brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar hún fann feitan kött fastann í kattalúgunni sinni. Kötturinn, sem er nokkuð feitur og kallaður Herkúles, ætlaði sér inn í húsið í leit af kattamat. 14.1.2007 14:00 Rice í Mið-Austurlöndum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Ramalla á Vesturbakkanum í morgun til viðræðna við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Fulltrúar Fataha og Hamas hafa síðustu vikur fundað stíft og reynt að mynda starfhæfa þjóðstjórn Palestínumanna. Þær viðræður munu hafa gengið vel og gerði Abbas grein fyrir gangi þeirra á fundi sínum með Rice í morgun. 14.1.2007 13:45 Hreinsunarstarfi haldið áfram Norskir sérfræðingar vinna nú við að hreinsa upp olíuna sem lak úr flutningaskipinu Server sem strandaði við vesturströnd Noregs í fyrrakvöld. Skipið brotnaði í tvennt og tæp 300 tonn af olíu fóru í sjóinn. Skipverjar voru 25 og öllum bjargað. 14.1.2007 13:30 Ræðir ekki við fjölmiðla fyrst um sinn Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. 14.1.2007 13:15 Ofsaveður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð Ofsaveður gengur nú yfir Norður-Jótland í Danmörku. Vindhraðinn mun á við fellibyl, ferjusiglingum hefur verið aflýst og fólk er hvatt til að halda sig heima. Einnig er varað við vondu veðri í Noregi og Svíþjóð. 14.1.2007 13:10 Íranar vilja sína menn lausa 14.1.2007 10:51 Víða vond færð Það er hálka og éljagangur á Reykjanesbraut og sömuleiðis á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er hálka og skafrenningur og víða þæfingur í uppsveitum. 14.1.2007 10:46 Skíðasvæði lokuð fyrir sunnan opin annarsstaðar Þrátt fyrir að snjó hafi kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga verður lokað í Bláfjöllum og Skálafelli í dag. Grétar Hallur Þórisson forstöðumaður skíðasvæðanna sagði í samtali við fréttastofu í morgun að snjórinn væri svo þurr og léttur að grjót stæði upp úr um leið og hann hreyfði vind. 14.1.2007 10:38 Segir Sjálfstæðisflokkinn vilja sópa evrutali út af borðinu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir að íslenska krónan sé ákveðið vandamál og vill skoða hvaða leiðir séu færar aðrar en að ganga í Evrópubandalagið. Hún segir einnig að óskapleg viðkvæmni ríki hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu máli og þau vilji helst sópa öllu evrutali út af borðinu. 13.1.2007 22:45 Hillary vill fækka hermönnum í Írak Hillary Clinton telur að hvorki Bandaríkjamenn né Írakar geti komið á friði í Írak. Hún kom þangað í dag í sína þriðju heimsókn og segir að það skeri sig í hjartað að sá að ástandið versni stöðugt. 13.1.2007 21:30 Blaðamenn fá kaldar kveðjur frá Pútin Vladimir Putin sendi blaðamönnum kaldar kveðjur í dag, í tilefni af því að haldið er upp á "Dag fjölmiðla". Þess er minnst að þá hófst útgáfa á fyrsta dagblaði Rússlands, Vedomosti, sem Pétur mikli hleypti af stokkunum. Níu blaðamenn og ritstjórar hafa verið myrtir í Rússlandi, á þessu ári, og margir fjölmiðlar hafa fundið heitan andardrátt Kremlar aftan á hnakkanum. 13.1.2007 20:37 Beckham undrandi á leikbanni David Beckham er undrandi á þeim orðum Fabios Capellos, þjálfara Real Madrid að hann muni ekki leika fleiri leiki með liðinu. Capello sagði á blaðamannafundi í dag að Beckham myndi æfa með Real Madrid, en ekki spila neina leiki. 13.1.2007 20:22 Miklar mótmælagöngur á Spáni Hundruð þúsunda Spánverja fóru í dag í þöglar friðargöngur í mörgum borgum landsins. Fólkið var að mótmæla því að aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, rufu níu mánaða vopnahlé sitt fyrir tveim vikum með gríðarlegri bílsprengju sem varð tveim mönnum að bana á flugvelli Madridar. 13.1.2007 20:00 Forsetaflugvél rekin úr lofthelgi Mexíkós Mexíkó rak flugvél forseta Tævans út úr lofthelgi sinni, fyrr í þessari viku, að beiðni stjórnvalda í Kína. Kínverjar líta á Tævan sem hluta af Kína og hafa hótað að endurheimta eyjuna með vopnavaldi, ef Tævanar selja sig ekki sjálfviljugir undir stjórn þeirra. 13.1.2007 19:38 Drengjum bjargað úr klóm mannræningja Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst í gær heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannrán. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 19:15 Sjá næstu 50 fréttir
Abbas, Olmert og Rice funda Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur samþykkt að funda með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Bandarískir sendifulltrúar greindu frá þessu fyrir stundu. Óvíst er hvenær blásið verður til fundarins. 15.1.2007 12:15
Svört skýrsla um Byrgið Skýrsla Ríkisendurskoðunar um rekstur meðferðarheimilisins Byrgisins verður birt nú eftir hádegi. Búast má við svartri skýrslu ef miðað er við að Ríkisendurskoðandi þótti ástæða til að stöðva greiðslur til Byrgisins áður en rannsókn lauk. 15.1.2007 12:04
Bush játar að hafa gert ástandið verra George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi í viðtali við fréttamann 60 mínútna í gær að ákvarðanir hans hefðu gert ástandið í Írak óstöðugara en það var áður. Í því sagði Bush að ofbeldið á milli trúarhópa í Írak gæti leitt til hryðjuverkaárása í Bandaríkjunum. Því væri nauðsynlegt að ná stjórn á ástandinu þar í landi. 15.1.2007 11:56
Bilun í símstöð veldur fjarskiptatruflunum Bilun er í símstöð sem veldur truflunum á síma, neti og farsímaþjónustu hjá Vodafone í Grafarholti, Grafarvogi, Borgarholti og Mosfellsbæ. Unnið er að viðgerð. 15.1.2007 11:52
Kútter Sigurfari verður sjófær á ný Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja 60 milljónum króna á næstu 5 árum til endurgerðar og varðveislu kútters Sigurfara, sem staðið hefur við Byggðasafn Akraness undanfarin ríflega 30 ár, með það fyrir augum að gera skipið sjófært á ný. 15.1.2007 11:45
ESB harmar loftárásir Formaður neyðarhjálpar Evrópusambandsins, Louis Michel, sagði í dag að sprengjuárásir Bandaríkjanna í suðurhluta Sómalíu gætu aukið á ofbeldi á svæðinu. Michel sagði að í síðustu viku að árásir Bandaríkjanna hefðu ekki gert aðstæður betri á neinn hátt. 15.1.2007 11:39
Stutt kosningaþing hefst í dag Alþingi kemur saman á ný í dag eftir fimm vikna jólahlé. Búast má við snarpri törn næstu tvo mánuði en gert er ráð fyrir að þinginu verði slitið óvenju snemma í ár, eða 15. mars, vegna alþingiskosninganna í vor. 15.1.2007 11:37
Ökumaður og farþegar undir áhrifum kókaíns Ökumaður bifreiðar sem ók utan í vegrið í Svínahraun á laugardagsmorgun er grunaður um að hafa verið undir áhrifum kókaíns. Tveir aðrir karlmenn voru í bílnum og er einnig talið að þeir hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Mennirnir eru á þrítugsaldri. 15.1.2007 11:35
Ísraelar stækka stærstu landnemabyggðina á Vesturbakkanum Ísraelar hafa tilkynnt um stækkun landnemabyggðar á Vestubakkanum á sama tíma og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á ferð um Miðausturlönd til þess að reyna að koma á friði milli Ísraela og Palestínumanna. 15.1.2007 11:27
Varúð: Grýlukerti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum, sem er víða að finna þessa dagana, og segir ljóst er að af þeim getur stafað nokkur hætta. Full ástæða sé því til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát. Lögreglan biður eigendur og umráðamenn húsa að bregðast við, og vísar til skyldu þeirra í þessum efnum. 15.1.2007 11:21
Jóhann Helgason bæjarlistamaður Seltjarnarness Tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason hefur verið valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness 2007. Í fréttatilkynningu sem bærinn sendi frá sér segir að Jóhann sé einn fremsti lagahöfundur og flytjandi landsins. 15.1.2007 11:17
Réttarhöld yfir meintum hryðjuverkamönnum hefjast í Lundúnum Réttarhöld yfir sex öfgasinnuðum múslímum, sem sakaðir eru um að skipuleggja sjálfsmorðsárásir í Lundúnum í júlí árið 2005, hófust í borginni í morgun. 15.1.2007 11:08
Tilbúinn í stríð við flokksbróður vegna Suðurlandsvegar Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og samflokksmaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra, segist tilbúinn í stríð við samgönguráðherra verði vegurinn á milli Selfoss og Reykjavíkur ekki tvöfaldaður og aðgreindur í náinni framtíð. 15.1.2007 10:57
Mikið landbrot á dönsku eynni Anholt Töluvert landbrot varð á eynni Anholt í Kattegat sem tilheyrir Danmörku í óveðri sem gekk yfir Suður-Svíþjóð og Danmörku um helgina. 15.1.2007 10:47
Við hjálpum með Írak ef þið gefið okkur Palestínu Hófsöm Arabaríki segjast munu hjálpa Bandaríkjamönnum að koma á friði í Írak, ef þeir taki virkari þátt í því að endurvekja friðarferlið milli Ísraela og Palestínumanna. Þeir kalla það "Írak fyrir land," og eiga þar við sjálfstætt ríki fyrir Palestínumenn. 14.1.2007 21:30
Varnarmálaráðherra Ísraels vill sleppa Arwan Barghouti Aðstoðar varnarmálaráðherra Ísraels sagði í dag að Ísraelar yrðu að finna einhverja leið til þess að sleppa Fatah leiðtoganum Marwan Barghouti, úr fangelsi. Barghouti er hæst setti Fatah leiðtoginn sem situr í fangelsi þeirra og sá sem mestrar virðingar nýtur meðal Palestínumanna. 14.1.2007 20:20
Zapatero fer undan í flæmingi um Baska Forsætisráðherra Spánar vék sér undan því í dag að svara því hvort hann sé tilbúinn að halda áfram viðræðum við aðskilanaðarhreyfingu Baska, ETA, eftir að þeir rufu níu mánaða vopnahlé með mikilli bílsprengju, fyrir tveim vikum. Tveir menn fórust í sprengingunni. Fram til þess voru Spánverjar farnir að vona að áratuga hryðjuverkum Baska myndi brátt linna. 14.1.2007 20:15
Heimilislausir flýja Byrgið og lenda í hrakningum Forstöðumaður Gistiskýlisins, athvarfs fyrir heimilislausa karlmenn í Reykjavík, segist finna verulega fyrir vandræðum Byrgisins. Mönnum sem leita á náðir Gistiskýlisins hefur fjölgað frá því málefni Byrgisins komust í hámæli og nokkrum sinnum hefur heimilislausum mönnum verið vísað á götuna að undanförnu. 14.1.2007 19:15
Vill ekki tala við fjölmiðla enn um sinn Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. Sá þeirra sem var í haldi í á fimmta ár vill ekki segja sögu sína opinberlega enn um sinn. 14.1.2007 19:11
Leysum ekki vandamál með því að taka upp evruna, segir forstjóri Glitnis Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir bankann ekki hafa í hyggju að gera upp í evrum líkt og Straumur Fjárfestingabanki geri og getgátur hafi verið uppi um að Kaupþing sé að íhuga. Hann segir að ekki megi gleyma kostum íslensku krónunnar og vísar frekar til ábyrgðar hins opinbera. 14.1.2007 19:00
Þrír létust í ofsaveðri Níu ára gamall drengur lét lífið þegar tré féll ofan á hann í ofsaveðri sem gengið hefur yfir suðurhluta Svíþjóðar í dag. Tveir karlmenn létust til viðbótar í veðurofsanum þar. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast alvarlega í óveðri í Danmörku og Noregi. 14.1.2007 18:54
Aleinn heima George Bush sagði einhverntíma að hann myndi halda fast við stefnu sína í Írak, þótt Laura kona hans og hundurinn Barney væru þau einu sem stæðu með honum. Það líður að því. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum telja aðeins 29 prósent þjóðarinnar að forsetinn sé á réttri leið. 14.1.2007 18:33
Lítið á innflytjendur sem auðlind Benedikt sextándi páfi hvatti í dag þjóðir heims til þess að líta á farandverkamenn og innflytjendur sem auðlind en ekki vandamál. Hann hvatti einnig innflytjendur til þess að virða siði og gildi sinna nýju landa. Talsmaður Páfagarðs sagði að hans heilagleiki hefði áhyggjur af þróun í þessum málaflokki. 14.1.2007 18:01
Jimmy Carter var skelfilegur forseti Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var borinn til grafar við hátíðlega athöfn, á dögunum. Margt manna var við útförina og þeir báru mikið lofsorð á þennan eina forseta landsins sem aldrei var kjörinn í embætti. Gerald Ford talaði hinsvegar ekki sérstaklega hlýlega um starfsbræður sína, fyrr og síðar. 14.1.2007 17:35
Danska fréttastöðin TV2 í miklum vanda Hin nýja danska sjónvarpsfréttastöð TV2 er í vanda eftir að hún hefur verið sökuð um að lofa auglýsendum að þeir gætu haft áhrif á fréttaflutning stöðvarinnar. Það er brot á dönskum lögum um útvarps- og sjónvarpsrekstur, svo ekki sé minnst á traust áhorfenda. 14.1.2007 17:05
Abram fær sér nýjan bát Rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich er að láta smíða fyrir sig nýjan bát. Sem er ekki nema von, kænan sem hann á nú er ekki nema 115 metra löng og ekki með nema 40 manna áhöfn. Nú ætlar Abramovich að fá sér alvöru duggu sem verður 168 metra löng og kostar sautján milljarða króna. 14.1.2007 16:02
Biður Sýrlendinga að loka landamærum sínum Jalal Talabani, forseti Íraks kom í dag til Damaskus til þess að reyna að fá forseta Sýrlands til þess að stöðva ferðir skæruliða yfir landamæri ríkjanna. 14.1.2007 15:17
Lautinant Windsor á leið til Íraks Lautinant Harry Windsor er byrjaður þjálfun með herdeild sinni, sem á að búa hana undir þjónustu í Írak. Það þykir fréttnæmt þar sem Harry þessi er prins og þriðji í röðinni sem erfingi bresku krúnunnar. 14.1.2007 14:26
Sarkozy í forsetaframboð í Frakklandi Hinn hægri sinnaði ríkisstjórnarflokkur Frakklands, UMP hefur valið Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra frambjóðanda sinn í forsetakosningunum sem fara fram í sumar. Hættulegasti andstæðingur Sarkozys í þeim kosningum verður frambjóðandi sósíalista Segolene Royal. 14.1.2007 14:02
Festist í kattalúgu Konu í Oregon í Bandaríkjunum brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar hún fann feitan kött fastann í kattalúgunni sinni. Kötturinn, sem er nokkuð feitur og kallaður Herkúles, ætlaði sér inn í húsið í leit af kattamat. 14.1.2007 14:00
Rice í Mið-Austurlöndum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Ramalla á Vesturbakkanum í morgun til viðræðna við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Fulltrúar Fataha og Hamas hafa síðustu vikur fundað stíft og reynt að mynda starfhæfa þjóðstjórn Palestínumanna. Þær viðræður munu hafa gengið vel og gerði Abbas grein fyrir gangi þeirra á fundi sínum með Rice í morgun. 14.1.2007 13:45
Hreinsunarstarfi haldið áfram Norskir sérfræðingar vinna nú við að hreinsa upp olíuna sem lak úr flutningaskipinu Server sem strandaði við vesturströnd Noregs í fyrrakvöld. Skipið brotnaði í tvennt og tæp 300 tonn af olíu fóru í sjóinn. Skipverjar voru 25 og öllum bjargað. 14.1.2007 13:30
Ræðir ekki við fjölmiðla fyrst um sinn Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. 14.1.2007 13:15
Ofsaveður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð Ofsaveður gengur nú yfir Norður-Jótland í Danmörku. Vindhraðinn mun á við fellibyl, ferjusiglingum hefur verið aflýst og fólk er hvatt til að halda sig heima. Einnig er varað við vondu veðri í Noregi og Svíþjóð. 14.1.2007 13:10
Víða vond færð Það er hálka og éljagangur á Reykjanesbraut og sömuleiðis á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er hálka og skafrenningur og víða þæfingur í uppsveitum. 14.1.2007 10:46
Skíðasvæði lokuð fyrir sunnan opin annarsstaðar Þrátt fyrir að snjó hafi kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga verður lokað í Bláfjöllum og Skálafelli í dag. Grétar Hallur Þórisson forstöðumaður skíðasvæðanna sagði í samtali við fréttastofu í morgun að snjórinn væri svo þurr og léttur að grjót stæði upp úr um leið og hann hreyfði vind. 14.1.2007 10:38
Segir Sjálfstæðisflokkinn vilja sópa evrutali út af borðinu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir að íslenska krónan sé ákveðið vandamál og vill skoða hvaða leiðir séu færar aðrar en að ganga í Evrópubandalagið. Hún segir einnig að óskapleg viðkvæmni ríki hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu máli og þau vilji helst sópa öllu evrutali út af borðinu. 13.1.2007 22:45
Hillary vill fækka hermönnum í Írak Hillary Clinton telur að hvorki Bandaríkjamenn né Írakar geti komið á friði í Írak. Hún kom þangað í dag í sína þriðju heimsókn og segir að það skeri sig í hjartað að sá að ástandið versni stöðugt. 13.1.2007 21:30
Blaðamenn fá kaldar kveðjur frá Pútin Vladimir Putin sendi blaðamönnum kaldar kveðjur í dag, í tilefni af því að haldið er upp á "Dag fjölmiðla". Þess er minnst að þá hófst útgáfa á fyrsta dagblaði Rússlands, Vedomosti, sem Pétur mikli hleypti af stokkunum. Níu blaðamenn og ritstjórar hafa verið myrtir í Rússlandi, á þessu ári, og margir fjölmiðlar hafa fundið heitan andardrátt Kremlar aftan á hnakkanum. 13.1.2007 20:37
Beckham undrandi á leikbanni David Beckham er undrandi á þeim orðum Fabios Capellos, þjálfara Real Madrid að hann muni ekki leika fleiri leiki með liðinu. Capello sagði á blaðamannafundi í dag að Beckham myndi æfa með Real Madrid, en ekki spila neina leiki. 13.1.2007 20:22
Miklar mótmælagöngur á Spáni Hundruð þúsunda Spánverja fóru í dag í þöglar friðargöngur í mörgum borgum landsins. Fólkið var að mótmæla því að aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, rufu níu mánaða vopnahlé sitt fyrir tveim vikum með gríðarlegri bílsprengju sem varð tveim mönnum að bana á flugvelli Madridar. 13.1.2007 20:00
Forsetaflugvél rekin úr lofthelgi Mexíkós Mexíkó rak flugvél forseta Tævans út úr lofthelgi sinni, fyrr í þessari viku, að beiðni stjórnvalda í Kína. Kínverjar líta á Tævan sem hluta af Kína og hafa hótað að endurheimta eyjuna með vopnavaldi, ef Tævanar selja sig ekki sjálfviljugir undir stjórn þeirra. 13.1.2007 19:38
Drengjum bjargað úr klóm mannræningja Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst í gær heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannrán. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 19:15