Fleiri fréttir

Samræði jafngildir nauðgun ef kona hefur verið seld mansali

Dómsmálaráðherra Danmerkur segir að hægt sé að refsa viðskiptavinum vændiskvenna fyrir nauðgun, ef hann ef þeir vita að konurnar sem þeir eiga á viðskipti hafa verið seldar mansali. Mansal er mikið vandamál um allan heim og árlega eru þúsundir kvenna glaptar í vændi.

30 milljón kvenmannslausir Kínverjar

Kínversk yfirvöld hafa af því nokkrar áhyggjur að árið 2015 verða karlar á giftingaraldri þrjátíu milljónum fleiri en konurnar. Þetta er afleiðing hinnar ströngu reglu stjórnvalda um að fjölskyldur megi aðeins eiga eitt barn. Það hefur leitt til stórfelldra fóstureyðinga á stúlkubörnum, þótt það sé stranglega bannað.

Olíubílum fækkar á Reykjanesbraut

Ferðum olíuflutningabíla um Reykjanesbraut fækkar um fimmtán á sólarhring, með því að flugvélaeldsneyti er nú sett á tanka í Helguvík, en ekki Reykjavík. Fyrsta eldsneytisflutningaskipið kom til Helguvíkur í gær, með um tuttugu þúsund tonn af eldsneyti sem notað verður á

Beckham leikur ekki fleiri leiki með Real Madrid

David Beckham mun ekki spila fleiri leiki fyrir Real Madrid, þá sex mánuði sem hann á eftir af samningi sínum við félagið. Beckham hefur sem kunnugt er gengið til liðs við bandaríska félagið Galaxy, fyrir eina milljón dollara á viku.

Peron framseld til Argentínu

Isabella Peron, fyrrverandi forseti Argentíun, var í gær framseld yfirvöldum í heimalandinu. Hún er sökuð um að hafa fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum.

Síldargengd í Grundarfirði kemur sérfræðingum ekki á óvart

Þorsteinn Sigurðsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun segir síldargegndina í Grundarfirði ekki koma sérstaklega á óvart. Síldarstofninn hafi verið að styrkjast fyrir vestan land síðustu þrjú til fögur ár og 85% síldarstofnsins hafi mælst á þessum slóðum í febrúar í fyrra.

Óttast eldgos á Komoroeyjum

Almannavarnir á Comoroeyjum eru komnar í viðbragðsstöðu vegna þess að eldfjallið Karthala er enn einusinni farið að láta á sér bæra. Reykur stígur upp af fjallinu og það hafa komið snarpir jarðskjálftar. Árið 2005 þurftu tugþúsundir íbúa að flýja heimili sín vegna eldgoss í fjallinu.

Herlög í gildi í Sómalíu

Herlög verða í gildi í Sómalíu næstu þrjá mánuðina samkvæmt ákvörðun sómalska þingsins í morgun. Þar með er neyðarástandi lýst yfir í landinu. Ráðamenn segja þetta gert til að hægt verði að tryggja öryggi sómalskra borgara á ný eftir margra vikna blóðug átök við íslamska uppreisnarmenn. Þingforseti Sómalíu segir að hægt verði að framlengja gildistíma herlaga óski forseti þess formlega og þing samþykki.

Konu bjargað úr eldsvoða á Vopnafirði í nótt

Slökkvilið Vopnafjarðar var kallað út vegna bruna rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Efri hæð 2 hæða einbýlishúss stóð í ljósum logum og var kona sem tilkynnti sjálf um eldinn innikróuð í húsinu.

Fundust heilir á húfi

Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannránn. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku.

Landspítalinn lifir ekki af biðina eftir nýju húsi

Læknar efast um að Landspítalinn lifi af biðina eftir nýju sjúkrahúsi nema fundið verði bráðabirgðahúsnæði. Þeir vilja að ríkið kaupi eða leigi gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Aðstaðan núna, sé sjúklingum ekki boðleg.

Mengunarslys í Noregi

Óttast er að um þrjú hundruð tonn af hráolíu hafi lekið í sjóinn úr flutningaskipinu Server, sem strandaði við Fedje skammt norður af Björgvin í Noregi í gærkvöldi. Tuttugu og fimm skipverjum var öllum bjargað í land en skipið brotnaði í tvennt nokkru síðar. Tæp sex hundruð tonna hráolíu voru í skipinu þegar það strandaði og rétt rúm sjötíu tonn af díselolíu.

Merkel ver evruna

Angela Merkel, kanslari Þýskalands segist hafa áhyggjur af umræðu um evruna, í Frakklandi, en þar er gjaldmiðlinum kennt um meintar verðhækkanir þegar hún var tekin upp. Merkel vill að evrunni verði haldið utan við pólitíska umræðu.

Háskólinn stefnir hátt

Háskóli Íslands er á þröskuldi þess að komast á lista yfir 500 bestu háskóla í heimi og verður kominn þangað innan fárra ára. Miklu lengra er þar til skólinn mun eiga möguleika á að komast í hóp þeirra hundrað bestu, eins og rektor hefur gert að markmiði sínu.

Beckham kom til þess að spila fótbolta

Eigendur fótboltaliðsins LA Galaxy hafa í dag varið þá ákvörðun sína að semja við David Beckham en margir vilja meina að sú ákvörðun sé ekki tekin vegna hæfileika hans í knattspyrnu. Samningurinn sem var gerður við Beckham er 18 milljarða virði.

Bjór gegn glæpum

Tveir hjálpsamir menn í Flórída í Bandaríkjunum náðu að handsama ræningja sem lögregla var að leita að. Og hvernig? Jú, með því að gefa honum bjór.

Blair ver utanríkisstefnu sína

Tony Blair sagði í ræðu í dag að utanríkisstefna hans, sem felst í fyrirbyggjandi árásum, væri kannski umdeild en að hún væri rétt og að nauðsynlegt væri að halda henni áfram. Hann viðurkenndi þó að breski herinn væri of upptekinn um þessar mundir en íhaldsmenn í Bretlandi hafa sagt það vera hans einu arfleifð.

Leiðtogi norsku launþegasamtakanna sökuð um einelti

Gerd Liv Valla, leiðtogi norsku launþegasamtakanna LO, hefur verið sökuð um að leggja einstaka undirmenn sína í samtökunum í einelti. Í gær sagði Ingunn Yssen, alþjóðlegur ritari samtakanna, upp störfum eftir að hafa verið lögð í einelti af formanninum í þrjú og hálft ár. Hún hafði verið í veikindafríi í hálft ár áður en hún sagði upp starfinu.

Peron framseld til Argentínu

Isabel Peron var í dag framseld yfirvöldum í Argentínu vegna gruns um að hún hafi fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum sem forseti Argentínu. Hún tók við embætti á forseta áttunda áratug síðustu aldar eftir að eiginmaður hennar, Juan Peron, þáverandi forseti Argentínu, lést.

Kínverjar og Rússar beita neitunarvaldi

Kínverjar og Rússar beittu í dag neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðana gegn ályktun Bandaríkjamanna sem átti að setja þrýsting á stjórnvöld í Myanmar en réttindi minnihluta og stjórnarandstöðu eru virt að vettugi þar í landi.

HA sakar menntamálaráðherra um mismunun

Formaður félags háskólakennara á Akureyri sakar menntamálaráðherra um mismunun. Á Akureyri búi skólinn við hundruð milljarða króna halla meðan smjör drjúpi af hverju strái hjá Háskóla Íslands.

Handteknir fyrir að fita hundinn

Tveir breskir bræðir hafa verið dæmdir fyrir brot á dýraverndunarlögum en þeir gáfu hundinum sínum Rusty meira að éta en honum var gott. Vesalings Labradorhundurinn þyngdist um næstum fjórtán kíló á tveimur árum og eins og sjá má líkist hann meira rostungi en venjulegum hvutta.

Ekkert ferðaveður

Færð er nú slæm um allt land og á Öxnadalsheiði er snjóþekja og stórhríð og ekkert ferðaveður. Á Reykjanesbraut og öllum Suðurnesjunum er hálka og skafrenningur, sem og á Hellisheiði og Þrengslum en þar er líka éljagangur.

Ætla ekki að ráðast á Íran

Bandaríkin neituðu því í dag að þeir væru að undirbúa árásir gegn Íran og Sýrlandi þrátt fyrir að George W. Bush hafi varað löndin sterklega við á miðvikudaginn var. Þá sakaði hann stjórnvöld í löndunum tveim um að leyfa hryðjuverkamönnum að nota lönd sín sem grunnbúðir við árásir í Írak.

Samráð á tortilla markaðnum

Forseti Mexíkó, Felipe Calderon, hefur lofað því að reyna að koma í veg fyrir hækkandi verð á tortilla-kökum en þær uppistaða í fæðu margra fátækra íbúa Mexíkó. Verðið á kökunum hefur alls hækkað um 10% á síðastliðnu ári.

Dómsdagsklukkan færist nær miðnætti

Varðmenn Dómsdagsklukkunnar svokölluðu hafa ákveðið að færa hendur hennar fram á miðvikudaginn kemur vegna aukinnar kjarnorkuógnar og gróðurhúsaáhrifanna. Klukkunni, sem er viðhaldið af Fréttablaði kjarnorkusérfræðinga, er sem stendur sjö mínútur í miðnætti en miðnætti á að marka hamfarir á heimsvísu.

Forseti Írans heimsækir Venesúela

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, fór í dag í sína aðra ferð til Suður Ameríku á síðastliðnum fjórum mánuðum. Þar mun hann heimsækja Venesúela, Níkaragúa og Ekvador en forsetar þeirra landa eru eins og Ahmadinejad sjálfur, ósáttir við Bandaríkin og forseta þeirra George W. Bush.

Blindbylur á Holtavörðuheiði

Blindbylur er á Holtavörðuheiði og tveir bílar hafa farið útaf veginum. Björgunarsveitir frá Hvammstanga og Borðeyri eru á leið uppá heiði að aðstoða ökumenn.

Rúv frumvarp úr nefnd

Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf, var afgreitt úr menntamálanefnd Alþingis, eftir lítilsháttar breytingar í dag og verður væntanlega á dagskrá þingsins á mánudag. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi sendu forseta þingsins bréf í gær og báðu um að fundi menntamálanefndar yrði frestað, þar sem ný gögn frá ESA hefðu verið lögð fram, en því var hafnað

Tilkynnt um viðbrögð á næstu dögum

Félagsmálaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til þeirra aðgerða sem heyrnarlausir telja þörf á, í kjölfar könnunar á kynferðislegu ofbeldi innan samfélags heyrnarlausra.

Steingeld byggð á Slippsvæðinu

Fyrirhuguð byggð á Slippsvæðinu er steingeld með háum, stórum og ljótum húsum, segir formaður Íbúasamtaka Vesturbæjar sem vill kollvarpa hugmyndum um uppbyggingu við Mýrargötuna. Formaður skipulagsráðs segir þetta gott skipulag sem muni styrkja Vesturbæinn.

Harður árekstur við Munaðarnes

Harður árekstur varð norðan við Munaðarnes við bæinn Grafarkot rétt fyrir klukkan fjögur í dag þegar jeppi og flutningabifreið skullu saman. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanni jeppans, sem var einn á ferð, út úr bifreiðinni.

Grundarfjörður fullur af síld

Grundarfjörður er fullur af síld og náði Krossey frá Hornafirði að fylla skipið í tveimur köstum þar í dag en síld hefur ekki verið veidd í firðinum í tugi ára. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar rannsaka hvort það var þetta mikla magn síldar sem varð til þess að tuttugu tonn af eldisþorski drapst í firðinum.

Flutningaskip strandar við Noregsstrendur

Stórt flutningaskip strandaði rétt í þessu fyrir utan Bergen og hefur norska strandgæslan hafið björgunaraðgerðir til þess að koma skipverjum í land. Skipið var ekki með farm en það var á leið til Murmansk að ná í farm. Einhver hætta er talin á því að olía geti lekið úr vélarrúminu. Leki er þegar kominn að vélarrúmi skipsins en veður er slæmt á strandstað.

Dæmdur fyrir skattsvik

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag mann fyrir skattsvik og þarf hann að greiða rúmar átta milljónir í sekt til ríkissjóðs. Hann var einnig dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundins fangelsis. Maðurinn var sakfelldur fyrir að skila virðisaukaskattskýrslum og staðgreiðsluskilagreinum of seint og einnig fyrir vanskil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda.

Laug til um nauðgun og fer í fangelsi

Tuttugu og eins árs kona var í dag dæmd í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í dag, þar af sjö mánuði skilorðsbundið, fyrir að hafa kært mann fyrir nauðgun sem aldrei átti sér stað.

Gæsluvarðhald yfir síbrotamanni fellt úr gildi

Hæstiréttur Íslands felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni. Maðurinn var um miðjan desember dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir nytjastuld, skjalafals, þjófnaði og fleira. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var felldur úr gildi vegna tæknilegra atriða.

Ferguson tjáir sig um vistaskipti Beckhams

Sir Alex Ferguson segist hafa séð það fyrir að fyrrum leikmaður hans David Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að hann féll úr náðinni hjá Real Madrid. Félagar hans á Spáni segjast muni sakna hans þegar hann heldur vestur um haf. Adriano Galliani, yfirmaður AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hefði klárlega gert David Beckham tilboð ef hann hefði ekki ákveðið að fara til Bandaríkjanna.

Stóru símafélögin hafa samið við RHnet vegna truflunar á netsambandi

RHnet hefur samið við Símann um netsamband um Farice sæstrenginn á meðan á viðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum stendur. Um er að ræða 100 mb/s. Fyrr í dag var sagt frá því að RHnet hefði samið við Vodafone um netsamband um sæstrenginn á meðan á viðgerð á strengnum stendur.

Lega álvers í Helguvík ákveðin

Sveitarfélögin Reykjanesbær og Garður hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau segja frá því að sátt hafi náðst um legu lóðar fyrirhugaðs álvers í Helguvík.

90 handteknir í Guantanamo-mótmælum

90 mótmælendur voru handteknir í Washington í dag, þar sem þeir mótmæltu fangabúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo. Fólkið var að reyna að ryðjast inn í byggingu alríkisdómstólsins þegar það var handtekið.

Fyrsta barn ársins á Ísafirði fæddist í dag

Fyrsta barn ársins á Ísafirði fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði á ellefta tímanum í dag. Fréttavefur Bæjarins besta segir það hafa verið stóra og myndarlega stúlku en hún var sautján og hálf mörk og fimmtíu og einn sentimetri.

Varað við ferðalögum til Bangladesh

Breska utanríkisráðuneytið hefur varað Breta við ferðalögum til Bangladesh. Í tilkynningunni frá ráðuneytinu segir að talsvert sé um hryðjuverkaárásir í landinu og að Vesturlandabúar gætu átt á hættu að vera rænt af öfgamönnum og mótmælendum.

Sjá næstu 50 fréttir