Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hringdi bjöllunni á Wall Street Sérstakur Íslandsdagur var haldinn í Kauphöllinni við Wall Street í New York í gær. þar sem Geir Haarde forsætisráðherra hringdi bjöllu stofnunarinnar og lokaði þannig viðskiptadeginum. 22.11.2006 12:45
Höfuðborg Kýpur loks laus við sprengjur Kýpverjar fögnuðu í dag þegar höfuðborg þeirra, Níkósía, var jarðsprengjuleit var loks hætt í borginni og hún lýst sprengjulaus. Leitað hefur verið að jarðsprengjum í borginni í rúma þrjá áratugi, allt frá stríðinu árið 1974, sem varð til þess að eyjunni var skipt í tvennt. En markmiðið sem náðist í dag er aðeins áfangasigur á leiðinni að því að sprengjuhreinsa alla eyjuna. 22.11.2006 12:45
Indónesía fellst á friðargæslu í Írak Indónesía, hefur ljáð máls á því að senda friðargæsluliða til Íraks, og hvetja önnur múslimaríki til þess að gera slíkt hið sama. 22.11.2006 12:43
Íslenskar auðlindir í almannaeign? Hugmyndir hafa komið upp um að stofna Íslenska auðlindasjóðinn ohf. sem væri sjóður í eigu almennings um nýtingu og virkjunarrétt allra sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Formaður náttúruverndarsamtaka Íslands telur hugmyndina fyrirsagnakennda og nær væri að snúa henni við og vernda íslenska náttúru. 22.11.2006 12:40
Valgerður fékk verðlaun Myndstefs Valgerður Bergsdóttir myndlistarmaður hlýtur heiðursverðlaun Myndstefs í ár. Forseti Íslands afhenti Valgerði verðlaunin við athöfn í Listasafni Íslands í gær. Viðurkenningu fær hún fyrir steinda glugga í Reykholtskirkju, sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerðarsafni og fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjórnandi og myndlistarmaður. 22.11.2006 12:30
Óttast áframhaldandi víg Líbanskir stjórnmálamenn óttast að fleiri víg muni fylgja í kjölfar morðsins á Pierre Gemayel iðnaðarráðherra í gær. Þriggja daga þjóðarsorg hófst í landinu í morgun. 22.11.2006 12:30
Fundað um Sri Lanka í utanríkisráðuneytinu Fundur um ástandið á Sri Lanka, vopnahlésferlið og hlutverk friðargæslunnar verður haldinn í utanríkisráðuneytinu í dag. Fundinn sitja sérlegir fulltrúar Noregs á Sri Lanka og fulltrúar friðargæslunnar. 22.11.2006 12:21
Krónan lækkar áfram Gengi krónunnar hélt áfram að lækka í morgun eftir að hafa lækkað um 1,44% í gær. Það hefur því lækkað um rétt tæp 6% frá því að það fór að lækka umtalsvert, laust fyrir miðjan mánuðinn. Ein ástæða þessa er talin vera að engin krónubréf hafa verið gefin út í rúman mánuð, en útgáfa þeirra hefur jafnan styrkt krónuna. 22.11.2006 12:15
Tvísýnar kosningar í Hollandi Útlit er fyrir að afar mjótt verði á mununum í hollensku þingkosningunum sem fram fara í dag. Valið stendur á milli áframhaldandi hægristjórnar Jan Peters Balkenende, sem náð hefur árangri í efnahagsmálum en jafnframt fylgt umdeildri stefnu í innflytjendamálum, og fylkingar jafnaðarmanna undir forystu Wouters Bos. 22.11.2006 12:11
Sturla vill stórátak: fjórar akreinar á Akureyri og Bakkafjöru Samgönguráðherra segir að stórátak sé þegar hafið í vegamálum. Hann boðar fjögurra akreina veg norður til Akureyrar og austur að Markarfljóti en biður menn að hafa ekki fordóma gagnvart þriggja akreina vegum, því þeir valdi því að menn aki hægar. 22.11.2006 11:54
Trúarleiðtogi ákærður fyrir nauðgun Í Utah fylki í Bandaríkjunum standa nú yfir réttarhöld yfir trúarleiðtoga einum en hann er ákærður fyrir aðild að nauðgun þar sem hann neyddi 14 ára stúlku til þess að giftast 19 ára strák, en þau eru systkinabörn. Söfnuðurinn sem hann leiðir trúir því að fyrir fjölkvæni verði maður verðlaunaður á himnum. 21.11.2006 23:26
Eggert ætlar með West Ham í meistaradeildina Eggert Magnússon, verðandi formaður fótboltafélagsins West Ham í Lundúnum, sagði í viðtali við sjónvarpsstöð félagsins að hann ætlaði félaginu að keppa um sæti í meistaradeild Evrópu. Hann tók þó fram um leið að hann aðhylltist þróun frekar en byltingu hjá félaginu og mest áhersla yrði lögð á að ala upp leikmenn hjá félaginu. 21.11.2006 23:07
Búið að frelsa starfsmenn Rauða krossins Búið er að leysa báða ítölsku starfsmenn Rauða krossins úr haldi en þeim var rænt fyrr í dag en palenstínsk öryggisyfirvöld skýrðu frá því rétt í þessu. Sögðu þau að náðst hefði samband við mannræningjana og í framhaldi af því hefði tekist að frelsa mennina tvo. 21.11.2006 22:19
Neyðarástand í Horni Afríku Allt að 1,8 milljón manns hafa þurft að flýja heimili sín eða orðið fyrir áhrifum vegna flóða í Kenía, Sómalíu og Eþíópíu, en það svæði er oft nefnt Horn Afríku, en miklar rigningar hafa geysað þar að undanförnu. 21.11.2006 21:53
Dómstóll í máli al-Hariri væntanlegur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt drög að sérstökum alþjóðlegum dómstól sem mun rétta í morði fyrrum forsætisráðherra Líbanons, Rafik al-Hariri. Þessar aðgerðir af hálfu öryggisráðsins, sem voru lagðar fyrir Kofi Annan í kvöld, þýða að líbanska ríkisstjórnin þarf eingöngu að leggja blessun sína yfir dómstólinn til þess að hann geti hafið störf sín. 21.11.2006 21:31
David Blaine hangir á bláþræði Töframaðurinn David Blaine lét í dag hengja sig í 15 metra hæð yfir Times torgi í New York og mun hann hanga þar fram á föstudagsmorgunn er hann ætlar sér að losa sig sem snöggvast og hjálpa þannig fjölskyldum sem Hjálpræðisherinn þar í borg hefur ákveðið að styrkja til jólainnkaupa. 21.11.2006 21:17
Talið að átta hafi látið lífið í námuslysi í Póllandi Talið er að allt að átta manns hafi látið lífið í námuslysi sem varð nálægt bænum Ruda Slaska en pólsk sjónvarpsstöð skýrði frá því rétt í þessu. Í fyrstu var talið að einn hefði látist og að 23 væru fastir í námunni en slysið varð vegna gassprengingar um einum kílómeter undir yfirborði jarðar. Pólska lögreglan gat ekki staðfest fjölda látinna. 21.11.2006 21:04
Rauði krossinn hættir starfsemi á Gaza um óákveðin tíma Rauði krossinn hefur stöðvað starfsemi sína á Gaza svæðinu um óákveðin tíma þar sem tveimur starfsmönnum hans var rænt í dag en talsmaður Rauða krossins í Mið-Austurlöndum skýrði frá þessu fyrir stuttu. Unnu mennirnir fyrir ítalska Rauða krossinn. 21.11.2006 20:27
Bankaeigandi myrtur í Rússlandi Meðeigandi lítils banka í Rússlandi var myrtur í Moskvu í dag. Þetta kom fram í fréttum frá Interfax fréttastofunni og hefur hún heimildarmenn innan rússnesku lögreglunnar. Maðurinn hét Konstantin Meshceryakov og var skotinn í höfuðið fyrir utan heimili sitt. 21.11.2006 20:20
Samþykkt að selja hlut Reykjavíkur í Landsvirkjun Samþykkt var á sjöunda tímanum í kvöld á borgarstjórnarfundi að selja hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun. Umræður tóku langan tíma og var tillagan samþykkt með meirihlutaatkvæðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins. Borgarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Frjálslyndra greiddu hinsvegar atkvæði gegn sölunni. 21.11.2006 19:53
Bandaríski flotinn tekur ákvarðanir Utanríkisráðuneytið þarf að spyrja bandaríska flotann áður en svar er gefið um það hvort heimila megi aðgang að gögnum um hleranir íslenskra stjórnvalda á tímum kalda stríðsins. Þetta kemur fram í gögnum frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. 21.11.2006 19:37
Annað tilræði í Gaza Byssumaður skaut á og særði fyrrum ráðherra í stjórn Palestínu nú rétt í þessu. Ráðherrann heitir Abdel Aziz Shahin og er háttsettur í hinni hófsömu Fatah hreyfingu. Hann hefur líka verið mjög virkur í gagnrýni sinni á Hamas-samtökin að undanförnu. Ekki hefur enn tekist að staðfesta hversu alvarlegt ástand fyrrum ráðherrans er. Árásin átti sér stað á Gaza svæðinu. 21.11.2006 19:23
Reyndi að smygla eitruðum eðlum og snákum til Taílands Tollvörðum í Taílandi tókst í dag að koma í veg fyrir að filippseyskri konu tækist að smygla rúmlega hundrað baneitruðum snákum og eðlum til Taílands. Eitthvað sem líktist lifandi snák kom í ljós þegar farangur konunnar var gegnumlýstur. 21.11.2006 19:16
Morðvopn Palme mögulega fundið Sænska lögreglan rannsakar nú byssu sem grunur leikur á að hafi verið notuð til að myrða Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, árið 1986. Það voru kafarar á vegum sænska blaðsins Expressen sem fundu byssuna í vatni í Dalarna og afhentu lögreglu. 21.11.2006 19:12
Íslendingar eignast West Ham Eggert Magnússon og fjárfestar að baki honum sömdu í dag um kaup á meirihluta í breska knattspyrnufélaginu West Ham United. Kaupverðið er jafnvirði rúmra 14 milljarða íslenskra króna. 21.11.2006 19:07
Sýrlendingar neita sök Pierre Gemayel, iðnaðarráðherra Líbanons og einn leiðtoga kristinna, var skotinn til bana í bíl sínum í Beirút í dag. Bandamenn hans fullyrða að Sýrlendingar standi á bak við morðið en stjórnvöld í Damaskus vísa því á bug. 21.11.2006 18:56
Stórverk í vegagerð að hefjast á Vestfjörðum og Norðausturlandi Sjö stór verkefni á sviði vegagerðar, upp á samtals sex milljarða króna, eru að fara í útboð á Vestfjörðum og norðausturhorni landsins. Þar ber hæst þverun Mjóafjarðar í Ísafjarðardjúpi, veg um Arnkötludal og vegtengingu milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar. 21.11.2006 18:47
Páfinn að gefa út bók um Jesú Benedikt Páfi hefur ákveðið að gefa út bók um ævi Jesú Krists. Upphaflega ætlaði hann sér að gefa út eina stóra bók en þar sem hann er ekki viss um að hann muni hafa orku og þrek til þess að klára hana ákvað hann að gefa fyrstu tíu kaflana út sem fyrstu bókina í ritröð um Jesú Krist. 21.11.2006 18:28
Eigendur álversins ætla að virða vilja íbúa Eigendur Álversins í Straumsvík ætla ekki að höfða skaðabótamál gegn bænum þótt svo kunni að fara að stækkun verksmiðjunnar verði felld í almennri atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði. Eigendur segjast nú ætla að una niðurstöðunni en þeir hafa varið um hálfum milljarði í að undirbúa stækkunina. 21.11.2006 18:25
Jafnrétti kynjanna eykst á Íslandi Samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum er Ísland í 4. sæti yfir þjóðir þar sem jafnrétti kynjanna er komið hvað lengst á veg. Svíþjóð skipar efsta sætið, Noregur annað sætið, Finnland það þriðja og Íslendingar það fjórða. 21.11.2006 17:46
Vefurinn um Litvinenko flækist enn Ítalskur öryggissérfræðingur að nafni Mario Scaramella hélt fréttamannafund í dag þar sem hann viðurkenndi að hafa verið maðurinn sem Alexander Litvinenko hitti á veitingastað skömmu áður en hann veiktist. Scaramella sagðist ekki hafa etið á veitingastaðnum. 21.11.2006 17:29
Buj Dubai gæt orðið hærri en Esjan Bygging Burj Dubai við Persaflóann, hæsta skýjakljúfs heims, gengur samkvæmt áætlun. Reistar hafa verið 84 hæðir og byggingin er orðin 302 metra há. Áætlað er að smíðinni ljúki 2009. Ef marka má nýlega grein eftir einn af undirtverktökum við bygginguna gæti Burj Dubai orðið 940 metra hár og allt að 195 hæða. Til samanburðar er Esjan 914 metra há (sjá mynd). 21.11.2006 17:27
Íslendingur enn í lífshættu eftir líkamsárás í Lundúnum Íslendingurinn sem ráðist var á í austurhluta Lundúna að morgni síðastliðins sunnudags er enn á gjörgæsludeild og í lífshættu. Maðurinn er 36 ára og heitir Haraldur Hannes Guðmundsson og hafa aðstandendur hans hafi fjárstöfnun honum til stuðnings. 21.11.2006 17:23
Valgerður Bergsdóttir fær heiðursverðlaun Myndstefs Heiðursverðlaun Myndstefs árið 2006 voru afhent nú síðdegis í Listasafni Íslands. Verðlaunin að þessu sinni hlaut Valgerður Bergsdóttir, myndlistarmaður. Fær hún verðlaunin fyrir hönnun og gerð steindra glugga í Reykholtskirkju og fyrir sýningar í Gerðarsafni á þessu ári. 21.11.2006 17:15
Leikstjórinn Robert Altman allur Bandarískir leikstjórinn Robert Altman lést í gærkvöld á sjúkrahúsi í Los Angeles 81 árs að aldri. Frá þessu greindi framleiðslufyrirtæki hans í dag. Altman skipar sér á bekk með fremstu leikstjórum síðustu aldar. Meðal mynda sem hann leikstýrði voru Leikmaðurinn, Nashville og Gosford Park auk MASH, eða Spítalalífs, en þættir með sama nafni eru Íslendingum að góðu kunnir. 21.11.2006 17:00
Sögulegir friðarsamningar í Nepal Stjórnvöld í Nepal skrifuðu í dag undir friðarsamninga við skæruliða maóista sem marka eiga endalok tíu ára borgarastyrjarldar í landinu. Samkvæmt samningnum munu maóistar fá aðild að bráðabirgðaríkisstjórn sem skipuð verður í landinu og hafa þeir því ekki lengur stöðu uppreisnarmanna. 21.11.2006 16:46
HÍ og Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins gera samstarfssamning Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins, og Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor undirrituðu í dag samstarfssamning sem Greiningar- og ráðgjafarstöðin og Háskóli Íslands hafa gert með sér um kennslu og rannsóknir. 21.11.2006 16:32
OR leitar heitra vatnsæða í Fljótshlíð Orkuveita Reykjavíkur og Rangárþing eystra hafa gert með sér samkomulag um jarðhitaleit í Fljótshlíð, en þar eru flestir bæir nú hitaðir með rafmagni. Fram kemur í tilkynningu frá aðilunum tveimur að forsenda slíkrar leitar sé að samkomulag náist við landeigendur, en sveitarfélagið mun þegar hefjast handa við að afla heimildar þeirra. 21.11.2006 16:21
Útstreymi gróðurhúsalofttegunda dregst mikið saman hjá Alcan Útstreymi gróðurhúsaloftegunda frá álveri Alcan í Straumsvík hefur minnkað um sjötu prósent fyrir hvert framleitt tonn af áli frá árinu 1990. Þetta kom fram á fundi hjá Samtökum atvinnulífins um útstreymi frá álverum á Íslandi sem fram fór fyrr í dag. 21.11.2006 16:07
Hugsanlegt að Litvinenko hafi verið byrlað geislavirkt eitur Hugsanlegt er að Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari hjá KGB og rússnesku leyniþjónustunni, hafi verið byrlað geislavirkt eitur. Breska ríkisútvarpið hefur eftir eiturefnasérfræðingi að sjúkdómseinkenni Litvinenko bendi til þess að honum hafi ekki verið byrlað hundrað prósent hreint talíum heldur hafi það hugsanlega verið geislavirkt. 21.11.2006 15:51
Segir Sýrlendinga standa á bak við morðið á Gemayel Saad Hariri, þingforseti í Líbanon og sonur Rafiks Hairis, sem myrtur var í Beirút fyrir tæpum tveimur árum, sakar sýrlensk stjórnvöld um að standa á bak við morðið á Pierre Gemayel, iðnaðarráðherra Líbanons. Byssumenn skutu Gemayel til bana í árás á bílalest hans í úthverfi kristinna manna í Beirút fyrr í dag. 21.11.2006 15:34
Anna Kristín tekur þriðja sætið Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að taka þriðja sæti á framboðslista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram á fréttavef Skessuhorns. Eins og kunnugt er sóttist Anna Kristín eftir 1. til 2. sætinu í prófkjöri flokksins í síðasta mánuði en hún varð að láta í minni pokann fyrir Guðbjarti Hannessyni og Karli V. Matthíassyni. 21.11.2006 15:16
Lagði bíl sínum á golfflöt á Vík í Mýrdal Lögreglan í Vík í Mýrdal fékk heldur óvenjulega tilkynningu á sunnudaginn var en þar var greint frá því að bifreið stæði á einni af flötunum á golfvellinum í Vík. Þegar lögreglan fór að athuga málið kom í ljós að erlendur ferðamaður á bílaleigubifreið hafði komið sér fyrir á miðri flöt á fjórðu holu vallarins og var að dást að útsýninu út á hafið. 21.11.2006 14:56
Batt sleða við bíl og dró félaga sinn Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur piltum, 16 og 17 ára, í einu úthverfa borgarinnar í gærkvöld sem bundið höfðu sleða við bíl eldri piltsins sem ók síðan með þann yngri í eftirdragi á sleðanum. Þeim var gert að hætta þessari iðju tafarlaust og jafnframt bent á hættuna sem þessu fylgdi. 21.11.2006 14:46
Kaldavatnslaust í Borgarnesi Ekkert kalt vatn er í Borgarnesi eftir að kaldavatnsæð fór þar í sundur laust fyrir klukkan tvö. Óhappið varð á framkvæmdasvæði við verlsunina Bónus, skammt frá Borgarfjarðarbrúnni. Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur að búið hafi verið að hengja vatnsæðina upp vegna framkvæmdanna en bakki gaf sig með þeim afleiðingum að vatnsleiðslan kubbaðist í sundur. 21.11.2006 14:29