Fleiri
Mikil spenna í Bandaríkjunum vegna þingkosninganna 7.11.2006 16:52 Ekið á vegfaranda í Nóatúni Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Nóatúns og Sóltúns nú á fimmta tímanum. Lögregla er enn við störf á vettvangi og ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um hvernig slysið varð. Að sögn lögreglu var vegfarandinn fluttur á slysadeild en hann mun ekki hafa slasast alvarlega. 7.11.2006 16:48 Herþotur lentu í Keflavík eftir að hafa lent í erfiðleikum Tvær bandarískar F-16 herþotur lentu í Keflavík í hádeginu í dag vegna erfiðleika við að taka eldsneyti á flugi. Vélarnar voru á leið frá Bandaríkjunum til Evrópu í fylgd eldsneytisvélar. Hins vegar komu upp vandamál við eldsneytistöku undan landinu og vélunum því snúið til Keflavíkur. 7.11.2006 16:47 Hrikaleg átök í Reykjavík 20.-25. nóvember Búast má við hrikalegum átökum í borginni dagana 20.-25. nóvember þegar keppnin um sterkasta mann heims fer þar fram. Keppnin í ár er haldin í minningu um Jón Pál Sigmarsson, einn öflugasta kraftajötun Íslendinga, sem lést langt fyrir aldur fram. 7.11.2006 16:23 Á fjórða hundrað hefur kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Á fjórða hundrað manns hafa nú kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer næstkomandi laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Alls taka fimmtán frambjóðendur þátt í prófkjörinu, þar af allir átta núverandi þingmenn flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. 7.11.2006 16:12 Sleppur Hamas við að draga í land ? Palestinskur þingmaður segir að Mahmud Abbas, forseti, hafi fengið loforð um að vestrænar þjóðir muni hætta refsiaðgerðum, ef honum takist að mynda embættismannastjórn, með Hamas samtökunum. 7.11.2006 16:00 Íslendingar veiða minnst af hval innan Alþjóða- hvalveiðiráðsins Íslendingar eru atkvæðaminnstir í hvalveiðum af þeim þjóðum innan Alþjóðahvalveiðiráðsins sem á annað borð stunda hvalveiðar. Frá þessu er greint á vef Fiskifrétta. 7.11.2006 15:42 Viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi Bandaríkin, Japan og Suður-Kórea hafa sammælst um að viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi. Þessi ríki ætla að ræða við Rússa og Kínverja um að taka sömu afstöðu. 7.11.2006 15:30 Jón Gunnarsson verður ekki á listanum Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, ætlar ekki að taka sæti á framboðslista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor, að því er kemur fram á heimasíðu hans. Hann sagði auk þess í samtali við Ríkisútvarpið í dag, að hann myndi hætta í stjórnmálum. 7.11.2006 15:29 Vilja að Saddam verði hengdur Íranar hvöttu í dag til þess að dauðadómurinn yfir Saddam Hussein verði látinn standa og að hann verði hengdur fyrir ódæðisverk sín. Ein milljón manna féll í átta ára stríði, sem hófst þegar Saddam réðst inn í Íran árið 1980. 7.11.2006 15:15 Hagnaður íslenskra lánastofnana yfir 136 milljarðar á síðasta ári Hagnaður íslenskra lánastofnana nam samanlagt ríflega 136 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt skýrslu Fjármálaeftirlitsins um stofnanirnar sem birt var í dag. 7.11.2006 14:58 Evrópusambandið ráðleggur fólki að slökkva á farsímum erlendis 7.11.2006 14:39 Björn ræddi orkumál við fjármálaráðherra innan EES Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sat í dag fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og Evrópusambandsins um orkumál í fjarveru Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Fundurinn fór fram í Brussel og lýsti ráðherra því í ræðu sinni hvernig Íslendingar stæðu að orkunýtingu og rakti sérstaklega aukin áhrif jarðhita í orkubúskapnum. 7.11.2006 14:37 Baugur ýjar að málssókn gegn Ekstra-blaðinu Baugur Group mótmælir harðlega þeim blaðagreinum sem blaðamenn danska Ekstra-blaðsins hafa skrifað um fyrirtækið að undanförnu og segir greinarnar fullar af villum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. 7.11.2006 14:26 Danskir hermenn verða áfram í Írak 7.11.2006 14:23 Kókaínfarmur á Atlantshafi Breskt herskip stöðvaði í dag dráttarbát á Atlantshafi og handtók áhöfnina, þegar í ljós kom að farmurinn var eitt koma þrjú tonn af kókaíni. 7.11.2006 14:04 Sjá næstu 50 fréttir
Skipulag mæðraverndar breytist í mánuðinum Breyting verður á skipulagi mæðraverndar á höfuðborgarsvæðinu á næstunni vegna flutnings Miðstöðvar mæðraverndar úr Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg eftir sölu hússins. 8.11.2006 13:23
Michael Jackson snýr aftur á sviðið Michael Jackson mun snúa aftur og flytja lög af albúminu "Thriller" á tónlistarhátíð í Lundúnum um miðjan þennan mánuð. Jackson mun þar taka við viðurkenningu fyrir að hafa selt meira en eitthundrað milljón plötur á ferli sínum. 8.11.2006 13:23
Á ríflega tvöföldum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngum Nærri 160 ökumenn voru myndaðir vegna hraðaksturs í Hvalfjarðargöngunum um síðustu helgi samkvæmt lögreglunni í Reykjavík. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 kílómetrar á klukkustund en sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða sem er ríflega tvöfaldur hámarkshraði. Viðurlög fyrir slíkan ofsaakstur eru 70 þúsund króna sekt og ökuleyfissvipting til þriggja mánaða. 8.11.2006 13:05
Innflytjendur eru fólk, ekki vinnuafl Innflytjendur eru fólk, ekki vinnuafl, og þeir eru sárir eftir neikvæða umræðu í þeirra garð síðustu daga. Þetta segir Amal Tamimi, fræðslufulltrúi Alþjóðahúss. Á sama tíma fagna frjálslyndir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að takmarka komu innflytjenda frá Búlgaríu og Rúmeníu til Íslands þegar löndin ganga í Evrópusambandið um næstu áramót. 8.11.2006 13:00
Árni Páll kallaður aftur til skýrslutöku vegna hlerana Árni Páll Árnason lögmaður verður kallaður aftur í skýrslutöku hjá lögreglustjóranum á Akranesi eftir svarbréf utanríkisráðherra. Enginn er ennþá grunaður um símhleranirnar í utanríkisráðuneytinu en fyrsta áfanga rannsóknarinnar er lokið. 8.11.2006 12:30
Erfiður róður framundan hjá Bush Landslagið í bandarískum stjórnmálum er breytt eftir niðurstöður þingkosninga þar í gær. Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja ljóst að Bandaríkjaforseta muni reynast erfitt að koma stefnumálum sínum í gegnum þingið og staða hans verði allt önnur en síðustu sex árin. 8.11.2006 12:15
Þrír hafa slasast alvarlega í eldsvoðum að undanförnu Þrír hafa slasast alvarlega og liggja enn á gjörgæsludeildum og fjórir hafa sloppið naumlega úr fjórum eldsvoðum í heimahúsum á þremur sólarhringum. 8.11.2006 11:59
Kostnaður Hafró vegna hrefnuveiða um 220 milljónir fram til þessa Kostnaður Hafrannsóknastofnunar vegna hrefnuveiða á síðustu þremur árum er um 140 milljónir og stefnir í að verða um 79 milljónir á þessu ári. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar. 8.11.2006 11:55
Eldur kviknaði í fjölbýli í Breiðholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi við Ferjubakkann nú á ellefta tímanum. Búið er að slökkva eldinn og er verið að reykræsta. Tveir einstaklingar voru inni í íbúðinni þegar eldsins varð vart en ekki er vitað um líðan þeirra á þessari stundu. 7.11.2006 22:34
Rannsaka sjö kynferðisbrotamál Lögreglan á Akureyri rannsakar nú sjö mál sem snúa að meintum kynferðisafbrotum. Óvíst er í sumum tilfellum hvort rannsóknin leiðir til sakamála en málin eru ólík og tengjast ekki innbyrðis. 7.11.2006 21:55
Fleiri miðaldra karlmenn drekka sig til dauða Fjöldi þeirra miðaldra karlmanna sem drekka sig til dauða hefur meira en tvöfaldast frá árinu 1991. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Bretlands birti í dag. Aukning á dauðsföllum tengdum áfengisdrykkju hefur orðið hvað mest í hópi karlmanna á aldrinum 35 ára til 54 ára. 7.11.2006 21:28
Á þriðja tug hafa látist í sprengingum í Írak í dag Sautján týndu lífi og að tuttugu slösuðust þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á kaffihúsi í Bagdad fyrr í kvöld. Að minnsta kosti tuttugu og tveir hafa látist í sprengingum í Írak í dag. 7.11.2006 21:19
Boðið að fara í HIV próf eftir spítalalegu Sjúklingum á fjórum sjúkrahúsum í Bretlandi hefur verið boðið að fara í HIV próf þar sem komið hefur í ljós að starfsmaður sem annaðist þá er HIV smitaður. 7.11.2006 20:50
Valgerður fundar í Úkraínu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, fundaði í morgun með Viktor Janúkóvitsj, forsætisráðherra Úkraínu. Á fundinum var meðal annars fjallað um tvíhliða samskipti Íslands og Úkraínu, áform Úkraínu um aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) og möguleika á fríverslunarsamningi á milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu. 7.11.2006 20:35
Býst við að dauðadómnum verði framfylgt innan árs Nouri Maliki, forsætisráðherra Íraks, býst við að dauðadómnum yfir Saddam Hussein verði framfylgt innan árs. Fréttastofan BBC greinir frá þessu en Maliki býst ekki við að horfið verið frá því að framfylgja dómum vegna þrýstings þar um. 7.11.2006 20:00
Baugur hótar Ekstra-blaðinu málssókn Lögfræðingar Baugs kanna nú hvort grundvöllur sé til málshöfðunar gegn danska Ekstra-blaðinu, vegna skrifa þess um fyrirtækið að undanförnu. Í fréttatilkynningu, sem Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sendi frá sér í dag segir að Ekstra-blaðið hafi ítrekað neitað að birta athugasemdir frá Baugi og að fyrirtækið muni verja sig með lagalegum ráðum. 7.11.2006 19:45
Umsátrinu lokið Ísraelski herinn hefur dregið lið sitt til baka frá bænum Beit Hanoun á Gazaströndinni eftir sex daga langt umsátur. Fimmtíu Palestínumenn og einn Ísraeli liggja í valnum eftir umsátrið. 7.11.2006 19:30
Vandræði á kjörstöðum Villur í tölvuforritum og reynsluleysi starfsfólks hafa valdið seinkunum á kjörstöðum í þingkosningunum í Bandaríkjunum. Seinkanir hafa orðið í Indíanafylki, Ohio og Flórída þar sem neyðst hefur til þess, á sumum kjörstöðum, að grípa til pappírsatkvæðaseðla. 7.11.2006 19:24
Frjálslyndir sakaðir um að dansa á línu rasismans á Alþingi Þingmenn Frjálslynda flokksins héldu því fram á Alþingi í dag að Íslendingar væru farnir að missa vinnuna vegna þess að þeir væru ekki samkeppnishæfir við erlent vinnuafl. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði þá dansa á línu rasismans. 7.11.2006 19:15
Tekist á um málefni samkynhneigðra Heitar umræður standa nú yfir á Lögþingi Færeyja um lagafrumvarp sem miðar að því að bæta réttarstöðu samkynhneigðra. Þingheimur skiptist í tvær jafnstórar fylkingar og því er afar erfitt að spá um afdrif málsins. 7.11.2006 19:00
Segir hugmyndir um sameiningu góðar Ari Edwald, forstjóri 365, segir að vel kunni að vera að eigendur fyrirtækisins og Skjás eins hafi rætt hugmyndir um sameiningu þó svo að engar formlegar viðræður hafi verið um málið - en hugmyndin sé góð. Hann hefur áhyggjur af óbreyttu RÚV frumvarpi. 7.11.2006 18:50
Búist við spennandi kosninganótt Bandaríski demókrataflokkurinn fær meirihluta í fulltrúadeildinni í þingkosningunum í dag ef marka má skoðanakannanir. Því er spáð að repúblíkanar haldi meirihluta sínum í öldungadeild. Kosningabaráttan hefur verið hörð og hafa demókratar tapað niður nokkru forskoti á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Bandaríkjamenn gengu að kjörborðinu í dag til að kjósa milli frambjóðenda til beggja þingdeilda. Kosið er um öll 435 þingsæti í fulltrúadeild og 33 öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess er kosið um fylkisstjóra í 36 fylkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningar innan þeirra, meðal annars um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum og lágmarkslaun. Þess fyrir utan líta margir á kosningarnar nú sem atkvæðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar í Írak og á ýmsum öðrum sviðum. Einhverjir kjósendur sögðust hafa greitt atkvæði gegn ástandinu í Írak, aðrir sögðu þörf á að breyta til í þingdeildunum. Aðrir sögðu þörf á staðfestu í stefnu gagnvart Írak og það viðhorf endurspeglaði val þeirra. Bush Bandaríkjaforseti greiddi atkvæði í Crawford í Texas. Aðspurður sagðist hann búinn að gera upp hug sinn þar sem hann gekk inn á kjörstað í Crawford í Texas. Forsetinn hefur farið fylkjanna á milli síðustu daga til að styðja flokkssystkini í baráttunni við demókrata. Ekki hafa þó allir tekið honum fagnandi og sem dæmi þurfti Bush einn að brýna kjósendur flokksins í Flórída í gær þar sem frambjóðandi repúblíkana til fylkisstjóra þar kaus að reka endahnútinn á kosningabaráttu sína fjarri forsetanum. Hilary Clinton er einn öldungardeildarþingmanna berst fyrir sæti sínu nú. Hún sagðist vonast eftir góðri kosningaþátttöku þar sem margt sé í húfi. Hún segist vona að demókratar fái meirihluta í þingdeildunum. Ekki er þó líklegt að þingmanninum verði að ósk sinni hvað varðar kjörsókn því ekki er búist við að hún fari yfir 40%. Fyrstu kjörstöðum verður lokað um klukkan ellefu í kvöld að íslenskum tíma og má búast við fyrstu tölum upp úr miðnætti. Nánar verður fjallað um kosningarnar í Íslandi í dag hér á eftir og fylgst með úrslitum hér á visir.is 7.11.2006 18:45
Þrjár konur á móti níu körlum Karlar eru í efstu sætum á öllum listum Samfylkingarinnar þar sem prófkjör hafa farið fram. Ef sömu úrslit verða í næstu þingkosningum og þeim síðustu fá aðeins þrjár konur þingsæti á móti níu körlum í fjórum af fimm kjördæmum. 7.11.2006 18:42
Smábörn hafa komist í e-töflur Yfirlæknir á Landspítalanum segir dæmi um að smábörn hafi komist í e-töflur á heimilum sínum. Nokkrir einstaklingar koma á slysadeild dag hvern vegna eituráhrifa fíkniefnaneyslu. Piltarnir tveir sem urðu alvarlega veikir af völdum e-taflna eru á batavegi. 7.11.2006 18:39
Innflytjendur taka ekki störf Íslendinga Atvinnurekendur segja að erlent vinnuafl hafi verið togað hingað til lands til að mæta skorti á vinnuafli og firra sé að tala um að Íslendingar hefðu getað fyllt í skörðin.Takmarkanir á flæði erlendra verkamanna hefðu hægt á hagvexti og aukið verðbólgu. Ríkisstjórnin aflétti tímabundnum takmörkunum sem lagðar voru á ný aðildarríki Evrópusambandsins 1. maí. 7.11.2006 18:30
Viðvarandi halli á rekstri Ísafjarðarbæjar Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga telur það óviðunandi að viðvarandi halli hafi verið á rekstri Ísafjarðarbæjar frá árinu 2002. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá þessu en það segir jafnframt að rekstrarniðurstaðan fyrir árið 2005 hafi verið betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 7.11.2006 18:09
Panama fékk sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna Panama hlaut í dag sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna. Mikil barátta hefur staðið um sætið en Venesúela og Guatemala sóttust einnig eftir því. Bandaríkjamenn studdu Guatemala gegn Venesúela. 7.11.2006 17:33
Frjálslyndir fagna takmörkun á flæði vinnuafls Þingflokkur Frjálslynda flokksins fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að nýti sér undanþágur um takmörkun á frjálsu flæði vinnuafls um næstu áramót þegar Rúmenía og Búlgaría ganga í Evrópusambandið. Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, tilkynnti um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. 7.11.2006 17:10
Lífstíðarfangelsi fyrir að skipuleggja stórfelld hryðjuverk Þrjátíu og fjögurra ára Lundúnabúi, sem sagður er tengdur al-Qaida samtökunum, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir að undirbúa stórfelld hryðjuverk bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. 7.11.2006 17:08
Ekið á vegfaranda í Nóatúni Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Nóatúns og Sóltúns nú á fimmta tímanum. Lögregla er enn við störf á vettvangi og ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um hvernig slysið varð. Að sögn lögreglu var vegfarandinn fluttur á slysadeild en hann mun ekki hafa slasast alvarlega. 7.11.2006 16:48
Herþotur lentu í Keflavík eftir að hafa lent í erfiðleikum Tvær bandarískar F-16 herþotur lentu í Keflavík í hádeginu í dag vegna erfiðleika við að taka eldsneyti á flugi. Vélarnar voru á leið frá Bandaríkjunum til Evrópu í fylgd eldsneytisvélar. Hins vegar komu upp vandamál við eldsneytistöku undan landinu og vélunum því snúið til Keflavíkur. 7.11.2006 16:47
Hrikaleg átök í Reykjavík 20.-25. nóvember Búast má við hrikalegum átökum í borginni dagana 20.-25. nóvember þegar keppnin um sterkasta mann heims fer þar fram. Keppnin í ár er haldin í minningu um Jón Pál Sigmarsson, einn öflugasta kraftajötun Íslendinga, sem lést langt fyrir aldur fram. 7.11.2006 16:23
Á fjórða hundrað hefur kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Á fjórða hundrað manns hafa nú kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer næstkomandi laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Alls taka fimmtán frambjóðendur þátt í prófkjörinu, þar af allir átta núverandi þingmenn flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. 7.11.2006 16:12
Sleppur Hamas við að draga í land ? Palestinskur þingmaður segir að Mahmud Abbas, forseti, hafi fengið loforð um að vestrænar þjóðir muni hætta refsiaðgerðum, ef honum takist að mynda embættismannastjórn, með Hamas samtökunum. 7.11.2006 16:00
Íslendingar veiða minnst af hval innan Alþjóða- hvalveiðiráðsins Íslendingar eru atkvæðaminnstir í hvalveiðum af þeim þjóðum innan Alþjóðahvalveiðiráðsins sem á annað borð stunda hvalveiðar. Frá þessu er greint á vef Fiskifrétta. 7.11.2006 15:42
Viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi Bandaríkin, Japan og Suður-Kórea hafa sammælst um að viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi. Þessi ríki ætla að ræða við Rússa og Kínverja um að taka sömu afstöðu. 7.11.2006 15:30
Jón Gunnarsson verður ekki á listanum Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, ætlar ekki að taka sæti á framboðslista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor, að því er kemur fram á heimasíðu hans. Hann sagði auk þess í samtali við Ríkisútvarpið í dag, að hann myndi hætta í stjórnmálum. 7.11.2006 15:29
Vilja að Saddam verði hengdur Íranar hvöttu í dag til þess að dauðadómurinn yfir Saddam Hussein verði látinn standa og að hann verði hengdur fyrir ódæðisverk sín. Ein milljón manna féll í átta ára stríði, sem hófst þegar Saddam réðst inn í Íran árið 1980. 7.11.2006 15:15
Hagnaður íslenskra lánastofnana yfir 136 milljarðar á síðasta ári Hagnaður íslenskra lánastofnana nam samanlagt ríflega 136 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt skýrslu Fjármálaeftirlitsins um stofnanirnar sem birt var í dag. 7.11.2006 14:58
Björn ræddi orkumál við fjármálaráðherra innan EES Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sat í dag fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og Evrópusambandsins um orkumál í fjarveru Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Fundurinn fór fram í Brussel og lýsti ráðherra því í ræðu sinni hvernig Íslendingar stæðu að orkunýtingu og rakti sérstaklega aukin áhrif jarðhita í orkubúskapnum. 7.11.2006 14:37
Baugur ýjar að málssókn gegn Ekstra-blaðinu Baugur Group mótmælir harðlega þeim blaðagreinum sem blaðamenn danska Ekstra-blaðsins hafa skrifað um fyrirtækið að undanförnu og segir greinarnar fullar af villum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. 7.11.2006 14:26
Kókaínfarmur á Atlantshafi Breskt herskip stöðvaði í dag dráttarbát á Atlantshafi og handtók áhöfnina, þegar í ljós kom að farmurinn var eitt koma þrjú tonn af kókaíni. 7.11.2006 14:04