Fleiri fréttir Alvarlegir þurrkar í Ástralíu John Howard forsætisráðherra Ástralíu kallaði saman neyðarfund stjórnmálaleiðtoga og vísindamanna í Canberra í dag vegna mjög alvarlegra þurrka í heimsálfunni. Þurrkurnir hafa staðið í sex ár og eru þeir mestu sem vitað er um sögu Ástralíu. Ef fram heldur sem horfir mun mikilvægasta vatnakerfi álfunnar, í Murray-Darling dalnum, þorna upp á hálfu ári. Það sér um 70 prósentum af öllu ræktarlandi Ástralíu fyrir vatni. Meðal tillagna til að ráða bót á neyðarástandinu eru áætlanir til að spara vatn og tryggja skipti á vatni milli landssvæða. 7.11.2006 13:21 Allt að 66 prósenta verðmunur á smurþjónustu Allt að sextíu og sex prósenta verðmunur reyndist á smurþjónustu fyrir bíla í könnun sem Alþýðusamband Íslands gerði um síðustu mánaðamót. Verð var kannað hjá 17 þjónustuaðilum á smurningu á þremur stærðum bíla, fólksbíl, jepplingi og stærri jeppa. 7.11.2006 13:11 Óvíst hvort réttarhöldum yfir Saddam lýkur fyrir hengingu Saddam Hussein mætti fyrir dómara í morgun, tveimur dögum eftir að dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Að þessu sinni snerust réttarhöldin um fjöldamorð hans á 180 þúsund Kúrdum á árunum 1986-1989 en óvíst er hvort þeim verður lokið áður en dauðadómnum verður fullnægt. 7.11.2006 13:00 Mátti ekki vera að því að láta sekta sig Tæplega þrítugur karlmaður á yfir höfði sér 50 þúsund króna sekt eftir að hann var stöðvaður fyrir að aka á 140 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut um miðjan dag í gær. Fram kemur í frétt frá lögreglunni að maðurinn hafi beðið lögreglu á vettvangi um að líta fram hjá þessu broti því hann væri á hraðferð og hefði ekki tíma til að ræða við þá. 7.11.2006 12:45 Hizbolla ætla að stjórna Líbanon 7.11.2006 12:42 Spennandi kosningar í dag 7.11.2006 12:42 Tvísýnt um úrslit Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Kosið er um öll fjögur hundruð þrjátíu og fimm þingsæti í fulltrúadeild og þrjátíu og þrjú öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess verður kosið um ríkisstjóra í þrjátíu og sex ríkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningu þar um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumur úr fósturvísum og lágmarkslaun, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess er ekki síst litið á kosningarnar sem atkævðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar, meðal annars í Írak. Bandaríkjaforseti hefur komið fram á kosningafundum fyrir flokksbræður sína síðustu daga og tók þátt í kosningabaráttunni fram á síðustu mínútu. Ekki voru þó allir frambjóðendur flokksins sáttir við framlag forsetans og vildu margir hverjir fjarlægja sig frá honum vegna Íraksmálsins. Sem dæmi kaus frambjóðandi flokksins til fylkisstjóra í Flórída, væntanlegur arftaki Jeb Bush í embætti, að halda síðasta kosningafund sinn fjarri forsetanum sem var mættur til að styðja flokksbróður sinn þar. Bush lét það þó ekki á sig fá og hélt fund án frambjóðandans. Forsetinn sagðist sannfærður um að Repúblíkanar færu með sigur af hólmi í dag enda væri stefna flokksins í skatta- og öryggismálum sú rétta. Ekki virðist þó áhuginn mikill fyrir kosningunum meðal almennings og ekki búist við að kjörsókn fari yfir fjörutíu prósent. Kannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað á fylgi Demókrata síðustu daga og ólíklegt talið að þeir nái meirihluta í báðum deildum. Líklegast er að Repúblíkanar haldi meirihluta sínum í Öldungadeildinni en Demókratar nái yfirhöndinni í fulltrúadeildinni. Fjöldi Bandaríkjamanna hefur þegar kosið utan kjörfundar en þeir sem eiga það eftir kjósa í dag í sinni heimabyggð á þar til gerðum kosningavélum. Dómsmálaráðuneytið bandaríska hefur sent um áttahundruð og fimmtíu kosningaeftirlitsmenn til á sjöunda tug borga og bæja víða um Bandaríkin. Þeirra er að gæta þess að farið sé að lögum og reglum og grípa í taumana ef kosningavélar eru sagðar bila eða gefa sig. 7.11.2006 12:30 Thank foreign workers 7.11.2006 12:24 Efnahagslífið enn berskjaldað fyrir höggum Davíð Oddsson seðlabankastjóri hótar enn meiri vaxtahækkunum í desember og segir bæði verðbólgu og spennu ennþá mjög mikla. Á fundi hjá Viðskiptaráði Íslands í morgun sagði Davíð íslenskt efnahagslíf enn þá berskjaldað fyrir höggum. 7.11.2006 12:12 Stórfellt tjón hjá Náttúrufræðistofnun Sex ernir, fimmtíu fálkar og ýmsir sjaldgæfir flækingsfuglar voru meðal þeirra tvö þúsund fuglasýna í eigu Náttúrufræðistofnunar sem fargað var á ruslahaugum í vor án vitundar stofnunarinnar. 7.11.2006 12:00 Liberal Party's new immigrant policy 7.11.2006 11:51
Icelandic Dance Company cancelled 6.11.2006 16:07 Sjá næstu 50 fréttir
Alvarlegir þurrkar í Ástralíu John Howard forsætisráðherra Ástralíu kallaði saman neyðarfund stjórnmálaleiðtoga og vísindamanna í Canberra í dag vegna mjög alvarlegra þurrka í heimsálfunni. Þurrkurnir hafa staðið í sex ár og eru þeir mestu sem vitað er um sögu Ástralíu. Ef fram heldur sem horfir mun mikilvægasta vatnakerfi álfunnar, í Murray-Darling dalnum, þorna upp á hálfu ári. Það sér um 70 prósentum af öllu ræktarlandi Ástralíu fyrir vatni. Meðal tillagna til að ráða bót á neyðarástandinu eru áætlanir til að spara vatn og tryggja skipti á vatni milli landssvæða. 7.11.2006 13:21
Allt að 66 prósenta verðmunur á smurþjónustu Allt að sextíu og sex prósenta verðmunur reyndist á smurþjónustu fyrir bíla í könnun sem Alþýðusamband Íslands gerði um síðustu mánaðamót. Verð var kannað hjá 17 þjónustuaðilum á smurningu á þremur stærðum bíla, fólksbíl, jepplingi og stærri jeppa. 7.11.2006 13:11
Óvíst hvort réttarhöldum yfir Saddam lýkur fyrir hengingu Saddam Hussein mætti fyrir dómara í morgun, tveimur dögum eftir að dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Að þessu sinni snerust réttarhöldin um fjöldamorð hans á 180 þúsund Kúrdum á árunum 1986-1989 en óvíst er hvort þeim verður lokið áður en dauðadómnum verður fullnægt. 7.11.2006 13:00
Mátti ekki vera að því að láta sekta sig Tæplega þrítugur karlmaður á yfir höfði sér 50 þúsund króna sekt eftir að hann var stöðvaður fyrir að aka á 140 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut um miðjan dag í gær. Fram kemur í frétt frá lögreglunni að maðurinn hafi beðið lögreglu á vettvangi um að líta fram hjá þessu broti því hann væri á hraðferð og hefði ekki tíma til að ræða við þá. 7.11.2006 12:45
Tvísýnt um úrslit Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Kosið er um öll fjögur hundruð þrjátíu og fimm þingsæti í fulltrúadeild og þrjátíu og þrjú öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess verður kosið um ríkisstjóra í þrjátíu og sex ríkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningu þar um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumur úr fósturvísum og lágmarkslaun, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess er ekki síst litið á kosningarnar sem atkævðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar, meðal annars í Írak. Bandaríkjaforseti hefur komið fram á kosningafundum fyrir flokksbræður sína síðustu daga og tók þátt í kosningabaráttunni fram á síðustu mínútu. Ekki voru þó allir frambjóðendur flokksins sáttir við framlag forsetans og vildu margir hverjir fjarlægja sig frá honum vegna Íraksmálsins. Sem dæmi kaus frambjóðandi flokksins til fylkisstjóra í Flórída, væntanlegur arftaki Jeb Bush í embætti, að halda síðasta kosningafund sinn fjarri forsetanum sem var mættur til að styðja flokksbróður sinn þar. Bush lét það þó ekki á sig fá og hélt fund án frambjóðandans. Forsetinn sagðist sannfærður um að Repúblíkanar færu með sigur af hólmi í dag enda væri stefna flokksins í skatta- og öryggismálum sú rétta. Ekki virðist þó áhuginn mikill fyrir kosningunum meðal almennings og ekki búist við að kjörsókn fari yfir fjörutíu prósent. Kannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað á fylgi Demókrata síðustu daga og ólíklegt talið að þeir nái meirihluta í báðum deildum. Líklegast er að Repúblíkanar haldi meirihluta sínum í Öldungadeildinni en Demókratar nái yfirhöndinni í fulltrúadeildinni. Fjöldi Bandaríkjamanna hefur þegar kosið utan kjörfundar en þeir sem eiga það eftir kjósa í dag í sinni heimabyggð á þar til gerðum kosningavélum. Dómsmálaráðuneytið bandaríska hefur sent um áttahundruð og fimmtíu kosningaeftirlitsmenn til á sjöunda tug borga og bæja víða um Bandaríkin. Þeirra er að gæta þess að farið sé að lögum og reglum og grípa í taumana ef kosningavélar eru sagðar bila eða gefa sig. 7.11.2006 12:30
Efnahagslífið enn berskjaldað fyrir höggum Davíð Oddsson seðlabankastjóri hótar enn meiri vaxtahækkunum í desember og segir bæði verðbólgu og spennu ennþá mjög mikla. Á fundi hjá Viðskiptaráði Íslands í morgun sagði Davíð íslenskt efnahagslíf enn þá berskjaldað fyrir höggum. 7.11.2006 12:12
Stórfellt tjón hjá Náttúrufræðistofnun Sex ernir, fimmtíu fálkar og ýmsir sjaldgæfir flækingsfuglar voru meðal þeirra tvö þúsund fuglasýna í eigu Náttúrufræðistofnunar sem fargað var á ruslahaugum í vor án vitundar stofnunarinnar. 7.11.2006 12:00
Nýr sýslumaður í Keflavík Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann á Siglufirði, til þess að vera sýslumaður í Keflavík frá og með 1. janúar 2007. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. 7.11.2006 11:51
Meirihlutinn telur það til góða ef Demókratar sigra kosningarnar Meirihluti Bandaríkjamanna telur að ef Demókratar ná meirihluta á þingi þá muni efnahagsmálum landsins, þróuninni í Írak og baráttunni gegn hryðjuverkum miða í rétta átt. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem fréttastöðin CNN lét gera og birti í dag. Þingkosningar í Bandaríkjunum fara fram á morgun. 6.11.2006 23:35
Ingibjörg segir nýjan lista sterkan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir nýjan lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vera sterkan. Ingibjörg telur ástæðulaust að hafa áhyggjur af stöðu Suðurnesjamanna á listanum enda vinna þingmennirnir fyrir allt kjördæmið sama hvaðan þeir koma. 6.11.2006 22:35
Bílvelta á Svalbarðsströnd Fjórir voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu á Svalbarðsströnd á sjötta tímanum í dag. Konan sem keyrði bílinn skarst lítillega en þrjú börn hennar, sem voru með henni í bílnum, sluppu ómeidd. Töluverð hálka var þegar slysið átti sér stað. 6.11.2006 22:15
Lúðvík endaði í öðru sæti Lokatölur hafa verið birtar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Gríðarleg spenna var um annað sætið en á endanum hafði Lúðvík Bergvinsson betur en Ragnheiður Hergeirsdóttir en aðeins munaði tuttugu og fimm atkvæðum á þeim. 6.11.2006 22:00
Lúðvík og Jón yfirgáfu kosningavöku Samfylkingarinnar Búist er við því að lokatölur í prófkjöri Samfylkingarinnar verði birtar fljótlega eftir klukkan tíu. Athygli vekur á Hóteli Selfossi, þar sem Samfylkingin er með kosningavöku, að alþingismennirnir Lúðvík Bergvinsson og Jón Gunnarsson yfirgáfu samkvæmið fyrir allnokkru síðan. 6.11.2006 21:53
Ungliðar segja Frjálslynda ala á fordómum Forsvarsmenn ungliðahreyfinga í öllum stjórnmálaflokknum nema Frjálslyndum gagnrýna yfirlýsingar Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um innflytjendamál í ályktun sem þeir sendu frá sér í dag. Þeir lýsa "vonbrigðum með þá ákvörðun nokkurra forystumanna í Frjálslynda flokknum að ala á trúarbragðafordómum og tortryggni í garð útlendinga í tilraunum sínum til að auka fylgi flokks síns." Í ályktuninni segir einnig að slíkur málflurningur sé meiðandi gagnvart hópi Íslendinga og stuðli að sundrungu í samfélaginu. 6.11.2006 21:44
Kviknaði í eldhúsi á Akureyri Slökkviliðið á Akureyri var kallað út á sjötta tímanum í dag þar sem reyk lagði úr íbúð í fjölbýlishúsi við Keilusíðu á Akureyri. Sjúkrabíll, dælubíll og körfubíll voru strax sendir á staðinn. Reykkafarar fóru inn í íbúðina og leituðu að fólki en íbúðin reyndist mannlaus. Talið er að kviknað hafi í út frá eldavél sem straumur var á. 6.11.2006 21:43
Ragnheiður kominn aftur í annað sætið Ragnheiður Hergeirsdóttir er komin aftur í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Aðeins munar þremur atkvæðum á Lúðvíki og Ragnheiði í annað sætið. Lúðvík er nú í fjórða sæti en aðeins munar þrjátíu atkvæðum á honum og Róberti Marshall í þriðja sætið. 6.11.2006 21:22
Björgvin hlaut sterkari kosningu en hann átti von á Björgvin G. Sigurðsson hefur tryggt sér fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. ,, Ég er ákaflega þakklátur fyrir þetta afgerandi traust sem ég hlýt. Ég fæ greinilega mjög góða kosningu í fyrsta sætið og mun sterkari en ég bjóst við" sagði Björgvin G. Sigurðsson þegar ljóst var að hann væri sigurvegari prófkjörsins. 6.11.2006 21:16
Allir björguðust þegar eldur kom upp í íbúð í fjölbýli í Keflavík Allt tiltækt lið Slökkviliðis brunavarna Suðurnesja var kallað út þegar kviknaði í fjölbýlishúsi í Keflavík rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Eldsins varð vart í íbúð á annarri hæð og tókst að bjarga öllum út úr íbúðinni. Mikill eldur var í húsinu þegar slökkviliðið kom á staðinn en búið er að slökkva eldinn. Húsið stendur við hliðin á lögreglustöðinni í Keflavík. 6.11.2006 21:02
Björgvin búinn að tryggja sér fyrsta sætið Björgvin G. Sigurðsson hefur sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Búið er að telja 4.700 atkvæði og er Lúðvík að styrkja stöðu sína í 2. sætið. Fjörtíu og fjórum atkvæðum munar nú á Lúðvíki og Ragnheiði í 2. sætið. 6.11.2006 20:56
Lúðvík er búinn að ná öðru sætinu Lúðvík Bergvinsson er kominn í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Ragnheiður Hergeirsdóttir er fallin niður í fjórða sætið en búið er að telja 4.400 atkvæði. 6.11.2006 20:40
Búið að telja 78% atkvæða Nú er búið að telja tæp 78% atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi eða 4.000 atkvæði af 5.146. Lúðvíki Bergvinssyni vantar þrettán atkvæði til að ná Ragnheiði Hergeirsdóttur. Ragnheiður er með 1.203 atkvæði í 1.-2. sætið en Lúðvík er með 1.190 atkvæði í 1.-2. sætið. Þrjátíu og sjö atkvæðum munar á þeim Róberti Marshall og Lúðvíki í þriðja sætið. 6.11.2006 20:29
Lúðvík vantar aðeins fjögur atkvæði í annað sætið Búið er að telja 3.500 atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Lúðvík Bergvinsson vantar aðeins fjögur atkvæði til verða jafn Ragnheiði Hergeirsdóttur í annað sætið. Ragnheiður Hergeirsdóttir er í öðru sæti með 1.042 atkvæði í 1.-2. sætið en Lúðvík er með 1.038 atkvæði í 1.-2. sætið. 6.11.2006 20:09
Óbreytt staða þegar búið er að telja 3.000 atkvæði Búið er að telja 3.000 atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Gríðarleg spenna er um annað sætið en Lúðvík Bergvinsson vantar aðeins 12 atkvæði til að ná sætinu af Ragnheiði Hergeirsdóttur. Ragnheiður er með 896 atkvæði í 1.-2. sætið en Lúðvík 884 atkvæði. Tæpt er einnig á þriðja sætinu en Róbert Marshall er með 1.138 atkvæði í 1.-3. sætið en Lúðvík vantar aðeins 17 atkvæði til að ná Róberti. 1. 6.11.2006 19:50
Rafmagn fór af Evrópu Norska skemmtiferðaskipið Norwegian Pearl slökkti um helgina ljósin í Evrópu. Milljónir manna í 12 löndum misstu rafmagnið. Skipið var að sigla upp eftir ánni Ems, í Þýskalandi. Ákveðið var að rjúfa straum á mikilvægri rafleiðslu þar sem skipið er afar stórt. Það varð til þess að yfirspenna varð á öðrum leiðslum og þær sló út. Við það fór rafmagnið af stórum hluta Frakklands, Spánar, Ítalíu, Portúgal, Austurríkis og fleiri landa. 6.11.2006 19:30
Hægt að komast hjá vandræðum Prófessor í alþjóðastjórnmálum segir Íslendinga nú hafa tækifæri til að haga innflytjendamálum þannig að hægt verði að komast hjá vandræðum sem blossað hafi upp í grannríkjum. Hann segir málefni innflytjenda komin á borð sérfræðinga í öryggismálum og þau rædd á ráðstefnum Atlantshafsbandalagsins. 6.11.2006 19:18
Mikil spenna um annað og þriðja sætið Aðeins munar átján atkvæðum á Róberti Marshall og Lúðvíki Bergvinssyni í þriðja stætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Búið er að telja tæpan helming atkvæða. Björgvin G. Sigurðsson er nokkuð öruggur í fyrsta sætinu. 6.11.2006 19:15
Ísjakar undan strönd Nýja Sjálands Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa sent frá sér viðvörun til sjófarenda vegna mörg hundruð ísjaka undan strönd landsins. Töluverð hætta er talin geta skapast nærri jökunum þar sem veður á svæðinu mun versna. 6.11.2006 19:15
Björgvini þakklæti í huga Björgvini G. Sigurðssyni er mikið þakklæti í huga til þeirra sem studdu hann í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Björgvin er nú efstur í prófkjörinu en hann segir vert að hafa í huga að einungis sé búið að telja tæpan helming atkvæða. Róbert Marshall býður sig nú fram í fyrsta sinn og er í þriðja sæti. Róbert þakkaði kjósendum þegar búið var að birta tölur í þriðja sinn. 6.11.2006 19:03
Tekist á um horfur í efnahagslífinu Forsætisráðherra staðhæfði á Alþingi í dag að þenslan væri á mikilli niðurleið og spenna mjög að minnka í efnahagslífinu. Formaður Vinstri grænna fullyrti hins vegar á móti að ekkert gengi að vinna á jafnvægisleysinu. 6.11.2006 18:45
Lést eftir neyslu á e-töflu Kona á þrítugsaldri lést á laugardagsmorgun eftir að hafa tekið inn e-töflu og tveir piltar, á sautjánda ári, voru fluttir á sjúkrahús á sunnudagsmorgun eftir neyslu á e-töflum. Þeir liggja nú á Barnaspítala Hringsins alvarlega veikir. 6.11.2006 18:45
Þakklát fyrir björgunina Ferðalangarnir, sem komust í hann krappan á Möðrudalsöræfum í gær þegar rúður brotnuðu í bíl þeirra í aftakaveðri, eru þakklátir bjargvættum sínum. Þeir segja lífsreynsluna hafa verið ógnvænlega en ógleymanlega. 6.11.2006 18:45
Róbert kominn í 3. sæti Björgvin G. Sigurðsson er enn í 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi þegar búið er að telja 2.000 atkvæði. Björgvin er með 706 atkvæði í 1. sæti. Ragnheiður Hergeirsdóttir er í 2. sæti með 617 atkvæði í 1.-2. sætið. Róbert Marhall er í 3 sæti. Lúðvík Bergvinsson er í 4. sæti og Jón Gunnarsson í 5. sæti. 6.11.2006 18:41
Björgvin G. Sigurðsson leiðir eftir fyrstu tölur Fyrstu tölur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi voru birtar klukkan 18:20. Björgvin G. Sigurðsson er nú í 1. sæti með 503 atkvæði. Ragnheiður Hergeirsdóttir er í 2. sæti. Lúðvík Bergvinsson er í 3 sæti. Róbert Marshall í 4. sæti og Jón Gunnarsson í 5. sæti. 6.11.2006 18:18
Frjálslyndir segja innflytjendamál ekki mega vera "tabú" Leiðtogar frjálslyndra segja umræður um málefni innflytjenda ekki mega vera tabú hjá stjórnmálamönnum. Ríkisvaldið er harðlega gagnrýnt fyrir orð en engar gjörðir í málefnum nýbúa, en ekki er gert ráð fyrir fjárframlögum til málaflokksins í fjárlögum þessa árs. Margrét Sverrisdóttir framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins segir andstæðinga reyna að setja stimpil kynþáttafordóma á flokkinn. 6.11.2006 18:00
Bílvelta í Súgandafirði Jeppi valt í Súgandafirði á fimmta tímanum í dag. Slysið átti sér stað við bæinn Botn. Fjórir voru í bílnum þegar hann valt og sluppu allir ómeiddir. Bíllinn er gjörónýtur en lögreglan á Ísafirði segir hálku hafa verið á svæðinu þegar slysið átti sér stað. 6.11.2006 17:11
Valgerður fundaði með Jústsjenkó Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fundi með Viktor Jústsjenkó, forseta Úkraínu, og Borys Tarasjúk utanríkisráðherra en ráðherra er í opinberri heimsókn í Úkraínu. 6.11.2006 17:07
Lögfræðiteymi í bandaríska kosningaslaginn Bæði repúblikanar og demókratar í Bandaríkjunum eru búnir að safna saman hópum lögfræðinga, sem eiga að leggja fram kærur ef úrslit verða einhversstaðar í vafa í þingkosningunum sem fram fara á morgun. 6.11.2006 16:47
Útgöngubanni aflétt að hluta til í Bagdad Íröksk yfirvöld hafa aflétt útgöngubanni í höfðuborginni Bagdad að hluta til en því var komið á áður en Saddam Hussein, fyrrverandi forseti landsins, var dæmdur til dauða í gær fyrir glæpi gegn mannkyni. Óttast var að til uppþota kæmi í kjölfarið í höfuðborginni en allt hefur verið með kyrrum kjörum í dag. 6.11.2006 16:29
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir ýmis brot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í 15 mánaða fangelsi og svipti hann ökuleyfi í fimm ár fyrir ítrekaðan ölvunarakstur og vopnalagabrot, fíkniefnabrot og þjófnað í haust. Maðurinn játaði fúslega brot sín fyrir dómi en hann á að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 1997. 6.11.2006 16:16
Bandaríkin segjast standa sig vel í loftslagsmálum Aðalsamningamaður Bandaríkjanna í umhverfismálum segir að Bandaríkin standi sig betur í því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda en mörg önnur lönd. Hann á ekki von á því að bandaríkjamenn undirgangist Kyoto samkomulagið, meðan núverandi ríkisstjórn situr í Washington. 6.11.2006 16:14