Fleiri fréttir

Vonsvikinn með úrskurð eignarnámsnefndar

Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hefur verið gert að greiða húsasmiði á Akranesi sjö og hálfa milljón króna í bætur fyrir landspildu sem hitaveitan tók eignarnámi. Stjórnarformaður Hitaveitunnar segir niðurstöðu matsnefndarinnar vonbrigði.

Nafn konunnar sem lést

Konan sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Langsstaði aðfaranótt mánudags hét Rósa Björg Guðmundsdóttir til heimilis að Vallarási 1 í Reykjavík. Rósa var fædd 4. apríl 1970. Hún var ógift og barnlaus.

Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu

Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu og þá sérstaklega vestast á Seltjarnarnesi þar sem algjör viðkomubrestur varð hjá kríunni. Fuglafræðingur telur að sandsílaskorti sé um að kenna og segir hann það vera áhyggjuefni fyrir fleiri fuglategundir.

Bílar á bið í Herjólf

Svo mikil örtröð er í Herjólf, eftir Þjóðhátíð í Eyjum, að fólk með bíla kemst ekki frá Vestmannaeyjum í land.

Hinsegin dagar framundan

Hátíðin Hinsegin dagar er ein af stærstu árlegu hátíðum landsins og verður nú haldin í áttunda sinn, dagana 10.- 13. ágúst.

Betur fór en á horfðist í hörðum árekstri strætó og fólksbíls

Fólksbíll og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á gangamótum, Stangar og Breiðholtsbrautar á ellefta tímanum í morgun. Í fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða og því viðbúnaður slökkviliðs og lögreglu töluverður. Betur fór þó en á horfðist en ökumaður og farþegi fólksbílsins voru fluttir á slysadeild Landspítalans með skurð á höfði og ökumaður strætóins kenndi sér eymsla í hné. Töluvert tjón varð á ökutækjum.

Fékk reykeitrun við störf á vettvangi

Einn lögreglumaður þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna reykeitrunar sem hann fékk við störf á vettvangi þegar eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni á Akranesi síðastliðinn föstudag. Hann er enn óvinnufær vegna eitrunarinnar. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en málið er í rannsókn og miðar henni vel.

Annasöm helgi hjá lögreglunni á Eskifirði

Helgin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á Eskifirði vegna útihátíðarinnar Neistaflugs. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina. Engin líkamsárás var kærð til lögreglu en þrjú fíkniefnamál komu upp um helgina. Alls voru 23 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot. Lögreglumenn voru þó almennt ánægðir með umferðina sem var mikil og þung alla helgina.

Vatnsleki í íbúð í Safamýri

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan tvö í dag vegna vatnsleka í íbúð í Safamýri. Húsráðendur voru heima þegar heitt vatn tók að leka í baðherbergi í íbúðinni, sem eru í fjölbýli, en fólkinu var engin hætta búin. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að stöðva lekann. Svo virðist sem gólfefni séu skemmd en vatnið hefur ekki borist inn í nærliggjandi íbúðir.

Segir Íslendinga hafa keypt gullmola

Danska blaðið Jótlandspósturinn segir að Íslendingar hafi keypt gullmola í danska iðnaðinum með kaupunum á Skanvægt um helgina. Í undirfyrirsögn segir að fyrst hafi það verði stórmagasín, síðan flugfélög, dagblaðsútgáfa og nú sé röðin komin að kaupum Íslendinga á iðnaðarfyrirtækjum. Reyndar gleymir blaðið að Íslendingar eiga líka orðið umtalsverðan hlut í dönsku bjórframleiðslunni og eru orðnir umsvifamiklir í fasteignarekstri í Kaupmannahöfn.

Framtíð friðargæslu á Sri Lanka rædd

Framtíð friðargæslu á Srí Lanka ræðst á næstu dögum en sendifulltrúi norræna eftirlitsins fundar með fulltrúum stríðandi fylkinga fram eftir vikunni. Tveir hjálparstarfsmenn fundust myrtir í bænum Muttur í morgun.

Sprengjuæfing síðar í mánuðinum

Fimmta og ef til vill síðasta fjölþjóðlega sprengueyðingaræfingin verður haldin á Keflavíkurflugvelli síðar í mánuðinum, með þáttöku hátt í 80 erlendra sérfræðinga. Æfingar þessar, sem bera heitið Northern Challenge, hófust eftir að bandaríkjaher hætti að efna til reglubundinna æfinga bandaríska heimavarnarliðsins hér á landi.

Þreyttur og kaldur eftir hrakningar næturinnar

Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, var orðinn hrakinn, kaldur og svangur þegar björgunarmenn fundu hann á Skeiðarársandi í morgun. Hann fannst kl. 8 í morgun u.þ.b fimm kílómetra fyrir sunnan þjóðveginn á milli Skaftafellsár og Skeiðarár.

Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning

Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning helgarinnar í tengslum við sjónarmið samtakanna varðandi útihátíðarhald og kynferðisbrot. Samtökin ítreka að þau hafi boðið upp á þjónustu sína fyrir helgina til þess eins að tryggja að skortur á þjálfuðu starfsfólki kæmi ekki í veg fyrir að áfallahjálp væri í boði yfir verslunarmannahelgina.

Orðalag ályktunar rætt

Minnst fimmtán óbreyttir borgarar féllu í um áttatíu loftárásum sem Ísraelsher gerði á Líbanon í nótt og í morgun. Á meðan sitja fulltrúar þeirra ríkja sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á rökstólum og ræða orðalag ályktunar sem á að verða grunnur að vopnahléi í landinu.

Alþjóðlegt skátamót sett í Perlunni

Það fór lítið fyrir sólinni þegar 250 skátar komu saman við Perlunna í morgun þar sem alþjóðlegt skátamót var sett. Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir mótinu sem haldið er hér á landi í þriðja sinn. Skátarnir eru á aldrinum 15-30 ára og koma frá tíu löndum, meðal annars frá Færeyjum og Hong Kong. Skátarnir munu fara í ferðir um landið næstu fjóra daga en skátarnir velja sér ferðir sem boðið verður upp á víða um land. Að ferðunum loknum munu skátarnir sameinast á ný á Úlfljótsvatni og dvelja þar í tvær nætur.

Gistinóttum fjölgaði um 8% í júnímánuði

Gistinóttum á hótelum í júní síðastliðnum fjölgaði um tæp 8% eða úr tæplega 124.000 133.000 frá því í sama mánuði á síðasta ári. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarðar eða um 17%. Fjölgun gistinátta er bæði meðal Íslendinga og útlendinga en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en um 5% meðal útlendinga.

Lamaður maður klífur fjall

Svo virtist í gær sem langþráður draumur lamaðs Japana myndi rætast þegar hann var kominn langleiðina upp hæsta fjall Sviss. Seiji Uchida lamaðist í umferðaslysi fyrir rúmum tveimur áratugum en þrátt fyrir það hefur hann haft það að markmiði að klífa fjall. Það var svo fyrir nokkru sem ákveðið var að hann legði í ferð upp Breithorn-fjall sem er rúmir fjögur þúsund metrar á hæð.

Síamstvíbuarar gangast undir erfiða aðgerð

Læknar í Salt Lake City í Bandaríkjunum reyna nú hvað þeir geta til að aðskilja tvíburarsysturnar Kendru og Maliyuh Herrin sem eru samvaxnar fyrir neðan mitti. Kendra og Maliyah eru fjögurra ára. Þær hafa aðeins tvo fætur og eitt nýra. Ekki er vitað til þess að áður hafi verið reynt að aðskilja síamstvíbura með aðeins eitt nýra.

Engir mótmælendur á Kárahnjúkasvæðinu

Allt er nú með kyrrum kjörum á Kárahnjúkasvæðinu eftir mótmæli síðustu daga. Síðustu mótmælendurnir voru fluttir frá búðunum við Lindir í gær og niður á Egilsstaði. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, segir að flutningur fólksins hafi gengið vandræðalaust fyrir sig en allur hópurinn, um tólf manns, var fluttur á Egilsstaði. Það eru því engar búðir við Lindir núna og segir Óskar að lögreglan muni fylgjast með hvort mótmælendur fari á Kárahnjúkasvæðið á ný til að mótmæla. Flestir mótmælandanna eru útlendingar og telur Óskar að þeir séu enn á Egilsstöðum eða nágrenni, en búnaður fólksins er enn í haldi lögreglunnar.

Forseti Eþíópíu heimsækir flóðasvæði

Björgunarmenn hafa leitað eftirlifenda í rústum húsa eftir að skyndiflóð urðu um tvö hundruð manns að bana í Austur-Eþíópíu um liðna helgi. Vatnsflaumurinn skall á húsum í Dire Dawa, 500 km austur af höfuðborginni Addis Ababa, eftir að nálæg á flæddi yfir bakka sínum snemma í gærmorgun. Töluvert hafði rignt á svæðinu.

Hátt á 200 fíkniefnamál komu upp um helgina

Á annað hundrað fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um verslunarmannahelgina, aðallega í tengslum við útihátíðir og lang flest á Akureyri. Búist er við að ekki séu öll kurl enn komin til grafar og fleiri mál eigi eftir að koma í ljós. Í mörgum tilvikum er um svonefnd smámál að ræða, eða að fólk hefur verið tekið með fíkniefni til einkaneyslu, en nokkur sölumál eru einnig í rannsókn og í tengslum við þau var hald lagt á talsvert af fíkniefnum. Lögregla hafði víða mjög mjög öflugt eftirlit með þessum málum og kann það að skýra fjölda mála að hluta.

Endurtalningar krafist

Mörg þúsund stuðningsmenn mexíkóska vinstirmannsins Andres Manuel Lopez Obrador komu saman fyrir utan höfuðstöðvar kjörstjórnar í Mexíkó í gær til að krefjast endurtalningar í forsetakosningum þar í landi. Lopez Obrador var í framboði í þeim kosningum og hefur krafist þess að atkvæði verði öll talin að nýju. Kjörstjórn hefur hins vegar úrskurðað að atkvæði frá níu prósent kjörstaða verði talin á ný.

Aðeins 107 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku

Aðeins 107 kaupsamningum vegna íbúðakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, sem er 28 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Meðaltalið hefur líka lækkað ört, eða úr 150 samningum fyrir þremur vikum niður í 135 núna. Húsnæðiskaupveltan var 2,7 milljaðrar og hefur aðeins mælst lægri í janúar og apríl, á árinu. Meðal upphæð samninga lækkaði lítillega í síðustu viku, frá 12 vikna meðaltalinu.

Njósnavél Hizbolla skotin niður

Ísraelsher sendi í gærkvöldi frá sér myndband sem sagt er sýna þegar vél ísrelska flughersins skýtur niður fjarstýrða smávél Hizbollah-skæruliða þar sem henni var flogið undan strönd Ísraels.

Enn gestir í Vestmannaeyjum

Slatti af þjóðhátíðargestum er enn í Vestmannaeyjum en búist er við að flestir eða allir komist heim í dag. Þar fór allt vel fram í gærkvöldi og í nótt. Það fóru heldur ekki allir gestir frá Akureyri í gærkvöldi og voru tveir þeirra handteknir í nótt grunaðir umm innbrot og jafnvel fleiri afbrot um helgina.

Lausn í sjónmáli

Fulltrúar ríkja sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sitja nú á rökstólum og ræða orðalag ályktunar um vopnahlé í átökum Ísraela og Hizbollah-skæruliða. Sendiherra Þjóðverja segir samkomulag í sjónmáli. Að minnsta kosti 49 almennir borgarar féllu í árásum Ísraelshers á Líbanon í gær.

Umferð gekk vel

Þrátt fyrir mjög mikla umferð til höfuðborgarsvæðisins í gær og fram á kvöld, er ekki vitað til þess að neitt slys eða umtalsverð óhöpp hafi orðið. Að sögn lögreglumanna má vel við una, ekki síst í ljósi þess að margir bílar drógu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi, sem ökumenn eru óvanir að hafa aftan í bílum sínum. Þrátt fyrir að umferðin væri alla jafnan róleg, stöðvaði lögreglan á Blönduósi fimmtíu ökumenn fyrir of hraðan akstur og í Vestur Skaftafellssýslu voru 80 stöðvaðir um helgina fyrir hraðakstur.

Fleiri hjálparstarsmenn myrtir á Srí Lanka

Frönsk hjálparsamtök á Srí Lanka segja að tveir starfsmenn þeirra til viðbótar hafi fundist látnir í bænum Muttur í nótt. Fimmtán aðrir fundust látnir í höfuðstöðvum samtakanna í bænum í gær. Ekki liggur fyrir hvort stjórnarher landsins eða uppreisnarmenn Tamíltígra bera ábyrgð á morðunum en fulltrúar þeirra saka hvorn annan um morðin.

Fannst á Skeiðarársandi

Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, fannst klukkan átta í morgun á Skeiðarársandi. Hann var þreyttur og hrakinn, en heill á húfi, þegar björgunarsvietarmenn á fjórhjólum óku fram á hann. Hann var ekki vel búin til útivistar, en rigning var á leitarsvæðinu í nótt. Hátt í 200 leitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og sporhundum, en leitin var strax blásin af. Ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn yfirgaf tjaldstæðið við þjónustumiðstöðina í fyrrinótt.

Kaupendur í betri stöðu en seljendur

Seljendur fasteigna hafa þrýst á um hærra verð en fasteignasalar hafa ráðlagt. Vegna samdráttar í sölu seljast slíkar eignir síður. Fasteignasali segir fólk ekki selja langt undir verðmati. Það hætti frekar við og leigi út.

Neituðu að greiða atkvæði

Skipting menntaráðs Reykjavíkurborgar í tvennt með stofnun leikskólaráðs var afgreidd af fundi menntaráðs í gær. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna sat hjá við afgreiðsluna.

Starfa undir eigin merkjum

Marel hefur keypt danska matvælavélaframleiðandann Scanvaegt International á 109,2 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 9,9 milljörðum íslenskra króna.

Lífeyrissjóðir sýni félagslega ábyrgð

Formaður Samfylkingar kallar eftir samfélagslegri ábyrgð lífeyrissjóða gegn misskiptingu í þjóðfélaginu. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir önnur markmið en skýr ávöxtunarsjónarmið vera lögbrot.

Ísland beiti áhrifum sínum

Íslandsdeild Amnesty International sendi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra áskorun á föstudaginn vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs.

Segir stjórnvöld undir þrýstingi bænda

Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir stjórnvöld óttast afnám verndartolla búvara enda þrýsti bændur á óbreytt kerfi. Mörg atkvæði séu í húfi. Landbúnaðarráðherra hafnar því og varar við auknum beingreiðslum til bænda.

Aðstandendur eru sáttir

Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi um helgina var gleðin mikil víðsvegar um landið.

Látin áður en þyrlan kom

Kona á fertugsaldri lét lífið í bílslysi á Suðurlandsvegi við Langastaði í Flóahreppi, um hálf eittleytið aðfaranótt mánudags.

Sprengjuregnið var óþægilega nálægt

Harðir bardagar hafa staðið milli stjórnarhers Srí Lanka og Tamíltígra í norðausturhluta Srí Lanka eftir að Tamíltígrar skrúfuðu fyrir vatnsrennsli til bæjarins. Íslenskur friðargæsluliði lenti í skotárás um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir