Fleiri fréttir Skjálftar á Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesi í nótt og mældust sterkustu skjálftarnir 2,5 og 2,7 á Richter. Síðan hafa orðið margir minni eftirskálftar á bilinu einn til einn og hálfur á Richter. 10.7.2006 13:18 Fjórir menn slösuðust á Íslandsmótinu í ralli Forseti Landssambands íslenskra akstursíþróttamanna segir öllum öryggisreglum hafa verið framfylgt í Íslandsmótinu í ralli um helgina þar sem fjórir menn slösuðust. 10.7.2006 13:04 Ársfundur ÖSE-þingsins Ársfundur ÖSE-þingsins var haldinn í Brussel 3.-7. júlí og var yfirskrift fundarins styrking mannöryggis. 10.7.2006 12:00 Lögræðingar Husseins krefjast fullnægjandi verndar Lögfræðingar Saddams Hussein lýstur því yfir við réttarhöldin yfir honum í morgun að þeir myndu sniðganga dómhaldið þar til kröfum þeirra um vernd yrði fullnægt. 10.7.2006 11:27 Earthquakes in south Iceland 10.7.2006 11:24 Enginn talinn hafa lifað af Farþegaflugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. 41 farþegi og fjögurra manna áhöfn eru talin af. 10.7.2006 11:19 Ísraelski hermaðurinn enn í haldi Leiðtogi Hamas, Khaled Mashaal, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í Damaskus í Sýrlandi í morgun að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit yrði ekki látinn laus nema að Ísraelar létu sjálfir palestínska fanga úr haldi. 10.7.2006 11:12 Minnst 124 létust í flugslysinu í Síberíu Flaggað er í hálfa stöng um allt Rússland í dag og viðburðir hafa verið felldir niður til að minnast þeirra sem létust í flugslysinu í Síberíu í fyrrinótt. 10.7.2006 10:39 Forsetahjónin boðin í Hvíta húsið í kvöld George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Laura Bush forsetafrú hafa boðið íslensku forsetahjónunum til kvöldverðar í Hvíta húsinu í kvöld. Kvöldverðurinn er til heiðurs Special Olympics, íþróttastarfi í þágu fatlaðra. Heiðursgestur kvöldsins verður Eunice Kennedy Shriver, upphafskona Special Olympics og systir John F. Kennedy heitins, en hún varð 85 ára í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief forsetafrú flugu til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Á meðan á heimsókn þeirra í Washington stendur mun Ólafur Ragnar eiga fundi með ýmsum áhrifa- og forystumönnum Special Olympics og þingmönnum á bandaríska þinginu. 10.7.2006 10:15 Stjórn Sálfræðingafélags Íslands í mál við Samkeppniseftirlitið Stjórn Sálfræðingafélags Íslands hefur ákveðið að fara í mál vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá í janúar síðastliðnum. 10.7.2006 10:09 French Sailors in Grundafjörður 10.7.2006 09:53
Sjá næstu 50 fréttir
Skjálftar á Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesi í nótt og mældust sterkustu skjálftarnir 2,5 og 2,7 á Richter. Síðan hafa orðið margir minni eftirskálftar á bilinu einn til einn og hálfur á Richter. 10.7.2006 13:18
Fjórir menn slösuðust á Íslandsmótinu í ralli Forseti Landssambands íslenskra akstursíþróttamanna segir öllum öryggisreglum hafa verið framfylgt í Íslandsmótinu í ralli um helgina þar sem fjórir menn slösuðust. 10.7.2006 13:04
Ársfundur ÖSE-þingsins Ársfundur ÖSE-þingsins var haldinn í Brussel 3.-7. júlí og var yfirskrift fundarins styrking mannöryggis. 10.7.2006 12:00
Lögræðingar Husseins krefjast fullnægjandi verndar Lögfræðingar Saddams Hussein lýstur því yfir við réttarhöldin yfir honum í morgun að þeir myndu sniðganga dómhaldið þar til kröfum þeirra um vernd yrði fullnægt. 10.7.2006 11:27
Enginn talinn hafa lifað af Farþegaflugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. 41 farþegi og fjögurra manna áhöfn eru talin af. 10.7.2006 11:19
Ísraelski hermaðurinn enn í haldi Leiðtogi Hamas, Khaled Mashaal, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í Damaskus í Sýrlandi í morgun að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit yrði ekki látinn laus nema að Ísraelar létu sjálfir palestínska fanga úr haldi. 10.7.2006 11:12
Minnst 124 létust í flugslysinu í Síberíu Flaggað er í hálfa stöng um allt Rússland í dag og viðburðir hafa verið felldir niður til að minnast þeirra sem létust í flugslysinu í Síberíu í fyrrinótt. 10.7.2006 10:39
Forsetahjónin boðin í Hvíta húsið í kvöld George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Laura Bush forsetafrú hafa boðið íslensku forsetahjónunum til kvöldverðar í Hvíta húsinu í kvöld. Kvöldverðurinn er til heiðurs Special Olympics, íþróttastarfi í þágu fatlaðra. Heiðursgestur kvöldsins verður Eunice Kennedy Shriver, upphafskona Special Olympics og systir John F. Kennedy heitins, en hún varð 85 ára í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief forsetafrú flugu til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Á meðan á heimsókn þeirra í Washington stendur mun Ólafur Ragnar eiga fundi með ýmsum áhrifa- og forystumönnum Special Olympics og þingmönnum á bandaríska þinginu. 10.7.2006 10:15
Stjórn Sálfræðingafélags Íslands í mál við Samkeppniseftirlitið Stjórn Sálfræðingafélags Íslands hefur ákveðið að fara í mál vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá í janúar síðastliðnum. 10.7.2006 10:09
Allir hálendisvegir opnir Allir hálendisvegir hafa nú verið opnaðir og góð færð er um allt land. Víðast hvar eru þó vegaframkvæmdir í gangi og er mikilvægt að ökumenn taki tillit til þeirra og virði hraðatakmarkanir. 10.7.2006 09:45
Fyrirlestur frá Alþjóðasamtökum launafólks í almannaþjónustu vel sóttur Fyrirlestur Jürgens Buxman og Alans Leather frá Alþjóðasamtökum launafólks í almannaþjónustu var vel sóttur á föstudaginn síðastliðinn. 10.7.2006 09:12
Kólnun heldur áfram á fasteignamarkaðnum Kólnun heldur áfram á fasteignamarkaðnum og í síðustu viku var aðeins hundrað tuttugu og einum kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu sem er 27 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. 10.7.2006 09:00
Réttað yfir Saddam Hussein á ný Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust aftur í morgun. Þetta er lokahluti réttarhaldanna yfir Saddam Hussein og sex öðrum. 10.7.2006 08:58
Fimm særðust í loftárásum Ísraelsmanna í nótt Fimm særðust, þeirra á meðal átta ára stúlka, í loftárásum Ísraelsmanna nærri Gaza borg í nótt. Ísraelski herinn segir að loftárásin hafi verið gerð á bíl sem fluttihermenn Hamas-samtakanna. 10.7.2006 08:30
Avion dregur Exel til ábyrgðar Stjórnendur Avion Group ætla að draga stjórnendur dótturfélagsins Exel til ábyrgðar fyrir að hafa ekki fylgt góðum reikningsskilavenjum þegar stjórnendur Exel sömdu um þjónustu við Alpha Airports síðastliðið sumar. 10.7.2006 08:15
Rán í Þingholtunum Karlmaður, sem talinn er vera á þrítugsaldri, rændi verslun í Þingholtunum í gærkvöldi og komst undan. Agreiðslukona var ein í versluninni þegar ræningjann bar að garði, enda stóð úrslitaleikur heimsmesitarakeppninnar í knattspyrnu sem hæst. 10.7.2006 08:12
Flugvél ferst í Pakistan Flugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. Nýjustu fregnir herma að allir hafi farist. Ekki er vitað hvað olli slysinu og ekki liggur fyrir hvar slysið varð nákvæmlega eða hvernig vél fórst. 10.7.2006 08:09
Sex þúsund gestir á Akureyri Eitthvað umþaðbil sex þúsund gestir , sem voru á Akureyri vegna pollamótsins og Essómótsins, hurfu úr bænum eins og dögg fyrir sólu upp úr hádegi, eða fyrr en búist hafði verið við. 10.7.2006 08:02
Röð bílasprengjuárása í Bagdad Tólf biðu bana og 62 særðust í tveimur bílprengjuárásum í Austur-Bagdad í morgun. Þá létust sautján í tveimur slíkum árásum í höfuðborginni í gær, rétt hjá moskum sjía. 10.7.2006 08:00
Jarðskjálftar á Reykjanesi Tveir snarpir jarpðskjálftar urðu á Reykjanesi í nótt. Annar klukkan rúmlega þrjú aust-norð-austur af Reykjanestá upp á þrjá komma tvo á Richter og hinn klukkan hálf fimm norðaustur af Grindavík upp á þrjá komma einn á Richter. 10.7.2006 07:55
Miklar umferðartafir inn í höfuðborgina Óvenju miklar umferðartafir urðu bæði á Vesturlandsvegi og Suðrulandsvegi undir kvöld i gær þegar tugir þúsunda ökumanna reyndu í einu að komast til höfuðborgarinnar fyrir úrslitaleikinn í knattspyrnu. 10.7.2006 07:30
Flugslys í Síberíu Talið er að hemlunarbúnaður hafi bilað þegar flugmenn Airbus A-310 farþegaflugvélar misstu stjórn á vélinni við lendingu í Irkutsk í Síberíu í fyrrinótt. 10.7.2006 07:28
Velta á Þorlákshafnarvegi Fólksbíll valt á Þorlákshafnarvegi skammt frá hringtorginu við Hveragerði skömmu eftir leikslok í heimsmeistarakeppninni. Ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp lítið meidur, en reyndist ver töluvert ölvaður eftir teiti vegna úrslitaleiksins 10.7.2006 07:26
Ítalir heimsmeistarar í knattspyrnu Ítalir urðu í gær heimsmeistarar í knattspyrnu í fjórða sinn eftir að hafa lagt Frakka að velli. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni að lokinni framlengingu. 10.7.2006 07:08
Byggði kirkju með aðstoð fjölskyldunnar Úthlíðarkirkja var vígð í dag, en það var bóndinn í Úthlíð sem hafði veg og vanda af byggingu hennar og bróðir hans hannaði kirkjuna og málaði altaristöfluna, en þetta er fyrsta húsið sem hann hannar. 9.7.2006 20:37
Dönum líkar íslenska skyrið Guðni Ágústsson mætti í opnunarveislu í Kaupmannahöfn í maí til að kynna skyrið - og stefnt var að því að selja það bara í Kaupmannahöfn til áramóta. En Íslendingar læra seint þolinmæði Dana og hafa fyrirspurnir frá þeim meðal annars orðið til þess að nú er farið að selja skyrið víðar í landinu. 9.7.2006 20:36
Vilja draga menn til ábyrgðar Avion fyrirtækið viðurkennir að ekki hafi verið fylgt góðum reikningsskilavenjum við bókfærslu á reikningi dótturfyrirtækis þess upp á milljarð króna síðasta sumar. Í yfirýsingu frá Avion segir að stjórnendur dótturfyrirtækisins verði dregnir til ábyrgðar. 9.7.2006 18:39
Ók ölvaður og án ökuleyfis Lögreglan á Borgarnesi stöðvaði sextán manns fyrir of hraðann akstur um helgina. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur, í öðru tilvikinu ungur piltur sem var að koma frá írskum dögum á Akranesi. Drengurinn var bæði ölvaður og ók án ökuleyfis eftir að hafa verið sviptur fyrir umferðarlagabrot nokkru áður. 9.7.2006 15:34
Hafna vopnahléi Allt virðist á leiðinni í sama farið á Gaza, eftir að Ísraelsmenn höfnuðu í gær tilboði um vopnahlé frá forsætisráðherra Palestínu. Framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna krefst þess að Ísraelsmenn leyfi hjálparstarfsmönnum að vinna óhindrað á svæðinu. 9.7.2006 12:08
Hagvöxtur eykst Heimsmeistaramótið í fótbolta eykur hagvöxt í Þýskalandi um núll komma þrjú prósent og tuttugu og fimm þúsund ný störf lifa áfram eftir að keppninni lýkur. Fjöldi áhorfenda er þegar mættur á Olympíuleikvanginn í Berlín, þar sem úrslitaleikurinn fer fram í kvöld. 9.7.2006 12:02
Ölvun á Goslokahátíð Goslokahátíðin í Vestmannaeyjum fór fram í nótt. Að sögn Lögreglunnar í Vestmannaeyjum sóttu um 2000 manns hátíðina, flestir gamlir Vestmannaeyingar. Talsvert hafi borið á ölvun en engin stórmál komið upp og fangageymslur verið tómar. 9.7.2006 09:56
Fyllerí á Akranesi Lögreglan á Akranesi segir að ástandið í bænum hafi ekki skánað í nótt. Allt tiltækt lögreglulið stóð vaktina vegna mikillra ólæta nóttina áður. Unglingafyllerí hefur sett svip sinn á hátíðina Írskir dagar sem lýkur í dag. 9.7.2006 09:29
145 létust í flugslysi í Rússlandi í morgun 145 manns fórust og 55 slösuðust þegar rússnesk Airbus A-310 farþegaflugvél fórst á flugvellinum í Irkutsk í Síberíu í nótt. Vélin rann yfir flugbrautina, skall utan í steinvegg og hafnaði loks á húsi þar sem hún brotnaði. Vélin varð alelda á skömmum tíma en um 50 manns tókst þó að forða sér úr brennanndi flakinu. 9.7.2006 08:42
Offituaðgerðin er að borga sig Offituaðgerð á Landspítalanum borgar sig upp á átta árum fyrir íslenska ríkið samkvæmt nýrri úttekt. Ung kona sem fór í slíka aðgerð um miðjan júní er þegar hætt að taka lyf sem hún tók að staðaldri fyrir aðgerðina og innan skamms hættir hún á þremur til viðbótar. 8.7.2006 20:45
Amfetamín flæðir til landsins Sprenging hefur orðið í innflutningi á amfetamíní ef marka má tölur um magnið sem yfirvöld hafa lagt hald á undanfarið. Frá áramótum hefur lögregla og tollgæsla tekið 60 kíló af amfetamíni í nokkrum stórum málum - en til samanburðar fundust 16 kíló allt árið í fyrra. Löggæsluyfirvöld telja engan vafa leika á því að þessi innflutningur sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. 8.7.2006 20:43
Slasaðist í rallý Ökumaður í rallaksturskeppni í Skagafirði slasaðist í dag þegar hann ók út af sérleið. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur, og er hugsanlega hryggbrotinn. Tuttugu mínútum eftir slysið slasaðist annar rallökumaður þegar bíll hans flaug yfir hæð og lenti harkalega á veginum. 8.7.2006 18:56
Boðar bjarta framtíð Stefán Eiríksson nýskipaður lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins boðar betri löggæslu með sameiningu embætta. 8.7.2006 18:53
Skipulögð glæpastarfsemi Sprenging hefur orðið í innflutningi á amfetamíní ef marka má tölur um magnið sem yfirvöld hafa lagt hald á undanfarið. Frá áramótum hefur lögregla og tollgæsla tekið 60 kíló af amfetamíni í nokkrum stórum málum - en til samanburðar fundust 16 kíló allt árið í fyrra. Löggæsluyfirvöld telja engan vafa leika á því að þessi innflutningur sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. 8.7.2006 18:47
Sex ára stúlka lætur lífið í loftárás Sex ára palestínsk stúlka lést í loftárás Ísraelshers nú undir kvöld. Það glittir þó í ljós í myrkrinu á Gasa-svæðinu, eftir að Ísraelsher dró liðsafla sinn á norðurhluta Gasa til baka í morgun. 8.7.2006 18:45
Ódýr leiga Stefán Kjærnested, eigandi 80 fermetra íbúðar, sem sjö pólskir starfsmenn Atlantsskipa greiddu 245 þúsund króna mánaðarleigu fyrir, segir það ódýra leigu. 8.7.2006 18:37
Sjötug mamma Sextíu og tveggja ára kona varð í vikunni sú elsta til að eignast barn í sögu Bretlands. Konan hefur verið gagnrýnd harkalega í Bretlandi fyrir að ákveða að eignast barn á sjötugsaldri. 8.7.2006 17:29
Slagsmál á Írskum dögum Ólæti, ofbeldi og ölvun setti svip sinn á Írska daga á Akranesi í gærnótt. Fjöldi unglinga eru í bænum og ætlar lögreglan að herða eftirlit fyrir kvöldið. 8.7.2006 13:22
Kallar eftir friði Forsætisráðherra Palestínu kallaði í morgun eftir friði á Gaza svæðinu. Þá hefur Ísraelsher dregið liðsafla sinn á norðurhluta Gaza til baka yfir landamæri Ísraels. Svæðið hefur gjörsamlega logað í óeirðum undanfarna daga og enn sauð uppúr í morgun. 8.7.2006 12:21