Fleiri fréttir Avion sagt hafa hagrætt bókhaldi Dótturfyrirtæki Avion í Bretlandi, Excel Airways, er sakað um að hafa hagrætt bókhaldi sínu á síðasta ári þannig að milliuppgjör sýndi milljarði króna betri stöðu en raunin var. Milliuppgjörið var lagt til grundvallar í hlutafjárútboði Avion undir lok síðasta árs. Avion hefur nú leiðrétt ársuppgjör dótturfyrirtækisins. 7.7.2006 18:52 Tilboð í flugleiðir innanlands opnuð Tilboð í ríkisstyrkt áætlunarflug voru opnuð í húsakynnum Vegagerðarinnar í gær. Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboð í tvær flugleiðanna, Sauðárkrók og Hornafjörð. Flugfélagið Ernir átti lægsta tilboð í flug á Bíldudal og Gjögur og Flugfélag Íslands átti lægsta tilboð í Norðursvæði, það er Vopnafjörð, Þórshöfn og Grímsey. 7.7.2006 18:15 Vilja endurráðningu án skilyrða Læknafélag Íslands býður Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi, að leggja sitt að mörkum við að semja um starfsskyldur tveggja lækna sem sagt hefur verið upp störfum, ef spítalinn endurræður þá án skilyrða. 7.7.2006 17:59 Fá ekki greiðslur frá tryggingarfélögum Foreldrar barna sem greinast með langvinna sjúkdóma fá ekki greiddar greiðslur frá tryggingarfélögum ef börnin greinast fyrir þriggja mánaða aldur. Margrét Össurardóttir móðir, tíu mánaða langveikrar stúlku fær engar launagreiðslur í veikindum barnsins vegna þess að það greindist með sjúkdóms sinni tveimur mánuðum áður en nýtt frumvarp um launagreiðslur foreldrar í veikindum barna tók gildi. 7.7.2006 17:53 Komu í veg fyrir hryðjuverk Bandaríska Alríkislögreglan, FBI, tilkynnti í dag að starfsmönnum þeirra hefið tekist að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á samgöngukerfi New York borgar. Hópur erlendra hryðjuverkamanna hafði unnið að skipulagningu hryðjuverkanna um nokkurt skeið. 7.7.2006 17:52 Samstaða um forgang vegaframkvæmda á Vestfjörðum Skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestfjarðakjördæmis. 7.7.2006 16:57 Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli sektuð um 60 milljónir Flugþjónustunni á Keflavíkurflugvelli hefur verið gert að greiða um 60 milljónir í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. 7.7.2006 15:01 Bush Senior goes Fishing 7.7.2006 13:55 Stefán Eiríksson nýr lögreglustjóri Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hefur skipað Stefán Eiríksson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins frá og með 15. júlí næst komandi. Um er að ræða nýtt embætti sem varð til með sameiningu nokkurra lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu, þegar lögregluembættum landsins var fækkað. 7.7.2006 13:30 Nýr framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins samþykkti á fundi sínum í gær, 6. júlí, að ráða Finnboga Jónsson, sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Finnbogi er fæddur á Akureyri 18. janúar 1950 . Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá HÍ 1973, lokaprófi í eðlisverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1978 og lokaprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Lundi sama ár. 7.7.2006 13:15 Páll Bragi Kristjónsson hættur hjá Eddu Páll Bragi Kristjónsson, sem verið hefur forstjóri Eddu útgáfu í þrjú ár og stjórnarformaður félagsins í eitt ár þar á undan, hefur ákveðið að láta af störfum. Edda hefur um árabil átt við erfiðan rekstur að etja, þótt verulega hafi miðað í rétta átt síðustu ár, að sögn stjórnenda. 7.7.2006 12:45 Telja stjórnvöld hafa rétt til að ráða Hamas-leiðtoga af dögum Ísraelsher hélt áfram árásum sínum á Gaza-ströndina í morgun, bæði úr lofti og á landi. Þorri ísraelsks almennings telur að stjórnvöld hafi rétt til að ráða leiðtoga Hamas-samtakanna af dögum. 7.7.2006 12:45 Exceptional Lobster Season 7.7.2006 12:31 Ræða ráðstöfun mannvirkja varnarliðsins Ráðstöfun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli er aðal umræðuefnið í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna, sem var fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, þótt þetta sé nefnt Varnarviðræður. 7.7.2006 12:30 Dagbækur Columbine morðingjanna gerðar opinbera Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert opinber gögn frá fjölskyldum drengjanna tveggja sem myrtu 12 skólafélaga sína og kennara í gagnfræðiskólanum Columbine árið 1998. Meðal þess sem var gert opinbert eru dagbókafærslur drengjanna. 7.7.2006 12:30 Símafyrirtækin hefðu getað stöðvað tölvuþrjóta Íslensk símafyrirtæki hefðu getað komið í veg fyrir að erlendir tölvuþrjótar rændu umtalsverðum fjárhæðum úr heimabanka Íslendings. Þetta segir Friðrik Skúlason tölvufræðingur sem rannsakaði málið upp á eigin spítur og telur sig hafa komið upp um tölvuþrjótin. 7.7.2006 12:15 Gripnir með 12 kíló af amfetamíni Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. 7.7.2006 12:05 Sigurjón hættur á Fréttablaðinu Sigurjón M Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Hann segist kveðja Fréttablaðið með söknuði. Það var á fréttafundi snemma í morgun sem Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu að hann hyggðist söðla um og taka við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón, sem er gamall sjómaður, hefur staðið í stafni Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. 7.7.2006 12:00 Nature's Diet 7.7.2006 11:41 Amphetamine Find on Ferry 7.7.2006 11:41 Idyllic Iceland 7.7.2006 11:40
Sjá næstu 50 fréttir
Avion sagt hafa hagrætt bókhaldi Dótturfyrirtæki Avion í Bretlandi, Excel Airways, er sakað um að hafa hagrætt bókhaldi sínu á síðasta ári þannig að milliuppgjör sýndi milljarði króna betri stöðu en raunin var. Milliuppgjörið var lagt til grundvallar í hlutafjárútboði Avion undir lok síðasta árs. Avion hefur nú leiðrétt ársuppgjör dótturfyrirtækisins. 7.7.2006 18:52
Tilboð í flugleiðir innanlands opnuð Tilboð í ríkisstyrkt áætlunarflug voru opnuð í húsakynnum Vegagerðarinnar í gær. Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboð í tvær flugleiðanna, Sauðárkrók og Hornafjörð. Flugfélagið Ernir átti lægsta tilboð í flug á Bíldudal og Gjögur og Flugfélag Íslands átti lægsta tilboð í Norðursvæði, það er Vopnafjörð, Þórshöfn og Grímsey. 7.7.2006 18:15
Vilja endurráðningu án skilyrða Læknafélag Íslands býður Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi, að leggja sitt að mörkum við að semja um starfsskyldur tveggja lækna sem sagt hefur verið upp störfum, ef spítalinn endurræður þá án skilyrða. 7.7.2006 17:59
Fá ekki greiðslur frá tryggingarfélögum Foreldrar barna sem greinast með langvinna sjúkdóma fá ekki greiddar greiðslur frá tryggingarfélögum ef börnin greinast fyrir þriggja mánaða aldur. Margrét Össurardóttir móðir, tíu mánaða langveikrar stúlku fær engar launagreiðslur í veikindum barnsins vegna þess að það greindist með sjúkdóms sinni tveimur mánuðum áður en nýtt frumvarp um launagreiðslur foreldrar í veikindum barna tók gildi. 7.7.2006 17:53
Komu í veg fyrir hryðjuverk Bandaríska Alríkislögreglan, FBI, tilkynnti í dag að starfsmönnum þeirra hefið tekist að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á samgöngukerfi New York borgar. Hópur erlendra hryðjuverkamanna hafði unnið að skipulagningu hryðjuverkanna um nokkurt skeið. 7.7.2006 17:52
Samstaða um forgang vegaframkvæmda á Vestfjörðum Skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestfjarðakjördæmis. 7.7.2006 16:57
Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli sektuð um 60 milljónir Flugþjónustunni á Keflavíkurflugvelli hefur verið gert að greiða um 60 milljónir í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. 7.7.2006 15:01
Stefán Eiríksson nýr lögreglustjóri Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hefur skipað Stefán Eiríksson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins frá og með 15. júlí næst komandi. Um er að ræða nýtt embætti sem varð til með sameiningu nokkurra lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu, þegar lögregluembættum landsins var fækkað. 7.7.2006 13:30
Nýr framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins samþykkti á fundi sínum í gær, 6. júlí, að ráða Finnboga Jónsson, sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Finnbogi er fæddur á Akureyri 18. janúar 1950 . Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá HÍ 1973, lokaprófi í eðlisverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1978 og lokaprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Lundi sama ár. 7.7.2006 13:15
Páll Bragi Kristjónsson hættur hjá Eddu Páll Bragi Kristjónsson, sem verið hefur forstjóri Eddu útgáfu í þrjú ár og stjórnarformaður félagsins í eitt ár þar á undan, hefur ákveðið að láta af störfum. Edda hefur um árabil átt við erfiðan rekstur að etja, þótt verulega hafi miðað í rétta átt síðustu ár, að sögn stjórnenda. 7.7.2006 12:45
Telja stjórnvöld hafa rétt til að ráða Hamas-leiðtoga af dögum Ísraelsher hélt áfram árásum sínum á Gaza-ströndina í morgun, bæði úr lofti og á landi. Þorri ísraelsks almennings telur að stjórnvöld hafi rétt til að ráða leiðtoga Hamas-samtakanna af dögum. 7.7.2006 12:45
Ræða ráðstöfun mannvirkja varnarliðsins Ráðstöfun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli er aðal umræðuefnið í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna, sem var fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, þótt þetta sé nefnt Varnarviðræður. 7.7.2006 12:30
Dagbækur Columbine morðingjanna gerðar opinbera Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert opinber gögn frá fjölskyldum drengjanna tveggja sem myrtu 12 skólafélaga sína og kennara í gagnfræðiskólanum Columbine árið 1998. Meðal þess sem var gert opinbert eru dagbókafærslur drengjanna. 7.7.2006 12:30
Símafyrirtækin hefðu getað stöðvað tölvuþrjóta Íslensk símafyrirtæki hefðu getað komið í veg fyrir að erlendir tölvuþrjótar rændu umtalsverðum fjárhæðum úr heimabanka Íslendings. Þetta segir Friðrik Skúlason tölvufræðingur sem rannsakaði málið upp á eigin spítur og telur sig hafa komið upp um tölvuþrjótin. 7.7.2006 12:15
Gripnir með 12 kíló af amfetamíni Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. 7.7.2006 12:05
Sigurjón hættur á Fréttablaðinu Sigurjón M Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Hann segist kveðja Fréttablaðið með söknuði. Það var á fréttafundi snemma í morgun sem Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu að hann hyggðist söðla um og taka við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón, sem er gamall sjómaður, hefur staðið í stafni Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. 7.7.2006 12:00
Enginn varnarsamningur Varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna hófust í Þjóðmenningarhúsinu í dag, eftir hlé síðan í apríl. Fundurinn hófst klukkan níu í morgun. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, heldur verði frekar rætt um ráðstöfun mannvirkja og annarra eigna á varnarsvæðinu. Þar eru meðal annars rúmlega 800 íbúðir og eru yfir 500 þeirra nú þegar tómar. Þá eru þar margvíslegar þjónustubyggingar auk hernaðarmannvirkja og slökkvibifreiða flugvsallarins en ekki hefur rætt um varnarsamning eins og vonir stóðu til. 7.7.2006 10:40
Tólf kíló af fíkniefnum fundust í Norrænu Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. Tveir Litháar, sem voru á bílnum voru handteknir og verður krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þeim í dag. Óskar Bjartmars, yfirlögregluþjónn vill ekki staðfesta að ábending hafi leitt til fundarins, en eftir að efnið fannst naut tollgæsla og lögregla heimamanna, aðstoðar manna frá Ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og tollgæslunnar i Reykjavík, sem staddir voru eystra vegna skipakomunnar. 7.7.2006 10:06
Sluppu eftir fjölda velta Tvær stúlkur sluppu lítið meiddar þegar bíll þeirra valt undir Ingólfsfjalli austanverðu á sjöunda tímanum í morgun og valt nokkrar veltur. Þær komust sjálfar út úr bílflakinu en voru fluttar á Slysadeild Borgarspítalans til aðhlynningar. Báðar voru í bílbeltum. Sú sem ók mun hafa misst bílinn út fyrir slitlagið og reynt að rykkja honum inn á aftur, en við það snérist bíllinn og valt.- 7.7.2006 09:59
Ellefu manns handteknir vegna fíkniefna Ellefu manns á aldrinum 16 til 35 ára voru handteknir í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt í tengslum við átta fíkniefnamál, sem upp komu í sameiginlegu átaki lögreglu í báðum bæjunum. Lagt var hald á anfetamín, hass, marijuana, kókaín, E-pillur og ýmis lyf, auk vopna. Flest málin voru svonefnd neyslumál, en í örðum tilvikum leikur grunur á sölu og dreyfingu. Ekki er lengra síðan en í fyrrinótt, að fjögur fíkniefnamál komu upp í Kópavogi.- 7.7.2006 09:51
Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraelshers Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Að minnsta kosti tuttugu og tveir Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í gærkvöld sem var einn versti átakadagur á svæðinu frá því að Ísraelsmenn réðust þar inn í leit að hermanni sem er í haldi Palestínumanna. Loftárásir Ísraela héldu áfram í nótt og í morgun og hefur Haniyeh, kallað stórsóknina glæpi gegn mannkyninu. að sögn Ísraelsher beinast aðgerðir þeirra gegn vopnuðum Palestínumönnum. Aðgerðir Ísraelsá Gaza að undanförnu eru þær umfangsmestu síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. 7.7.2006 09:44
Ræða um ráðstöfun íbúða á varnarsvæðinu Varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna verður fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í dag, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, heldur verði frekar rætt um ráðstöfun mannvirkja á varnarsvæðinu. Þar eru meðal annars rúmlega 800 íbúðir og eru yfir 500 þeirra nú þegar tómar. Þá eru þar margvíslegar þjónustubyggingar auk hernaðarmannvirkja.- 7.7.2006 09:30
Discovery tengd geimstöðinni ISS Tenging geimskutlunnar Discovery við alþjóðlegu geimstöðina ISS gekk áfallalaust fyrir sig og er áhöfn ferjunnar nú komin um borð í geimstöðina. Á móti henni tóku rússinn Pavel Vinogradov og Bandaríkjamaðurinn Jeff Williams en áhöfnin mun dvelja í geimstöðinni í átta daga að undanskildum þjóðverjanum Thomas Reiter sem mun dvelja í geimstöðinni í hálft ár. 7.7.2006 09:23
Símafyrirtækin brugðust Verulegu fé var nýverið stolið úr heimabanka íslendings með því að bandarískir tölvuþrjótar sendu SMS skilaboð til mannsins, sem hann fór eftir, en þannig komust þeir inn í tölvu mannsins og gátu millifært út úr einkabanka hans. OgVodafone og Síminn hefðu getað komið í veg fyrir þetta, segir Friðrik Skúlason, tölvufærðingur, en hann rekur fyrirtæki, sem sérhæfir sig í Vírusvörnum. Lögreglan hefur málið til rannsóknar . 7.7.2006 09:16
Sigurjón M. Egilsson hættur sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins Sigurjón M Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á fundi í morgun. Mikill sjónarmissir verður af Sigurjóni sem verið hefur fréttaritstjóri Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Þá er ljóst að samkeppni á fríblaðsmarkaðnum mun harðna mjög komu Sigurjóns á Blaðið. Samkvæmt heimildum NFS mun Sigurjóni verða gefna frjálsar hendur með það hvernig hann þróar Blaðið. Ekki liggur fyrir hvað verður um Ásgeir Sverrisson, núverandi ritstjóra Blaðsins. 7.7.2006 10:14
Bush Bandaríkjaforseti kominn á sjötugsaldur George Bush, Bandaríkjaforseti, er sextugur í dag. Hann ætlar þó ekki að halda daginn hátíðlega. Bush gerði lítið úr aldri sínum í dag og sagði að kvöldið yrði notað til að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum í Chicago, þess á meðal borgarstjóranum og demókratanum Richard Daley. 6.7.2006 23:06
Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraela Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Haniyeh segir árásirnar glæpi gegn mannkyninu en hann heimsótti fórnarlömb árásanna á Shifa spítalann í Gaza borg í kvöld. 6.7.2006 22:58
Drengur missti meðvitund við inntöku helíums Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum. 6.7.2006 22:54
Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn. 6.7.2006 22:42
Bandarískur hermaður játaði nauðgun og morð Steven Green, fyrrverandi bandarískur hermaður, játaði í dag að hafa nauðgað stúlku í Írak og drepið hana og fjölskyldu hennar. Maðurinn sem er 21 árs var leystur frá störfum í hernum þar sem hann var sagður þjást af persónuleikaröskun. 6.7.2006 22:42
Sautján látnir í átökum á Gaza í dag Að minnsta kosti sextán Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í kvöld. Herinn hefur fengið skipanir um að ráðast enn lengra inn á Gazasvæðið. Ofbeldið í dag er það mesta síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. 6.7.2006 21:00
Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki. 6.7.2006 19:11
Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn. 6.7.2006 18:00
Bílvelta á Uxahryggjum Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir. 6.7.2006 17:45
Felipe Calderon næsti forseti Mexíkó Nú þegar búið er að telja yfir nítíu og átta prósent atkvæða í forsetakosningunum í Mexíkó er ljóst að frambjóðandi hægrimanna Felipe Calderon hefur tryggt sér nauman meirihluta. Kosningarnar fóru fram á sunnudaginn var og endurtelja þurfti atkvæðin. Felipe Calderon fór jafnframt með sigur af hólmi eftir að atkvæði höfðu fyrst verið talin. Frambjóðandi vinstrimanna, Andres Manuel Lopez Obrador, frambjóðandi vinstrimanna, ætlar ekki að sætta sig við úrslitin og segjist ætla að láta ákveðinn kjördómstól fara yfir þau. Endanleg úrslit liggja því jafnvel ekki fyrir fyrr en í september. Lopez Orbador hefur skorað á stuðningsmenn sína að fjölmenna á mótmælafund í Mexíkóborg á laugardaginn og sýna þannig stuðning við hann. 6.7.2006 17:30
Davíð Oddsson segir samkomulag aðila vinnumarkaðarins auka á verðbólguþrýstinginn Verðbólguhorfur hafa versnað að mati Seðlabanka Íslands, sem telur því nauðsynlegt að hækka stýrivexti um 0,75 prósentur. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir nýlegt samkomulag aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins auka á verðbólguþrýstinginn og hætta sé á að launahækkanir til hinna lægst launuðu skríði upp allan launastigann. 6.7.2006 17:00
Reykjavíkurflugvöllur 60 ár undir íslenskri stjórn Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. Þá tók Ólafur Thors, forsætisráðherra, við flugvellinum við athöfn. Nú er að hefjast athöfn á flugvellinum til að minnast þessara tímamóta. Skömmu fyrir fimm munu flugvélar fljúga lágflug yfir flugvallarsvæðið og verður sýnt frá því á NFS í fimmfréttum. 6.7.2006 16:15
Faxaflóahafnir dæmdar til að greiða starfsmanni rúmlega 5 milljónir í skaðabætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Faxaflóahafnir hf. til að greiða Sigurði Ólafssyni skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við vinnu sína. Sigurður var þann 20. júlí 2004, sem starfsmaður hjá Skipaþjónustu Reykjavíkurhafnar, að binda olíuskip við Eyjagarð. Landfesti, sver kaðall með nælonkjarna slóst í Sigurð með þeim afleiðingum að hann hlaut höfuðáverka, meiddist í andliti og ökklabrotnaði. 6.7.2006 15:45
Sumarstarfsmaður forðar tuttugu bílum úr eldsvoða Sextán ára norskur strákur í sumarvinnu á bílasölu sem selur lúxusbíla, vann aldeilis fyrir kaupinu sínu þegar kviknaði í næsta húsi við bílasöluna, um nótt. Strákurinn kom á vettvang klukkan fimm um morguninn og sá strax að eldurinn var að berast í bílasöluna. Hann fór því inn í sýningarsalinn og keyrði tuttugu bíla út, hvern á eftir öðrum, meðal annars rándýran Ferrari. Hann ræddi svo við lögregluna sem gerði ekki athugasemdir við aksturinn, þótt stráksi sé ekki kominn með bílpróf. 6.7.2006 15:30
Hatursglæpur að dreifa áróðri Fjórir Svíar hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæp í Hæstarétti landsins. Þeir höfðu áður verið sýknaðir í undirrétti. Mennirnir höfðu dreift fluguritum, fyrir utan skóla, þar sem því var meðal annars haldið fram að útbreiðsla alnæmis væri fyrst og fremst samkynhneigðum að kenna. 6.7.2006 15:15
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent