Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vann 5,6 milljarða í lottói Atvinnulaus Frakki í Val d´Oise nærri París datt heldur betur í lukkupottinn í dag þegar hann vann andvirði um 5,6 milljarða króna í Evrópulottóinu ásamt einu af sjö börnum sínum. Peningarnir koma eflaust að góðum notum, en tölurnar á lottóseðlinum voru valdar út frá aldri fjölskyldumeðlima. 17.9.2005 00:01
Varaði við útbreiðslu kjarnavopna Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði í dag við útbreiðslu kjarnavopna og hryðjuverka í ávarpi sínu á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York. Annan sagði að hættan á því að kjarnorkuvopn kæmust í hendur hryðjuverkamanna ykist með degi hverjum og því mætti ekki tefla á tæpasta vað með það að leita diplómatískra lausna. 17.9.2005 00:01
Stjórn kvennahreyfingar valin Bryndís Friðgeirsdóttir var í dag valinn formaður nýrrar kvennahreyfingar innan Samfylkingarinnar sem stofnuð var í Hveragerði í dag. Með Bryndísi í stjórn verða Ragnhildur Helgadóttir, Sigrún Stefánsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir, en auk þess mun þingflokkur Samfylkingarinnar skipa eina konu í stjórnina. 17.9.2005 00:01
Leit hefur ekki borið árangur Víðtæk leit af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er eftir að bátur fórst á Viðeyarsundi, hefur staðið yfir í allan dag en hefur enn ekki borið árangur. Gengnar hafa verið fjörur frá Gróttu fram yfir Hofsvík á Kjalarnesi. Kafarar frá Björgunarsveitunum, slökkviliði höfuðborgarsvæðisinns og Landhelgisgæsluni hafa kafað á Viðeyjarsundi en einnig hefur verið notast við sónarleitartæki og neðansjávarmyndavél. 17.9.2005 00:01
Mannskæð árás í Bagdad Að minnsta kosti 30 létust og 38 særðust í bílsprengjuárás á markaði í hverfi fátækra í Bagdad fyrir stundu. Ekki er ljóst hver stóð fyrir árásinni en <em>Reuters</em>-fréttastofan hefur eftir lögreglu í Bagdad að ekki hafi verið um sjálfsmorðsárás að ræða heldur hafi bíl verið lagt á torgi og hann sprengdur í loft upp. 17.9.2005 00:01
Áfram í varðhaldi vegna smygls Hæstiréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir litáískum karlmanni sem ákærður hefur verið fyrir að smygla til landsins tæplega fjórum kílóum af metamfetamíni með Norrænu í júní síðastliðnum. 17.9.2005 00:01
Reyndi að fljúga á turn í Auckland Flugmaður, sem stal lítilli flugvél í Auckland í Nýja-Sjálandi í dag, endaði ferðina í sjónum fyrir utan borgina eftir að hafa hótað að fljúga vélinni á Sky Tower, eitt helsta kennileiti borgarinnar. Maðurinn stal vélinni á flugvelli suður af borginni og þegar flugmálayfirvöld náðu sambandi við hann hótaði hann að fljúga á hinn 328 metra háa turn þar sem m.a. er að finna spilavíti og hótel. 17.9.2005 00:01
Fleiri borgarbúar vilja Vilhjálm Fleiri Reykvíkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni til að gegna starfi borgarstjóra en Gísla Marteini Baldurssyni. Fleiri sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein skipa fyrsta sæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum. 17.9.2005 00:01
Reyna að heilla óákveðna kjósendur Nú þegar aðeins einn dagur er til þingkosninga í Þýskalandi keppast flokksleiðtogarnir við að vinna óákveðna kjósendur á sitt band. Gerhard Schröder, kanslari, segir Jafnaðarmannaflokki hans best treystandi fyrir framtíð landsins, en Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, sakar hann um svikin loforð. 17.9.2005 00:01
Vill fjölga valkostum eldra fólks Ríkisstjórnin mun í þessum mánuði hitta fulltrúa samráðsnefndar eldri borgara til að ræða málefni eins og stöðu þeirra á vinnumarkaðnum. Heilbrigðisráðherra vill fjölga valkostum gamals fólks. 17.9.2005 00:01
3-4% ungra kvenna með átröskun Á milli þrjú og fjögur prósent kvenna undir þrítugu þjást af átröskun af einhverju tagi. Á málþingi í dag mátti heyra átröskunarsjúklinga segja sína sögu. 17.9.2005 00:01
Pæjurnar plotta Stofnfundur kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fór fram í Hveragerði í gær. Yfirskrift fundarins var "Pæjur og pólitískt plott" en um hundrað konur af öllu landinu voru þarna saman komnar og var Bryndís Friðgeirsdóttir bæjarfulltrúi á Ísafirði kosin formaður. 17.9.2005 00:01
Líkið af Friðriki Ásgeiri fundið Líkið af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni fannst seinni partinn í dag. Rétt fyrir klukkan sex náðu kafarar líkinu upp og var komið með hann að landi nú rétt fyrir fréttir. 17.9.2005 00:01
Framboð til öryggisráðs í uppnámi Framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er í uppnámi að mati varaformanns Framsóknarflokksins sem segir að Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sé kominn í stjórnarandstöðu. Stjórnarandstaðan skilur ekkert í hringlandahætti ríkisstjórnarinnar. 17.9.2005 00:01
Júlíus Vífill líklegur í toppslag Líklegt er talið að Júlíus Vífill Ingvarsson gefi út yfirlýsingu í dag um að hann bjóði sig fram í efsta sæti lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. 17.9.2005 00:01
Stjórnarandstaðan saklaus "Það opinberast fyrir framan alþjóð að stjórnarliðar tala í austur og vestur. Ríkisstjórnin hefur haldið á þessu eins og hún ætli sér í framboð til öryggisráðsins og hefur varið til þess miklum fjármunum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 17.9.2005 00:01
Búa til ágreining "Ég bið menn nú að oftúlka ekki mín orð. Þessi umræða hefur ítrekað farið fram innan þingflokksins," segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. 17.9.2005 00:01
Lík Friðriks fundið Lík Friðriks Ásgeirs Hermannssonar, sem fórst þegar bátur strandaði á Viðeyjarsundi laugardaginn 10. september síðastliðinn, fannst eftir umfangsmikla leit í gær. 17.9.2005 00:01
Íbúar ráði sjálfir uppbyggingu Sigurður Jónsson bæjarstjóri Garðs segir að bæjarstjórnin hafi allt frá byrjun verið nánast einróma þeirrar skoðunar að leggjast gegn sameiningu sveitarfélagsins við Sandgerði og Reykjanesbæ. 17.9.2005 00:01
Ráða Austur-Þjóðverjar úrslitum? Munurinn á fylkingum í Þýskalandi lítill og óljóst hvað ræður úrslitum. Austur-Þjóðverjar gætu reynst þungir á metunum. 17.9.2005 00:01
Vilja virkja konur í stjórnmálum Konur eru ekki eins virkar og karlar í stjórnmálum og þessu þarf að breyta, segja Samfylkingarkonur, sem hafa stofnað kvennahreyfingu innan flokksins. 17.9.2005 00:01
Kosningaskrifstofan opnuð Gísli Marteinn opnaði kosningaskrifstofu sína í gær í Aðalstræti 6. "Það hefur verið góð stemning hér í allan dag," sagði Gísli Marteinn í gær og bætti við að um þrjú hundruð manns hefðu mætt og lýst yfir stuðningi sínum. 17.9.2005 00:01
Talibanar mótmæla kosningum Glæpa- og ofbeldisalda hefur gengið yfir Afganistan að undanförnu vegna kosninganna sem haldnar eru í dag. Tuttugu Talibanar voru staðnir að verki þegar þeir reyndu að koma fyrir sprengju hjá stíflu. Hefði hún sprungið hefði mörgum þúsundum mannslífa verið stofnað í hættu. 17.9.2005 00:01
Talinn tengjast al-kaída Spænska lögreglan hefur handtekið fréttamann Al-Jazeera fréttastöðvarinnar. Hann hefur verið ákærður fyrir að tengjast hryðjuverkasamtökunum al-kaída. 17.9.2005 00:01
Fjör í Skeiðaréttum í dag Menn og fé undu sér vel í Skeiðaréttum í dag. Landbúnaðarráðherrann lét ekki sitt eftir liggja. 17.9.2005 00:01
Fluguveiði gegn námsleiða Námsleiði hrjáir ekki lengur nemendur í grunnskólanum í bænum Wem í Shrop-skíri á Englandi. Eftir að fluguveiði var gerð að skyldugrein, hlakka þeir til hvers skóladags. 17.9.2005 00:01
Varavinnuafl á Íslandi Samkvæmt íslenskum lögum eru erlendir starfsmenn hér á landi ekkert annað en varavinnuafl. Þetta kom fram á fundi um málefni innflytjenda sem haldinn var í húsakynnum Reykjavíkurakademíunnar. 17.9.2005 00:01
Fjórðungur kjósenda óákveðinn Þýskir stjórnmálamenn héldu ótrauðir áfram kosningabaráttunni í gær. Mjótt er á mununum en 25 prósent kjósenda eru enn óákveðin. Kosið verður í dag. 17.9.2005 00:01
Lýsti yfir framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna "Að endingu, herra forseti, er það trú okkar að Ísland geti lagt sitt af mörkum til friðar og velferðar allra aðildarríkjanna. Þess vegna sækist Ísland í fyrsta skipti eftir sæti í öryggisráðinu á kjörtímabilinu 2009-2010," sagði Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra í ávarpi sem hann flutti leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York í kvöld. 16.9.2005 00:01
Boðaði framboð í öryggisráð Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af skarið með framboð Íslendinga til setu í Öryggisráði Sameinuðuþjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Miðað er við kjörtímabilið 2009 til 2010. 16.9.2005 00:01
Viðurkenndi mistök stjórnvalda George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í gær að öll stig stjórnkerfisins hefðu brugðist eftir hamfarirnar við Mexíkóflóa. Hann sagði í sjónvarpsræðu í gærkvöldi að vandinn hefði reynst yfirþyrmandi fyrir þunglamalegt kerfi sem þyrfti að bæta. Hann bæri á endanum sjálfur ábyrgðina sem forseti landsins og það væri einnig í hans höndum að finna lausnina. 16.9.2005 00:01
Ráðist á verkamenn í Írak Uppreisnarmenn í Írak skutu þrjá verkamenn til bana í Bagdad í morgun og særðu fimmtán til viðbótar. Aðeins tveir dagar eru síðan sjálfsmorðsárásarmaður ók að hópi verkamanna á svipuðum slóðum í höfuðborginni með þeim afleiðingum að meira en hundrað létu lífið. Hrina árása er hafin í landinu eftir að Abu Musab al-Zarqawi, yfirmaður al-Qaida í Írak, lýsti yfir stríði á hendur sjítum í fyrradag. 16.9.2005 00:01
Á tvöföldum hámarkshraða á Sæbraut Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann á Sæbraut á 132 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Han var því á ríflega tvöföldum hámarkshraða og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum. 16.9.2005 00:01
57% vilja Vilhjálm í fyrsta sætið 52 prósent sjálfstæðsimanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins við komandi borgarstjórnarkosningar og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þetta er niðurstaða könnunar sem Gallup vann fyrir einkafyrirtæki og birt er í <em>Morgunblaðinu</em>. Dæmið snýst hins vegar við þegar borgarbúar úr öllum flokkum voru spurðir. Þá völdu rúmlega 57 prósent Vilhjálm og tæp 43 prósent Gísla Martein. 16.9.2005 00:01
Minnihluti hyggst snúa aftur Minna en helmingur íbúa New Orleans sem hefst við í öðrum borgum ætlar að snúa aftur. Samkvæmt nýrri könnun sem unnin var fyrir dagblaðið <em>Washington Post</em> ætla aðeins 43 prósent íbúanna að snúa aftur en 44 prósent þeirra ætla að koma sér upp heimili annars staðar. Þrátt fyrir að hafa misst heimili sín sögðust níu af hverjum tíu vongóðir um bjarta framtíð. 16.9.2005 00:01
Grútur yfir gljáfægðan brúðarbíl Glansinn hvarf heldur betur af gljáfægðum væntanlegum brúðarbíl þegar hann mætti vörubíl með grútarfarmi á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Í sama mund rann hluti farmsins af vörubílnum með þeim afleiðingum að brúðarbíllinn varð löðrandi í grút og fitu og lagði af honum mikinn fnyk langar leiðir. 16.9.2005 00:01
Dó úr fuglaflensu í Indónesíu Yfirvöld á Indónesíu staðfestu í morgun fjórða dauðsfallið í landinu af völdum fuglaflensu. Þá er annar maður smitaður af flensunni í landinu og staðfest hefur verið að banamein konu sem lést í síðustu viku hafi verið fuglaflensa. Heilbrigðisyfirvöld á Indónesíu óttast er að faraldur sé í aðsigi. Alls hafa nú 64 látist af völdum fuglaflensu í Asíu síðan hennar varð fyrst vart árið 2003. 16.9.2005 00:01
Flugeldamarkaður sprakk í loft upp Frægasti flugeldamarkaður í Mexíkó sprakk í gær í loft upp í orðsins fyllstu merkingu. Þrátt fyrir viðvörunarspjöld allt í kringum markaðinn brá einn viðskiptavinurinn á það ráð að kveikja í nýkeyptum flugeldum sínum og afleiðinganna þurfti ekki að bíða lengi. Á aðeins örfáum sekúndum komst eldur í nær alla flugeldana og nærri fimm hundruð fermetra svæði gereyðilagðist og gríðarlegur reykur steig upp. 16.9.2005 00:01
Enn einn frambjóðandinn myrtur Uppreisnarmenn úr röðum talibana skutu í nótt frambjóðanda til þingkosinga í Afganistan til bana. Árásarmennirnir kölluðu nafn mannsins fyrir utan heimili hans og sátu svo fyrir honum þegar hann kom út og hófu skothríð. Kosningarnar í Afganistan fara fram um helgina, en þegar er búið að myrða sjö frambjóðendur. 16.9.2005 00:01
Baunir og hnetur gegn krabbameini Þeir sem eru duglegir við að borða baunir, hnetur og gróft kornmeti, virðast ólíklegri en aðrir til að fá krabbamein. Ný rannsókn breskra lækna bendir til að efni sem finnist í þessum matvælum dragi úr virkni ensíms sem myndar æxli. Rannsakendur binda jafnvel vonir við að mögulegt sé að vinna lyf úr efninu góða sem myndi nýtast krabbameinssjúklingum. 16.9.2005 00:01
Mýs sleppa út af rannsóknarstofu Þrjár mýs, sem eru smitaðar af farsótt sem einkennist af eitlabólgu og örmögnun, sluppu út af rannsóknarstofu í New Jersey í Bandaríkjunum fyrir tveim vikum. Mýsnar hafa enn ekki fundist og líklegt er talið að þær séu þegar dauðar af völdum farsóttarinnar. Sérfræðingar segja nær engar líkur á að þær hafi borið smit í menn. 16.9.2005 00:01
Boðað til kosninga á Grænlandi Hans Enoksen, forsætisráðherra grænlensku landsstjórnarinnar, boðaði í morgun til kosninga í landinu þann 22. nóvember næstkomandi eftir að viðræður stjórnarflokkanna um fjárlög sigldu í strand. Síúmútflokkur Enoksens og samstarfsflokkur hans í landsstjórninni, Inúítaflokkurinn, hafa deilt hart undanfarna mánuði eftir að upp komst að tveir ráðherrar í Síúmútflokknum hefðu misnotað almannafé. 16.9.2005 00:01
Átta saknað eftir slys við Síberíu Óttast er að átta manns hafi farist þegar yfirhlaðið fraktskip sökk undan ströndum Síberíu í Rússlandi í morgun. Um fimmtán manns voru um borð í skipinu þegar óhappið varð og í kringum 80 tonn af ýmsum varningi, en skipið hafði einungis heimild til að hafa um þrjátíu tonna farm. Mjög slæmt veður var á svæðinu þegar skipið sökk. 16.9.2005 00:01
Tók af öll tvímæli um framboð Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af öll tvímæli um framboð Íslendinga til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Verðandi utanríkisráðherra vill ekki tjá sig um málið. 16.9.2005 00:01
Heildarlaun VR-félaga hækka um 10% Heildarlaun félagsmanna í VR hafa hækkað um tíu prósent frá því í fyrra, þremur prósentum meira en almennt á vinnumarkaði. 16.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent