Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Konur hafa áhrif á heimsmálin Askalú Menkeríos, fyrrverandi hermaður og núverandi menningarmálaráðherra Erítreu, segir að Vigdís Finnbogadóttir hafi sannað það fyrir heiminum að konur geti verið þjóðarleiðtogar og haft áhrif á heimsmálin. Hún er komin hingað til lands til að sitja heimsfund menningarmálaráðherra úr röðum kvenna. 26.8.2005 00:01
Gallabuxur á raðgreiðslum Það kemur eflaust mörgum á óvart en vinsælustu gallabuxurnar á markaðinum í dag kosta yfir 20 þúsund krónur. Og það sem meira er, þær seljast eins og heitar lummur. 26.8.2005 00:01
Vaxtalaus listmunalán Vaxtalaus listmunalán þykja hafa hleypt lífi í listmunamarkaðinn hér á landi og opnað almenningi leið að samtímalist. Þegar hefur verið gengið frá tvö hundruð og tuttugu lánum, fyrir rúmlega fjörutíu og þrjár milljónir króna. 26.8.2005 00:01
Átta sýningar á vetrardagskrá Ungir leikarar og einn sem er að hefja sitt fimmtugasta leikár, ætla að taka höndum saman um að gera þetta ár eftirminnilegt fyrir Leikfélag Akureyrar. Átta sýningar eru á vetrardagskrá Leikfélags Akureyrar. Þeirra viðamest er rokksöngleikurinn Litla hryllingsbúðin, en Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri, vonast til að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. 26.8.2005 00:01
Prófmál í Bolungarvík Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í morgun Bolungarvíkurkaupstað til að greiða eigendum þriggja húsa á snjóflóðahættusvæði í bænum rúmar fimmtíu og sjö milljónir króna, sem er nokkuð hærra en bærinn vildi borga. Bæjarstjóri segir að um prófmál sé að ræða. 26.8.2005 00:01
Fílaflutningarnir frestuðust Stærstu fílaflutningar í sögu Keníu standa nú yfir. Hlé hefur hins vegar verið gert á flutningunum þar sem bifreið sem flytja á fílana gaf sig undan þunganum. 26.8.2005 00:01
Pyntaðir til sagna Yfirvöld í Úsbekistan hafa hneppt hundruð manna í varðhald og þvingað þá til að viðurkenna tengsl við íslamska öfgamenn. 26.8.2005 00:01
Fá 57 milljónir í stað 40 Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í gær Bolungarvíkurkaupstað til að greiða eigendum þriggja húsa við Dísarland í Bolungarvík rúmar 57 milljónir auk vaxta í eignarnámsbætur. Olgeir Hávarðarson, eigandi eins hússins, segir þetta í það minnsta einn áfanga og fagnar því, þótt óljóst sé hvort kaupstaðurinn áfrýji dómnum til Hæstaréttar. 26.8.2005 00:01
Bush blandast í umræðurnar Enn er pattstaða í stjórnarskrárgerð Íraks. Sjíar og Kúrdar hyggjast leggja plaggið í dóm þjóðarinnar þrátt fyrir mikla andstöðu súnnía við inntak þess. George W. Bush Bandaríkjaforseti blandaði sér í gær í viðræðurnar. 26.8.2005 00:01
Vill fyrsta sætið Gísli Marteinn Baldursson mun tilkynna stuðningsmönnum sínum á sunnudag að hann hyggist sækjast eftir fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. 26.8.2005 00:01
Fjórtán börn fórust í brunanum Eldur kom upp í annað sinn á stuttum tíma í húsi afrískra innflytjenda í París og í þetta sinn brunnu sautján manns inni. Aðstæður þessa þjóðfélagshóp eru afar bágbornar. 26.8.2005 00:01
Landnemum fjölgar Ísraelskum landtökumönnum á Vesturbakkanum hefur fjölgað umtalsvert undanfarin misseri. 26.8.2005 00:01
Fjórðungur of feitur Sílspikuðum Bandaríkjamönnum fjölgar hraðar en nokkru sinni fyrr og lætur nærri að fjórðungur landsmanna glími við offitu. 57 prósent íslenskra karla eru yfir kjörþyngd. 26.8.2005 00:01
Mikil fækkun nýrra sjúklinga "Þetta er jákvætt skref sem orðið hefur að tala nýrra sjúklinga hefur ekki verið minni síðan 1995," segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, en í nýrri ársskýrslu SÁÁ kemur fram að nýir sjúklingar á stofnuninni hafa ekki verið færri í tíu ár þrátt fyrir að almennt sígi á ógæfuhlið að öðru leyti. 26.8.2005 00:01
Menningarnótt tókst að mestu vel Engar ákvarðanir voru teknar varðandi hugsanlegar breytingar á fyrirkomulagi varðandi Menningarnótt í Reykjavík á fundi aðstandenda hátíðarinnar sem fram fór í gær. 26.8.2005 00:01
Yfir 2.000 ótryggðir bílar Ríflega 2.200 bifreiðar voru í gær á skrá Umferðarstofu yfir óvátryggða bíla, þar af voru um 800 sem verið höfðu á listanum frá því fyrir áramót. Gera má því ráð fyrir að yfir þriðjungur þeirra sem á annað borð skulda tryggingar trassi það mánuðum saman að borga. 26.8.2005 00:01
Vill hjálp tryggingafélaganna Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir stöðuga "rassíu" í gangi hjá lögreglu við að klippa númer af óvátryggðum ökutækjum. Sökum umfangs segir hann lögreglu þó gjarnan vilja sjá breytingar á vinnulagi við starfann. 26.8.2005 00:01
Prestur fær viku til að svara Biskup Íslands hefur óskað eftir því við Björn Bjarnason, ráðherra dóms- og kirkjumála, að Birgir Ásgeirsson verði settur sóknarprestur í Garðabæ til þriggja mánaða. Áætlað er að auglýsa starf sóknarprests í Garðasókn laust til umsóknar frá 1. desember. 26.8.2005 00:01
2.000 fá að velja efstu menn Kjördæmasambönd Framsóknarflokksins í suður- og norðurkjördæmum Reykjavíkur undirbúa sameiginlegan fund þar sem endanlega verður ákveðið hvernig staðið verður að sjálfstæðu framboði Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Fundurinn verður haldinn innan tíðar. 26.8.2005 00:01
Stefán Jón vill fyrsta sætið Stefán Jón Hafstein hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á framboðslista Samfylkingar. 26.8.2005 00:01
Stór björg féllu úr Óshlíð Töluverðar skemmdir urðu á veginum um Óshlíð og varnargirðingum í hlíðinni þegar stór björg féllu úr hlíðinni í gær. Björgin féllu á þriðja tímanum og þykir mildi að björgin lentu ekki á bílum sem óku um Óshlíðina. 25.8.2005 00:01
Hátt í 40 látnir í flóðum í Evrópu Nærri fjörutíu manns hafa látist af völdum mikilla flóða í Evrópu undanfarna fjóra daga. Björgunarsveitarmenn um alla álfuna standa nú í stórræðum vegna flóðanna sem ekki virðist ætla að linna alveg í bráð. Verst er ástandið í Rúmeníu, þar sem 1400 hús hafa eyðilagst þegar ár hafa flætt yfir bakka sína í úrhellisrigningu. Minnst 25 hafa farist þar. 25.8.2005 00:01
Vont ferðaveður á Austurlandi Mjög vont ferðaveður er nú á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs og hefur veðurstofan sent úr stormviðvörun. Þar er nú mikið rok og sviptivindasamt, en vegna veðursins var mikið um grjóthrun í Hvalnes- og Þvottaskriðum á milli Djúpavogs og Hafnar í nótt. Að sögn lögreglunnar á Höfn er enn þá vont ferðaveður og vill lögreglan hvetja ökumenn til að fara varlega. 25.8.2005 00:01
Dómstóll samþykkir kosningar Æðsti sambandsdómstóll Þýskalands komst í morgun að þeirri niðurstöðu að það væri lögmætt að boða til kosninga í landinu þann 18. september. Nokkrir samflokksfélagar Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, höfðu vefengt réttmæti þess að leysa upp þingið og boða til kosninganna þegar í september, en eftir úrskurðinn í morgun er nokkuð ljóst að kosningarnar verða haldnar hvað sem tautar og raular. 25.8.2005 00:01
Fjölga hermönnum í Írak Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ákveðið að fjölga enn í herliði sínu í Írak. Fimmtán hundruð bandarískir hermenn til viðbótar verða sendir til Írak áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá landsins verður haldin. Þegar eru 138 þúsund bandarískir hermenn í Írak, en þar sem óttast er að stjórnarskráin valdi enn frekari ólgu þótti réttast að bæta enn í hópinn. 25.8.2005 00:01
Fjögur sjúkraflug frá Akureyri Fjögur sjúkraflug voru farin frá Akureyri í gær. Sóttur var veikur maður til Grænlands og á Vopnafjörð þar sem slys hafði orðið. Þá var flogið með sjúkling frá Akureyri til Reykjavíkur þar sem hann þurfti að gangast undir aðgerð. Fjórða vélin var svo kölluð á Egilsstaði upp úr klukkan sex til að ná í sjúkling og flytja hann til Reykjavíkur. 25.8.2005 00:01
Átök á Vesturbakkanum Fimm manns féllu í átökum Palestínumanna og Ísraela í Jerúsalem og á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski herinn skaut fjóra palestínska uppreisnarmenn til bana seint í gærkvöldi. Að sögn talsmanns hersins voru mennirnir fjórir allir hryðjuverkamenn, sem meðal annars stóðu nýlega fyrir tveimur sprengjuárásum í Ísrael. Fyrr um kvöldið stakk palestínskur uppreisnarmaður tvo öfgafulla gyðinga í Jerúsalem. Annar þeirra lést af sárum sínum. 25.8.2005 00:01
Gripinn eftir glæfraakstur Ökumaður með barn í bíl sínum var í gær stöðvaður í Borgarnesi eftir glæfraakstur í Norðurárdal. Lögreglan á Hólmavík mældi manninn á 146 kílómetra hraða en ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og gaf í þegar hann varð var við lögregluna. Ökumaðurinn stofnaði lífi sínu og annarra í stórhættu með akstrinum, en hann var stöðvaður af lögreglunni í Borgarnesi. 25.8.2005 00:01
58 lifðu af flugslys í Perú Að minnsta kosti 58 manns komust lífs af úr flugslysinu í Perú í fyrradag. Nú hefur verið staðfest að 37 létust en ekki 41 eins og talið var í fyrstu. Þriggja er enn saknað. Orsakir flugslyssins eru enn ókunnar, en veður var slæmt og allt bendir til þess að flugmaðurinn hafi ætlað að reyna að lenda á hraðbraut en ekki náð að hitta á hana. 25.8.2005 00:01
Um sjö þúsund á Esjuna í sumar Tæplega sjö þúsund manns hafa skrifað nafn sitt í gestabók Ferðafélags Íslands á Þverfellshorni á Esjunni í sumar, en frá þessu er greint á heimasíðu Ferðafélagsins. Í dag verður sérstök gönguferð félagsins á Esjuna og meðal göngumanna verður Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, en forsætisráðuneytið styrkti framkvæmdir Ferðafélagsins á Þverfellshorni í sumar. Gangan hefst klukkan 18.30 í dag. 25.8.2005 00:01
Olíufatið yfir 67 dali í gær Olíuverð heldur áfram að hækka. Í gær fór heimsmarkaðsverðið yfir 67 dollara á fatið og hefur ekki verið hærra í mörg ár. Ástæða hækkunarinnar í gær er einkum ótti við hvirfilbyl nærri olíuverksmiðjum í Mexíkó. Þá hafa verkföll olíustarfsmanna í Ekvador og aðgerðir uppreisnarmanna í Írak einnig sitt að segja. 25.8.2005 00:01
Flestir umsækjendur hafi komist að Frístundaheimili Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar hafa náð að taka inn flest þau börn sem sóttu um fyrir augslýstan umsóknarfrest í vor. Á 26 af 33 frístundaheimilum eru öll börn komin inn sem sótt var um fyrir á réttum tíma. 10 frístundaheimili eru fullmönnuð, en mjög erfiðlega hefur gengið að manna frístundaheimili borgarinnar. 25.8.2005 00:01
Skutu gesti á kaffihúsi Sex óbreyttir borgarar létust og fimmtán særðust, flestir eldri karlar, þegar byssumenn réðust inn á vinsælt kaffihús í smábæ norður af Bagdad í morgun og hófu skotrhríð. Flestir gestanna sátu og borðuðu morgunmat þegar árasin átti sér stað. Ekki er ljóst hverjir stóðu á bak við árásina en þeir sem lifðu hana af töldu íslamska uppreisnarmenn hafa verið þar á ferð. 25.8.2005 00:01
Heimsþing Ladies Circle sett í dag Árlegt heimsþing samtakanna Ladies Circle hefst í Reykjavík í dag. Er þetta í fyrsta skipti sem þingið er haldið á Íslandi en það sækja um 600 konur frá 28 þjóðlöndum. Að lokinni setningu þingsins í Hallgrímskrikju klukkan hálfsjö í kvöld verður gengið í skrúðgöngu að Kjarvalsstöðum og munu margar konurnar klæðast þjóðbúningum landa sinna. 25.8.2005 00:01
Vilja reisa byggð í Leirvogstungu Mosfellsbær og fyrirtækið Leirvogstunga ehf. undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu 400 íbúða í landi Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Upppbygging hverfisins verður sveitarfélaginu að kostnaðarlausu þar sem framkvæmdaaðili tekur að sér lagningu vegar, brúargerð og fjármagnar byggingu skóla og leikskóla á svæðinu, en þetta mun vera nýjung í uppbyggingu á Íslandi. 25.8.2005 00:01
Búa til svartan lista yfir félög Frakkar hyggjast búa til og birta opinberlega svartan lista yfir flugfélög og lönd sem eiga lélega sögu í flugöryggismálum. Félögunum sem rata á listann verður ekki leyft að lenda á flugvöllum í Frakklandi. 25.8.2005 00:01
Kærði nauðgun í Bolungarvík Lögreglan í Bolungarvík rannsakar nauðgun sem sextán ára stúlka kærði um miðjan mánuðinn. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og enginn er grunaður. Lögreglan leitar enn upplýsinga. 25.8.2005 00:01
Framlengja varðhald vegna morðs Gæsluvarðhald yfir Phu Tién Nguyen sem grunaður er um að hafa orðið Vu Van Pong að bana í Kópavogi í maí hefur verið framlengt til 5. október næstkomandi. Hann hefur játað á sig morðið og telur lögreglan í Kópavogi sig hafa lokið rannsókn málsins og verður það sent ríkissaksóknara til umfjöllunar á morgun eða í næstu viku. 25.8.2005 00:01
Undirbúa atlögu að Alfreð Atlaga að Alfreð Þorsteinssyni oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavíkurborg er í undirbúningi fyrir næstu kosningar. Verið er að safna liði í kringum Önnu Kristinsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og íhugar hún að gefa kost á sér í efsta sæti listans. 25.8.2005 00:01
Rætt um að hætta við hækkun Borgarráð er nú að ræða tillögu Alfreðs Þorsteinssonar um að hætta við að hækka leikskólagjöld námsmanna. Gera má ráð fyrir að mikil mannekla í leikskólum borgarinnar verði einnig rædd. Eins stefndi í að ekki tækist að manna frístundaheimili borgarinnar en Íþrótta- og tómstundaráð hefur náð að taka inn flest þau börn sem sóttu um fyrir auglýstan umsóknarfrest. 25.8.2005 00:01
Schröder hafi ekki brotið lög Æðsti dómstóll Þýskalands hefur úrskurðað að Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og flokkur hans hafi ekki brotið stjórnarskrána með því að fella eigin stjórn með vantrauststillögu á þingi. Þingkosningar verða því 18. september eins og ráð var fyrir gert. 25.8.2005 00:01
Aron til landsins í næstu viku Aron Pálmi Ágústsson, sem setið hefur í fangelsi í Texas síðustu átta ár, er væntanlegur til landsins í næstu viku. Fréttastofan ræddi við Aron Pálma í morgun. 25.8.2005 00:01
Mannekla á hjúkrunarheimilum Forstjóri Hrafnistu segir sjaldan hafa gengið jafn illa að ráða í stöðugildi á hjúkrunarheimilinum og núna. Margt kemur til eins og lág laun og hversu snemma skólafólkið lýkur sumarstörfum. 25.8.2005 00:01
Hvassviðri gangi niður í nótt Mjög vont ferðaveður hefur verið á Austurlandi í nótt og í morgun. Veðurstofan segir hvassviðrið ganga niður í kvöld og nótt. 25.8.2005 00:01
Staða Íbúðalánasjóðs könnuð Félagsmálaráðherra hefur skipað sex manna nefnd sem mun á næstu vikum kanna stöðu og hlutverk íbúðalánasjóðs. Verður meðal annars skoðað hvort raunhæft sé að gera sjóðinn að heildsölubanka. 25.8.2005 00:01