Fleiri fréttir

Íran boðin aðild að WTO

Íran hefur verið boðin aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni eftir að leiðtogar ríkisins funduðu með leiðtogum Evrópusambandsins í gær. Bandaríkjamenn ætla ekki að koma í veg fyrir að Íran fái aðild að stofnuninni en með þessu er vonast til að Íran hætti við áform sín um framleiðslu kjarnavopna.

Serbi handtekinn í Argentínu

Yfirvöld í Argentínu hafa handtekið Serbann Neboidsja Minidsj sem grunaður er um að hafa átt þátt í þjóðarmorðum í Kosovo-stríðinu árið 1999. Yfirvöld í Argentínu hafa beðið Serbíu um öll gögn um Minidsj sem var handtekinn á miðvikudag í borginni Mendoza. Minidsj er ekki eftirlýstur af Sameinuðu þjóðunum vegna stríðsglæpa en er þó á lista í Serbíu þar sem mörg mál að þessu tagi eru rannsökuð.

Björguðu trillu út af Látrabjargi

Björgunarsveitin á Patreksfirði bjargaði í morgun sex tonna trillu sem varð aflvana eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi. Vörður, björgunarbátur félagsins, var kallaður út klukkan sex í morgun og var kominn að bátnum um tveimur klukkustundum síðar og er nú að draga hann til Patreksfjarðar.

Tveggja bíla árekstur í Hvalfirði

Sjúkraflutningamenn og lögregla eru enn á slysstað í Hvalfirði þar sem varð alvarlegt umferðarslys laust fyrir klukkan níu í morgun, vestan við Fell í Hvalfirði. Upplýsingar af slysinu eru af skornum skammti en þó er vitað að tveir bílar lentu þar í árekstri. Vegfarendur komast þó um fjörðinn með því að fara Eyrarfellsveg.

Þjóðverjar samþykkja stjórnarskrá

Efri deild þýska þingsins samþykkti fyrir stundu stjórnarskrá Evrópusambandsins eins og búist hafði verið við. Allir meginstjórnmálaflokkar Þýskalands höfðu lýst stuðningi við stjórnarskrána. Heldur syrtir hins vegar í álinn í Frakklandi þar sem hlutfall þeirra sem hyggjast greiða atkvæði gegn stjórnarskránni hefur hækkað um fimm prósentustig í þessum mánuði.

Kynnir sér vísindi, orku og lyf

Indlandsforseti mun kynna sér sérstaklega viðvörunarkerfi vegna aðsteðjandi jarðskjálfta og aðra náttúruvá í Íslandsheimsókn sinni sem hefst á mánudag. Heimsóknin stendur í tvo daga en þetta er í fyrsta sinn sem forseti Indlands kemur í opinbera heimsókn til Íslands. Einnig mun hann kynna sér samvinnu Íslendinga og Indverja á sviði lyfjaþróunar og lyfjaframleiðslu sem og nýtingu jarðhita og hvaða lærdóm Indverjar geti dregið af íslenska vetnisverkefninu.

Réðust inn á heimili vegna leiks

Fótboltinn getur leikið menn grátt og það gerðist á Vesturbakkanum á miðvikudagskvöld. Þá réðst hópur ísraelskra hermanna inn á heimili palestínskrar fjölskyldu og ruddi sér leið að sjónvarpstækinu á heimilinu. Þegar þeir höfðu náð fjarstýringunni á vald sitt stilltu þeir á úrslitaleik AC Milan og Liverpool og fylgdust með leiknum.

Ávarps Chiracs vakti litla lukku

Jacques Chirac, forseti Frakklands, gerði í gærkvöldi örvæntingafulla tilraun til að sannfæra landa sína um að styðja stjórnarskrá Evrópusambandsins. Ávarpið þótti ömurlegt.

Aðstoða bát uppi í fjöru

Varðskip og tvö björgunarskip eru á leið til lands með bát sem hafnaði uppi í fjöru við Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi. Einn maður var á bátnum en ekki fengust upplýsingar um hann fyrir fréttir. Í sjálfvirku kerfi tilkynningarskyldunnar sást að báturinn var kominn upp í fjöru og voru björgunarskip frá Bolungarvík og Ísafirði send af stað sem og varðskip sem var á þessum slóðum og er báturinn nú í togi.

Börnum líði vel í leikskólanum

Um mánaðamótin sameinast Leikskólar Reykjavíkur og Fræðslumiðstöð í nýtt menntasvið Reykjavíkurborgar. Samhliða því mun Bergur Felixson, sem verið hefur í forsvari leikskólanna í Reykjavík í samfellt 30 ár, láta af starfi. Á fréttamannafundi í morgun kynnti Bergur könnun sem gerð var meðal foreldra leikskólabarna í Reykjavík þar sem fram kom að 99 prósent foreldra telja að börnum þeirra líði vel í leikskólanum.

Meiðyrðamál tekið fyrir í dag

Meiðyrðamál Marcos Branacchia, fyrrverandi tengdasonar Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendiherra í Finnlandi, var tekið fyrir í lokuðu þinghaldi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Marco höfðaði málið vegna ummæla sem Jón Baldvin lét falla í viðtali við DV þar sem hann hélt því fram að Marco hefði hótað fjölskyldunni lífláti. Marco hefur staðið í harðvítugu forsjármáli síðustu ár gegn dóttur Jóns Baldvins.

Efni gerir drengi kvenlegri

Efni sem notað er í plastpoka, leikföng og snyrtivörur hefur alvarleg áhrif á þroska drengja í móðurkviði. Efnið veldur því að kynfæri þroskast ekki eðlilega og drengirnir verða kvenlegri.

Vinnulyfta hrundi af þriðju hæð

Vinnulyfta með tveimur mönnum hrundi niður af þriðju hæð á fjölbýlishúsi við Hátún í Reykjavík á tólfta tímanum í dag. Annar mannann náði að halda sér og skríða inn á svalir en hinn féll með lyftunni niður. Hann var fluttur á slysadeild. Ekki er ljóst hversu alvarlega hann er slasaður en þó vitað að hann er beinbrotinn.

Banaslys í Hvalfirði

24 ára karlmaður beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í morgun. Slysið varð á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman skammt hjá Meðalfellsafleggjara í Hvalfirði, sunnan megin, og var flutningabíllinn á leið inn fjörðinn en fólksbíllinn út. Ökumennirnir voru einir í bílunum og var áreksturinn mjög harður og lést ökumaður fólksbílsins.

Sagði eiginkonu hafa viljað deyja

Magnús Einarsson, sem ákærður er fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Kópavogi í nóvember í fyrra, sagði fyrir dómi í morgun að hún hefði beðið sig að hjálpa sér að deyja. Hann sagði hana ítrekað hafa sagst vilja deyja eftir að hafa verið honum ótrú.

Hugmyndir geti leitt til hækkana

Borgarstjóri segir líklegt að lóðaverð hækki með þeim miklu framkvæmdum sem tillögur sjálfstæðismanna um nýtt skipulag í borginni hefðu í för með sér.

Varð bráðkvaddur á báti

Maðurinn sem var á bátnum sem hafnaði uppi í fjöru við Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi laust fyrir hádegi reyndist látinn þegar björgunarskip komu á vettvang. Samkvæmt lögreglunni í Bolungarvík varð hann bráðkvaddur. Varðskip og tvö björgunarskip fóru á vettvang eftir að það sást í sjálfvirku kerfi tilkynningaskyldunnar að báturinn var kominn upp í fjöru. Báturinn var hann í kjölfarið dreginn til land.

Plastefni hamla þroska fóstra

Vísindamenn í Bandaríkjunum telja sig loks hafa sannað að algeng efni sem notuð eru til framleiðslu hversdagslegra hluta á borð við snyrtivara og leikfanga geta hamlað þroska karlkyns fóstra í móðurkviði.

ESA rannsakar stuðning við Farice

Eftirlitsstofnun EFTA hefur hafið rannsókn á stuðningi íslenskra stjórnvalda við Farice-verkefnið. Um er að ræða sæstreng sem var tekinn í notkun í fyrra og jók möguleika þjóðarinnar á samskiptum við útlönd um síma eða Netið þúsundfalt. Efasemdir hafa vaknað hjá eftirlitsstofnuninni, sem hefur umsjón með að reglum sé fylgt á evrópska efnahagssvæðinu, um að hlutafjáraukning ríkisins í verkefninu og ríkisábyrgð standist reglurnar.

Kynferðisbrotakafli endurskoðaður

Dómsmálaráðuneytið vinnur nú að breytingum og er að semja drög að frumvarpi á þeim ákvæðum í kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga sem fjalla um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Hefur ráðuneytið fengið Ragnheiði Bragadóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, til að semja drög að frumvarpi vegna breytinga á ákvæðunum.

Segir hugmyndir ekki stolnar

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, vísar ummælum Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra um að sjálfstæðismenn hafi stolið hugmyndum um uppbyggingu á Örfirisey algjörlega á bug. Steinunn Valdís sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að hugmyndirnar hefðu verið kynntar sem trúnaðarmál í hafnarstjórn á sínum tíma og greinilegt væri að sjálfstæðismenn gerðu þær að sinni tillögu nú. Því fagnaði hún.

Davíð opnar verksmiðju Lýsis

Davíð Oddsson utanríkisráðherra tekur nýja verksmiðju Lýsi hf. formlega í notkun í dag. Verksmiðjan, serm er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, er við Fiskislóð í Örfirisey og er hún 4.400 fermetrar að stærð. Í verksmiðjunni verður hægt að framleiða 6.000 tonn af lýsi á ári en 90 prósent framleiðslunnar fara á markað erlendis.

Nýtt fagfélag stofnað

Í dag verður stofnað Félag fagfólks í frítímaþjónustu, FFF, en það með rætist draumur um þúsund manns sem starfa á sviði æskulýðsmála víðs vegar um landið.

Rannsaka lát fanga í Abu Ghraib

Bandaríkjaher hefur hafið rannsókn á dauða íraksk fanga sem var skotinn til bana í Abu Ghraib fangelsinu í nótt. Í tilkynningu frá hernum kemur ekki fram hver aðdragandi málsins hafi verið en að fanginn hafi látist af sárum sínum á sjúkradeild fangelsisins og að unnið sé að rannsókn málsins.

Miðar við tveggja milljóna árslaun

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt að tjón konu, sem var bjargað frá drukknun úr hvolfdri bifreið í Hólmsá árið 2000, sé að fullu bætt með því að miða við tveggja milljóna króna árslaun. Hún gerði kröfu um þriggja milljóna króna viðmið. Konan, sem er tæplega þrítug, hlaut varanlegan heilaskaða og er metin 100 prósent öryrki eftir slysið og getur ekki snúið aftur á almennan vinnumarkað.

Sektaðir fyrir vopnaburð

Þrír menn á tvítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir til greiðslu sektar vegna brota á vopnalögum. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa verið með tvo hnífa með 45 sentímetra blaði og höggvoopn í miðborg Reykjavíkur í apríl í fyrra. Mennirnir voru dæmdir til að greiða hver 30 þúsund króna sekt fyrir vopnaburðinn.

Nýja Hringbrautin opnuð

Syðri akrein hinnar nýju Hringbrautar til austurs verður opnuð fyrir umferð um hádegisbil á morgun en verið er að leggja lokahönd á tengingar og prófun umferðarljósa.

Kanna tengsl Viagra og blindu

Lyfjaframleiðslurisinn Pfizer greindi frá því í dag að hann ætti í viðræðum við bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið um að fyrirtækið breyti texta á umbúðum stinningarlyfsins Viagra vegna frétta af því að menn hefðu blindast eftir að hafa notað það. Eftirlitið hefur fengið 38 tilkynningar um einhvers konar blindu frá notendum stinningarlyfsins og rannsakar málið.

Mál á hendur Ramsey þingfest

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag ákæra á hendur Scott Ramsey sem varð 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Sló Ramsey manninn í hálsinn hægra megin með þeim afleiðingum að rifa kom á slagæð sem leiddi til mikilla blæðinga milli heila og heilahimnu af völdum höggsins sem leiddi til dauða hans.

Dæmdar bætur vegna uppsagnar

Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða starfsmanni sem sagt var upp á sambýli fyrir fatlaða á Blönduósi árið 1998, 800 þúsund krónur í bætur vegna uppsagnarinnar. Í dóminum segir að manninum hafi verið sagt upp störfum vegna vankunnáttu og trúnaðarbrests á milli starfsmannsins og stjórnenda sambýlisins. Hlaut maðurinn einnig tvær áminningar frá sambýlinu en með dómnum voru þær felldar úr gildi.

Dæmt til að greiða fyrir akstur

Ítalska verktakafyrirtækið Imregilo var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða Austfjarðaleið rúmar 5,7 milljónir króna vegna ógreiddra reikninga fyrir rútuakstur með starfsmenn fyrirtækisins. Reis ágreiningur milli fyrirtækjanna um það hvort Impregilo bæri að greiða rútufyrirtækinu eina klukkustund aukalega þar sem keyrt væri með starfsmenn í hádeginu.

Norsk félög langt frá markmiðum

Hlutfall kvenna í stjórnum norskra fyrirtækja er aðeins fimmtán prósent og fjarri hinu 40 prósenta markmiði sem stefnan er að ná árið 2007. Þetta leiðir ný könnun ljós sem nefnd á vegum viðskipta- og iðnaðarráðuneytis Noregs birti í dag. Þar kemur einnig fram að á bilinu 650-700 konur þurfi í stjórnir fyrirtækjanna til þess að ná markmiðinu, en alls er um að ræða 2500 stjórnarsæti.

Lögbrjótar í þúsundavís

Vel yfir fjögur þúsund ökumenn óku hraðar en á 110 kílómetra hraða um Ártúnsbrekkuna í vikunni samkvæmt mælum Gatnamálastofu Reykjavíkurborgar en það er 40 kílómetrum hraðar en leyfilegur hámarkshraði.

Ánægja með leikskólana

Menntaráð Reykjavíkurborgar kynnti í gær niðurstöður úr viðhorfskönnun foreldra leikskólabarna í Reykjavík. Í niðurstöðunum kemur fram að 99% foreldra telja að barni sínu líði mjög eða frekar vel í leikskólanum.

Endurskoðun hafin

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti því yfir á fundi með Samtökum um kvennaathvarf, Stígamót og fleiri samtök í gærmorgun að vinna væri hafin við að endurskoða kynferðiskafla almennra hegningarlaga.

Annan kynnir sér ástandið í Darfur

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, kom í dag til Súdans í þriggja daga heimsókn en þar hyggst hann kynna sér ástandið í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði. Þar hafa að minnsta kosti 180 þúsund manns látist og tvær milljónir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna átaka uppreisnarmanna og arabískra vígamanna sem staðið hafa í rúm tvö ár.

Tveir nýir sendiherrar

Utanríkisráðherra skipaði í dag þá Helga Gíslason prótokollstjóra og Svein Á. Björnsson sendifulltrúa sendiherra í utanríkisþjónustunni frá og með 1. júní næstkomandi. Helgi Gíslason réðst til starfa í utanríkisþjónustunni árið 1970 og hefur m.a. starfað í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Moskvu, París. Sveinn Á. Björnsson réðst til starfa í viðskiptaráðuneytinu árið 1970 og starfaði m.a. sem viðskiptafulltrúi í París á þess vegum.

Fundu gamlar hellaristur við Ósló

Fornleifafræðingar í Noregi telja sig hafa fundið hellaristur sem eru 2500-3000 ára gamlar. Risturnar fundust nærri Ósló og eru þær um tvö hundruð talsins. Svæðið sem risturnar eru á fannst fyrir tveimur árum en það var ekki fyrr en í dag sem fornleifafræðingarnir hófu að grennslast fyrir um hvað leyndist á svæðinu.

Þarf tvo milljarða í bætt öryggi

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra telur að það þurfi að verja um tveimur milljörðum króna á næstu fjórum árum til að auka öryggi í heilbrigðiskerfinu.

Uppi í krana frá því á miðvikudag

Lögregla í Atlanta í Bandaríkjunum glímir nú við mann sem grunaður er um að hafa myrt fyrrverandi kærustu sína en hann klifraði upp í byggingarkrana á flótta undan réttvísinni og hefur verið þar síðan á miðvikudag. Maðurinn, Carl Edward Roland, hefur neitað tilboðum lögreglu um mat og vatn og sömuleiðis að stökkva niður á loftdýnur sem komið hefur verið fyrir á þaki byggingarinnar sem kraninn stendur yfir.

200 þúsund á málaskrá lögreglu

Fjöldi íslenskra ríkisborgara á svokallaðri málaskrá Ríkislögreglustjóra samsvarar öllum Íslendingum á aldrinum 17-80 ára. Á skránni voru um miðjan þennan mánuð skráð nöfn 201.278 einstaklinga en Íslendingar á aldrinum 17-79 ára voru 200.789 um síðustu áramót samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Aflaði upplýsinga án heimildar

Persónuvernd hefur kveðið upp þann úrskurð að Tollstjóranum í Reykjavík hafi verið óheimilt að afla upplýsinga í málaskrá lögreglu um einstakling sem sótti um starf hjá embættinu.

Játaði að hafa banað hermanni

Scott Ramsey játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa orðið 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í héraðsdómi í dag.

Kókaíni smyglað í gervibanönum

Nýstárlegar smyglaðferðir voru viðhafðar í Miami í Bandaríkjunum í vikunni þegar smyglarar reyndu að koma 340 kílóum af kókaíni inn í landið. Efnið var falið í gervibanönum sem blandað hafði verið í sendingu af alvörubanönum. Gervibananarnir voru í trefjagleri og faldir í yfir þúsund kössum af banönum.

Sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg

Flugvél Landhelgisgæslunnar sá sjö sjóræningjaskip að veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í dag. Skipin eru skráð á smáeyju í Karabíska hafinu.

Sjá næstu 50 fréttir