Fleiri fréttir

Viðbúnaður vegna prófaloka

Mikill viðbúnaður er í dag, lokadag samræmdra prófa, og hafa lögregla og ýmis samtök tekið saman höndum. Tíundu bekkingum verður m.a. boðið í ferðir og upp á ýmsa aðra afþreyingu til að fagna próflokunum. 

Sprenging í námu í Síberíu

Tveggja námumanna er saknað eftir metangassprengingu í kolanámu í Síberíu í Rússlandi í morgun. Ellefu námuverkamenn voru nærri staðnum þar sem sprengingin varð en níu þeirra tókst að komast út og voru fjórir þeirra slasaðir. Alls voru 132 í kolanámunni og voru allir kallaðir út í kjölfar atvikins. Námuslys eru tíð í Rússlandi en að minnsta kosti 66 náumverkamenn létust í tveimur slysum í Síberíu fyrr á árinu.

Freysteinn fær hvatningarverðlaun

Dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Norræna eldfjallasetrinu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fékk í morgun hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Freysteinn er vel þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir rannsóknir sínar á jarðskorpuhreyfingum og eldfjallavöktun.

Vara við óheftri stóriðju

Þingflokkur Vinstri-hreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent frá sér ályktun þar sem varað er við því að halda áfram á braut óheftrar stóriðju á landinu. Mælst er til þess að öllum frekari stóriðjuskuldbindingum verði frestað fram yfir næstu kosningar. Vinstri - grænir segja stjórnvöld nú kynda undir hömlulausri útþenslu stóriðju og telja ruðningsáhrifin af þeirri þróun á aðra hluta atvinnulífsins verða alvarleg.

ÍE prófar nýtt asmalyf

Íslensk erfðagreining greindi frá því í dag að hafnar séu lyfjaprófanir af öðrum fasa á nýju tilraunalyfi fyrirtækisins við asma og að fyrsti sjúklingurinn hafi þegar hafið lyfjatöku. Lyfið hefur áhrif á starfsemi ensíms sem erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt fram á að tengist líffræðilegum orsökum asma. Lyfið var upphaflega þróað við öðrum sjúkdómi af öðru lyfjafyrirtæki.

Talibanaráðherra í framboð

Fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn talibana í Afganistan hefur ákveðið að bjóða sig fram til þings í kosningum sem fram fara í september. Wakil Ahmed Muttawakil gegndi embætti utanríkisráðherra Afganistans þegar talibanar fóru með völdin en var handtekinn þegar Bandaríkjamenn réðust inn í landið síðla árs 2001 í kjölfar árásanna 11. september.

Stóri draumurinn og launaþróun

Bechtel greiðir lægri laun en Impregilo - Mun stóri draumur Austfirðinga snarlækka laun á vinnumarkaði hérlendis?

Æ fleiri börn í öryggisbúnaði

Á hverju ári slasast 35 til 40 börn 6 ára og yngri sem farþegar í bílum. Í nýrri könnun Landsbjargar, Lýðheilsustöðvar og Umferðarstofu á öryggisbúnaði leikskólabarna í bílum kemur í ljós að ástandið hefur batnað til muna undanfarinn áratug. Árið 1997 voru 32 prósent barna ekki með neinn öryggisbúnað í bílnum þegar þeim var ekið í leikskólann en í ár var þetta hlutfall 5,3 prósent.

Dettifossmálið

Hver er "ónefndi vitorðsmaðurinn"? - Höfuðpaurar Dettifossmálsins víðsfjarri þegar málið fór í dóm.

Meira veitt en í fyrra

Umtalsvert meira hefur veiðst af ýsu, ufsa, karfa og steinbít á fyrstu mánuðum þessa árs samanborið við sömu mánuði í fyrra. Nemur aukningin um og yfir 20 prósentum á þessum fjórum tegundum.

Málverkum stolið af kaffihúsi

Tveimur málverkum sem stolið var af kaffihúsinu Langa Manga á Ísafirði um helgina var skilað í dag. Fyrra málverkinu var stolið á föstudagskvöldið og því seinna á laugardagskvöldið en bæði kvöldin var uppákoma á kaffihúsinu og húsfyllir. Að sögn ráðamanna Langa Manga verður ekki gripið til frekari aðgerða vegna þjófnaðarins þar sem sá sem í hlut á sá að sér og sendi myndirnar til baka í pósti frá Reykjavík.

Handsprengja hafi verið virk

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, greindi frá því í dag að handsprengja, sem kastað hefði verið í átt að George Bush Bandaríkjaforseta við hátíðahöld í Tíblisi í Georgíu í síðustu viku, hefði verið virk en ekki sprungið vegna bilunar. Handsprengjunni var varpað í átt að forsetanum þegar hann hélt ræðu á Frelsistorginu í Tíblisi og lenti hún um 30 metra frá honum.

Ítalskur hjálparstarfsmaður á lífi

Ítalskur hjálparstarfsmaður, sem rænt var í Kabúl í Afganistan á mánudaginn var, er á lífi. Frá þessu greindu afgönsk yfirvöld í dag. Mannræningjarnir höfðu samband við yfirvöld í gær og fékk hin 32 ára Clementina Cantoni, sem er í Afganistan á vegum alþjóðlegu hjálparsamtakanna CARE, að greina frá því í símann að ekkert amaði að henni.

Vill rannsókn á atburðum í Andijan

Yfirmaður mannréttindamála Sameinuðu þjóðanna krefst rannsóknar á dauða hundruða Úsbeka sem hermenn skutu til dauða í uppþotum í borginni Andijan um helgina. Úsbeksk yfirvöld sögðu 169 hafa látið lífið en mótmælendur segja fórnarlömbin hafa verið að minnsta kosti fimm hundruð. Fulltrúum erlendra ríkja hefur verið hleypt inn í borgina aftur en þeim er ekki leyfilegt að tala við almenning.

Flugi til San Francisco seinkað

Tveggja tíma seinkun verður á fyrsta flugi Flugleiða til San Francisco sem fara átti í loftið klukkan 16.40. Ástæðan er sú að breytingar á innréttingum vélarinnar sem gerðar voru á Írlandi tóku lengir tíma en áætlað var. Haft er ofan af fyrir farþegum með lúðrasveitarleik, kórsöng Flugfreyjukórsins og fleirum. Meðal farþega eru forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík, en þau munu taka þátt í sérstakri hátíðardagskrá í San Francisco.

Frítekjumark LÍN afnumið

Frítekjumark verður afnumið á næsta skólaári, samkvæmt nýsamþykktum breytingum stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna á úthlutunarreglum. Í tilkynningu frá námsmannahreyfingunum segir að um 85 prósent námsmanna muni njóta góðs af þessari breytingu auk þess sem hún hefur í för með sér auðveldari endurkomu í nám fyrir fólk á vinnumarkaði þar sem tekjusvigrúm hefur aukist.

Hyggjast fjölga íbúum í Sandgerði

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar setti í dag af stað átak til að fjölga íbúum í bænum. Íbúar í Sandgerðisbæ eru nú rúmlega 1.400 og er markmiðið með átakinu að þeim fjölgi í að minnsta kosti tvö þúsund fyrir lok næsta kjörtímabils.

Taka þátt í stjórnarskrárráðstefnu

Fjórtán félagasamtök hafa skráð sig til formlegrar þátttöku í ráðstefnu stjórnarskrárnefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar 11. júní næstkomandi, en frestur til skráningar rann út á sunnudaginn.

Þrettán fórust með herflugvél

Þrettán fórust þegar herflugvél hrapaði til jarðar skömmu eftir flugtak í suðurhluta Sambíu í dag. Vélin hafði flogið með mat og aðrar nauðþurftir til bæjarins Mongu, þar sem mikli þurrkar hafa verið, en stuttu eftir að hún hafði tekið á loft frá flugvelli bæjarins missti hún hæð og hrapaði til jarðar. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað olli slysinu.

Framtíðarhópur fái nýtt umboð

Nýjar tillögur framtíðarhóps Samfylkingarinnar eingöngu kynntar á landsfundi en ekki teknar til afgreiðslu. Óskað eftir endurnýjuðu umboði hópsins til að starfa áfram að framtíðarstefnumótun flokksins.

Erlendum körlum fjölgar eystra

Íbúum Austurlands fjölgaði um 4,6 prósent í fyrra og er það meiri fjölgun en í nokkrum öðrum landshluta, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Næst mest fjölgaði fólki á höfuðborgarsvæðinu eða um 1,3 af hundraði.

Matur hefur lækkað um þriðjung

Vöruverð hefur lækkað umtalsvert hjá Krónunni, Bónus og í Fjarðarkaupum síðan um áramótin en mun minna hjá öðrum verslunum samkvæmt þriðju verðkönnun Alþýðusambands Íslands sem birt var í gær. Er þetta þriðja könnun samtakanna á þessu ári og vekur athygli að vöruverð hefur hvergi hækkað síðan síðasta könnun var gerð um miðjan mars.

Al-Kaídaliðar ákærðir

Spænskur dómari hefur ákært 13 múslima fyrir að tengjast hryðjuverkasamtökunum al-Kaída en auk þess er sumum þeirra gefið að sök að eiga aðild að sprengjutilræðunum í Madrid í mars í fyrra sem kostuðu 191 mannslíf.

Ebóla í Vestur-Kongó

Starfsmenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Vestur-Kongó staðfestu í gær að níu manns hefðu að undanförnu dáið úr ebóla-veikinni og tveir til viðbótar væru smitaðir.

Al-Zarqawi kyndir undir ófriðarbál

Uppreisnarmenn skutu undirhershöfðingja í íraska innanríkisráðuneytinu til bana í gær. Hátt settir bandarískir erindrekar í landinu segja að ofbeldisalda undanfarinna vikna sé hryðjuverkamanninum Abu Musab al-Zarqawi að kenna.

Dæmd fyrir pyntingar

Herréttur í Texas hefur dæmt Sabrinu Harman í sex mánaða fangelsi fyrir að misþyrma íröskum föngum í Abu Ghraib-fangelsinu síðla árs 2003.

Ebola-veirunnar vart í V-Kongó

Ebola-veirunnar hefur aftur orðið vart í Vestur-Kongó og hafa níu manns látist af hennar völdum frá apríllokum. Frá þessu greindi Alþjóðaheilbrigðisstofnunin í dag. Veiran fannst í norðvesturhluta landsins en þar létust um 150 manns af sömu orsökum fyrir tveimur árum.

Valdahlutföllin að breytast

Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins hefst í næstu viku. Ríki sem hlynnt eru hvalveiðum hafa sótt í sig veðrið á undanförnum misserum og ætla sér stóra hluti á fundinum. Íslenska sendinefndin varar þó við of mikilli bjartsýni.

Urðu við óskum Castro

Eftir áeggjan Kúbverja hafa Bandaríkjamenn handtekið kúbverskan mann sem grunaður er um að hafa framið hryðjuverk fyrir tæpum þrjátíu árum síðan.

Gerðu 240 kíló af heróíni upptæk

Afganska lögreglan gerði rúmlega 240 kíló af heróíni upptæk og eyðilagði nokkrar tilraunastofur þar sem eiturlyf vour búin til í áhlaupi á nokkra staði í Nangahar-héraði í austurhluta landsins. Þá lögðu fíkniefnalögreglumenn einnig hald á töluvert af efnum til eiturlyfjagerðar.

Niðurskurðarstofnun skorin niður

Tékknesk yfirvöld, sem vinna nú að því að einfalda stjórnsýslu og draga úr skrifræði í kjölfar þess að járntjaldið féll, hafa byrjað á vitlausum enda ef svo má segja. Fjörutíu starfsmönnum stofnunar sem gera átti kerfið skilvirkara og draga úr útþenslu þess hefur nefnilega verið sagt upp.

Ólafur Ragnar í Kína

"Það var auðvitað ekki tilviljun að ég skildi velja Háskólann í Peking til þess að flytja þennan boðskap og til þess að vísa til reynslu okkar á vettvangi lýðræðis og vísa í lýðræðisþróun í Evrópu, þróun mannréttinda og þær hugmyndir sem þessu eru tengdar."

Amnesty fagnar

"Íslandsdeild Amnesty International fagnar undirskrift Íslands á nýjum samningi gegn mansali." Svo segir í fréttatilkynningu frá ÍAI. Davíð Oddsson skrifaði nýverið undir samning Evrópuráðsins fyrir hönd Íslands þar sem lögð er áhersla á að mansal sé brot á mannréttindum og árás á mannlega reisn.

Skotinn eftir árás með öxi

Lögreglumenn í Larvik í Noregi skutu í dag til bana mann sem ógnaði þeim með kjötöxi. Maður hringdi til lögreglunnar í Larvik síðdegis og sagði að verið væri að ógna sér með hnífi. Þegar lögreglumenn mættu á staðinn reyndu þeir að fá hnífamanninn til þess að leggja vopnið frá sér. Þegar hann sinnti því ekki beittu þeir piparúða.

Kyrkislanga étur gæluhunda

Íbúum auðmannahverfis í Maníla á Filippseyjum var brugðið þegar fjórtán feta kyrkislanga skreið þar um götur og át gæluhunda þeirra. Öryggisverðir voru kallaðir til og tóku þeir slönguna og komu henni í búr. Það var auðséð á miklum belg á slöngunni að hún var nýbúin að ná sér í góða máltíð sem hún var að melta. Eftir fjóra daga í búrinu skyrpti hún út því sem eftir var af hundshræi.

Ég sakna mannsins míns svo sárt

Það ríkir mikil sorg á heimili Than Viet Mac, ungu konunnar sem missti manninn sinn af völdum sára eftir hnífsstungu um hvítasunnuna. Hún á þriggja ára dóttur og er nýlega orðin ófrísk aftur. Framtíðin var björt en er nú í rúst. </font /></b />

Reynir á stefnumótun spítalans

"Meginmálið er að það reynir á hvort þessi stefnumótun spítalans sé lagalega réttmæt eða ekki," sagði Jóhannes M. Gunnarsson lækningaforstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss um málshöfðun fyrrverandi yfirlæknis á geðsviði LSH á hendur spítalanum.

Sögð of þung til að ættleiða barn

Kona hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna þess að dómsmálaráðuneytið synjaði henni um að ættleiða barn frá Kína. Synjunin byggði meðal annars á því að konan væri of þung. Í stefnunni er ráðuneytið sakað um geðþóttaákvarðanir og fordóma. </font /></b />

Þyngdin látin ráða niðurstöðu

"Málið er að því leyti óvenjulegt hvaða eiginleikar umsækjandans um ættleiðingaleyfi, eru látnir ráða niðurstöðu dómsmálaráðuneytisins. Það er fyrst og fremst þyngdin," sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður um mál konunnar sem fékk ekki að ættleiða barn vegna ofþyngdar hennar, samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins.

Grunaður um skipulagða þrælasölu

Karlmaður á fimmtugsaldri sem ferðaðist hingað til lands með fjórum ungmennum var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gær. Maðurinn hefur verið með þau á ferðalagi í tvo mánuði og var á leiðinni til Orlando. Grunur leikur á því að um skipulagða þrælasölu sé að ræða.

Blair heitir þjóðaratkvæði

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í gær að breskir kjósendur myndu fá tækifæri til að greiða atkvæði um staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins, óháð því hver dómur franskra kjósenda verður um málið.

Rannsóknar krafist á skothríð

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, talsmenn fleiri alþjóðastofnana og ráðamenn ýmissa ríkja heims kölluðu eftir því í gær að óháðum aðilum yrði falið að rannsaka ásakanir um að hermenn í Úsbekistan hefðu skotið til bana hundruð mótmælenda í óeirðum þar í lok síðustu viku.

Húsavík sé eðlilegur fyrsti kostur

Iðnaðarráðherra segir eðlilegt að horft sé fyrst til Húsavíkur við staðarval álvers á Norðurlandi vegna mikillar orku sem finnst í Þingeyjarsýslu. Hún segir ástæðu til að ræða hvort svigrúm sé bæði til byggingar nýs álvers á Suðurnesjum og stækkunar í Straumsvík. Vinstri - grænir vilja að stóriðjuviðræður verði stöðvaðar fram yfir næstu þingkosningar.

Reknir og vikið af vinnustaðnum

Þeir eru að vinna eftir einhverri mannauðsstefnu þar sem allir eiga að falla svo vel inn í liðið að þeir sem ekki falla alveg inn í þetta eru bara látnir fara," segir Gylfi Ingvason, trúnaðarmaður starfsmanna ALCAN í álverinu við Straumsvík.

Sjá næstu 50 fréttir