Vill að gengið verði fram af hörku 27. febrúar 2005 00:01
Stjórnlaus innflutningur erlends verkafólks var ræddur á miðstjórnarfundi ASÍ í síðustu viku. Þar kom fram að verkalýðshreyfingin vill vara við þessum innflutningi og telur mikilvægt að mótuð verði stefna til að viðhalda og treysta kjör og samskipti á íslenskum vinnumarkaði. ASÍ vill að gripið verði til allra tiltækra ráða til að koma í veg fyrir undirboð og svarta atvinnustarfsemi sem byggir á misnotkun á erlendu vinnuafli. Þá vill ASÍ að gengið verði fram af hörku gagnvart fyrirtækjum sem stunda svarta atvinnustarfsemi og brjóta lög og samninga. Eins að settar verði fram reglur sem miði að því að setja ramma um starfsmannaleigur og vinnumiðlanir hér á landi. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins telur verkalýðshreyfingin mikilvægt að efla samstarf og samráð stjórnvalda, verkalýðshreyfingarinnar, aðila vinnumarkaðarins og annarra sem koma að málum útlendinga á vinnumarkaði. Bæta verði upplýsingaflæði og styrkja framkvæmd laga og reglna, til dæmis að hafa eftirlit með útlendingum og fyrirtækjum sem þeir starfa hjá. Innan verkalýðshreyfingarinnar heyrast háværar raddir um að mótuð verði stefna um útgáfu atvinnuleyfa til einstaklinga sem frá löndum utan EES og að tekin verði af öll tvímæli um það hvaða skilyrði þetta fólk þurfi að uppfylla. Sú ósk hefur komið fram að viðkomandi verði meðal annars að vera fastur starfsmaður hjá fyrirtækinu. Verkalýðshreyfingin vill að kannaðir verði möguleikar á samstarfi við vinnumiðlanir í nýju aðildarríkjunum innan EES til að draga úr hættunni á miðlun fólks og að fyrirtækjum verði leiðbeint um samstarf við vinnumiðlanir. Þá er vilji til að skoða hvort hægt sé að fresta opnun sameiginlega vinnumarkaðarins gagnvart íbúum nýrra aðildarríkja EES og að tekið verði á skattamálum vegna erlendra starfsmanna sem hingað koma á vegum starfsmannaleiga og í gegnum þjónustusamninga.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira