Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Róbert sagði upp Róbert Marshall, fréttamaður á Stöð 2, hefur sagt upp störfum. Ákvörðun Róberts er tekin í kjölfar fréttar Stöðvarinnar um að Ísland hefði verið á lista hinna viljugu þjóða fyrir ríkisstjórnarfund 18. mars 2003. Róbert mislas tímasetningar í frétt CNN sem stuðst var við. 28.1.2005 00:01
Sjógangur rýfur hlíðina Sjógangur hefur náð að rjúfa talsvert úr hlíðinni neðan við Óshlíðarveg Bolungarvíkurmegin og varar lögreglan ökumenn stórra bíla við að treysta á kantana sjávarmegin. Ekki er langt síðan bætt var við uppfyllingu á þessu svæði til að verjast sjógangi en sjórinn hefur nú skolað þeirri uppfyllingu í burt. 28.1.2005 00:01
Fischer kemur ekki í bráð Bobby Fischer er ekki á leiðinni til Íslands í bráð þrátt fyrir að hérlend stjórnvöld hafi boðið honum landvistarleyfi. Þetta sagði Masako Susuki, lögfræðingur Fischers, í morgun eftir fund með lögfræðingum útlendingaeftirlitsins í Japan. 28.1.2005 00:01
Bandaríkjamenn yfirgefa Írak? George Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær reiðubúinn til þess að kalla herlið Bandaríkjanna út úr Írak, færi svo að nýkjörin stjórnvöld í landinu myndu fara þess á leit. Í viðtali við <em>New York Times</em> í gær sagði Bush að Írakar stæðu á eigin fótum og væri það vilji þeirra að losna við herlið Bandaríkjamanna eftir kosningarnar yrði gengið að því. 28.1.2005 00:01
Róbert Marshall sagði upp Róbert Marshall, fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni, hefur sagt starfi sínu lausu í kjölfar mistaka sem gerð voru í frétt á Stöð 2 í fyrrakvöld um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um stuðning við Íraksstríðið. Róbert segir að með þessu axli hann ábyrgð á mistökum sínum. 28.1.2005 00:01
Gamalmenni eins og síld í tunnu Ófremdarástand er á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Sjúklingar eru alltof margir og þeim er hrúgað saman í of lítil herbergi. Guðmundur Rúnar Árnason bæjarfulltrúi segir Hafnarfjarðarbæ hafa þrýst á heilbrigðisráðuneytið um úrbætur en án árangurs.Ekki fékkst heimild starfsfólks til að ræða við íbúa Sólvangs. 28.1.2005 00:01
Má vera stoltur af litlu fjöðrunum Listamaðurinn Heimir Björgúlfsson segir myndskreytinn Sigurð Val Sigurðsson hafa átt að fyllast stolti yfir því fuglamyndir Sigurðar voru notaðar sem hluti af verki hans á sýningu hjá Kling og Bang. Tímaskortur hafi valdið því að hann hafi ekki aflað leyfis Sigurðar sem sjálfur ekki hafi birt myndirnar sem list. 28.1.2005 00:01
Fyrstu Írakarnir kjósa Írakar í Ástralíu urðu í morgun fyrstir til þess að kjósa í sjálfstæðum kosningum í heimalandi sínu í heil fimmtíu ár. Fyrstu atkvæðin utan kjörfundar voru greidd í Ástralíu sem er eitt þeirra fjórtán landa þar sem Írakar, sem ekki eru búsettir í heimalandinu, geta kosið. 28.1.2005 00:01
Fjórir féllu í sprengingu Fjórir Írakar féllu í valinn í morgun þegar bílsprengja sprakk nærri lögreglustöð í suðurhluta Bagdad. Í gær létust nítján Írakar og einn Bandaríkjamaður í árásum uppreisnarmanna og ljóst að aðgerðir þeirra fara sífellt harðnandi fram að kosningunum sem fram fara á sunnudaginn. 28.1.2005 00:01
Fimm teknir fyrir ölvunarakstur Lögreglan í Reykjavík tók fimm menn úr umferð í nótt vegna ölvunaraksturs sem er óvenju mikið í miðri viku. Þar af voru tveir nokkuð drukknir. Allir sinntu þó stöðvunarmerkjum lögreglu strax og enginn þeirra efndi til frekari vandræða eftir að hafa verið stöðvaður. 28.1.2005 00:01
Fuglaflensa geisar enn Yfirvöld í Víetnam hafa falið óeirðalögreglunni að aðstoða við eftirlit með öllum alifuglaviðskiptum í Ho Chi Minh borg til að reyna að hefta útbreiðslu fuglaflensu. Þar lést maður í gær úr flensunni og er það tíunda fórnarlamb hennar þar í landi. 28.1.2005 00:01
Handteknir með fíkniefni og þýfi Þrír menn voru handteknir í nótt eftir að fíkniefni og þýfi fundust í fórum þeirra. Þeir voru á bíl sem lögreglan stöðvaði við eftirlit og þar sem mennirnir þóttu grunsamlegir var leitað í bílnum. Þar fannst meðal annars fartölva og geislaspilari úr bíl. Mennirnir voru færðir í fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag. 28.1.2005 00:01
Herinn samsekur í Beslan Rússnesk yfirvöld segja að nokkrir háttsettir embættismenn í rússneska hernum hafi aðstoðað hryðjuverkamennina sem réðust inn í grunnskólann í Beslan síðasta haust. Búist er við að nokkrir embættismenn verði ákærðir í kjölfarið. Ættingjar þeirra sem létust í gíslatökunni hafa mótmælt aðgerðaleysi yfirvalda og krefjast þess að fólk verði dregið til ábyrgðar. 28.1.2005 00:01
Styrkir vegna kennaraverkfallsins Reykjanesbær hefur samþykkt að veita 250.000 króna styrk úr Manngildissjóði til hvers grunnskóla í bæjarfélaginu vegna áhrifa sem kennaraverkfallið í haust hafði á námsframvindu nemenda samkvæmt vef Víkurfrétta í dag. Beinist styrkurinn einkum að stuðningi í íslensku og stærðfræði fyrir nemendur í 10. bekk. 28.1.2005 00:01
Lögreglumenn fá ekki skaðabætur Hæstiréttur hefur sýknað ríkið af skaðabótakröfu tveggja lögregluþjóna sem slösuðust í íþróttakappleikjum lögreglumanna. Samkvæmt kjarasamningi lögreglumanna töldust þó báðir vera að störfum þegar þeir slösuðust. 28.1.2005 00:01
Úrslitin kunn á morgun Úrslit í atkvæðagreiðslu um kjarasamning leikskólakennara verða kunn á morgun. Launanefnd sveitarfélaga samþykkti samninginn, sem var undirritaður tveimur dögum fyrir jól, í fyrradag. 28.1.2005 00:01
Fimbulvetur á Spáni Fimbulvetur ríkir á Spáni og þar ríkja nú mestu kuldar sem mælst hafa í tvo áratugi. Tveir hafa látist vegna snjóa og kulda og samgöngur í landinu eru allar úr skorðum. 28.1.2005 00:01
Felld úr stjórn Framsóknarkvenna Formaður Landssambands Framsóknarkvenna, Una María Óskarsdóttir, var felld úr stjórn félags Framsóknarkvenna í Kópavogi í gær. 28.1.2005 00:01
Ástandið í Danmörku fegrað Mogens Lykketoft, formaður Sósíaldemókrata, segir kosningabaráttuna í Danmörku vera erfiðari en oft áður og sakar stjórnvöld í landinu um að mála glansmynd af ástandinu í landinu. Sighvatur Jónsson, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Danmörku og hitti Lykketoft að máli í morgun. 28.1.2005 00:01
Óttast eftirhermuglæpi í BNA Óttast er að Bandaríkjamaður sem reyndi að svipta sig lífi með því að leggja bíl sínum á lestarteina muni valda hrinu eftirhermuglæpa. Eitt tilvik er þegar í skoðun lögreglu. 28.1.2005 00:01
Ákvörðun Sýslumanns felld úr gildi Hæstiréttur felldi í gær úr gildi ákvörðun Sýslumannsins á Seyðisfirði um að Síldarvinnslunni í Neskaupstað bæri að greiða stimpilgjald vegna samruna Síldarvinnslunnar og SR-mjöls. Jónas A. Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, sem sótti málið fyrir hönd Síldarvinnslunnar, segir að hér sé um ákaflega merkilegan dóm að ræða. 28.1.2005 00:01
Hildur skipuð forstjóri Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skipað Hildi Dungal í embætti forstjóra Útlendingastofnunar frá og með 1. febrúar. Hún tekur við af Georgi Lárussyni sem er orðinn forstjóri Landhelgisgæslunnar. Hildur er 33 ára lögfræðingur. 28.1.2005 00:01
Annan talar til uppreisnarmanna Kofi Annan talaði í dag til uppreisnarmanna í Írak og bað þá um að hindra ekki kosningarnar í landinu sem fram eiga að fara á sunnudaginn. Óöldin sem geisað hefur í Írak hefur færst í aukana undanfarið eftir því sem nær dregur kosningum og tugir manna fallið og enn fleiri liggja sárir. 28.1.2005 00:01
200 umsóknir 200 umsóknir hafa borist Impregilo frá Eures-vinnumiðluninni. Þetta eru umsóknir frá fólki í Evrópu. Nokkrum hefur þegar verið boðið starf. 28.1.2005 00:01
Reglugerðin eftir helgi Reglugerðinni sem félagsmálaráðherra hafði boðað seinkar þar sem verið er að fara yfir athugasemdir ASÍ og SA. Í henni er meðal annars tekið tillit til gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar á Impregilo. 28.1.2005 00:01
Óendurnýjanleg atvinnuleyfi Verið er að kanna hjá Vinnumálastofnun og félagsmálaráðuneytinu hvort hægt sé að gefa út óendurnýjanleg atvinnuleyfi með svipuðum hætti og óendurnýjanleg dvalarleyfi til að koma til móts við vinnuaflsþörf verktakafyrirtækjanna í landinu. 28.1.2005 00:01
15 atvinnuleyfi Vinnumálastofnun gaf í gær út 15 atvinnuleyfi til viðbótar við þau 24 sem gefin voru út fyrr í vikunni. 28.1.2005 00:01
Bjórframleiðsla að hefjast? Stefnt er að því að bjórframleiðsla hefjist í Skagafirði í haust. Kynningarbæklingur verður sendur til fjárfesta í febrúar. 28.1.2005 00:01
Dæmdur í 18 mánaða fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann á fertugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa ekki komið ungri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega eftir að hafa tekið inn banvænan skammt af kókaíni og E-töflum í húsi við Lindargötu í ágúst í hitteðfyrra. 28.1.2005 00:01
Óverjandi notkun skattfés Frjálshyggjufélagið segir að það sé óverjandi að stjórnvöld skuli taka fé af einstaklingum með skattheimtu og nota í fjárfestingar af ýmsu tagi. Félagið segir þetta í kjölfar þeirra upplýsinga sem nýverið komu fram á Alþingi þess efnis að ríkið ætti hlut í yfir 300 fyrirtækjum. 28.1.2005 00:01
Og Vodafone kvartar undan Símanum Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone sendi Póst- og fjarskiptastofnun erindi í dag þar sem kvartað er undan töfum á afgreiðslu þjónustubeiðna til Símans og óskar eftir atbeina stofnunarinnar til þess að Síminn fari að lögum. Í erindinu er það rakið að Síminn hafi látið hjá líða að afgreiða u.þ.b. 90 pantanir á ADSL-tengingum frá því um miðjan desember. 28.1.2005 00:01
Ísfélagið kaupir Júpíter ÞH Ísfélagið hefur keypt loðnuskipið Júpíter ÞH og ætlar að nota hann til loðnuflutninga af miðunum í loðnubræðslu félagsins í Krossanesi við Eyjafjörð. Aflanum verður þá dælt úr veiðarfærum veiðiskipa yfir í Júpíter sem flytur hann í land svo veiðiskipin tefjist ekki við að sigla í land sjálf með afla sinn. 28.1.2005 00:01
Ekkert verður af Arnardalsvirkjun Með friðun Jökulsár á Fjöllum verður ekkert af svokallaðri Arnardalsvirkjun. Með virkjun hefði Arnardal verið sökkt og Dettifossi breytt. 28.1.2005 00:01
Nýtt varðskip á rekstrarleigu Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, vill að nýtt varðskip verði leigt en ekki keypt. Hann telur óskynsamlegt að verja þremur milljörðum króna til kaupa á nýju skipi. 28.1.2005 00:01
Áhrif karlhormónsskorts á akstur Þýskir vísindamenn segjast hafa sannanir fyrir því að það sé skortur á karlhormónum sem valdi því að konur geti ekki lagt bílum í stæði. Einnig báru þeir saman lengd baugfingurs og vísifingurs á sjálfboðaliðum sínum og segja að tengsl séu milli lítils magns af karlhormónum og stuttum baugfingri. 28.1.2005 00:01
32 fallið á tveimur dögum Tólf manns hið minnsta liggja í valnum eftir árásir dagsins, þar af tveir bandarískir hermenn. Í gær létust tuttugu, þar af einn Bandaríkjamaður. 28.1.2005 00:01
Átök framsóknarkvenna Una María Óskarsdóttir fyrrum aðstoðarmaður Sivjar Friðleifsdóttur var felld úr stjórn Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi á aðalfundi á fimmtudagskvöld. Una var varaformaður félagsins. 28.1.2005 00:01
Mótmæla veru Mjallar Friggjar Fjórir eigendur fyrirtækja í Vesturvör 30b í Kópavogi hafa afhent bæjaryfirvöldum skrifleg mótmæli vegna klórframleiðslu Mjallar Friggjar í húsinu á móti. 28.1.2005 00:01
Mikil breyting í Miðausturlöndum Meiri háttar breyting til batnaðar hefur orðið í samskiptum Ísraels og Palestínu síðustu vikurnar. Ofbeldisverkum hefur snarfækkað og í fyrsta sinn í fjögur ár eru menn vongóðir um friðarhorfur. 28.1.2005 00:01
Flugleiðir á stöðugri uppleið Hlutabréf í Flugleiðum hafa verið á stöðugri uppleið undanfarin þrjú ár og tóku mikið stökk í gær og fyrradag. Baugur er farinn að kaupa sig aftur inn í félagið. 28.1.2005 00:01
Hörð valdabarátta innan Framsóknar Formaður Landssambands framsóknarkvenna, Una María Óskarsdóttir, var felld úr stjórn Félags framsóknarkvenna í Kópavogi í gær. Innanbúðarmenn segja að í stjórnarkjöri kvenfélagsins kristallist hörð valdabarátta innan flokksins. 28.1.2005 00:01
Fullyrðingum ráðherra vísað á bug Landsvirkjun vísar á bug þeim fullyrðingum iðnaðarráðherra að fyrirtækið hafi hækkað rafmagnsverð umfram verðlagsþróun til þess að bæta hag sinn. 28.1.2005 00:01
Sambandslaust í hættuástandi Það er ekki í valdi Símans að koma í veg fyrir snjóflóð, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins. Þetta kom fram í svari Símans við fyrirspurn Ómars M. Jónssonar, bæjarstjóra í Súðavík, sem hann sendi vegna þess að bærinn varð algjörlega símasambandslaus í óveðri 4. janúar síðastliðinn. Á sama tíma var ófært á milli Súðavíkur og Ísafjarðar. 28.1.2005 00:01
Vilja stöðva Iceland Samtök iðnaðarins hafa ákveðið að senda inn athugasemdir til bresku einkaleyfastofunnar og Evrópusambandsins vegna áforma verslunarkeðjunnar Iceland Foods í Bretlandi um að skrá vörumerkið Iceland í fjölmörgum vöruflokkum í Bretlandi og innan Evrópusambandsins. 28.1.2005 00:01
Símamenn fella samninga Símsmiðir og rafeindavirkjar hjá Símanum hafa fellt kjarasamninga sem Rafiðnaðarsambandið gerðu við fyrirtækið. Á kjörskrá voru 250 manns en 133 greiddu atkvæði. Rúmlega helmingur þeirra, eða 71, greiddi atkvæði gegn samningnum en 61 félagsmaður samþykkti hann. 28.1.2005 00:01
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent