Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skyndiverkfall á Ítalíu Athafnalíf og samgöngur á Ítalíu verða meira og minna lömuð í dag vegna skyndiverkfalls félagsmanna í fjórum stærstu verkalýðsfélögum landsins til að mótmæla efnahagsstefnu stjórnvalda. 30.11.2004 00:01
Verðhækkun á áfengi og tóbaki Sterkt áfengi og tóbak hækka í verði eftir að Alþingi samþykkti með hraði í gærkvöldi að hækka áfengisgjald á sterku víni og tóbaki um 7%. Lögin öðlast þegar gildi en verð á léttvíni og bjór verður óbreytt. Samkvæmt þessu hækkar sterkt vín um rúmlega 5,5% út úr vínbúðunum og tóbak um tæp 4%. 30.11.2004 00:01
Þingið samþykki vantrauststillögu Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, Viktor Júsenko, hefur lýst því yfir að hann muni biðja þingið að samþykkja vantrauststillögu á stjórn Viktors Janúkovítsj. Tugir þúsunda stuðningsmanna stjórnarandstæðingsins Júsenkós mótmæla á götum úti í Kíev í Úkraínu, níunda daginn í röð. Mikil ólga er í landinu og óttast menn að upp úr geti soðið. 30.11.2004 00:01
Von á fleiri hryðjuverkum í BNA Hægri hönd Osama bin Ladens, Ayman al-Zawarhiri (LUM), segir baráttuna gegn Bandaríkjunum hvergi nærri lokið. Í myndbandi sem sýnt var á arabísku sjónvarpstöðinni al-Jazeera í gær segir hann að al-Kaída muni halda baráttunni áfram þar til Bandaríkjamenn breyti afstöðu sinni gegn múslimum. 30.11.2004 00:01
Ætlað stórfé fyrir styrktarsöng 1,7 milljón krónur af tekjum af þrennum styrktartónleikum fyrir krabbameinssjúk börn voru ætlaðar Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara. Kristján sem áður hefur sagt að hann fengi aðeins farmiða og jeppa til afnota fyrir sinn hlut segist nú ætla að gefa eftir eina milljón af þóknun sinni. Aðrir söngvarar sömdu um lægri þóknanir. 30.11.2004 00:01
Ók á konu og lét sig hverfa Lögreglan í Keflavík leitar nú ökumanns sem ók á unga konu á mótum Strandgötu og Vesturgötu í Sandgerði um klukkan hálfsex í gærkvöldi og ók af vettvangi þar sem konan lá slösuð í götunni. Vegfarendur sem komu að kölluðu þegar á lögreglu og sjúkrabíl og var konan flutt rænulítil á slysadeild Landspítalans. 30.11.2004 00:01
306 látnir í hitabeltisstormi Að minnsta kosti 306 eru látnir eftir að hitabeltisstormur reið yfir Filippseyjar í nótt. Storminum fylgdu flóð og mikil rigning. Stormurinn í nótt fór yfir sama svæði og annar hitabeltisstormur gekk yfir í síðustu viku en þá létust a.m.k. 87 manns og 80 manns er enn saknað. 30.11.2004 00:01
Rafmagnslaust í austurhlutanum Klukkan 9.35 í morgun varð bilun í háspennustreng í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Rafmagnslaust er á afmörkuðu svæði í austurhluta borgarinnar og austan við hana, í Norðlingaholti, í hverfum við Rauðavatn, skíðasvæðin í Bláfjöllum, hesthúsahverfi við Elliðavatn og víðar. 30.11.2004 00:01
Fjölmörg umferðaróhöpp í gær Fjölmörg umferðaróhöpp urðu suðvestanlands í gær og í gærkvöldi vegna hálku en ekki er vitað um alvarleg slys. Bíll valt hálfa aðra veltu skammt frá Hafnará í Borgarfirði í gær, annar valt út af Reykjanesbraut við Vogaafleggjara og sá þriðji út af Vífilsstaðavegi. 30.11.2004 00:01
Strandsiglingum að ljúka Mánafoss er nú í sögulegri siglingu umhverfis landið því þegar skipið kemur til Reykjavíkur á morgun leggjast strandsiglingar umhverfis landið af og flutningabílar taka við flutningunum. Skipið, sem hefur siglt til ellefu hafna á landinu, er nú á leið frá Eskifirði til Vestmannaeyja. 30.11.2004 00:01
Fellst á nýjar kosningar Viktor Janúkovítsj, yfirlýstur sigurvegari í forsetakosningunum í Úkraínu, sagðist í morgun fallast á nýjar kosningar ef hvorki hann né keppinautur hans, Viktor Júsjenko, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, byðu sig fram. Ef fallist yrði á úrslit kosninganna myndi hann bjóða Júsjenko forsætisráðherrastólinn en Júsjenko hafnaði þessu boði þegar. 30.11.2004 00:01
Dráttarvél eyðilagðist í eldi Dráttarvél gjöreyðilagðist í eldi við bæinn Engihlíð í Vopnafirði í gærkvöldi en eldurinn náði ekki að teygja sig í íbúðarhúsið. Vélin var mannlaus þegar eldsins varð vart og var hann þá þegar orðinn magnaður. Svo vel vildi til að vindátt stóð af íbúðarhúsinu á dráttarvélina þannig að eldtugurnar náðu ekki til hússins. 30.11.2004 00:01
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á svæði sem urðu rafmagnslaus eftir að háspennustrengur við Elliðavatn var grafinn í sundur um klukkan hálftíu í morgun. Svæðin sem um ræðir eru austast í borginni, Norðlingaholti, við Rauðavatn og Elliðavatn, auk skíðasvæðanna í Bláfjöllum og víðar.</font /> 30.11.2004 00:01
Sáttmáli við Bechtel undirritaður Samiðn, Starfsgreinasambandið og Rafiðnaðarsambandið undirrituðu í gær sáttmála við Bechtel vegna framkvæmda við Fjarðarálsverkefnið. Tilgangur sáttmálans er að stuðla að jákvæðu samstarfi á milli Bechtels og stéttarfélaganna að því er segir í tilkynningu frá Samiðn. 30.11.2004 00:01
Störf Íslendinganna mjög hættuleg Einkarekin öryggisfyrirtæki, eins og tveir íslenskir lögregluþjónar starfa hjá í Írak, borga himinhá laun en störfin geta verið mjög hættuleg. Lögregluþjónarnir fá aðstoð frá utanríkisráðuneytinu ef á þarf að halda. 30.11.2004 00:01
Lögregla leitar enn ökumannsins Lögreglan í Keflavík leitar enn ökumanns sem ók á unga konu á mótum Strandgötu og Vesturgötu í Sandgerði um klukkan hálfsex í gærkvöldi og ók af vettvangi þar sem konan lá alvarlega slösuð í götunni. 30.11.2004 00:01
40 manns drukkna í Írak Að minnsta kosti fjörutíu manns drukknuðu í Írak í morgun þegar þeir reyndu að komast yfir beljandi á nyrst í landinu á pramma. Skyndilegur vatnselgur skolaði þeim af prammanum á andartaki. Aðeins fjórir komust lífs af að sögn sjónarvotta. 30.11.2004 00:01
Síðasti dagur Þórólfs Þórólfur Árnason lætur af störfum í dag sem borgarstjóri í Reykjavík. Við tekur Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Þórólfur kvaddi starfsmenn borgarinnar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í morgun. Að sögn upplýsingafulltrúa Ráðhússins var boðið upp á morgunverð, hljómsveit Ráðhússins spilaði nokkur lög og tók borgarstjóri eitt lag með þeim. 30.11.2004 00:01
Betur á verði í hálkunni Fólk virðist hafa verið betur á verði í hálkunni í morgun eftir ósköp gærdagsins. Umferðardeild lögreglunnar segir að ekki hafi orðið neitt óvenju margir árekstrar í morgun og á slysadeild sögðu menn að þar væri nánast venjuleg aðsókn. 30.11.2004 00:01
Vilja endurgreiða í Lató-peningum Latibær ehf. hefur ekki ákveðið hvort dómi um að hann skuli endurgreiða lán frá Nýsköpunarsjóði, með hlutabréfum upp á tugi milljóna, verði áfrýjað. Talsmaður fyrirtækisins segir þó að þeir vilji helst endurgreiða með Lató-peningum. 30.11.2004 00:01
Fjölmargar vísbendingar borist Lögreglan í Kópavogi hefur ekki enn haft hendur í hári unga mannsins sem nam stúlku úr Kópavogi með sér upp á Mosfellsheiði fyrir helgi og skildi hana þar eftir í myrkri og slyddu. Fjölmargar vísbendingar hafa borist og er lögreglan að vinna úr þeim. Hún hefur nú þegar rætt við á þriðja tug manna vegna málsins og á enn eftir að ræða við marga. 30.11.2004 00:01
35 manns missa vinnuna Síðasti starfsdagur Kísiliðjunnar við Mývatn er í dag. 35 manns missa vinnuna og að sögn fréttamanns Bylgjunnar sem er fyrir norðan er hljóðið í fólki þungt. Kísiliðjan ætlar að bjóða starfsfólkinu í helgarferð til Dyflinnar. 30.11.2004 00:01
Bandarísk herflugvél fórst Bandarísk herflugvél með sex manns innanborðs er talin hafa farist einhvers staðar í Afganistan. Um borð voru þrír áhafnarmeðlimir og þrír hermenn. Neyðarmerki heyrðust frá svæðinu í kringum Hindu Kush fjöllin og var leitað úr lofti og á landi. 30.11.2004 00:01
Rekstrargrundvöllur verði tryggður Landssamtökin Þroskahjálp skora á Alþingi að tryggja áfram rekstrargrundvöll Mannréttindaskrifstofu Íslands. Í yfirlýsingu frá Þorskahjálp segir að með tilkomu mannréttindaskrifstofunnar hafi skapast vettvangur fyrir félög og stofnanir sem starfa að mannréttindamálum og réttindabaráttu ýmissa hópa til að samhæfa krafta sína með velferð allra í huga. 30.11.2004 00:01
Mílosevic var friðflytjandi Slobodan Mílosevic var friðflytjandi sem var ekki að berjast fyrir Stór-Serbíu og Vesturveldin báru ábyrgð á því að Júgóslavía leystist upp í miklu blóðbaði. Þetta er fréttaskýring Evgeny Prímakovs, fyrrverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra Rússlands. 30.11.2004 00:01
Hersveitir ráðast inn í Kongó Stjórnvöld í Lýðveldinu Kongó segja að hersveitir frá Rúanda hafi ráðist inn í landið og séu nú að kveikja í þorpum við landamæri ríkjanna. Ekki er frekari fréttir að hafa þaðan að svo stöddu. 30.11.2004 00:01
Schwarzenegger verður ekki forseti Maria Shriver, eiginkona Arnolds Schwarzeneggers, ríkisstjóra Kaliforníu, segir að eiginmaður hennar verði aldrei forseti Bandaríkjanna. Shriver, sem er fræg fréttakona, segir að Bandaríkjamenn muni hugsanlega einhverntíma breyta stjórnarskránni þannig að innflytjandi geti orðið forseti. 30.11.2004 00:01
80 grindhvalir syntu á land Tæplega áttatíu grindhvalir syntu á land við strendur Nýja-Sjálands í gær. Björgunarmönnum hefur tekist að halda lífi í tuttugu þeirra og ná svipuðum fjölda aftur út á sjó. 30.11.2004 00:01
Danskur herforingi fær dóm Fyrrverandi foringi í leyniþjónustu danska hersins hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að leka innihaldi leyniskýrslu um gereyðingarvopn í Írak. Foringinn, Frank Grevil, sakaði einnig Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra um að hafa logið til þess að afla stuðningi við innrásina í Írak. 30.11.2004 00:01
Mjallhvít á nektarmyndum Aðstandendur jólahátíðarinnar í Dresden í Þýskalandi, þar sem Mjallhvít og dvergarnir sjö eru færðir upp árlega, hafa rekið Mjallhvíti úr hlutverkinu eftir að hún lét taka af sér nektarmyndir í freyðibaði, skreyttu rósaknöppum. 30.11.2004 00:01
50% aukning áfengiseitrunar Á fjórða þúsund Norðmenn voru fluttir á sjúkrahús á síðasta ári til þess að dæla úr maga þeirra vegna áfengiseitrunar. Þetta er 50% aukning frá árinu 1999. Fjölgunin hefur orðið mest hjá karlmönnum yfir fimmtugt. 30.11.2004 00:01
Stjórnvöld bregðist við vandanum Bæjarmálafélag Frjálslynda flokksins á Húsavík ítrekar fyrri ályktun sína frá því 15. september síðastliðinn þar sem félagið skoraði á stjórnvöld að bregðast þegar við þeim alvarlega vanda sem blasti við Mývatnssveit þegar starfsemi Kísiliðjunnar legðist af. 30.11.2004 00:01
Flensan bankar á Inflúensutilfellum hefur heldur fjölgað í nágrannalöndum okkar, að því er Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá landlæknisembættinu, segir, en í litlum mæli þó. 30.11.2004 00:01
Færri barnaslys í kennaraverkfalli Um það bil 160 færri slys urðu á börnum á þeim tíma sem kennaraverkfallið stóð yfir en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. 30.11.2004 00:01
Samningaviðræðum slitið í Úkraínu Stjórnarandstaðan í Úkraínu hefur slitið samningaviðræðum um hinar umdeildu forsetakosningar í síðustu viku. Jafnframt hefur stjórnarandstaðan hvatt stuðningsmenn sína til þess að umkringja á ný opinberar byggingar og hefur hún krafist þess að þingið verði kallað saman til neyðarfundar síðar í dag. 30.11.2004 00:01
FÍS mótmælir hækkun áfengisgjalds FÍS, Félag íslenskra stórkaupmanna, mótmælir harðlega frumvarpi til laga sem Alþingi samþykkti með hraði í gærkvöld um að áfengisgjald á sterkt áfengi hækki um 7%. Í tilkynningu frá félaginu segir að lagasetning þessi sé í algerri andstöðu við það sem hefur verið að gerast í nágrannalöndum okkar undanfarið ár. 30.11.2004 00:01
31 látinn hið minnsta Að minnsta kosti þrjátíu og einn fórst og fjölmargir slösuðust þegar farþegaþotu hlekktist á í lendingu á indónesísku eyjunni Jövu í dag. 153 voru um borð í þotunni sem er af gerðinni McDonnell-Douglas MD-82. Vélin tilheyrði lággjaldaflugfélaginu Lion Air. 30.11.2004 00:01
Rottuplága í Svíþjóð Íbúar í námubænum Kiruna í Norður Svíþjóð berjast nú við mikla rottuplágu sem er hreinlega að gera þá vitlausa. Talið er að rotturnar komi með úrgangi frá Noregi sem er sendur í endurvinnslustöð í Kiruna. 30.11.2004 00:01
Óþolandi baggi fyrir veitingahús Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að samtökin hafi lengi barist fyrir lækkun áfengisgjalds sem sé margfalt hærra en í helstu samkeppnislöndum, s.s. Evrópusambandslöndunum, og því óþolandi baggi fyrir veitingahús á Íslandi sem eru í alþjóðlegri samkeppni. 30.11.2004 00:01
Samningar lausir hjá BSRB Samningar flestra aðildarfélaga BSRB voru lausir frá og með 30. nóvember. 30.11.2004 00:01
Hjónabönd samkynhneigðra leyfð? Áfrýjunardómstóll í Suður-Afríku hefur úrskurðað að lög um hjónaband nái einnig til samkynhneigðra. Málið fer nú fyrir stjórnarskrárdómstól Suður-Afríku sem er æðsti dómstóll landsins. Hann sker úr um hvort hjónabönd samkynhneigðra verða leyfð opinberlega. 30.11.2004 00:01
Ráðstöfunartekjur aukast verulega Ráðstöfunartekjur landsmanna aukast verulega að mati fjármálaráðuneytisins þegar skattalækkun ríkisstjórnarinnar verður komin að fullu til framkvæmda. Ný verðbólguspá Seðlabankans verður kynnt á morgun </font /></b /> 30.11.2004 00:01
Kennarar tvístígandi Margir kennarar eru tvístígandi í afstöðu sinni til kjarasamningsins og hafa því beðið með að greiða atkvæði meðan þeir reyna að ákveða sig. 30.11.2004 00:01
Atkvæðagreiðslu lýkur í dag Atkvæðagreiðslu um kjarasamning kennara lýkur í dag klukkan sex og fara öll atkvæði í póst til Kennarasambandsins í dag. 30.11.2004 00:01
Stílaði hasssendingu á föður sinn Tuttugu og tveggja ára maður hefur verið ákærður fyrir innflutning á fimmtán kílóum af hassi í félagi við föður sinn og tvo jafnaldra sína. Efnin flutti maðurinn í þremur skipaferðum frá Danmörku. Aðalmeðferð í málinu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 30.11.2004 00:01