Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reynt að rangtúlka skattalækkanir "Það er búið að lækka skatta stórlega á fyrirtæki og það hefur skilað ríkissjóði auknum tekjum því fyrirtækin efldust. Nú er komið að venjulegu vinnandi fólki," sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra í erindi á fundi með sjálfstæðismönnum á Grand Hotel í gærmorgun. 27.11.2004 00:01
Vill flytja sendiráðið "Við erum komin á þann tímapunkt að það þarf að ræða það alvarlega við utanríkisráðuneytið að finna bandaríska sendiráðinu annan stað," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir verðandi borgarstjóri. 27.11.2004 00:01
Sjö menn yfirheyrðir Maðurinn sem lokkaði níu ára gamla stúlku upp í bíl til sín í Kópavogi og skildi hana eftir á Mosfellsheiði á miðvikudaginn var enn ófundinn þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Lögreglan í Kópavogi hefur yfirheyrt alls sjö menn vegna málsins og segir rannsókn vera í hefðbundnum farvegi. 27.11.2004 00:01
Mótmælendum fjölgar Mótmælendur í Kænugarði í Úkraínu virðast ekki ætla að láta af aðgerðum sínum fyrr en þeir fá sínu framgengt. Ef eitthvað er, fjölgar þeim. Hæstiréttur landsins ætlar að fjalla um ásakanir Viktors Júsjenkós og stjórnarandstöðunnar þess efnis, að víðtæk kosningasvik hafi verið framin. 26.11.2004 00:01
Ekki fundinn Víðtæk leit og eftirgrennslan lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og víða um land, að ungum manni, sem er grunaður um að hafa lokkað níu ára stúlku upp í bíl sinn í kópavogi í fyrradag og skilið hana eftir á Þingvallavegi á Mosfellsheiði, hefur enn engan árangur borið. 26.11.2004 00:01
Blair myndi ná kjöri Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, myndi merja sigur yrði gengið til kosninga á Bretlandi í dag. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var fyrir Daily Telegraph og birt var í morgun. 35% aðspurðra kváðust styðja Verkamannaflokkinn, sem er þremur prósentum meiri stuðningur en Íhaldsmenn fengu. 26.11.2004 00:01
Ekki til Írak á þakkargjörðarhátíð George Bush Bandaríkjaforseti ákvað að heimsækja ekki bandarískar hersveitir í gær, á þakkagjörðahátíðinni, en í fyrra birtist hann óvænt í Írak. Í þetta sinn lét hann duga að hringja til Íraks frá búgarði sínum í Crawford í Texas. 26.11.2004 00:01
Vaxtabætur skerðist Hagdeild Alþýðusambands Íslands telur að stjórnvöld ætli aftur að skerða vaxtabætur með afturvirkum hætti, með því að tilkynna nú að að fólk fái 95 prósent af þeim vaxtabótum sem það hafði reiknað með að fá að fullu á árinu, samkvæmt gildandi reglum. Hagdeildin telur það algerlega óviðunandi. 26.11.2004 00:01
Barghouti í framboð Marwan Barghouti, einhver herskáasti og jafnframt vinsælasti leiðtogi í röðum Palestínumanna, lýsti því yfir í gær að hann hygðist bjóða sig fram til forseta Palestínu. Barghouti skorar þannig óbeint á hólm Mahmoud Abbas, sem nýtur stuðnings Fatah-hreyfingarinnar og fleiri. Barghouti nýtur mun meiri vinsælda en Abbas meðal almennings. 26.11.2004 00:01
Gæsluvarðhaldið framlengt Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einum mannanna, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi um tíma vegna rannsóknar á Dettifossmálinu svonefnda. Málið á rætur að rekja aftur til mars mánaðar, þegar þremur kílóum af amfetamíni var smyglað til landsins í vörusendingu með Dettifossi. 26.11.2004 00:01
Réðst á akandi leigubílstjóra Ölóður maður réðst á leigubílstjóra, þegar þeir voru á leið um suðurlandsveg á móts við Litlu Kaffistofuna í gærmorgun og mátti minnstu muna að leigubílstjórinn missti stjórn á bíl sínum á fullri ferð. Árásarmaðurinn sló meðal annars tvær tennur úr bílstjóranum, áður en bílstjóranum tókst að koma óðum manninum út úr bílnum. 26.11.2004 00:01
Óhagstæður viðskiptajöfnuður Vöruskiptajöfnuður landsmanna við útlönd var óhagstæður um 4,6 milljarða í síðasa mánuði, sem er tæplega tveimur milljörðum meiri vöruskiptahalli en í sama mánuði í fyrra. 26.11.2004 00:01
Lækka vextina Lífeyrissjóður Verslunarmanna hefur lækkað vexti af lánum til sjóðsfélaga niður í 4,15 prósent, eða sömu vexti og gilda nú hjá íbúðalánasjóði og bönkunum. Lánin eru með föstum vöxtum til fjörutíu ára, ekkert uppgreiðslugjald er tekið ef þau eru greidd upp, en veðhlutfall getur hæst orðið 65%, eða mun lægra en hjá bönkunum, sem lána allt upp í heildar kaupverðið. 26.11.2004 00:01
Á ný saman í meirihluta Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn mynduðu á ný meirihluta í bæjarstjórn Dalvíkur í gærkvöldi, en upp úr samstarfi flokkanna slitnaði nýverið vegna ágreinings um framtíð grunnskólans í Svarvaðadal. 26.11.2004 00:01
Nærri orðið stórslys Litlu munaði að stórslys yrði á Gardermoen-flugvelli í Osló á mánudaginn, þegar aðeins munaði nokkrum sekúndum að tvær farþegaþotur SAS-flugfélagsins rækjust saman. Talið er að snarræði flugmanna hafi komið í veg fyrir slysið. 26.11.2004 00:01
Konur í 10 af 14 æðstu stöðum Konur munu bráðlega skipa 10 af 14 æðstu stöðum innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar. Borgarráð samþykkti í gær skipan í 13 stöður og nú um mánaðamótin mun svo Steinunn Valdís Óskarsdóttir taka við embætti borgarstjóra, sem er 14. staðan. 26.11.2004 00:01
Kostnaður lækkar um 250 milljónir Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna kennaraverkfallsins lækkar um 250 milljónir króna. Það þýðir að níu mánaða uppgjör borgarsjóðs, sem lagt var fram í borgarráði í gær, er 28 milljónir yfir áætlun. Borgarstjóri sagði að svo lítið frávik, eða 0.09% sé fáheyrt í um 30 milljarða króna rekstri. 26.11.2004 00:01
Hvatt til vitundarvaknigar V-dags samtökin ætla að vera með uppákomu við Hæstarétt klukkan hálf fimm í dag. Samtökin hvetja Hæstarétt til vitundarvakningar, og vilja breyta viðhorfum fólks til fórnarlamba kynferðisofbeldis, og segja enn þann dag í dag of algengt sjónarmið að fórnarlömb beri ábyrgðina með hegðun sinni. Uppákoman felst í gjörningi nemenda í Listaháskóla Íslands. 26.11.2004 00:01
Fær ekki dánarbætur Eiginkona manns sem lést í slysi fyrir fjórum árum fær engar dánarbætur frá ríkinu, þar sem slysið telst ekki vinnuslys, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Maðurinn kom á vinnutíma heim til dóttur sinnar og fékk lánaðan bíl. Ekki er vitað hvaða erindi hann ætlaði að reka, en hann fannst svo látinn í bílnum í höfninni við Grandagarð. 26.11.2004 00:01
Dollarinn í sögulegu lágmarki Gengi Bandaríkjadollars gagnvart krónunni er komið niður fyrir 66 krónur og hefur það ekki verið jafn lágt í sjö ár. Fyrir nokkrum misserum rauk gengi dollars upp í hundrað og tíu krónur, en lækkaði fljótt aftur og var um hríð á milli 70 og 80 krónur. 26.11.2004 00:01
400 börn í íslenskuskóla á netinu Fjögur hundruð íslensk börn búsett um allan heim ganga í sama íslenskuskólann, sem er á netinu. Skólinn er hugsaður til að viðhalda kunnáttu í móðurmálinu. 26.11.2004 00:01
Enn ekki fundinn Víðtæk leit og eftirgrennslan lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og víða um land, að ungum manni, sem er grunaður um að hafa lokkað níu ára stúlku upp í bíl sinn í Kópavogi í fyrradag og skilið hana eftir á Þingvallavegi, hefur enn engan árangur borið. 26.11.2004 00:01
Hætta auðgun úrans Stjórnvöld í Íran hafa heitið Evrópusambandinu og Alþjóðakjarnorkustofnuninni að standa við loforð sitt um að hætta auðgun úrans og öllum öðrum tengdum aðgerðum. Þetta er haft eftir írönskum embættismanni, sem fundaði með fulltrúum Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar í Vínarborg í morgun. 26.11.2004 00:01
Skuldir heimilanna hafa nífaldast Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum, og hafa skuldir heimilanna nífaldast síðan 1980. BSRB lét hagfræðinga sína, Hildigunni Ólafsdóttur og Ragnar Ingimundarson, gera fyrir sig skýrslu um skuldir þjóðarbúsins. Þar kemur fram að íslenska þjóðarbúið sekkur sífellt dýpra í skuldasúpuna og nú er svo komið að Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum. 26.11.2004 00:01
Enn boðað til neyðarfundar Þingið í Úkraínu hefur boðað til neyðarfundar til að fjalla um ástandið í landinu vegna forsetakosninganna. Forseti Póllands og yfirmaður utanríkismála Evrópusambandsins eru komnir til Kænugarðs til að reyna að miðla málum. 26.11.2004 00:01
Landsímagjaldkeri á morðingjagangi Fyrrum aðalgjaldkeri Landssímans, Sveinbjörn Kristjánsson, sem var dæmdur fyrir að stela 260 milljónum króna, er byrjaður að afplána fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm sinn á Litla-hrauni. Þar býr hann innan um morðingja, ofbeldismenn og fíkniefnasala. Hann fær að vera á fyrirmyndargangi og býr í næsta klefa við Hákon Eydal, sem myrti Sri Rahmawati. 26.11.2004 00:01
Ekki flutt nema sátt ríki Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir alveg klárt að verkefni verði ekki flutt frá ríki til sveitarfélaga nema full sátt náist um alla þætti þess. Hann segir hugsanlegt að veita verði frekara fjármagni til sveitarfélaga sem standa illa fjárhagslega. 26.11.2004 00:01
4 drepnir á græna svæðinu Fjórir starfsmenn bresks öryggisfyrirtækis í Baghdad voru drepnir í árás skæruliða á hið svokallaða græna svæði í gærkvöldi. Þá eru 15 slasaðir eftir árásina. Það færist í vöxt að gerðar séu árásir á græna svæðið, þar sem sendiráð Bandaríkjanna og Bretlands hafa aðsetur, sem og bráðabirgðastjórn Íraka. 26.11.2004 00:01
40 á sjúkrahús eftir rútuslys A.m.k 40 manns voru fluttir á sjúkrahús í Bretlandi í dag eftir að rúta lenti í árekstri á þjóðveginum milli Southampton og Oxford. Að minnsta kosti fjórir farþegar rútunnar meiddust á hrygg og bílstjórar beggja ökutækja slösuðust einnig. 26.11.2004 00:01
Þora ekki heim Stjórnarmenn olíurisans Yukos ætla að halda sig utan Rússlands enn um sinn, þar sem þeir eru smeykir um aðgerðir stjórnvalda gegn sér. Fjármálastjóri Yukos var í vikunni færður í yfirheyrslur hjá saksóknara og segjast hátt settir menn innan fyrirtækisins ekki treysta sér til þess að dvelja í heimalandi sínu fyrr en þeir geta verið vissir um að handtökur vofi ekki yfir. 26.11.2004 00:01
Bin Laden ekki í Pakistan? Hvorki finnst tangur né tetur af Osama Bin Laden, þrátt fyrir ítrekaða leit pakistanska hersins við landamæri Afghanistan, þar sem Bin Laden er sagður halda sig. Yfirmaður innan hers Pakistana segir þetta óyggjandi sönnun þess að Bin Laden sé alls ekki við landamærin 26.11.2004 00:01
Fjórðungur veit ekki af smiti Meira en fjórðungur HIV-smitaðra einstaklinga í Bretlandi vita ekki af veikindum sínum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi um HIV og alnæmi. Afar mikilvægt er að fólk fái meðhöndlun sem allra fyrst og því slæm tíðindi að heill fjórðungur HIV-smitaðra séu grunlausir um smit sitt. 26.11.2004 00:01
19 látast vegna kulda í Tyrklandi 19 manns hafa látist af völdum kuldabola í Tyrklandi undanfarna viku. Nokkrir hafa beinlínis látist úr kulda, en aðrir hafa dottið í hálku eða látist óbeint af völdum frosthörkunnar sem ríkt hefur í Tyrklandi síðustu daga. Þá hafa nokkrir skólar neyðst til þess að leggja niður starfsemi síðustu tvo dagana, flugumferð hefur víða legið niðri og vegir til sveitahéraða eru lokaðir. 26.11.2004 00:01
Fimm vísbendingar athugaðar Lögreglan í Kópavogi hefur kannað fimm vísbendingar vegna leitar að ungum manni, sem er grunaður um að hafa lokkað níu ára stúlku upp í bíl sinn í Kópavogi í fyrradag og skilið hana eftir á Þingvallavegi. Leit að manninum hefur enn engan árangur borið. 26.11.2004 00:01
11 látnir eftir jarðskjálfta Að minnsta kosti 11 létust og 65 eru slasaðir eftir að öflugur jarðskjálfti skók Indónesíu í morgun. Byggingar hrundu til grunna og eldur kviknaði í skjálftanum, sem mældist 6,4 á richter. 26.11.2004 00:01
4 milljónir starfsmanna þarf Fjórar milljónir alþjóðlegra heilbrigðisstarfsmanna til viðbótar þarf til ef heilsu fólks um gjörvallan heim á að fara fram næsta áratuginn. Þetta er mat hóps eitt hundrað yfirmanna úr heilbrigðisgeiranum víðs vegar um heiminn. 26.11.2004 00:01
90 handteknir 90 manns hafa verið handteknir á Spáni vegna dreifingar á barnaklámi á netinu. Á meðal hinna handteknu voru kennarar, hermenn, verkfræðingar og háskólanemendur. Þetta er viðamesta rassía sem spænska lögreglan hefur gert í máli sem þessu. Alls var leitað á 87 heimilum, meira en hundrað tölvur gerðar upptækar og þúsundir geisladiska yfirfarnir. 26.11.2004 00:01
Internet explorer meingallað Tölvunotendur eiga að hætta að nota Internet explorer vafrann samkvæmt tölvusérfræðingum á Norðurlöndunum. Danska fyrirtækið Cert, sem sérhæfir sig í tölvuöryggismálum, segir mikla ágalla á Internet explorer, sem gefi óprúttnum aðilum möguleika á að leika tölunotendur grátt. 26.11.2004 00:01
400 þús. fyrir ólöglega handtöku Íslenska ríkið var í héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða sambýlisfólki samtals 400 þúsund krónur í bætur fyrir ólögmæta handtöku. Þau voru handtekin vegna gruns um að þau hefðu aðstoðað fólk við að koma ólöglega til Íslands. Húsleit hjá þeim var hinsvegar talin lögleg. 26.11.2004 00:01
Jólasveinn skotinn Vopnaður bankaræningi, íklæddur jólasveinabúningi lést í Þýskalandi í dag. Ræninginn hafði ásamt öðrum manni, sem einnig var klæddur sem jólasveinn, haft á brott með sér nokkrar milljónir króna, þegar til skotbardaga kom. Einn lögreglumaður slasaðist alvarlega, en sá jólasveinanna sem ekki varð fyrir skoti náði að flýja af vettvangi og er enn ófundinn. 26.11.2004 00:01
Ekki sameining í bili Ákveðið hefur verið að sameina ekki Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis og Sparisjóð vélstjóra. Viðræður um sameiningu hafa staðið yfir síðan í byrjun október og mikil vinna lögð í að kanna kosti sameiningar. Niðurstaðan er að ekki sé tímabært að sameina sjóðina. 26.11.2004 00:01
Verðbólgan minni en áætlað var Greiningardeild KB banka spáir 3,5% prósenta verðbólgu á árinu, sem er minna en áður var áætlað. Það er einkum sterkt gengi krónunnar og lækkun eldsneytis dregur úr verðbólgu, sem verður með allra minnsta móti nú í desember, telur KB banki. 26.11.2004 00:01
Nokkrir yfirheyrðir Lögreglan hefur yfirheyrt nokkra karlmenn vegna barnsránsins í Kópavogi í fyrrakvöld. Hugsanlegt er að sá sem ginnti stúlkuna upp í bíl sinn hafi verið á rauðum fernra dyra Lexus. Lögreglunni í Kópavogi hafa borist fjölmargar vísbendingar sem unnið er eftir, en þeir sem telja sig geta veitt einhverjar upplýsingar um málið geta hringt í númerið 560-3041. 26.11.2004 00:01
Breyta þarf viðhorfi V-dagssamtökin minntu nú síðdegis Hæstarétt á að breyta þurfi viðhorfi til fórnarlamba kynferðisofbeldis. Ætlunin var að vekja dómara til vitundar um að þeir þurfi að slíta sig frá viðhorfum um ábyrgð fórnarlamba nauðgana. Ýmis félagasamtök standa nú fyrir sextán daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. 26.11.2004 00:01
Verndarsamtök leiði ekki umræðuna Tryggja verður öryggi útflutningstekna í sjávarútvegi að mati Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. Hann sagði í ræðu á Sjómannasambandsþingi í fyrradag að nýjar reglur um efnainnihald fisks gætu orsakað skyndilegt áfall í útflutningi. 26.11.2004 00:01