Lofthernaður gegn engisprettum 20. nóvember 2004 00:01
Ísraelar hafa enn einu sinni hafið mikinn lofthernað, en í þetta skipti gegn engisprettum, sem ráðast inn í landið í stórum hópum frá Afríku. Mikill engisprettufaraldur hefur gengið norður eftir Afríku undanfarnar vikur. Þar hefur verið fátt um varnir því í fæstum löndum þeirrar álfu eiga yfirvöld flugvélar sem hægt er að nota til þess að berjast við pláguna. Engispretturnar hafa því valdið gífurlegu tjóni og í nokkrum Afríkuríkjum er hungursneyð yfirvofandi vegna þess að þær hafa étið nær allt ræktarland. Í gær fór svermurinn yfir Kaíró, höfuðborg Egyptalands, og dró fyrir sólu meðan þær flugu þar yfir. Nú eru kvikindin komin til Ísraels en þar eru menn ekki varnarlausir. Landbúnaðarráðuneytið hefur sent á loft heilan flugflota til þess að úða eitri yfir engispretturnar og drepa þær. Engispretturnar eru um sjö sentímetra langar og éta eigin þyngd á hverjum degi. Þar sem þær eru um tvö grömm að þyngd er það svo sem ekki mikið, en þegar það er margfaldað með milljónum og aftur milljónum lítur dæmið ekki eins vel út. Engispretturnar lifa frá tveimur mánuðum upp í sex og geta ferðast um 200 kílómetra á dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Sjá meira