Kosningar í Írak ákveðnar 21. nóvember 2004 00:01
Tilkynnt var í gær að fyrstu kosningarnar í Írak eftir fall Saddams Hussein verði haldnar 30. janúar. Ekki á að fresta kosningum vegna átaka í landinu. "Kjörstjórn hefur einróma samþykkt að íhuga 30. janúar sem kjördag," sagði formaður kjörstjórnar, Abdel Hussein al-Hindawi, við fréttamenn í Bagdad. Hann sagðist vona að Sameinuðu þjóðirnar myndu koma að kosningunum. Bandarískir og íraskir hermenn börðust í gær við vígamenn í höfuðborginni og annars staðar í landinu. Að minnsta kosti sjö manns létust í bardögum í nokkrum bæjum súnnímúslima. Vegna átakanna og ákalls róttækra súnnímúslima að hundsa kosningarnar hefur verið efast um að kosningarnar geti farið fram svo snemma. Í framboði verða að minnsta kosti 126 flokkar og einstaklingar, sem samþykktir hafa verið af 198 umsækjendum, til þingsins, svæðaþings Kúrda og til 18 héraðsstjórna. Kosningarnar verða næsta stóra skrefið í að færa stjórn landsins frá bandarísku herstjórninni til Íraka, sem áætlað er að gerist í júní á næsta ári. Bandaríski herinn hefur þegar tilkynnt að dvöl hermanna verði framlengd og fleiri herdeildir verði sendar til Íraks fyrir kosningarnar. Tilkynningin um kosningar er sögð mikilvæg fyrir ríkjaráðstefnu um enduruppbyggingu Íraks, sem hefst í Egyptalandi í dag. Þar munu koma saman aðilar frá G8-löndunum, Sameinuðu þjóðunum, Evrópusambandinu, Arababandalaginu og Samtökum íslamskrar ráðstefnu og nágrannar Íraka, auk þátttakenda frá Írak.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira