Íslenski boltinn

Grótta í sam­bandi við Davíð Smára

Valur Páll Eiríksson skrifar
Davíð Smári Lamude náði einstökum árangri sem þjálfari Vestra sem vann sinn fyrsta stóra titil undir hans stjórn.
Davíð Smári Lamude náði einstökum árangri sem þjálfari Vestra sem vann sinn fyrsta stóra titil undir hans stjórn. vísir/Diego

Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu hefur átt í samræðum við Davíð Smára Lamude, fráfarandi þjálfara Njarðvíkur, um að taka við þjálfun liðsins.

Þetta herma heimildir Vísis.

Davíð Smári hætti þjálfun Njarðvíkur í vikunni eftir eitt ár í starfi. Njarðvík hafnaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar á nýliðinni leiktíð og Njarðvíkingar töpuðu fyrir Þrótti í umspili um sæti í Bestu deild karla.

Davíð var áður þjálfari Kórdrengja og Vestra en hann stýrði Vestra upp í Bestu deildina og gerði þá að bikarmeisturum áður en honum var sagt upp undir lok tímabilsins í fyrra áður en Vestri féll niður í Lengjudeildina.

Grótta leitar þjálfara eftir að Rúnar Páll Sigmundsson fékk sig lausan frá félaginu til að taka við Stjörnunni í Bestu deildinni. 

Grótta hafnaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar, aðeins tveimur stigum frá falli, en var þó ekki í fallhættu undir lok móts. Liðið endaði deildina sérlega illa og tapaði síðustu fjórum leikjum tímabilsins.

Þónokkur lið í efstu tveimur deildunum leita þjálfara þessi dægrin. Auk Gróttu og Njarðvíkur leitar Völsungur einnig nýs þjálfara fyrir komandi átök í Lengjudeildinni.

Fylkir leitar þjálfara eftir að Heimir Guðjónsson tók við ÍA og Breiðablik er eina þjálfaralausa Bestu deildar félagið eftir brottför Ólafs Inga Skúlasonar.

KA, sem féll í Lengjudeildina, leitar þá eftirmanns Hallgríms Jónassonar og Eiðs Smára Guðjohnsen og KA-menn hafa tekið púlsinn á Srdjan Tufegdzic, fyrrverandi þjálfara liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×