Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sindri Sverrisson skrifar 31. október 2026 16:45 Yasin Ayari fagnar eftir markið dýrmæta gegn Manchester City. Getty/Lee Parker Brighton heldur áfram að slá í gegn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og í dag vann liðið frábæran 1-0 útisigur gegn toppliði Manchester City. Sænski landsliðsmaðurinn Yasin Ayari skoraði sigurmark leiksins en það kom strax á elelftu mínútu eftir sendingu frá Maxim De Cuyper. City heldur toppsætinu, með 21 stig, en hefur nú tapað tveimur deildarleikjum í röð og gæti misst toppsætið á morgun þegar Arsenal mætir Liverpool. Brighton er svo bara tveimur stigum frá toppnum, með 19 stig. Snemma í seinni hálfleiknum fékk De Cuyper algjört dauðafæri til að tvöfalda forskot Brighton en þrumaði hátt yfir markið. Eftir þetta tóku City-menn völdin en þeir fundu aldrei leiðina framhjá Bart Verbruggen. Hann varði til að mynda hörkuskot Iliman Ndiaye í slána og yfir, frá Matheus Nunes í dauðafæri eftir klukkutíma leik og skalla Erlings Haaland í kjölfarið. Í lokin átti svo Jérémy Doku skot úr þröngu færi nálægt markinu sem Verbruggen náði að verja í horn. City-menn sendu Gianluigi Donnarumma fram í lokin en tókst aldrei að koma boltanum í netið. Enski boltinn Fótbolti Manchester City Brighton & Hove Albion