Innlent

Sonur þing­mannsins á­kærður

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Atvikið átti sér stað í Salahverfi í Kópavogi. Myndin er úr safni.
Atvikið átti sér stað í Salahverfi í Kópavogi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað föður sínum í júlí hefur verið ákærður. Hann situr áfram í gæsluvarðhaldi.

Þetta staðfestir Sigurður Ólafsson saksóknari. 

Gæsluvarðhald mannsins rann út þann 22. október og var það framlengt. Sömuleiðis var gefin út ákæra í málinu en málið fór frá lögreglu á borð héraðssaksóknara í október.

Hinn látni var eiginmaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins og hinn grunaði sonur þeirra hjóna. Sonurinn, sem er á fimmtugsaldri, var handtekinn þann 28. júlí og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.

Hann er grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana en ekki er grunur á um að vopni hafi verið beitt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×