„Galin vinnubrögð“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 27. október 2026 17:19 Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður ræddi við Kára Sigurðsson, formann Sameykis, í Ráðhúsinu í dag. Formaður Sameykis lýsir uppsagnarhrinu dagsins hjá Reykjavíkurborg sem áfalli. Hann segir fólk enn bíða skýringa á síðustu uppsögnum og telur vinnubrögð meirihlutans galin.
Fimmtíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp í dag og í hópi þeirra eru tuttugu félagsmenn Sameykis. Þar á meðal er fólk sem starfað hefur hjá borginni í áratugi að sögn Kára Sigurðssonar, formanns Sameykis. Í einu tilviki hafi verið hringt í manneskju í veikindaleyfi og henni sagt upp störfum. Fólk sé einfaldlega í áfalli. „Áföllin eru ólík og upplifanir fólks eru ólíkar en við hvetjum fólk til að leita til okkar,“ segir Kári og bætir við að málin verði í kjölfarið skoðuð og að óskað verði eftir rökstuðningi frá borginni. „Vonandi fáum við svörin miklu fyrr en í síðustu tveimur uppsögnum. Það má benda á að einungis hefur fengist svar við helmingi þeirra fyrirspurna sem við höfum sent á borgina úr síðustu tveimur uppsagnarhrinum, sem eru auðvitað galin vinnubrögð,“ segir hann. „Fyrst þetta er allt svona fagmannlega unnið hljóta þau að geta svarað okkur með stuttum fyrirvara, að minnsta kosti innan tveggja vikna. Núna eru rúmir hundrað dagar síðan fyrstu fyrirspurnir um rökstuðning lágu fyrir og við erum enn að bíða svara.“ Stéttarfélögum var tilkynnt um uppsagnirnar í lok síðustu viku en trúnaður gilti um málið. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, sagði í dag að borgin hefði haft samráð við stéttarfélögin en Kári hafnar því. Tilkynning jafngildi ekki samráði. „Nú er verið að tala um að næsta verkefni sé að skoða veikindi starfsfólks. Hvernig ætla þau að fara að því þegar traustið er ekkert gagnvart þessum meirihluta og vanlíðan fólks á þessum vinnustað er gríðarleg?“ spyr Kári. Búið að tæta vinnustaðinn niður Kári segir ekki um sína eigin upplifun að ræða heldur sé hann að endurspegla raddir félagsfólks. „Við erum með rúmlega þrjú hundruð trúnaðarmenn í Sameyki og hittum félagsfólk reglulega. Borgin getur ekki farið í þá vegferð að skoða veikindi starfsfólks nema í samráði við starfsfólk og stéttarfélög og það byggir á trausti. Ég held að þau þurfi að fara að hugsa sinn gang um hvernig þau ætla að tala um vinnustaðinn Reykjavíkurborg og hvernig þau ætla að tala til starfsfólks.“ Hann segist vonsvikinn eftir daginn og sorgmæddur fyrir hönd félagsfólks. „Ég vann sjálfur hjá Reykjavíkurborg í hátt í tvo áratugi áður en ég fór yfir til Sameykis og það er búið að tæta þennan vinnustað niður á aðeins örfáum mánuðum.“
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira