Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 06:52 Fólk fagnaði á götum úti í gær og á sunnudag þegar ljóst var að Stúdentar fóru með sigur. Vísir/AP Stúdentalistinn í Serbíu býr sig undir stjórnarmyndunarviðræður þrátt fyrir að hafa engan skýran leiðtoga. Hreyfingin byggir á sameiginlegri ákvarðanatöku. Hreyfingin hefur enn ekki tilnefnt forsætisráðherraefni sitt en nokkrir koma til greina. Hjartalæknir, prófessor og fyrrverandi seðlabankastjóri.
Kosningar fóru fram um helgina og viðurkenndi Aleksandar Vučić, formaður stjórnarflokks Serbíu, ósigur sinn í kosningunum seint á sunnudag. Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embætta forsætisráðherra og forseta. Knúið var á um kosningar í flýti eftir tvö ár af nær látlausum mótmælum undir forystu stúdenta sem unnu stórsigur í kosningunum. Mótmælin hófust fyrir um tveimur árum þegar lestarstöð í Novi Sad hrundi og varð sextán að bana. Í frétt Guardian segir að stuðningsmenn hafi í kjölfarið flykkst út á götur til að fagna sigrinum um helgina og í gær. Þurfa að kalla saman þingið Samkvæmt niðurstöðum kosninganna hlaut Stúdentalistinn 53 prósent atkvæða, sem færir honum 141 þingmann á 250 sæta þingi, en Framfaraflokkur Serbíu (SNS), flokkur Vučić, fékk 39 prósent og þar með 103 þingmenn. Samkvæmt stjórnarskrá Serbíu ber nýju þingi að koma saman innan 30 daga frá opinberum úrslitum kosninganna og eftir það gildir 90 daga frestur til að mynda nýja ríkisstjórn. Þá þarf einnig að halda forsetakosningar fyrir 27. desember, þar sem Vučić lét af embætti til að bjóða sig fram sem forsætisráðherra. Aleksandar Vučić viðurkenndi ósigur sinn á sunnudag. Vísir/AP Í frétt Guardian segir að enn sem komið er hafi lítið komið fram um hvernig Stúdentahreyfingin, sem byggir á sameiginlegri ákvarðanatöku, muni í raun stjórna. Meðal frambjóðenda hennar voru fræðimenn, leikarar og bændur auk námsmanna, en hún er vísvitandi leiðtogalaus og án stigveldis, svo óljóst er hvern hún mun skipa forsætisráðherra og hverjir munu sitja í ríkisstjórn. Í greininni er bent á nokkra áberandi einstaklinga í hreyfingunni, til dæmis Ilija Srdanović, hjartalækni sem leiddi framboðslistann, Dejan Šoškić, fyrrverandi seðlabankastjóra, og Radomir Saičić, prófessor í efnafræði við Belgradháskóla, sem talaði fyrir hönd listans eftir sigurinn. Opinberar stofnanir mannaðar andstæðingum Þá er einnig bent á í greininni að þó svo að flokkurinn hafi fengið þingmeirihluta standi hann frammi fyrir því að flestar opinberar stofnanir eru mannaðar embættismönnum hliðhollum fráfarandi stjórn, sem flækir það verkefni að endurskipuleggja stofnanirnar, sem er eitt af þeirra helstu verkefnum. „Allir í námsmannahreyfingunni og hver einasti frambjóðandi á listanum gera sér fulla og mjög skýra grein fyrir þunga þeirrar ábyrgðar sem bíður okkar,“ sagði Ana Mirković, menntunarfræðingur við háskóla, sálfræðingur og frambjóðandi Stúdentalistans. „Við lítum ekki svo á að við séum að græða vald og forréttindi með þessum kosningaúrslitum, heldur erum við að taka á okkur sögulega skuld sem við öxlum gagnvart okkar eigin þjóð og okkar eigin börnum.“ Hreyfingin fékk meirihluta atkvæða og stuðningsmenn hafa fagnað eftir tvö ár af nær linnulausum mótmælum. Vísir/AP Mirković sagði í samtali við the Guardian að fyrsta forgangsmál hreyfingarinnar væri „félagsleg og sálræn afeitrun“ landsins. Fjórtán ára stjórnartíð Vučić hefur verið lýst sem „kennslubókardæmi“ um einræðisstjórn, þar sem flokkur hans jók tök sín á fjölmiðlum, dómskerfinu og öðrum ríkisstofnunum og kosningar einkenndust af óreglu við skráningu, hlutdrægni fjölmiðla og mútum til kjósenda. Ætla að uppræta spillingu Stefnuskrá Stúdenta snerist þannig um að berjast gegn spillingu og endurreisa réttarríkið, meðal annars með því að stofna sjálfstæða lögreglueiningu sem heyrir undir saksóknara en ekki innanríkisráðuneytið, og að losa sig við lögreglumenn sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Einnig er stefnt að því að banna skipanir flokkshollra einstaklinga í ríkisfyrirtæki og efla fjárhagslega ábyrgð og opinbert eftirlit í nýjum sjálfstæðum stofnunum. Mirković sagði að ný ríkisstjórn myndi uppræta „kerfi ógnana“ sem ýtti undir „ótta og skautun“, með því að „opna“ fjölmiðla „tafarlaust“, binda enda á þrýsting á starfsfólk hins opinbera og „stöðva stofnanalegt ofbeldi“. Frambjóðendur Stúdentalistans. Vísir/AP Hún bætti við að markmiðið væri að „endurreisa samfélagið frá grunni: fullt gagnsæi allra samninga og fjárstreymis; afpólitísering og efling dómskerfisins; endurnýjun mennta- og heilbrigðiskerfisins“, og að yfirtaka á ríkinu ætti „aldrei aftur“ að vera möguleg. Í frétt Guardian segir að lokum að sigur hreyfingarinnar marki djúpstæða pólitíska breytingu í Serbíu og gæti hugsanlega orðið öðrum námsmannahreyfingum innblástur, sem hafi sprottið upp víða um Evrópu á undanförnum vikum og krafist betri menntunar og framtíðarhorfa.
Serbía Tengdar fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Serbar á Íslandi segja serbnesk stjórnvöld meina þeim að opna kjörstað og þannig koma í veg fyrir að þeir geti nýtt kosningarétt sinn í þingkosningum sem fara fram síðar í október. Samkvæmt lögum eigi aðeins að þurfa 100 undirskriftir og viðeigandi húsnæði til að opna kjörstað. Það hafi allt verið til en stjórnvöld í Serbíu hafi hafnað umsókn þeirra og vísi þeim á að fara í næsta sendiráð að kjósa, sem er í Osló. 7. október 2026 20:02 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira
Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Serbar á Íslandi segja serbnesk stjórnvöld meina þeim að opna kjörstað og þannig koma í veg fyrir að þeir geti nýtt kosningarétt sinn í þingkosningum sem fara fram síðar í október. Samkvæmt lögum eigi aðeins að þurfa 100 undirskriftir og viðeigandi húsnæði til að opna kjörstað. Það hafi allt verið til en stjórnvöld í Serbíu hafi hafnað umsókn þeirra og vísi þeim á að fara í næsta sendiráð að kjósa, sem er í Osló. 7. október 2026 20:02