Íslenski boltinn

Gylfi valinn besti leik­maður ársins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson með verðlaun sín sem besti leikmaður Bestu deildar karla 2026.
Gylfi Þór Sigurðsson með verðlaun sín sem besti leikmaður Bestu deildar karla 2026. Vísir/Anton

Víkingurinn Gylfi Þór Sigurðsson var besti leikmaður Bestu deildar karla í fótbolta í ár en hann fékk verðlaunin afhent eftir lokaleik Víkinga í dag.

Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ afhenti Gylfa Flugleiðahornið svokallaða sem leikmaður ársins hefur fengið að passa upp í eitt ár frá því á níunda áratugnum.

Það eru leikmenn Bestu deildarinnar sem kusu en aðrir sem voru tilnefndir voru Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason hjá KR og Kennie Chopart hjá Fram.

Gylfi átti frábært tímabil og leiddi Víkingsliðið til Íslandsmeistaratitilsins annað árið í röð. Hann endaði tímabilið með níu mörk og fjórar stoðsendingar en var algjör mótor á miðju liðsins.

Gylfi Þór Sigurðsson átti frábært tímabil með Víkingum og var prímusmótor liðsins á miðjunni.Vísir/Anton




Fleiri fréttir

Sjá meira


×