Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 23. október 2026 19:50 Agla María Albertsdóttir lyfti hér Íslandsmeistaraskildunum við mikinn fögnuð liðsfélaga sinna. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Breiðablik lauk tímabilinu með sannfærandi 6-2 sigri gegn FH á Eikarvellinum í Kópavogi í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir fór á kostum og skoraði fimm mörk, þar af fjögur í fyrri hálfleik, áður en Bryndís Arna Níelsdóttir bætti við sjötta marki Blika. Hrönn Haraldsdóttir og Hafrún Birna Helgadóttir skoruðu mörk gestanna. Blikar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og luku keppni með 52 stig, níu stigum á undan FH sem endaði í öðru sæti. Leikurinn fór fjörlega af stað og var opinn á báða bóga. Það voru þó heimakonur sem náðu forystunni á tólftu mínútu. Þórdís Elva Ágústsdóttir átti þá frábæra sendingu inn fyrir vörn FH á Hrafnhildi Ásu, sem slapp ein gegn Aldísi Guðlaugsdóttur og kláraði færið af öryggi. Blikar tóku í kjölfarið völdin á vellinum og aðeins sex mínútum síðar var Hrafnhildur Ása aftur á ferðinni. Edith Kristín Kristjánsdóttir sendi boltann inn í teiginn þar sem Hrafnhildur Ása tók hann í fyrsta og þrumaði boltanum í hægra hornið. Það jafnaðist nokkuð á með liðunum þegar leið á fyrri hálfleikinn en Hrafnhildur Ása var hvergi nærri hætt. Á 37. mínútu unnu Blikar seinni boltann á miðjunni og Líf Joostdóttir van Bemmel kom honum á Hrafnhildi Ásu. Hún lét vaða langt fyrir utan teig og fullkomnaði þrennuna. Fimm mínútum síðar bætti hún fjórða markinu við. Hrafnhildur Ása komst þá fram hjá Önnu Heiðu Óskarsdóttur í vörn FH og setti boltann í vinstra hornið. Gestirnir náðu þó að svara fyrir hlé. Hrönn fékk boltann á miðjunni á 43. mínútu, lék fram hjá nokkrum Blikum og skoraði í hægra hornið. Heimakonur fóru því með þriggja marka forskot inn í hálfleik. FH hóf seinni hálfleikinn af meiri krafti en tókst ekki að skapa sér hættuleg færi. Blikar bættu hins vegar við marki á 57. mínútu og enn var Hrafnhildur Ása að verki. Agla María Albertsdóttir sendi þá boltann fyrir markið og Aldís varði boltann í Hrafnhildi Ásu, þaðan sem hann fór í netið og var þetta fimmta mark Hrafnhildar Ásu í leiknum. Það róaðist töluvert yfir leiknum eftir það en Blikar komu boltanum aftur í netið á 74. mínútu. Þær tóku hornspyrnu stutt á Öglu Maríu sem sendi inn í teiginn. Eftir nokkurt krafs náði Bryndís Arna að koma boltanum yfir línuna en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Bryndís Arna þurfti þó ekki að bíða lengi eftir öðru tækifæri. Á 80. mínútu átti Líf frábæra fyrirgjöf beint á hana og Bryndís Arna skallaði boltann í netið. FH náðu inn sárabótamarki þegar Hafrún Birna minnkaði muninn með glæsilegu marki á 87. mínútu. Hún fékk boltann á vinstri vængnum og skrúfaði hann upp í hægri samskeytin. Það breytti þó litlu um niðurstöðuna. Blikar fögnuðu öruggum sigri og luku meistaratímabilinu með markasýningu. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði fimm mörk og varð markadrottning deildarinnar. Hér fagnar hún einu af mörkum sínum.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Atvik leiksins Það er erfitt að velja eitt atvik í þessum leik en annað mark Hrafnhildar Ásu var virkilega flott. Hún tók boltann í fyrsta eftir fyrirgjöf frá Edith Kristínu Kristjánsdóttur og negldi honum í hægra hornið. Stjörnur og skúrkar Hrafnhildur Ása var óumdeildur leikmaður leiksins. Hún skoraði fimm mörk, þar af fjögur fyrir hlé, og tryggði sér Gullskóinn í leiðinni. Þetta var sannkölluð sýning hjá henni í lokaleik tímabilsins. Dómarinn Gunnar Oddur Hafliðason og teymi hans stóðu vaktina vel. Þau höfðu góð tök á leiknum og að mínu mati komu engin umdeild atvik upp. Stemning og umgjörð Það var sannkölluð hátíðarstemning á Eikarvellinum í Kópavogi. Vel var mætt í stúkuna og stuðningsfólk Blika lét vel í sér heyra allan leikinn. Besta deild kvenna Breiðablik FH