Innlent

Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir ára­mót

Birgir Olgeirsson skrifar
Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla með greiðsluþátttöku ríkisins fyrir áramót.
Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla með greiðsluþátttöku ríkisins fyrir áramót. Klíníkin

Allt að 40 efnaskiptaaðgerðir verða í boði hjá Klíníkinni Ármúla í nóvember og desember með greiðsluþátttöku ríkisins. Samkomulag hefur náðst við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd aðgerðanna, en sjúklingar þurfa að uppfylla skilyrði stofnunarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klíníkinni. Samkomulagið er niðurstaða viðræðna undanfarinna mánaða og byggist á þjónustusamningi frá árinu 2025. Það nær til tímabilsins frá 1. nóvember til 31. desember á þessu ári.

Efnaskiptaaðgerðir eru skurðaðgerðir sem beitt er við meðferð offitu, meðal annars magaermi og magahjáveita.

Hafa sótt aðgerðir til Svíþjóðar

Í tilkynningunni segir að sjúklingar hafi frá árinu 2022 sótt þjónustuna til Svíþjóðar á vegum ríkisins. Efnaskiptaaðgerðir hafa jafnframt verið framkvæmdar á Landspítala með opinberri greiðsluþátttöku, eins og fram kemur í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi.

Aðgerðirnar hefjast í nóvember og þurfa sjúklingar að uppfylla skilyrði Sjúkratrygginga Íslands fyrir greiðsluþátttöku.Klíníkin

Klíníkin hefur samkvæmt tilkynningunni framkvæmt efnaskiptaaðgerðir í um áratug. Að meðferðinni kemur teymi heilbrigðisstarfsfólks úr ólíkum fagstéttum og áhersla er lögð á skipulagða eftirfylgd.

„Við fögnum því að þessi mikilvæga þjónusta verði nú aðgengileg fleiri sjúklingum hér á landi. Efnaskiptaaðgerðir eru gott dæmi um heilbrigðisþjónustu sem við höfum bæði þekkingu og aðstöðu til að veita á Íslandi,“ segir Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Ármúla, í tilkynningunni.

Vilja horfa til ferðakostnaðar og skatttekna

Klíníkin telur að aðgerðir hér á landi geti dregið úr álagi á sjúklinga og aðstandendur með því að fækka utanlandsferðum. Þá geti verið auðveldara að tryggja samfellda þjónustu frá undirbúningi að eftirfylgd.

Félagið leggur jafnframt áherslu á að við samanburð á kostnaði við aðgerðir hér og erlendis þurfi að taka tillit til ferðakostnaðar, atvinnusköpunar og skatttekna af innlendri starfsemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×