Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Gunnar Berg Stefánsson skrifar 10. október 2026 15:55 Gils Gíslason skoraði þrennu í dag. Vísir / Hulda Margrét FH tryggði áframhaldandi veru sína í Bestu deild karla með 5–3 sigri á Val á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Gils Gíslason fór á kostum hjá gestunum, skoraði þrennu og lagði upp eitt mark. FH var þremur mörkum yfir í hálfleik og þótt Valsmenn sýndu meiri kraft eftir hlé náðu þeir aldrei að brúa bilið. Hafnfirðingar hafa nú unnið alla þrjá leiki sína eftir skiptingu deildarinnar og skorað þrettán mörk í þeim. Valur hafði þegar tryggt sæti sitt fyrir leikinn. Gestirnir voru aðeins tvær mínútur að komast yfir. Gils vann boltann með góðri pressu inni í vítateig Vals og renndi honum fyrir markið á Adolf Daða Birgisson sem skoraði í opið markið. Valsmenn komust í ágætar stöður þrátt fyrir þessa köldu sturtu en skot þeirra lentu hvað eftir annað í varnarmönnum FH. Á hinum endanum munaði litlu að Hörður Ingi Gunnarsson skoraði sjálfsmark þegar hann ætlaði að skalla boltann aftur fyrir í horn en sendi hann í samskeytin. Annað mark FH kom á sextándu mínútu eftir vel útfærða hornspyrnu. Kjartan Kári Halldórsson sendi fastan bolta á nærstöngina þar sem Birkir Valur Jónsson flikkaði honum áfram. Tómas Orri Róbertsson beið við markið og skallaði boltann í netið. Gils reyndist Valsmönnum afar erfiður viðureignar með hraða sínum og krafti. Hann slapp einn í gegn á 22. mínútu en Frederik Schram varði glæsilega. Sjö mínútum síðar varð markvörðurinn hins vegar að játa sig sigraðan. Jóhannes Kristinn Bjarnason vann þá boltann á miðjunni og kom honum á Gils sem keyrði upp vallarhelming Vals og lauk sprettinum með því að lyfta boltanum yfir Schram. Staðan orðin 3–0. Schram kom í veg fyrir að munurinn yrði meiri fyrir hlé, meðal annars með góðri vörslu frá Jóhannesi Kristni úr dauðafæri. FH fór engu að síður með þægilegt forskot til búningsklefa. Valsmenn komu af meiri krafti inn í síðari hálfleikinn og minnkuðu muninn á fimmtugustu mínútu. Lúkas Logi Heimisson keyrði í gegnum miðju FH og sendi Dag Orra Garðarsson einan í gegn. Dagur afgreiddi boltann örugglega framhjá Jökli Andréssyni. Vonir heimamanna um endurkomu fengu þó þungt högg þegar Gils skoraði tvívegis á tveimur mínútum. Á 56. mínútu sendi Jóhannes Kristinn boltann í gegn á Gils sem var einn á móti Hólmari Erni Eyjólfssyni. Gils fór framhjá varnarmanninum, færði boltann yfir á vinstri fótinn og skoraði. Tveimur mínútum síðar fékk hann boltann eftir misheppnaðan skalla Harðar Inga og endurtók leikinn gegn Hólmari. Þrennan fullkomnuð og FH komið í 5–1. Gestirnir fengu færi til að bæta við en Schram hélt áfram að verja vel. Hann varði meðal annars skalla Adolfs Daða eftir fyrirgjöf Gils, sem fór af velli á 79. mínútu eftir frábæran leik. Valur lagaði stöðuna undir lokin. Jakob Franz Pálsson skoraði með hælspyrnu eftir hornspyrnu Tryggva Hrafns Haraldssonar á 84. mínútu og Shkelzen Veseli bætti þriðja markinu við á þeirri nítugustu. Jökull gaf þá boltann frá sér fyrir framan eigin teig og Lúkas Logi sendi Veseli einan í gegn. Nær komust heimamenn ekki og FH-ingar fögnuðu þriðja sigri sínum í röð og því að hafa tryggt sér sæti í deildinni á næsta tímabili. Atvik leiksins Fyrsta mark Gils fær þetta atkvæði. Jóhannes Kristinn vann boltann á miðjunni og Gils tók við, keyrði upp vallarhelming Vals og lyfti boltanum yfir Schram. Hraðinn og yfirvegunin í afgreiðslunni einkenndu frammistöðu hans í dag. Stjörnur og skúrkar Gils Gíslason var maður leiksins. Þrenna, stoðsending og stöðug ógn við vörn Vals. Hann lagði grunninn að sigrinum með pressunni í fyrsta markinu og slökkti svo endurkomuvonir heimamanna með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Jóhannes Kristinn Bjarnason átti einnig góðan leik og lagði upp tvö af mörkum Gils. Frederik Schram fær svo kall þrátt fyrir mörkin fimm sem hann fékk á sig. Hann varði nokkur dauðafæri og kom í veg fyrir að FH skoraði enn fleiri mörk. Varnarleikur Vals var aftur á móti langt frá því að vera nægilega góður. Heimamenn voru berskjaldaðir þegar FH vann boltann og réðu illa við hraðann í sókn gestanna. FH-ingar slökuðu þó á undir lokin og hleyptu Valsmönnum úr 5–1 í 5–3. Dómararnir Twana Khalid Ahmed dæmdi leikinn og honum til aðstoðar voru Ragnar Þór Bender og Ronnarong Wongmahadthai. Engin vafaatriði komu upp og dómarateymið hafði góð tök á leiknum. Stemning og umgjörð Fínasta veður og góðar aðstæður voru á Hlíðarenda. Það var ekki mjög fjölmennt í stúkunni að þessu sinni og það heyrðist mun meira í stuðningsmönnum gestanna. Liðin sáu svo um skemmtunina með átta mörkum og fjölda færa í fyrsta deildarleik sínum eftir langt landsleikjahlé. Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla FH Valur