Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Árni Sæberg skrifar 7. október 2026 14:47 Héraðsdómur Reykjavíkur óskaði eftir ráðgefandi áliti frá EFTA og mun dæma í málinu á grundvelli þess. Vísir/Vilhelm Að mati EFTA-dómstólsins má Þjóðskrá ekki neita að viðurkenna faðerni barns sem getið er með staðgöngumæðrun, sem er ólögleg á Íslandi, að því gefnu að faðernið hafi verið viðurkennt í öðru EES-ríki.
Þetta er niðurstaða dóms dómstólsins í dag, þar sem hann svaraði spurningum sem Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði til hans varðandi túlkun tilskipunar og greinar EES-samningsins um frjálsa för launþega með ráðgefandi áliti. Í samantekt dómsins á vef EFTA-dómstólsins segir að spurningarnar hafi einkum lotið að því því hvort rétturinn til frjálsrar farar krefjist þess að EES-ríki viðurkenni lagaleg foreldratengsl sem komist hafa á með gildum hætti í öðru EES-ríki. Málið sem Héraðsdómur Reykjavíkur hefur til meðferðar varði fjögurra manna fjölskyldu, sem samanstandi af samkynja pari, annars vegar íslenskum, sænskum og bandarískum ríkisborgara og hins vegar frönskum og bandarískum ríkisborgara og börnum þeirra tveimur. Börnin tvö hafi verið getin með sæði feðranna og eggjum frá eggjagjöfum með staðgöngumæðrun sem fór fram í Bandaríkjunum. Viðurkennt í Bandaríkjunum og Svíþjóð en ekki hér Fjölskyldan hafi síðar flutt til Svíþjóðar þar sem sænskur dómstóll hafi staðfesti foreldratengsl á grundvelli úrskurðar dómstóls í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Þegar foreldrarnir leituðu eftir því að fá börnin skráð í Þjóðskrá Íslands hafi því hins vegar hafnað að skrá annað barnið sem son annars föðurins, þó svo að hann sé íslenskur ríkisborgari, á þeim grundvelli að staðgöngumæðrun sé bönnuð á Íslandi. Þegar íslensk stjórnvöld voru spurð um ættleiðingu sem annan valkost hafi því verið svarað að slíkt væri ólíklegur valkostur þar sem fjölskyldan byggi í Svíþjóð og nyti lagalegrar viðurkenningar þar. Feðurnir hafi því höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til ógildingar á þeirri ákvörðun Þjóðskrár Íslands að synja um skráningu þar sem slík synjun bryti gegn rétti þeirra til frjálsrar farar samkvæmt EES-samningnum. Í dómi sínum haf EFTA-dómstóllinn tekið fram að tilskipunin skilgreindi aðstandanda EES-ríkisborgara sem, meðal annars, „afkomanda í beinan ættlegg“. Þá yrði, í ljósi markmiða tilskipunarinnar, að túlka hugtakið „afkomandi í beinan ættlegg“ sem svo að það næði yfir hvers kyns tengsl foreldis og barns, hvort sem þau eru líffræðilegs eða lagalegs eðlis. Dómstóllinn hafi bent á að ákvæði EES-réttar yrði að túlka með hliðsjón af grundvallarréttindum sem séu hluti meginreglna EES-réttar og að Mannréttindasáttmáli Evrópu og Réttindaskrá Evrópusambandsins séu mikilvægar heimildir við afmörkun umfangs þeirra grundvallarréttinda. Þá hafi EFTA-dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að samband barns og þeirra einstaklinga sem hann lifir fjölskyldulífi með í öðru EES-ríki njóti verndar samkvæmt EES-rétti. EES-ríkjum beri því samkvæmt tilskipuninni að viðurkenna sem „afkomanda“ ríkisborgara EES-ríkis „í beinan ættlegg“ barn sem tengist þeim ríkisborgara foreldratengslum sem njóta lagalegrar viðurkenningar í öðru EES-ríki, í samhengi beitingar grundvallarréttarins til frjálsrar farar og afleiddrar löggjafar honum tengdum. Geti skapað verulega hindranir ef tengsl eru ekki viðurkennd Þá hafi dómurinn einnig talið að það væri á forræði löggjafa hvers EES-ríkis að mæla fyrir um reglur um skráningu í þjóðskrá, ákveða skilyrði fyrir öflun og missi ríkisfangs, auk þess að kveða á um hvort staðgöngumæðrun skuli heimil samkvæmt landsrétti eða ekki. EES-ríki yrðu samt sem áður að hlíta viðkomandi ákvæðum EES-réttar við beitingu þessara valdheimilda. EES-ríki þyrftu einkum að hlíta ákvæðum EES-samningsins sem veita réttinn til að flytja og hafa búsetu innan Evrópska efnahagssvæðisins með því að viðurkenna í því tilliti persónustöðu einstaklinga sem til hefur stofnast í öðru EES-ríki í samræmi við löggjöf þess EES-ríkis. „Þar sem íslenski faðirinn hafði nýtt rétt sinn til frjálsrar fara með því að hefja störf í Svíþjóð, fæli synjunin um skráningu barnsins í sér takmörkun á réttinum til frjálsrar farar launþega samkvæmt 28. gr. EES-samningsins. EFTA-dómstóllinn benti á að staða aðstandenda sé grundvöllur margvíslegra réttinda og skyldna sem spretta bæði af EES-rétti og landsrétti. Ef fjölskyldutengsl sem stofnað hefur verið til í öðru EES-ríki eru ekki viðurkennd geta skapast verulegar hindranir í vegi fjölskyldulífs á Íslandi, eins og t.d. óvissa varðandi réttindi barnsins til búsetu og hindranir í tengslum við forsjá, t.d. við skilnað, og almannatryggingar, sem og varðandi hjúskapar- og erfðamál.“ Réttlætanleg takmörkun Þá hafi EFTA-dómstóllinn einnig tekið til skoðunar hvort að slík takmörkun sé réttlætanleg. Dómstóllinn hafi bent á að hvers konar ráðstöfun sem takmarkaði frjálsa för yrði að samrýmast meðalhófsreglunni, stefna að lögmætu markmiði og samræmast grundvallarréttindum. Í þessu tilliti hefði íslenska ríkið haldið því fram að skráningunni hefði verið synjað á þeim grundvelli að íslensk lög heimili ekki staðgöngumæðrun vegna sjónarmiða um allsherjarreglu. EFTA-dómstóllinn hafi tekið fram að ekki ríkti eining á meðal EES-ríkja um viðurkenningu staðgöngumæðrunar og að afleiðingar þess að synjað væri um viðurkenningu hefðu ekki eingöngu áhrif á fyrirhugaða foreldra heldur einnig barnið sjálft. Jafnframt fæli skylda til að viðurkenna persónustöðu ekki í sér skyldu til að heimila staðgöngumæðrun að landsrétti. Af því leiddi að þótt EES-ríkjum væri ekki skylt að velja þá leið að skrá efni fæðingarvottorða sem væru löglega útgefin erlendis, mega önnur úrræði ekki hafa í för með sér að gert sé ómögulegt eða óhóflega erfitt að nýta réttindi samkvæmt EES-samningnum og verði að tryggja það sem er barninu fyrir bestu. „Í ljósi þessa tók EFTA-dómstóllinn fram að möguleikinn á að skrá fjölskylduna á sama lögheimili þegar þau flyttu til Íslands væri ekki fullnægjandi valkostur, þar sem slík skráning veitti ekki full réttindi að íslenskum lögum. Að því er varðar ættleiðingu, taldi EFTA-dómstóllinn hins vegar að slík málsmeðferð gæti, almennt séð, samræmst viðkomandi kröfum EES-réttar, að því gefnu að málsmeðferðin væri bæði skjótvirk og greið og tryggði skjótvirka ákvörðunartöku þannig að barninu sé ekki haldið um lengri tíma í lagalegri óvissu. Þá má slíkt viðurkenningarferli ekki líta fram hjá þeirri staðreynd að lagaleg foreldratengsl hafi þegar komist á í öðru EES-ríki með lögmætum hætti og verði einnig að hafa hliðsjón m.a. af líffræðilegum tengslum innan fjölskyldunnar, þeim tíma sem liðinn er, þess fjölskyldulífs sem þegar er til staðar, og fullrar viðurkenningar annars EES-ríkis.“ Boltinn hjá héraðsdómi Það sé landsdómstólsins að meta hvort slíku einstaklingsbundnu mati verði komið við með fullnægjandi hætti innan ramma skráningarferlisins samkvæmt íslenskum lögum eða hvort nauðsyn beri til að áskilja sérstakt ættleiðingarferli í ljósi þess sem er barninu fyrir bestu. Í öllu falli þurfi landsdómstóllinn að tryggja að slík málsmeðferð sé skjótvirk og greið í samræmi við það sem er barninu fyrir bestu. Ráðgefandi álitið sem gefið er með dómi EFTA-dómstólsins sé skref í málsmeðferðinni sem er fyrir landsdómstólnum. Héraðsdómur Reykjavíkur muni nú hefja málsmeðferð sína á ný og dæma í málinu í ljósi dóms EFTA-dómstólsins.
EFTA Dómsmál Börn og uppeldi Fjölskyldumál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira